Morgunblaðið - 25.08.1996, Blaðsíða 18
18 E SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AHif eiga séu c|uaum. y\vatau-aðfeuðiu\ eu
ve^kef^i sem genV^^kUift að l\arma eigin
ve»*u!eika að vilð.
Fry»*i»Atsekiy félög og eÍKvstaklingaK* geta paKitað
kyrmittgcM^ágndi eða viðtöl* <. <
/\)ámskeið uvi^o^asÁjcimurx ve#ða4\aldir\:
'H^lvaw
og 7.-
SeÍK^ii kluti2i.- 29. sept. í F^eykajvík og
Í9/ 27. okt\v y
ýA\|ata»*.listin að lifa vís\>itaud i.
CJrmriRm kja sæi-^du^me^ntwn,
Soffía J_á»*a KadsdóttV,
;Avatai4-ke>'man sími 5Ó2 0450.
ÓNSKÓLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
REYKJAVÍK
Síðustu forvöð að staðfesta umsóknir um nám
Nemendur í hljóðfæra- og söngdeildum þurfa að staófesta
umsóknir sínar. Getum enn tekið nokkur börn í forskóla í
Hraunbergi 2 og bætt við nemendum í undirbúningsnám
fullorðinna í Hellusundi 7.
Athugið að forskólanemar, sem sótt hafa um nám, verða
boðaðir sérstaklega.
Skrifstofa skólans verður opin sem hér segir:
í Hellusundi 7 mánudaginn 26.til föstudagsins 30. ágúst frá kl. 13-17.
í Árbæjarskóia föstudaginn 30. ágúst frá kl. 17.30 -18.30.
í Hraunbergi 2 laugardaginn 31. águstfrá kl. 11-13.
Skólastjóri.
Reykjavíkurdeild RKÍ
Námskeið 1996-1997
Skyndihjálparnámskeið: 16 kennslust. Tvö námskeið
í mánuði fyrir 15 ára og eldri. Kennd er endurlífgun með
blástursaðferð, hjartahnoð, meðferð sára, beinbrota o.fl.
„Móttaka þyrlu á slysstað“: 6 kennslust. Námskeið
fyrir fólk, sem stundar óbyggðaferðir eða dvelur á stöðum
sem ekki er hægt að koma sjúkrabílum við ef slys verða.
Áfallahjálp og stórslysasálfræði: 8 kennslust.
Viðbrögð á vettvangi og aðferðir til að draga úr langtíma
áhrifum vegna slysa.
Slys á börnum - forvarnir og skyndihjálp:
8 kennslust. Umhverfið innan og utan heimilisins.
Orsakir slysa á bömum, skyndihjálp vegna bamaslysa.
Barnfóstrunámskeið: 16 kennslustundir:
Mars—júní '97. Fyrir nemendur fædda 1983-1985.
Upplýsingar og skráning í síma 568 8188 á skrifstofutíma
kl. 8-16 mánudaga-föstudaga.
ÖRYGGISIMÁM
Um 10 þúsund sækja námskeið Rauða krossins árlega
Morgunblaðið/Golli
LÍFGUNARTILRAUNIR reyndar á dúkkunni Önnu á skyndi-
hjálparnámskeiði á vegum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins.
Nám sem
bjargar
manns-
lífum
RAUÐI krossinn heldur árlega fjöl-
mörg námskeið og eru þau flest á
sviði heilbrigðismála eða slysavernd-
ar, í samræmi við markmið hans sem
hjálparstofnunar að sögn Bjarna
Kristjánssonar fræðslufulltrúa.
Mörg slík hefjast nú í byijun septem-
ber.
Deildir Rauða krossins, sem eru
50 alls, halda allar námskeið vítt og
breitt um landið. Bjarni segir að á
hverju ári sæki á milli 9 og 10 þús-
und manns hinu ýmsu námskeið á
vegum Rauða krossins, en þekktast
þeirra sé eflaust námskeið í al-
mennri skyndihjálp, sökum þess
mikla fjölda fólks sem þau hafa sótt.
Endurlífgun og starfslok
Deildirnar bjóða margar hvetjar
upp á 2-3 skyndihjálparnámskeið
yfir veturinn, en í Reykjavík eru
haldin að minnsta kosti tvö slík í
mámiði.
„Á þessum námskeiðum er fjallað
um grundvallarreglur í skyndihjálp,
endurlífgun, meðvitundarleysi, lost,
blæðingar, sár, beinbrot, brunasár,
rafmagnsslys, kal, ofkælingu og of-
hitun, bráða sjúkdóma, aðskotahluti
í hálsi og annað það sem fólk þarf
að þekkja og vita til að geta brugð-
ist rétt við á slysstað. Við vitum af
dæmum að þessi námskeið hafa
bjargað mannslífum," segir Bjarni.
Hann segir flesta þátttakendur á
námskeiðunum á milli tvítugs og
fertugs.
Námskeið sem kennt er við starfs-
lok er ætlað fólki sem er eldra en
sextíu ára, en þar fjalla á meðal
annarra læknar og félagsfræðingar
um margháttaðar félagslegar breyt-
ingar sem fylgja starfslokum fólks
að sögn Bjarna. Meðal annars er
tekið á húsnæðis- og íbúðarmálum,
trygginga- og fjármál, ábyrgð fólks
á eigin heilsu og fleira sem fylgir
þessum tímamótum.
