Morgunblaðið - 25.08.1996, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MANNSKAPURINN leggur í bjargið.
ELÍN, forsljóri Norðurlandaráðsskrif-
stofunnar, tékkar humarinn af grillinu.
ALSEY í fullum skrúða.
MAV
ÞAÐ er glæsilegt við grillið hjá Grími
og Halldóri.
ÞINGMANNAHÓPURINN og starfsmenn á svölum Álseyjarbólsins.
*
Uteyjarlíf með færeyskum, græn-
lenskum og íslenskum þingmönnum
LOKAHNYKKURINN á árs-
fundi Vestnorræna þingmanna-
sambandsins í Vestmannaeyjum
fyrir skömmu var heimsókn í
Álsey þar sem grænlensku, fær-
eysku og íslensku þingmennirn-
ir iögðu í bjargið, nutu nátt-
úrufegurðarinnar, skoðuðu
fuglalífið og þá sérstaklega
lundann sem býr í hundruðum
þúsunda í Álsey, nutu veislu-
matar Álseyinga, söngva og
hljómlistar Eyjamanna og
sungu sjálfir einum rómi á ís-
iensku, færeysku oggræn-
iensku og að sjálfsögðu var stig-
inn færeyskur dansur eftir að
Færeyingarnir höfðu dregið
grindarspik upp úr pússi sínu.
Það leist ekki öllum á blikuna
þegar björgunarbáturinn Þór
renndi upp að Álsey, en það var
að duga eða drepast, vera send-
ur hreppaflutningi í land eða ,
njóta dýrðarinnar í Álsey.
Heimsóknin í Álsey stóð í átta
klukkustundir. Sólin baðaði
brekkur, bringi og berg og
menn nutui sólarinnar á svölum
veiðihúss Álseyinga, spjölluðu
saman og slöppuðu af eftir
stranga fundadagskrá.
Veislukostur Alseyinga var
með allri sjávarflórunni og
ýmsu fleiru, grillaður lundi,
grillaður humar, ávaxtaeftir-
réttur og ostasinfónía.
Svo var sungið og trallað,
margir þingmannanna spila á
hljóðfæri og Eyjahljómsveitin
Eymenn kom í heimsókn og tók
lotu auk þess sem Færeyingam-
ir stigu færeyskan dans, Græn-
lendingarnir sungu við undir-
leik Jónatans Mosfeldt á harm-
onikku og íslendingamir létu
ekki sinn hlut eftir liggja. Svo
var siglt til Heimaeyjar aftur í
miðnætursólinni.
Texti: Árni Johnsen Ljósmyndir: Sigurgeir Jónosson
dansur stiginn í miðnætursólinni í Álsey.