Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 B 17
■ a / /r'/ V^IK/Ú'AP
JRk. ■ w INNVAUL7L / C>//n/Gj7/-\/\
Borgarverkfræðing-
urinn í Reykjavík
Starf forstöðumanns mælingadeildar er laust
til umsóknar.
Mælingadeildin hefur m.a. eftirtalin verkefni
á hendi:
★ Að annast viðhald, stækkun og endurnýj-
un grundvallarmælikerfa borgarinnar
(hæðanet og þríhyrningsnet).
★ Gerð eignamarkauppdrátta, viðhald
þeirra og breytingar.
★ Umsjón með kortagerð.
★ Að framkvæma mælingar vegna lóða-
marka og bygginga fyrir íbúa borgarinnar
og veita þeim upplýsingar um lóðamörk
og annað sem að landeignum lýtur.
★ Miðlun upplýsinga til annarra deilda og
stofnana, einkum landupplýsingakerfis
(LUKR).
Kröfur sem gerðar eru til umsækjenda:
★ Tæknimenntun á háskólastigi með sér-
þekkingu í landmælingum og skráningu
landeigna.
★ Stjórnunarhæfileikar og stjórnunar-
reynsla.
Yfirmaður forstöðumanns mælingadeildar í
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar er borgarverk-
fræðingur.
Undirmenn eru starfsmenn mælingadeildar,
9 talsins.
Staðan er laus frá 1. nóvember nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til 13. september.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir borgar-
verkfræðingur.
Umsóknum skal skila á skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Iðntæknistofnun vinnur að tækniþróun og aukinni fram-
ieiðni í íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf, gæðaeftirlit, þjón-
usta, fræðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hæft starfs-
fólk til að trygja gæði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Markaðsstjóri
Iðntæknistofnun óskar eftir að ráða starfs-
mann til að annast markaðs- og kynningar-
mál stofnunarinnar. Starfið felst í umsjón
með markaðs- og kynningarstarfi stofnunar-
innar og einstökum verkefnum sem Iðn-
tæknistofnun tekur þátt í.
Hlutverk markaðsstjóra er að vinna að
stefnumarkandi markaðsáætlun fyrir þjón-
ustuþætti Iðntæknistofnunar og að skipu-
leggja og sjá um framkvæmd kynningarmála
sem beinist að viðskiptavinum og starfs-
mönnum stofnunarinnar. í því felst útgáfa
fréttablaðs og annarra gagna, auglýsingar,
fjölmiðlasamskipti, ráðstefnur, móttaka
gesta, fundir o.fl.
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun á
sviði markaðsmála eða aðra sambærilega
menntun ásamt starfsreynslu. Mikilvægt er
að viðkomandi geti unnið sjálfstætt, tekið
virkan þátt í starfi verkefnishópa og hafi til
að bera hugmyndaauðgi og frumkvæði.
Hvatt er til að konur, jafnt sem karlar sæki
um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Emil B. Karlsson
eða Orn Gylfason í síma 587 7000.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skilað fyrir 10. september.
AKUREYRARBÆR
Grunnskólar
Akureyrar
í Barnaskóla Akureyrar vantar okkur kenn-
ara til að hafa umsjón með 5. bekk og til
að annast stuðningskennslu. Við leitum að
áreiðanlegu fólki sem hefur staðgóða mennt-
un og er tilbúið að takast á hendur ábyrgðar-
störf. Skólastarf hefst 27. ágúst og fyrsti
dagur nemenda í skólanum verður 2. sept-
ember.
Áhugasamir hafi samband við skólastjóra
eða aðstoðarskólastjóra í símum 462 4449
eða 462 4172 sem allra allra fyrst. Við meg-
um engan tíma missa.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Starfsmannastjóri.
<?%
w
Tæknisölumaður
Byko hf. óskar eftir sölumanni.
Starfið felst einkum í sölumennsku til at-
vinnukaupenda, almennri tilboðsgerð ásamt
ráðgjöf í vöruþróun.
Umsækjandi þarf að búa yfir almennri tækni-
menntun, tölvuþekkingu og góðum hæfileik-
um til að selja. Reynsla í sölumennsku æski-
leg en ekki skilyrði.
Boðið er uppá góða starfsaðstöðu hjá
traustu og framsæknu fyrirtæki.
