Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 B 5 ekki að geta komið kúm inn í fjós, sem tókst þó og þar drapst ein kýrin er fjósið féll. Þar sem menn voru á ferð fældust hestar og slitu sig lausa og var síðan illt að hand- sama þá. I Flóa þóttust menn hafa tekið eftir því, að sumarfuglar, sem þar voru margir í byijun jarðskjálft- anna hurfu.“ Þótt menn heyrðu enga fyrirboða um fyrstu jarðskjálftana og þeir kæmu eins og þruma úr heiðskíru lofti, þá sáu menn eftir á að svo virtist sem skepnur hefðu fundið á sér að eitthvað óvenjulegt væri í vændum. Einn bóndi mundi að kveldið áður en þeir hófust voru kýrnar alltaf að öskra án þess að því væri sinnt og þær höfðu alls ekki fengist til að fara inn í fjósið. Fjöldi húsa hrundi „Það var hræðilegt ástand í Ár- nes- og Rangárvallasýslum eftir að þessi refsiengill jarðarskjálftanna hafði lokið umferð sinni yfir Suður- landsundirlendið. Tvær blómleg- ustu sýslur landsins lágu flakandi í sárum, komið nærri hausti og vetri, slætti ekki lokið og bæði menn og skepnur vantaði skýli yfir höfuð sér“, skrifar séra Ólafur Ólafsson. Honum taldist svo til að húsahrunið í Rangárvallasýslu hefði verið 22 af hundraði og í Árnes- sýslu 17 af hundraði. En samtals hefðu fallið 3692 bæjarhús og fén- aðarhús. Jarðskjálftasvæðið náði austur undir Heklu. Var upptaka- svæðið austur-vestur belti þar sem Atlantshafshryggurinn hliðrast og þverbrot tengja hryggjarstykkin (sjá nánar grein í Lesbók). En utan svæðisins fundust skjálftarnir víða. M.a. fundust allharðir kippir austur í Hornafjörð, svo og um allan Reykjanesskaga. í Reykjavík voru kippirnir allsnarpir, fyrst allharður kippur, svo titringur og svo aftur harðari kippur og ekkert fullkomið hlé milli kippanna. Fólk þusti úr húsum, smádót datt niður af hillum, speglar og myndir römbuðu til á veggjum og skorsteinar löskuðust hér og hvar. Nóttina eftir fundust margir smákippir og svo hinn harði kippur um morguninn hinn 27. kl. 9.30. Fólk hljóp víða út úr húsum. Skriður nokkrar féllu úr Lágafelli og Hafnarfjalli og úr Akrafjalli hljóp mikil skriða rétt utan við bæinn Innra-Hólm. Börn flutt til Reykjavíkur Þegar jarðskjálftarnir voru um garð gengnir og ástandið var kunn- ugt orðið, þá kom hinum aðþrengdu ANNAR Selfossbærinn hrundi. Fólkið bjargaðist út um rifu í þekj- unni er baðstofan féll, nema hjónin Arnbjörn Þórarinsson og Guðrún Magnúsdóttir. Sperrubjálki úr súðinni lenti á þeim miðjum og biðu þau bana. Ljósm. Sigfús Eymundsen. ARNARBÆLI. Næst eru bæjardyr, þá baðstofa og skemma. Má sjá hvernig veggimir milli þeirra hafa kastast fram á hlaðið. Ekki var hægt að komast um bæinn því veggir vom hrundir. Fólkið hentist fram úr rúmunum, en komst út. Ljósm. Sigfús Eymundsen. BÆR Gunnars á Selfossi var best byggður og hékk timburbaðstofan uppi, en var mjög skekkt og skemmd á eftir. Ljósm. Sigfús Eymundsen. héruðum vonum bráðar mikil og góð hjálp úr ýmsum áttum, einkum úr Reykavík. En þó margir væru góðir, þá var enginn slíkur sem Björn Jónsson ritstjóri ísafoldar, að sögn séra Ólafs.,, Ein allra besta hjálpin var það er Reykvíkingar og fleiri buðust til þess að taka börn úr jarðskjálftasveitunum meðan verið væri að koma upp manna hýbýlum. Þessi hjálp kom sér sér- staklega vel. Börnin sem suður fóru voru 116 að tölu og voru flest 5-6 vikur eða 7-9 vikur. Var samskota- nefnd stofnuð í Reykjavík og einnig í Danmörku, sem safnaði talsverðu fé frá Dönum og öðrum þjóðum. Strax sunnudaginn 6. september, sem rann upp með dýrðlegri fegurð og blíðu, var farið að grafa í rústirn- ar og leita að hlutum. En eftir að bráðabyrgðayfirlit hafði verið tekið, tók sýslan skyndilán. Það sem mest vanhagði um var vinnukraftur og byggingarefni, en úr því rættist og verkamenn komu í hópum úr Reyja- vík og víðar að og létu hendur standa fram úr ermum. En hvernig leið fólkinu þangað til búið var að koma upp