Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Jarðskjálftinn hófst að kvöldi dags 26. ágúst þegar flestir voru hátt- aðir. Virðist fyrsti skjálftinn hafa dunið jrfír án nokkurs að- draganda. Séra Ólafur Ólafsson var þá prest- ur í Amarbæli í Ölfusi, þar sem jarðskjálftamir urðu öflug- ir. Hann heyrði allt í einu mikinn og þungan dyn úr austurátt eða landnorðri. í sama augnabliki skall jarðskjálftabylgjan á bænum, sem lék á reiðiskjálfi og brast og brak- aði í hveiju tré. Heimilisfólkið hent- ist fram úr rúmunum og vissi eng- inn hvað hann átti af sér að gera meðan hrynan var sem hörðust. Bærinn í Amarbæli var stór og myndarlegur, en gamall orðinn. Konur og böm flúðu út í væna skemmu og sjálfur tróð presturinn sér þar niður líka. En piltarnir lágu húsagarði og bám sig vel. Þannig leið fyrsta hrakinganóttin. „Nálægt dagmálum morguninn eftir kom annar kippur allmikill. Bærinn var þá óbyggilegur orðinn, veggir spmngnir og máttarviðir bilaðir. Þessir tveir kippir, hinn 26. og 27. ágúst, vom langharðastir að austan og ofan á Suðurlandsundirlendinu, á Rangárvöllum, í Landsveit og Gnúpveijahreppi," skrifar séra Ólafur. „Tjónið í þessum tveimur kippum varð ákaflega mikið á Landi og Rangárvöllum, í Hreppum og víðar. Þannig má nefna t.d. að í Landsveit, sem er fremur lítill hreppur, gjörféllu eða því sem næst 28 bæir af 35 sem í sveitinni voru. í Flóa og Ölfusi var tjónið fremur lítið; margir flýðu samt um stund bæi sína og uggur og kvíði var í öllum þorra manna. Eftir mánaða- mótin ágúst-september fluttu samt margir inn í bæina aftur í þeirri von, að allt hið lakasta væri af stað- ið. Bæirnir hrundu í voðalegum kipp Svo kom nóttin milli 5. og 6. sept- ember, nótt sem ég hygg að allir muni til æviloka sem hana lifðu á vesturhluta jarðskjálftasvæðisins. Þá kom kollhríð jarðslq'álftanna í Flóa og Ölfusi. Laugardagskvöldið 5. september sat ég nokkru eftir náttmál uppi í baðstofunni hjá pilt- unum mínum og var að rabba við þá meðan þeir voru að borða og hátta. Fóru þeir allir úr hverri spjör.“ GLJÚFURHOLT í Ölfusi. Eftir jarðskjálftann lá fólk úti í tóftarbrotum og heyskýlum. Var þá reft yfir með spýtnarusli og breidd yfir brekán, rekkjuvoðir og strigatuskur, sem hriplak hverri skúr. Þessi og aðrar myndir Sigfúsar Eymundssonar eru í Þjóðminjasafni. Sjálfur fór presturinn út í kirkju að sofa. „Þá allt í einu skall á kirkj- unni óttalegur jarðskjálftakippur svo að hún lék öll á reiðiskjálfí. Við stukkum öll upp og þóttumst eiga fótum fjör að launa. En þegar út kom sáum við að komið var svarta myrkur, sótsvört þoka og sá varla handaskil. Ég gekk út á hlaðið. Þar var þá komið allt fólkið úr baðstof- unni, að mestu allsnakið upp úr rú- munum. Hafði það brotið alla glugga vestan á baðstofunni og skriðið þar út. Meðal þeirra sem komust út um gluggana allsnaktir var fjósakarlinn minn. Ég rakst á hann í myrkrinu með tóbaksfjölina mína og tóbak- sjámið í fangi sér. Ég vék eitthvað orðum að honum, að hann hefði ætlað að bjarga þessum tækjum með sér. „Já, húsbóndi góður“, sagði karl, „þó að himinn og jörð for- gangi, þá ætla ég að passa það sem mér er trúað fyrir.