Morgunblaðið - 29.12.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 1996 B 15 '
með, snjó? Það er nú það eina sem við eigum nóg af hér þessa dagana.
Bllftp' "'íftlllfc
HVAÐ heldur maðurinn? Það væri gaman að fá að sjá matseðil japönsku hestanna.
118
%
Hrossahlátur
eftir Heiga Bjarnason
HESTARNIR í Mývatnssveit ráku
upp sannkallaðan hrossahlátur þeg-
ar Ragnar Axelsson ljósmyndari
Morgunblaðsins fylgdist með sam-
skiptum þeirra við japanskt ferða-
fólk á dögunum. Þó annað mætti
halda af svip hrossanna eru þetta
ekki einu erlendu ferðamennirnir
sem sést hafa í sveitinni í vetur.
Óvenjumikið frost hefur verið í Mý-
vatnssveit í vetur. Hafa komið þrír
afar harðir frostkaflar og frost þá
verið meira í sveitinni en nálægum
héruðum og
jafnvel meira en
lengra inni á
hálendinu. Hef-
ur þetta verið í
heiðskíru og
lygnu veðri og
einhvers konar
kuldapollur
myndast yfir
vatninu.
Fagrar
skreytingar
I frostunum
sjást gufur stíga
úr flestum gjót-
um í hrauninu
og mikil gufa
stígur upp úr
Mývatni með
landinu að aust-
anverðu, meðal
annars hjá Vog-
um. Þar rennur volgt vatn sem
myndar mikla gufu við þessi veður-
skilyrði. Gufan hefur stundum náð
yfir töluvert svæði og á köflum hefur
verið erfitt að sjá til við akstur á
þjóðveginum.
Þegar gufan byrgir ekki sýn er hins
vegar afar fallegt í þessu veðri í Mý-
vatnssveit. Gufan skilur eftir fagrar
skreytingar á trjánum, þau eru eins
og hvítkrómuð. Ekki er hægt að fá
jafn fallegar jólaskreytingar í versl-
unum höfuðborgarinnar.
Og á kvöldin geta Mývetningar notið
þess að fylgjast með norðurljósunum
og stjörnuhimninum.
„Þetta leggst bara vel í okkur. Þó
frostið sé erfítt til lengdar er það
skárra en rokið og snjókoman. Og
það er ákaflega fallegt í svona
veðri,“ segir Egill Steingrímsson,
starfsmaður Hótel Reynihlíðar, í
samtali við Morgunblaðið.
Slæðingur að vetrinum
Þó Mývatnssveit sé ein vinsælasta
náttúruparadís landsins og dragi að
sér ótrúlegan fjölda ferðamanna á
sumrin, á fólk ekki von á mörgum
erlendum ferðamönnum þar að vetr-
inum. Þeir sjást þó af og til. Egill
segir að ungt fólk sé áberandi og
gjarnan einn eða tveir á ferð saman.
Sumir gisti eina eða tvær nætur en
flestir komi bara í dagsferðir. Hann
segir að í fyrravetur hafi komið tölu-
vert af fólki frá Evrópu, meðal ann-
ars Hollandi og Sviss, og einnig
Bandaríkjamenn og Kanadamenn.
Norðurlandabúar sæjust hins vegar
ekki í Mývatnssveitinni á þessum
árstíma.
Sérleyfisbílar Akureyrar eru með
fastar ferðir í Mývatnssveit allt árið.
Alltaf er farið þrisvar í viku. Fyrir-
tækið auglýsir daglegar ferðir með
leiðsögn og því er farið á hverjum
degi ef einhver hefur pantað far.
Það var hins vegar á leiðsögumanni
að heyra að ekki væri skemmtilegt
að þurfa að fara með einn eða tvo
farþega, eins og oft þurfi að gera
yfir veturinn. Tveir Japanir, ungur
maður og stúlka, voru í rútunni þeg-
ar fundum þeirra og kátu hestanna
bar saman. Japanirnir flugu norður
til Akureyrar með morgunvélinni og
aftur suður um kvöldið eftir að hafa
fengið nasasjón af fegurð Mývatns
að vetri.