Einnig má nefna svokaliað barn-
fóstrunámskeið fyrir börn á aldrin-
um 11-14 ára, en markmið þeirra
er að þátttakendur öðlist aukna
þekkingu á börnum og umhverfi
þeirra til að efla öryggi við barna-
gæslu. Fjallað er um þroska barna,
leikfangaval, mikilvægi fæðuteg-
unda og fleira. Bjarni segir marga
foreldra gera nú kröfu um að ungl-
ingar sem gæta barna þeirra hafi
lokið þessu námskeiði, enda hafi
reynsla af þeim verið góð.
Athygii vakin á slysagildrum
En fleira lýtur að öryggi barna.
„Vegna þess að slys á börnum eru
hlutfallslega algengari hérlendis en
á hinum Norðurlöndunum, komst á
samvinna milli Rauða krossins og
Slysavarnafélags Islands um nám-
skeið sem ætlað er foreldrum og
öðrum þeim sem eru mikið með börn,
svo sem starfsfólki á leikskólum,
sundstöðum og annars staðar þar
sem börn eru áberandi.
Á námskeiðinu er vakin athygli á
helstu slysagildrum sem börn geta
anað í, fjallað um fyrstu hjálp og
hvernig koma má í veg fyrir slys.
Þessi kennsla hefur verið eftirsótt
og skilað töluverðum árangri að
mati þeirra sem til þekkja," segir-
Bjarni.
Stærri deildir Rauða krossins
halda einnig námskeið í samvinnu
við Landhelgisgæsluna um móttöku
þyrlu á slysstað, og er það sérstak-
lega ætlað þeim sem stunda fjalla-
ferðir. Einnig var nýlega hrundið af
stað námskeiði í sálrænni skyndi-
hjálp, en náttúruhamfarirnar á Vest-
fjörðum í fyrra urðu til þess að sögn
Bjarna, að nauðsynlegt þótti að
kenna viðbrögð á vettvangi slíkra
atburða og hvernig draga má úr
langtímaáhrifum vegna áfalla.
Stytta bið eftir bótum
Rauði krossinn stendur einnig
fyrir námskeiðum fyrir nýbúa þar
sem fjailað er um íslenskt samfélag,
menntakerfið og réttindi fólks og
möguleika í því, heilbrigðiskerfið,
tryggingakerfið, skattamál og annað
sem snertir alla þegna.
„Síðan reynum við að hafa milli-
göngu um að fólk komist á íslensku-
námskeið og er öll þessi viðleitni til
að auðvelda fólki aðgang að íslensku
þjóðfélagi, svo að það einangrist
ekki,“ segir Bjarni.
Námskeiðin eru 4-16 stundir að
lengd. Verði þeirra er stillt í hóf og
hefur Rauði krossinn fengið því
framgengt að námskeiðin koma til
frádráttar á biðtíma fyrir atvinnu-
leysisbætur.
NÁMSAÐSTOÐ
við þá sem vifya ná lengm í skóía
•grunnskóla •framhaldsskóla
• háskóla
Innritun i síma: 557 9233
9{?mendafljónustan sf. • fiangbakka 10, Mjódd
c^angar þig ífrœðandi
og skemmtilegan skóla
eitt kvöld í víku?
Langar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugsanlega
og líklegast eru í dag og hversu örugg meint samband við þá og
þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla?
Langar þig í öðruvísi skóla, þar sem reynt er á sem víðsýnastan
--- hátt að gefa nemendum sem besta yfirsýn yfir hverjar hugsanlegar
orsakir dulrænna mála og trúarlegrar reynslu fólks raunverulega
eru í víðu samhengi og í Ijósi sögunnar?
Og langar þig ef til vill að setjast á skólabekk með bráðhressu og
skemmtilegu fólki, þar sem reynt er að gefa sem bestu yfirsýn yfir
hvað raunverulegt miðilssamband raunverulega er, svo og hverjir
séu helstu möguleikar þess - en líka annmarkar?
Og langar þig svona einu sinni á ævinni að setjast í mjúkan skóla
eitt kvöld I viku eða eitt laugardagssíðdegi þar sem flest þessi
fræði eru kennd á lifandi hátt og skólagjöldunum er svo
sannarlega stillt I hóf?
Ef svo er, þá áttu ef til vill samleið með okkur og fjölmörgum öðrum
mjög ánægðum nemendum Sálarrannsóknarskólans undanfarin ár.
Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í sálrannsóknum 1 nú á
haustönn'96. Skráning stendur yfir - hringdu og fáðu allar nánari
upplýsingar i símum skólans 561-9015 og 588-6050. Yfir
skráningardagana er að jafnaði svarað í sima skólans alla daga
vikunnar kl 14.00 til 19.00
▲ Sálarannsóknarskólinn
Mfös. skemmtilegur skóli -
Ær \ Vegmúla 2,
\ simar 561 9015 og 588 6050
Ármúla 40, 108 Reykjavík. Sími 568-9750, Fax 568-9754.
Netfang: brefask@ismenn.is
Afgreiðslan er opin frá kl. 8.30 - 12.30
Fjölbreytt nám á grunn- og framhaldsskólastigi
Enskukennsla á margmiðlunardiskum
Biðjið um kynningarbækling