“ Mér þótti svarið gott hjá ekki vitrara manni. Svo smáleið nóttin þangað til kl. 2. Þá kom lokahríðin, og þeim ósköp- um sem þá gengu á er ekki unnt að lýsa. Þá flýðu allir úr kirkjunni og höfðust við úti á túni þangað til birta tók. í þessum voðalega kipp hmndi hvert einasta hús á prestset- inu Amarbæli nema kirkjan. Það hafði komið fyrir einu sinni áður, 1706.“ Tveir greindir bændur sögðu Ólafi að þeir hefðu þessa nótt verið sannfærðir um að Suðurlandsundir- lendið væri að sökkva í sjó af elds- umbrotum djúpt í jörðu. Og á einum bæ í Ölfusi hvarf gamall maður lítils- sigldur frá heimilisfólkinu út í myrkrið og þokuna og fannst ekki fyrr en birta tók, en þá dauður úti í kofa; hafði af hugarhrellingi grand- að sér sjálfur. í Þjóðólfí birtist þessi lýsing örfá- um dögum síðar: „Óttinn og hörm- ungin um nóttina varð enn meiri fyrir það að svarta myrkur var á og blindþoka. Ölfusá ruddist fram með ógurlegum ofsa; varð flóðbylgj- an í henni, eftir því sem næst varð komist um, nær fímm metra há. Hugðum vér sem við hana búum, að hún í myrkrinu væri að koma yfír oss gínandi og mundi sópa öllu burt, sem lífs hefði komist úr jarð- skjálftanum. - Dunurnar og bre- stimir í jörðunni bergmáluðu úr ein- um hnúk í annan, svo að sums stað- ar heyrðist ekki mannsins mál, þótt menn stæðu hver hjá öðrum og alla nóttina var sem jörðin léki á þræði. - Fólkið stóð úti um jörðina í hópum og fól sig guði; þráðu menn þá ekki annað meira en að birta tæki af degi. Má það furðulegt heita, að ístöðulítið kvenfólk missti ekki vit- ið.“ Ekki var þó allt búið enn. Hinn 10. september kom seinasti kippur- inn, sem nokkuð kvað að. Hann var vægur í Ölfusinu samanborið við þá sem á undan voru gengnir. Þó koll- varpaði hann karlmönnum sem stóðu við slátt. Færðust í vesturátt Jarðskjálftarnir á Suðurlandi 1896 byijuðu á Rangárvöllum og Timburhúsin risu eftir j arðskj álftana EFTIR þær hremmingar sem fólk varð fyrir í Suðurlandsskjálftan- um 1896 þegar torfbæirnir gjör- féllu eða stórskemmdust og þótti guðs mildi að ekki fórust fleiri, var brugðist við. Lét Landskjáífta- samskotanefndin í Reykjavík vinna og prenta bækling undir nafninu „Húsabætur á sveitabæj- um“, sem kom út strax 1898 með uppdráttum og áætlunum eftir Jón Sveinsson trésmið. I upphafsorðum segir að menn sjái orðið að ekki verði bætt úr því tjóni sem torfbæirnir hafa í f ör með sér með neinu öðru en vel gerðum og hentugum timbur- húsum, að þau borgi sig hlutfalls- lega innan skamms og að vert sé að klífa til þess þrítugan hamar- inn. Það gerðu margir og ollu timburhúsin tímamótum í húsgerð á Suðurlandi. Standa sum þessara húsa enn. I formála segir að tilgangurinn með ritinu sé sá að þeim sem vilja koma sér upp timburhúsum í stað torfbæja, gefist kostur á nokkrum leiðbeiningum sem gætu orðið þeim til stuðnings að ýmsu leyti, svo sem til sparnaðar, betri hag- nýtingar á efni og rúmi og að því er snertir ýmislegt fyrirkomulag og þægindi á húsinu við afnot þess, tii traustleika og skjóls