Morgunblaðið - 14.01.1997, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Lyfjabúð Hagkaups
Nikótíntyggjó með
40-50% afslætti
UM helgina stóð viðskiptavinum
lyfjabúðar Hagkaups til boða að
kaupa Nicotinell nikótíntyggjó með
40-50% afslætti. Að sögn Óskars
Magnússonar forstjóra hjá Hag-
kaupi var um mikið magn að ræða
og viðskiptavinir tóku vel við sér.
„Ég býst við að birgðirnar endist
fram eftir degi í dag, mánudag en
tilboðið átti að standa meðan birgðir
endast.“ Nikótíntyggjóið var boðið
með 40-50% afslætti og Óskar seg-
ist hafa komist að hagstæðum samn-
ingum með verð. „Við erum ekki að
borga með vörunni en álagningu er
stillt í hóf.“
- Verður framhald á svipuðum
lyfjatilboðum hjá apótekinu?
„Við höfum ekki ákveðið neitt um
það en það eru ekki ólík iögmál við
sölu á lyfjum og annarri vöru a.m.k.
lausasölulyfjum. Það má því búast
við að við högum okkur líkt á þessu
sviði og í annari sölu.“
Óskar segir mikla sölu í nikótín-
lyfjum yfirleitt og ekki hvað síst
núna í kringum áramót. „Við höfum
ekki mælt söluaukninguna á nikótín-
lyfjum í prósentum eftir áramótin
en finnum mikið fyrir henni og get-
um sagt það sama um sölu á megr-
unarefnum, vítamínum og öðru
heilsubætandi", segir Óskar. „Þetta
tilboð átti því vel við núna.“
námskeið bæði fyrir byrjendur og vana tölvunotendur.
Öflugar Pentium tölvur á borði hvers nemanda.
Upplýsingatækni - 48 klst. nám í Windows 95,
I Word, ExceI og Internet notkun.
Skrifstofu- & upplýsingatækni -152 klst. nám
í bókhaldi, verslunarreikningi, tölvubókhaldi,
sölumennsku, mannlegum samskiptum, Windows 95,
Word, Excel, PowerPoint og Internet notkun.
Fjöldi annarra námskeiða í boði, m.a.:
- Internet kynning
- Gerð heimasíðna
- Auglýsingagerð (Corel Draw)
- Sölutækni & þjónusta
- Forritun & kerfisgreining
- Word, Excel, Windows
og mörg önnur.
Sjá heimasíðu NTV sem er http://ntv.is
i :
• Nýitölvu-&
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2
220 Haínarfirði
Sími 555-4980
Fax 555-4981
skoli@ntv.is
NYTT
Uppskrifta-
bæklingur frá Sól
UPPSKRIFTABÆKLINGURINN
Ljómandi fiskur ’97 er þessa dagana
að koma í verslanir en það er Sól
hf. sem gefur hann út. Þetta er
annar fiskbæklingurinn sem Sól hf.
gefur út á skömmum tíma. Jón Sch.
Thorsteinsson markaðsstjóri fyrir-
tækisins segir að í neyslukönnun
Háskólans hafi komið á daginn að
fiskneysla ungs fólks hafi dregist
saman ár frá ári. „Við höfum einnig
orðið varir við að byijendur kunna
lítt að elda físk og sækja í óhollara
fæði. Af þeim sökum ákváðum við
núna að fá meistarakokkinn Ómar
Strange sem áður starfaði hjá La
Primavera til að setja bækling sam-
an með auðveldum fiskuppskriftum.
Bæklingurinn fæst ókeypis í verslun-
um.
Þessa uppskrift er að finna í bækl-
ingnum.
Steikt ýsuf lök með
sinnepi og rósmnrín
800 g ýsuflök
Ljóma smjörlíki
_____________hveiti__________
2 msk sætt sinnep
75 g brauðrasp
2 msk fersk, söxuð steinselja
2 msk ferskt rósmarín
safi úr 1/2 sítrónu
Rauðvínssósa:
3 dl kjötsoð (vatn og kjötkraftur)
1 saxaður laukur
1 dl rauðvín
1 tsk tómatmauk
1 lórvióarlauf
sósujafnari
Ýsuflökin eru hreinsuð og skorin
í hæfilega bita, velt uppúr hveiti
og steikt á pönnu í smjörlíki. Krydd-
uð með salti og pipar. Flökunum
er raðað í ofnskúffu og þau smurð
með sinnepi. Raspinu, steinseljunni,
rósmaríninu og sítrónusafa blandað
saman og sett ofan á fiskinn. Grillað
í ofni þar til raspið byijar að brún-
ast. Borið fram með rauðvínssósu
og grænmeti.
Aðferð við sósu: Laukur, lárviðar-
lauf og rauðvín er soðið niður um
helming. Soðinu og tómatmaukinu
er bætt út í soðið og þykkt með
sósujafnaranum. Bragðbætt með
salti og pipar. ■
Egils kristall
með eplabragði
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson ehf.
hefur sett á markað nýja bragðtegund
af Egils kristal. Nýi drykkurinn, Egils
kristall með eplabragði, er léttkolsýrt
bergvatn með frískandi eplabragði. í
-Egils bergvatnslínunni eru einnig Egils
kristall með sítrónubragði og Egils berg-
vatn án bragðefna. Egils kristall með
sítrónubragði var fyrsta tegundin hér á
landi með sítrónubragði. Egils kristall
með eplabragði er einnig fyrsta tegundin
með eplabragði sem kemur á markað.
51-9292 Vífilsst;
sfBs-dÆ
Blómabi
Álfheimurt
Teigakjc
Laugateigi
sími 5
140 MOSFEi
ARNARNES:
REYKJAVÍ K Q G NÁGRENNI Nýtt áskriftarár er hafið
Heppni
bíður b
Aðalumboð
Suðurgötu 10
ími 552-3130
Verslunin Grettisgötu 26
sími 551-3665
Blómabúijin Iðna Lísa
Hverafold 1-3» Grafarvogi,
sími 567-6320
Verslunin Straumnes
Vesturbergi 76, sími 557-2800
Neskjör
Ægissíðu 123,
Úlfarsfell
iagamel 67, sími
GARÐABÆR:
Bókabúðin Gríma
Garðatorgi 3, sími 565-6020
560-2800
Breíðholtskjör
57
bæj
ar
355
-4746
010
/
6
kabúð Fossvogs
rímsbæ, sími 568-6145
Happahúsið
Kringlunni, sími 568-9780
Litabær
Austurströnd 14,
sími 561-2344
KÓPAVOGUR:
Borgarbúðin
Hófgerði 30, sími 554-2630
Videómarkaðurinn
Hamraborg 20A, s. 554-6777
ehf.
Bókabúðin Ásfell
Háholti 14, sími 566-6620
Reykjalundur
SÍBS-deildin, sími 566-6200
Miðaverð: 700 kr.
VISA
milljónir
HAPPDRÆTTI
á einn miða
MestLi vinningslíkur í íslensku stórhappdrætti
... fyrir lífiðsjálft