Laun skv. nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 1. september.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „T - 18280“.
Með allar umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál.
Rekstrarstjóri
Þjónustufyrirtæki á sviði framköllunar óskar
eftir að ráða dugmikinn einstakling til starfa
sem rekstrarstjóri.
Helstu verkefni
Rekstrarstjórinn annast daglegan rekstur
fyrirtækisins, en í því felst m.a. þjónusta í
búð og framsetning auglýsinga. Hann þarf
jafnframt að vinna sölu- og markaðsáætlan-
ir. Aukin verkefni fyrirtækisins eru líkleg á
næstunni.
Kröfur um hæfni
Umsækjandi þarf að hafa viðeigandi mennt-
un. Reynsla á sviði rekstrar og í markaðsmál-
um ásamt reynslu í stjórnun er æskileg. Við-
komandi þarf aða vera góður leiðtogi, hafa
góða þjónustulund og tilbúinn að leggja sig
allan fram.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur sem
að ofan greinir, er boðið að senda inn um-
sókn til KPMG Sinnu ehf., fyrir 31. ágúst
1996.
inna ehf.
Rekstrar-og stjórnunarráðgjöf
Iðntæknistofnun ■ I
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholti, 112 Reykjavík
Sími 587 7000
Vegmúli 3 S(mi 588-3375
108 Reykjavík Fax 533-5550
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjómunar- og
starfsmannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management
Consulting.
Vinnustaðir ÖBÍ
Saumastofa. Vanar saumakonur óskast.
Vinnutími er kl. 8-16.30.
Ræstingadeild. Leiðbeinandi óskast. Starfið
felst í vinnu við dagleg verk, verkstjórn og
leiðsögn annarra starfsmanna. Vinnutími er
kl. 8-12 virka daga.
Vinnustaðir ÖBÍ er deildaskipt fyrirtæki í
framleiðslu- og þjónustustarfsemi, þar sem
vinna saman fatlaðir og ófatlaðir starfsmenn.
Vinnustaðir Öryrkjabandalags íslands,
Hátúni 10, s. 552 6800 (Þorsteinn).
Matreiðslumaður
- Matreiðslunemi
IfettÍfigahÚ/Íð
GAPi-mn
HAFNARFIRÐI
óskar að ráða vanan matreiðslumann til
starfa sem fyrst. Vaktavinna.
Einnig óskast nemi í matreiðslu. Lágmarks-
aldur 18 ár. Æskilegt að viðkomandi reyki
ekki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar og skal
umsóknum skilað á sama stað fyrir
31. ágúst.
Guðni Tónsson
RÁDGIÖFÖ RÁDNINGARþjÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
Rafvirki
- þjónustufulltrúi
Við leitum að traustum og snyrtilegum starfs-
manni til sölu- og þjónustustarfa hjá innflutn-
ingsverslun í Reykjavík.
Viðkomandi sem þarf að geta lesið og talað
ensku, á að sjá um viðgerðir á heimilistækj-
um, innkaup og umsjón með varahlutalager,
tengingar, heimkeyrslu, kenna viðskiptavin-
um á tækin og sækja námskeið erlendis
vegna tækniframfara.
Um er að ræða spennandi starf hjá upprenn-
andi fyrirtæki þar sem gerðar eru kröfur um
frumkvæði og virka þátttöku í uppbyggingu
fyrirtækisins.
Starfsumsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, þurfa að berast af-
greiðslu Mbl. í síðasta lagi 30. ágúst nk.,
merktar: „R - 4341“.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Akraness
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga eru
lausar til umsóknar:
★ Tvær stöður á lyflækningadeild.
★ Ein staða á handlækninga- og kvensjúk-
dómadeild.
★ Ein staða á öldrunardeild.
Ofantaldar stöður eru lausar
frá 1. september.
★ Ein staða hjúkrunarfræðings á svæf-
ingadeild frá 1. október.
Á Sjúkrahúsi Akraness fer fram mjög fjöl-
breytt starfsemi. Boðin er aðlögun með
reyndum hjúkrunarfræðingum.
Þeir hjúkrunarfræðingar, sem hafa áhuga
á að koma og skoða sjúkrahúsið, eru vel-
komnir.
Allar nánari upplýsingar veita Steinunn
Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma
431 2311 og deildarstjórar viðkomandi
deilda.