einhveijum húsakynnum? Allir lágu úti, ýmist í lélegum tjöldum eða í tóftarbrotum og heyskýlum. Var þá reft yfir með spýtnarusli og síðan breitt yfir brek- án, rekkjuvoðir og strigatuskur. Auðvitað hriplak þetta í hverri skúr sem úr loftinu kom. Þótti þá margri móðurinni gott að eiga börn sín fyrir sunnan í góðra manna hönd- um. Þegar kom fram yfír veturnæt- ur fór séra Ólafur að húsvitja og kom á hvern bæ. Þá voru allir komnir í bæi sína endurbætta eða í bráðabirgðaskýli til vetrarins og öllum leið orðið sæmilega. Börnin voru komin heim aftur, sælleg og fötuð til margra ára og töluðu ekki um annað en mömmu og pabba fyrir sunnan. Skjálfti 1912 austast á svæðinu Þegar jarðskjálftinn mikli skall á 1896 höfðu liðið 112 ár milli aðal- skjálfta á svæðinu. Árið 1912 varð jarðskjálfti aðeins austast á beltinu, en það hefur oftar gerst. Þar var hreyfingin minni 1896. Þá fór Björn Jónsson ritstjóri sjálfur austur og sendi menn á kostnað blaðsins til að fara um jarðskjálftasvæðin. Sá jarðskjálfti hófst með mjög snörp- um kipp kl. 6 síðdegis 6. maí, en brátt komu margir smærri kippir. Varð skjálftinn mestur í nágrenni við Heklu. Skemmdir urðu og slys- farir nokkrar. Á Rangárvöllum féllu bæir og líka á Landi. Þegar jarð- skjálftinn varð lá húsfreyjan í Næf- urholti í rúminu og hafði hjá sér barn á rúmstokknum. Þegar bað- stofan féll kom sperra ofan á kon- una og rotaði um leið barnið til bana. Synir bóndans meiddust einn- ig í andliti. Féll þekjan ofan á borð- ið og rúmstokkana og gat fólkið skriðið undan henni. Stórt bjarg, tvær mannhæðir, féll úr fjallinu fyrir ofan Næfurholtsbæinn og stefndi á hann, en stöðvaðist 5-6 faðma frá og löng jarðsprunga myndaðist í Selsundi. Um 30 bæir urðu fyrir miklum skemmdum á efri hluta svæðisins frá Þjórsá aust- ur undir Eyjafjöll. Frá 1896 hefur meginhluti Suðurlands ekki hreyfst svo orð sé á gerandi í hundrað ár og í 84 ár frá skjálftunum á austan- verðu svæðinu. Þú getur valið um eina, tvær, þrjár, fjórar eða sjö nætur. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. S4.S70 í tvær nætur. Verð með sköttum frá kr. SG.970 í þrjár nætur. Gildistími frá 30/9 til 3/12 1996. Innifalið: Flug, gisting m/morgunverði, íslensk fararstjóm og ferðir til og frá flugvelli erlendis. BORGARFERÐIR - HELGARFERÐIR SÓLARFERÐIR - SUMARAUKI LOMDOM Þú getur valið um eina, tvær, fjórar eða sjö nætur. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. S9.970 í tvær nætur. Verð með sköttum frá kr. 32.370 í þrjár nætur. Gildistími frá 16/9 1996 til 31/3 1997. Innifalið: Flug og gisting m/morgunverði. Þú getur valið um þrjár, fjórar eða sjö nætur í Barcelona. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 31.1 40 í þrjár nætur. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 34.1 40 í fjórar nætur. Gildistími 13/9 til 2l/l0 1996. Innifalið: Flug, gisting m/morgunverði, íslensk fararstjórn og ferðir til og frá flugvelli erlendis. Flug og bíll í eina viku verð frá kr. 45.500 pr. mann m.v. tvo í bíl. Verð frá kr. 33.300 pr. mann m.v. tvo fullorðna og tvö böm. Gildistími frá l/9 til 3l/l2 1996. Innifalið: Flug, bíll og flugvallarskattur. Þú getur valið um tvær, þrjár, fjórar eða sjö nætur. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 24.460 í tvær nætur. Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 27.360 í þrjár nætur. Gildistími frá 16/9 1996 til 31/3 1997. Innifalið: Flug og gisting m/morgunverði Flug og gisting í Orlando. 8 nætur í tvíbýli verð frá kr. 5*1.300 pr. mann. 8 nætur m.v. 2 fullorðna og tvö börn í íbúð verð frá kr. 38.1 50 pr. mann. Gildistími frá 1/9 til 11/12 1996. ínnifalið: Flug, gisting og flugvallarskattar. Pantaðu tímanlega og tryggðu þér óskaferðina - fáðu nánari upplýsingar í síma 552 3200 FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTR/tTI 1b 101 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.