Morgunblaðið - 09.01.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 23
ERLENT
Sprengju-
tilræði
í Alsír
TUTTUGU manns létust og
111 manns, að minnsta kosti,
slösuðust þegar tvær bíl-
sprengjur sprungu með fárra
klukkustunda millibili í Alsír
í fyrradag. Alsírsk dagblöð
greindu frá þessu í gær. Sam-
kvæmt frásögn annars als-
írsks dagblaðs aftengdu als-
írskar öryggissveitir í síðast-
liðinni viku 17 sprengjur, sem
komið hafði verið fyrir í bílum
eða á öðrum stöðum. Liberté
segir hinn 27 ára gamla mú-
slímska skæruliða Abu Sal-
mane standa að baki
sprengjutilræðunum. Hann er
sagður hafa hótað í nýársá-
varpi að skæruliðar hygðust
standa að 50 sprengjutilræð-
um á næstunni.
Prins hvattur
til að kvænast
RAINIER fursti af Mónakó
hvatti í gær son sinn og vænt-
anlegan arftaka, Albert prins,
sem nú er 38
ára gamall, til
að finna sér
kvonfang.
Prinsinn, sem
þykir einn
eftirsókn-
arverðasti
piparsveinn
Rainier heimsins,
fursti þarf að mati
furstans, sem er orðinn 73 ára,
að gera ýmislegt áður en hann
geti tekið við af sér, og æski-
legast væri að hann kvæntist.
Furstinn lét þessi orð falla í
viðtölum sem hann veitti í gær
í tilefni þess, að Mónakó fagn-
ar á þessu ári 700 ára afmæli
sínu. Þess á að minnast á verð-
ugan hátt með ýmiss konar
hátíðahöldum.
Stuðningur
vex við kon-
ungdæmi
BREZKA konungsQölskyldan
fékk í gær aukna ástæðu til
að taka gleði sína á ný eftir
að hafa lengi verið hrjáð af
neikvæðri umljöllun fjölmiðla,
er úrslit nýrrar sjónvarps-
skoðanakönnunar voru birtar.
Tvær og hálf milljón sjón-
varpsáhorfenda hringdi inn
álit sitt á meðan á umræðu-
þætti um hlutverk og framtíð
konungsfjölskyldunnar stóð.
Niðurstaðan var sú, að tveir
þriðju hlutar svarenda sögð-
ust fylgjandi því, að konungs-
fjölskyldan ætti sér framtíð
sem sh'k, einn þriðji var á
móti. Meirihluti skozkra
áhorfenda studdi þó konung-
dæmið ekki.
Tilræði
í Madríd
LIÐSFORINGI í spænska
hernum var skotinn til bana
af ungri árásarkonu í Madríd
síðdegis í gær. Virðist sem um
skæruliðatilræði hafi verið að
ræða. Sprengja sprakk í bif-
reið skömmu seinna fyrir utan
verzlunarmiðstöð í borginni.
Einn maður slasaðist. Grun-
semdir eru uppi um að skæru-
liðar þjóðfrelsishreyfingar
Baska standi að baki tilræðun-
um.
Fyrirætlanir um að senda evrópska og afríska málaliða til Zaire
Neitar aðild að
„hvítri hersveit“
París. Reuter.
FYRRVERANDI yfirmaður í sveit-
um sem gæta öryggis Frakklands-
forseta neitaði í gær fréttum um
að hann væri að safna saman sveit
málaliða til að beijast við hlið
stjórnarhers Zaire gegn upp-
reisnarmönnum sem njóta stuðn-
ings stjórnar Rúanda. „Það sam-
rýmist ekki vinnureglum mínum
að ráða málaliða," sagði Alain Le
Caro, fyrrum ofursti í öryggissveit-
unum en þær skipa lögreglumenn
sem hlotið hafa herþjálfun. Hann
lét af störfum árið 1994.
í fyrradag birti franska blaðið
Le Monde frétt þess efnis að Caro
væri í austurhluta Zaire þar sem
hann hygðist fá til liðs við sig nokk-
ur hundruð málaliða í „hvíta her-
sveit“. Le Caro sagði fréttina upp-
spuna frá rótum, hann væri í París
en ekki Afríku og hefði engin tengsl
við leiðtoga Zaire. Raunar hefði hann
ekki komið þangað frá árinu 1982.
Að sögn Le Caro hefur hann
starfað sem ráðgjafi stjórnvalda í
Burkina Faso og á Fílabeinsströnd-
inni. Le Monde sagði hann nú vera
í samstarfi við annan fyrrum liðs-
mann öryggissveitanna, Robert
Montoya, sem stýrði herferð gegn
hryðjuverkamönnum en varð að
yfirgefa sveitirnar fyrir áratug
vegna hneyklis sem tengdist ólög-
legum hlerunum.
Blaðið segir að nú þegar hafi
2-300 málaliðar gengið til liðs við
tvímenningana en að búist sé við
að þeim muni fjölga hratt á næstu
vikum er fyrrverandi hermenn víðs
vegar að úr Evrópu haldi til Zaire
til að slást í hóp málaliða frá Suð-
ur-Afríku Frakklandi, Belgíu, Bret-
landi, Angóla og Mósambík.
Samstarfsráðherra Frakklands,
Jacques Godfrain, staðfesti á
þriðjudag að málaliðar frá nokkrum
Evrópuríkjum væru nú í Zaire en
neitaði nokkrum tengslum franskra
stjórnvalda við þá. Franska stjórnin
styður forseta Zaire, Mobutu Sese
Seko, en venga alþjóðlegs vopna-
sölubanns á landið mega Frakkar
ekki veita Mobutu hernaðaraðstoð.
10.-19. janúar
Þessa daga bjóðum við mikið úrval af góðum
notuðum bílumm I Líttu við
því þú getur verið viss um að gera góð kaup.
Lyklarnir okkar ganga aðeins
að góðum notuðum bílum.
ATHUGIÐ!
Opið til kl. 21 á virkum dögum.
Laugard. 10-17. Sunnud. 13-16.
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI 581 4060
með góðum afslætti