o.s.frv. Hvatt er til þess að helstu menn í hreppi hverjum kynni sér sem best uppdrætti þessa. Áætlan- ir séu ekki einungis þeim sjálfum til góðs, heldur áríðandi fyrir hreppinn, þar sem þeir muni bæði skilja best hver not geta að þeim orðið og þeir eru leiðtogar og hvatamenn sveitunga sinna. í þessum bæklingi eru upp- drættir og áætlanir fyrir sex teg- undir húsa, sem merkt eru bók- stöfunum A, B, C, D, E og F og af þrenns konar baðstofuhúsum sem merkt eru 1, 2 og 3. Aftan við hveija áætlun eru ýmsar at- huganir og bent á áríðandi atriði og afbrigði frá uppdrættinum á undan. Menn einnig hvattir til að kynna sér vel þau afbrigði sem talað er um að gera megi frá sjálf- um uppdráttunum. í hverri tillögu fyrir sig eru síð- an gefnar upp stærðir og magn af öllu efni, niður í það smæsta: máttarviðum, plönkum, borðviði, pappa, nöglum, músteinum, þa- kjárni, eldavél og hitavél og hveiju einu. Þessu er lýst með verði á hveijum hlut og síðan byggingarkostnaðinum í heild, þar með talið smiðakaup. Er þann- ig tekið fyrir hvert húsið af öðru. A eftir eru nákvæm ráð og at- hugasemdir. Sem dæmi má geta þess að um hús A segir að frá hitavélinni í stofunni megi leggja ÞETTA gamla hús í Teigi í Fljótshlíð er eitt af timburhúsunum sem hvatt var til að byggja eftir jarðskjálftann 1896-7. I því eru öflugir viðir, loft sem nær niður undir glugga, en dyr á miðju húsi. Það var m.a. notað sem þinghús hreppsins. , Morgunblaðið/Sigurður Jónsson HÚSIÐ í Hjálmhoiti í Flóa, sem stendur enn, var byggt 1891 og stóðst jarðskjálftann 1896. reykpípu úr járni upp um loftið til að veita hita á efra herbergi og að upp í grindina milli þilja skuli troða fornu heyi en óskemmdu og þurru eða vel þurr- um reiðningi og moldarlausum og að tvö aðalherbergin skuli máluð og gluggar allir þrímálaðir utan og innan, en hin herbergin fernis- eruð. Hafa megi skúr við báðar hliðar hússins að endilöngu en þá breytist áætlunin nokkuð. Þetta eru semsagt í hæsta máta ná- kvæmar og hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem ætla að byggja upp. Ekki verða hér tíundaðar hinar nákvæmu leiðbeiningar um hveija tegund þessara timburhúsa. En í lok bæklingsins eru „Nokkrar reglur fyrir húsagerð í sveit og víðar.“ Þar eru hagnýtar upplýs- ingar um hvernig standa skuli að húsgrunninum við mismunandi aðstæður og yfirleitt frágangi við verkið. Sagt að hið tiltekna verð á efniviðnum eftir áætlunum geti því aðeins orðið svo lágt sem þar segir að menn geri samtök með sér og kaupi sjálfir í stórkaupum, ella muni viðurinn verða minnst 15% ogjárnið 10% dýrara og ann- að að jafnaði 8% dýrara. Einnig er brýnt fyrir mönnum að aðalskil- yrði fyrir góðu viðhaldi í timbur- húsum í sveit og víðar sé að þeim sé jafnan haldið vel þurrum á hvaða árstíma sem er og gefin ráð til að forðast raka og til viðhalds á öllum hlutum. T.d. að aldrei skyldi bera sand á gólf heldur hlífa því með strigaleppum, mott- um eða ábreiðum. Er þetta alveg einstakt framtak og varð til þess að menn byggðu víða timburhús á jörðum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.