Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 26
26 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ ATVIN N M3AUGL YSINGAR Óskum eftir að ráða starfskraft í barnagæsluna hjá okkur í vetur. Upplýsingar á staðnum mánudag og þriðjudag kl. 19-21. Fellsmúla 24 108 Rvk. s: 553 5000 Frá Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar íþróttakennar vantar til afleysinga í fulla stöðu frá 1. september til 15. nóvember. Upplýsingar gefur skólastjóri, Guðmundur Þorsteinsson, í hs. 475 1159 eða vs. 475 1224. Ferðamálafulltrúi Vestfjarða Ferðamálasamtök Vestfjarða og Fjórðungs- samband Vestfirðinga óska eftir að ráða ferðamálafulltrúa til starfa. Starfið felst í að framfylgja stefnu Ferðamálasamtaka Vest- fjarða með áherslu á skipulags-, markaðs- og umhverfismál. Ferðamálafulltrúi vinnur í samstarfi við atvinnuráðgjafa Vestfjarða. Leitað er eftir hugmyndaríkum og skapandi einstaklingi sem hefur áhuga á uppbyggingu í ferðaþjónustu. Sérmenntun eða reynsla af ferðamálum er skilyrði. Um er að ræða fullt starf á ísafirði, en starf- inu fylgja ferðalög um Vestfirði. Upplýsingar gefa Áslaug S. Alfreðsdóttir, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða, í síma 456-4111 og 456-3915 (hs), eða Elsa Guðmundsdóttir, atvinnuráðgjafi Vestfjarða í síma 456-4780. Umsóknarfrestur er til 10. september og ber að skila umsóknum til Ferðamálasamtaka Vestfjarða, pósthólf 165, 400 ísafjörður. MENNTASKÓLINN VIÐ SUND^A Starfsmaður í mötuneyti Óskum eftir starfsmanni í mötuneyti kennara og annrra starfsmanna Menntaskólans við Sund. Umsóknarfrestur er til 8. september nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax að lokinni ráðningu. Starfið felst í því að sjá um mötuneyti fyrir starfsmann skólans; að annast innkaup og sjá um morgunkaffið, hádegismat og síðdegi- skaffi. Um er að ræða heilsdags vinnu í 9 mánuði og hálfsdags vinnu í einn mánuð eða 80% starf á ársgrundvelli. Reynsla og góð þekking á sviði framreiðslu er nauðsynleg. Við leitum að áhugasömu og samvinnufúsum starfsmanni. Launakjör eru skv. kjarasamningum Verka- mannasambands íslands. Umsóknir skulu sendar skólanum á eyðu- blöðum sem þar fást. Nánari upplýsingar veita rektor og konrektor í síma 553 7300 eða 553 3419. Rektor. Lyfjakynnir Þekkt heildverslun í borginni með lyf og skyldar vörur óskar að ráða lyfjakynni til starfa. Starfssvið: kynna ný lyf og lyfjanýjungar fyr- ir læknum, lyfjafræðingum og öðru fagfólki. Leitað er að reglusömum og reyklausum einstaklingi, æskilegt nám er lyfjafræði, hjúkrunarnám eða annað sambærilegt. Gott vald á einu norðurlandamáli ásamt ensku er nauðsynlegt. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu af kynningarstörfum og markaðssetningu ásamt tölvukunáttu. Launakjör samningsatriði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar og skal umsóknum skilað fyrir 31. ágúst. Guðní Tónsson RÁÐGIÖF & RÁÐNINGARÞjÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22 Lúkas D. Karlsson Umboðs- og heildverslun Fjölbreytt skrif- stofu- og sölustarf Lúkas D. Karlsson, sem er umboðs- og heildverslun með tannlæknavörur óskar eft- ir að ráða starfsmann til að sinna alhliða skrifstofu- og sölustörfum. Starfið felst m.a. í erlendum bréfaskriftum, skjalagerð, skráningu, símsvörun, útrétting- um auk sölu. Hæfniskröfur: Góð enskukunnátta skilyrði. Nauðsynlegt er að viðkomandi þekki til starf- semi tannlækna og hafi reynslu af skrifstofu- störfum. Góð laun í boði. Áhersla er lögð á trúnað í meðferð um- sókna. Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst. Ráðning verður mjög fljótlega. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14. Fólk og þekking Lidsauki ehf. W Kennarar Skfn við sólu Skagafjörður Kennara á Meðferðarheimilinu Bakkaflöt í Skagafirði bráðvantar samstarfskennara í fullt starf eða hlutastarf næsta skólaár. Á Bakkaflöt er rekið meðferðarheimili fyrir ungl- inga á aldrinum 14-16 ára. í skólanum verða 7-8 nemendur. Starfið krefst áhuga og reynslu í vinnu með unglingum. Á Bakkaflöt verður rekið sveigj- anlegt skólastarf þar sem lögð er áhersla á einstaklingsþarfir og samstarf undir stjórn Einholtsskóla í Reykjavík. í boði er aðstoð við útvegun húsnæðis og þátttaka í húsaleigu- og flutningskostnaði. Umsóknarfrestur er til 2. september 1996. Vegna sérstakra aðstæðna áskiljum við okk- ur rétt til að ráða í stöðuna áður en umsókn- arfrestur rennur út. Umsóknir skulu sendartil Einholtsskóla, Ein- holti 2, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar veita undirritaðir: Guðlaug Teitsdóttir, skólastjóri í símum 562 3711 og 552 9647. Anna Hlín Bjarnadóttir deildarstjóri í síma 453 8250 og 453 8890. Bryndís Guðmundsdóttir meðferðarstjóri í síma 453 8044. Afgreiðslustörf óskum eftir manneskju til afgreiðslustarfa í útibúi okkar í Grafarvogi frá ki. 12 - 18, mánud. til föstud. Þarf að geta unnið sjálfstætt og umráð yfir b(l æskileg. Viðkomandí mun sækja námskeið í lyklasmíði. Skósmiður Viljum einnig ráða svein eða meistara í skó- viðgerðum til starfa sem fyrst. Umsóknir sendist Mbl. merkt: „Þráinn skóari.“ Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. ÞRÁiNN SKÓARi Mjódd - Hamraborg, Kópavogi - Kringlunni 2fi. - Torginu, Grafarvogi Eftirlitsmenn ítíma- bundin verkefni Fiskistofa óskar eftir að ráða eftirlitsmenn til starfa í tímabundin verkefni í 12-18 mán- uði. Helstu verkefni verða: • Úttektir á innri eftirlitskerfum (HACCP- kerfum fiskvinnlsustöðva. • Úttektir á byggingum, búnaði og hrein- læti í fiskvinnslustöðvum. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem krefst töluverðra ferðalaga innanlands. Áhugasömum einstaklingum gefst hér gott tækifæri til að kynnast þeim aðferðum við gæðastjórnun í matvælavinnslu sem hæst ber um þessar mundir. Væntanlegir starsmenn verða þjálfaðir sér- staklega til þessa verkefnis af sérfræðingum Fiskistofu. Fiskvinnsluskólapróf eða sambærileg mennt- un æskileg. Reynsla af störfum við sjávarút- veg er skilyrði. Umsækjandi þarf að gata hafið störf fljótlega. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Fiskistofu, Ingólfsstræti 1 í Reykjavík fyrir 10. september nk. Vantar þig aukavinnu eða viltu breyta til? Ef þú ert 25 ára eða eldri, hefur bíl til um- ráða og getur unnið 4-7 tíma á dag, þá höfum við starf fyrir þig. Okkur vantar fólk til fastra afleysinga við ræstingar. Góðir tekjumöguleikar fyrir röska starfsmenn. Vinnutími er frá kl. 16.00 eða 17.00 mánudaga til föstudaga og þriðju til fimmtu hverja helgi. Einnig vantar starfsfólk, 20 ára eða eldra til ræstingarstarfa í miðbæ og Hlíðum. Vinnu- tími frá kl. 16.00 mánudaga til og með föstu- daga, 2-4 tímar á dag. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Guðrúnu Gísladóttur, Síðumúla 23, milli kl. 10 og 11.30 til og með 30. ágúst nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.