Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUAUQ YSINGAR LAUS STÖRF ERUM ÞESSA DAGANA AÐ RÁÐA í FJÖLDA STARFA OG LEITUM AÐ HÆFU STARFSFÓLKI. ► Viðskiptafræðingum ► Kerfisfræðingum - Sölumönnum VINSAMLEGAST SÆKIÐ UM A EYÐUBLOÐUM SEM LIGGJA FRAMMI Á ,Sl<RIFSTOFU OKKAR SEM FYRST - Bókurum m/reynslu 1 - Saumakonum Riturum í innheimtu S - Heimilishjálp - Sölumanni í verslun - Lagermönnum ÁBENDI - RÁÐGJÖF & RÁÐNINGAR ''‘Í L A U I GAVEGUR 178 - SÍMI: 5 68 90 99 A <SFvJ>í Pizza Hut óskar eftir starfsmönnum Pizza Hut veitingastaðirnir óska eftir að ráða vant fólk til starfa. í boði eru spennandi störf fyrir duglegt, áhugasamt og hresst ungt fólk sem vill vinna vaktavinnu. Óskað er eftir starfsmönnum í 100% starf og einnig í hluta- starf. Lágmarksaldur 18 ár. Upplýsingar eru ekki veittar í síma. Umsóknareyðublöð er að finna á veitinga- stað Pizza Hut, Suðurlandsbraut 2. Nauðsyn- legt að mynd fylgi með. IGrunnskólar Hafnarfjarðar Bað- og gangavörður Bað- og gangavörður óskast í 70% starf í Engidalsskóla. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 555 4433. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði. Störf í húsgagnaverslun Við leitum að duglegu fólki í vinnu hjá fyrir- tæki, sem sérhæfir sig í vörum fyrir heimili, þ.e. húsgögnum og vefnaðarvöru. Vinnutími er til kl. 18.00. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst. Vinnustaðurinn er reyklaus. Aðstoðarmaður f ramkvæmdastjóra Krafist er góðrar menntunar, a.m.k. stúd- entsprófs eða viðskiptrafræðimenntunar og reynslu af almennum skrifstofustörfum. 2. Sölufólk, í verslun allan og hálfan daginn (e.h.). Umsækjendur þurfa að hafa nokkra tölvu- kunnáttu, góða söluhæfileika, aðlaðandi framkomu og þjónustulund. 3. Lagermaður með bílpróf, 20 ára eða eldri, hraustur og snar í snúningum. Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist til afgreiðslu Mbl., merkt- ar: „H - 1124“, fyrir 30. ágúst. Félagsmálastofnun Reykj avíkurborgar Félagsráðgjafar Félagsráðgjafa vantar til starfa við hverfa- skrifstofu fjölskyldudeildar Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar, Álfabakka 12: Annars vegar er laus staða félagsráðgjafa í meðferðarhópi. Um er að ráeða fullt starf, tímabundið í eitt ár. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk. Hins vegar er laus staða félagsráðgjafa í móttökuhópi. Þar er um að ræða tímabund- ið fullt starf í 6 mánuði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan september. Umsóknarfrestur er til 6. september nk. Umsóknareyðublöð fást á hverfaskrifstof- unni, Álfabakka 12. Nánari upplýsingar veitir Þóra Kemp, for- stöðumaður hverfaskrifstofunnar, í síma 557-4544, næstu daga. tnm MENNTASKOLINN PH í KÓPAVOGI Ræsting Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða starfsmenn til dagræstinga næsta skólaár í nýju verknámshúsi fyrir hótel- og matvæla- greinar. Starf ræstingastjóra, 6 stundir á dag. Fimm hálf störf ræsta, 4 stundir. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 554-3861 og þangað ber að skila umsóknum í síðasta lagi 1. september. Skólameistari. GESTAMOTTAKA TUNGUMÁLAKUNNÁTTA HÓTELIÐ er eitt þekktasta hótel landsins, staðsett í Reykjavík. STARFIÐ felst í móttöku dvalargesta hótelsins, bókun gistinga, daglegu uppgjöri ásamt því að vera gestum innan handar um aðra tilfallandi þjónustu. HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu með a.m.k. stúdentspróf, séu töluglöggir, hafi góða enskukunnáttu, a.m.k. eitt Norður- landamál auk þess að tala þýsku eða frönsku. Áhersla er lögð á snyrtimennsku, þægilegt viðmót og þjónustulund. UMSÓKNARFRESTUR er til og með 30. ágúst n.k. Ráðning verður sem fyrst. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem opin er frá kl.10-16, en viðtalstímar eru frá kl.10-13. ST Starfsráðningar ehf Mörkinni 3-108 Reykjavík , Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3044 RA Cutný HarÍardóttir Fjármálastjóri - innra eftirlit Þekkt fyrirtæki í þjónustu, með yfir hálfan milljarð í ársveltu óskar eftir viðskiptafræð- ingi af endurskoðunarsviði eða sambærilega menntun, eða aðila með með reynslu. Laun og byrjunartími eftir samkomulagi. Upplýsingar merktar: „B - 4338“ sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 29. ágúst og verða þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Þrif/lager Fyrirtæki f Kópavogi óskar eftir að ráða starfsmann til að annast þrif á tækjum og einnig lagerhald. Um hlutastarf erað ræða. Starfið gerir kröfur til að viðkomandi sé skipulagður og snyrtilegur í vinnubrögðum og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Vinnuaðstæður eru mjög góðar. Starfið, sem er framtíðarstarf, hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst. Ráðning verður mjög fljótlega. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14. Fólk og þekking Lidsauki ehf. W Frá Grunnskólanum í Súðavík Við bjóðum betur! Kennara vantar til starfa í 2-3 stöður. í skól- anum eru 50 nemendur í 1.-10. bekk. Meðal kennslugreina eru: Almenn kennsla, tungu- mál, stærðfræði, raungreinar, tölvukennsla, íþróttir, tónmennt og umsjón með félagslífi. Einnig vantar íþróttaþjálfara á vegum félaga- samtaka. NO er verið að taka í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði. Náin samvinna er á milli leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla, sem starfa undir sama þaki. Öll vinnuskilyrði eru með ágætum; m.a. metnaðarfullt skólastarf, nýtt íþróttahús, fullkominn tölvubúnað- ur og góð vinnuaðstaða. í boði er mikil vinna og ýmis aukahlunnindi fyrir áhugasama. Hafir þú áhuga á að taka þátt í skemmtilegu skólastarfi og um leið uppbyggingarstarfi í Súðavík, hafðu sam- band og kynntu þér hvað í boði er. Gott húsnæði til staðar. Allar nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 456 4961 og á skrifstofu Súðavíkur- hrepps í síma 456 4912. Hjúkrunarfræðingar Hinn 1. janúar sl. tók reynslusveitarfélagið Hornafjörður við allri heilbrigðis- og öldrunar- þjónustu í Austur-Skaftafellssýslu. Nú vantar okkur hjúkrunarfræðing í 100% starf hjá Skjólgarði sem yfirtók allan mála- flokkinn. Um er að ræða starf við nýtt hjúkrunarheim- ili sem tekið verður í notkun á næstu vikum. Leitað er að einstaklingi sem vill taka þátt í að byggja upp starf á nýju hjúkrunarheimili ásamt þátttöku í að móta framtíðarskipan heilbrigðis- og öldrunarmála í Austur-Skafta- fellssýslu. Umsóknir skulu sendar til Guðrúnar Júlíu Jónsdóttur hjúkrunarforstjóra, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar í síma 478 1221. Hornafirði, 23. ágúst 1996. Framkvæmdastjóri Skjólgarðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.