Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 37
«1(2x4=
ftmaéesan
Mc2 STJORNUMAIITÐ
Mc2= Tvöfaldur McOstborgari:
Tvcer safarikar kjötsneiðar og tvær þykkar ostsneiðar.
Lítil: Mc2, lítill McFranskar, 0,25 1 gos - 449 kr.
Mið: Mc2, miðstærð McFranskar og 0,41 gos - 549 kr.
Stór: Mc2, stór McFranskar og 0,5 1 gos - 599 kr.
Þú sparar a.m.k. 130 kr. frá listaverði.
mmimmímmmm!
Fjölskyldu/hóptilboð: 4 máltíðir eða fleiri.
Lítil Mc2 Stjömumáltíð 399 kr. hver
Mið Mc2 Stjörnumáltíð 499 kr. hver
Stór Mc2 Stjörnumáltíð 549 kr. hver
Wiðyptiiihíumilk. 'TiífíUn. Ifr'ti 'duitatmiði
AÐEINSISTUTTAN TIMA
McDonald’s
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997
MINNINGAR
þannig á fyrir Svanþóri að hann
hafði tognað illa í öxl, og var reynt
að draga úr áhuga hans og benda
honum á áhættuna af því að fara
í hestaferðalag svona á sig kom-
inn. Svanþór sagði þá: „Það er víst
sama hvorum megin Tindfjalla ég
dey.“ Og með það fór hann.
Á sínum yngri árum áður en
Svanþór byijaði með hrossin stund-
aði hann af miklum krafti útivist
og fjallgöngur, og þau voru ófá
fjöllin á Suðurlandi sem hann
heiðraði með heimsókn sinni á þeim
árum. Svo stór þáttur voru þessar
gönguferðir í lífi hans, að nánast
var hægt að tala um ástríðu. Enda
þekkti Svanþór landið vel og kunni
mikið af örnefnum, og sögunum
sem þeim fylgja.
Svanþór var mikill dýravinur og
var þá sama hvort um húsdýr eða
dýr merkurinnar var að ræða.
Þekkt var það þegar hann fyrir
nokkrum árum var kominn með
stóran hóp af hröfnum í fæði í
Víðidalnum. Þá hafði hann þann
háttinn á, að þegar hann kom úr
mat á steypustöð B.M. Vallár, þar
sem hann borðaði alltaf þá í hádeg-
inu, fékk hann með sér afganga
úr mötuneytinu og keyrði síðan upp
í hesthús í Víðidalnum, en er þang-
að kom, lagði hann matarafgang-
ana á hól í útjaðri hesthúsa-
byggðarinnar, og áður en varði
fylltist allt af hröfnum. Er hann
hafði gert þetta um alllangt skeið,
tóku menn eftir því að hrafnarnir
voru farnir að þekkja bílinn hans
og voru alltaf mættir stundvíslega
í matinn.
Svanþór var umfangsmikill í sínu
starfi sem múrarameistari og eru
þær ófáar byggingarnar í Reykjavík
og nágrenni sem hann var meistari
að, og má þar til dæmis nefna kenn-
araháskólann og fleiri stórar bygg-
ingar, auk fjölda íbúðarhúsa, en
Svanþór var um langan tíma einn
alstærsti steypukaupandi hjá B.M.
Vallá. Viðskipti voru hins vegar hin
veika hlið Svanþórs, því honum
leiddist reikningagerð og rukkanir,
og ekki var hann nískur á greiðana
frekar en annað.
Kæri Svanþór minn. Ég þakka
Guði fyrir að leiðir okkar skyldu
mætast, en fyrir vikið varð líf mitt
ríkara og fyllra. Við hér í Greni-
byggðinni munum sakna þín sárt,
þú varst alltaf svo stór þáttur í lífi
okkar og Önnu Siggu varstu miklu
meiri faðir en afi. Við erum þó
þakklát fyrir það að við skyldum
ná að eiga saman yndisleg jól og
að þið Sigga skylduð eyða með
okkur aðfangadeginum hér heima
í Grenibyggð. Ennfremur erum við
Anna Sigga Guði þakklát fyrir það
að báðar dætur okkar skyldu eiga
þess kost að kynnast þér, en það
mun síðar gera þeim auðveldara
að átta sig á hvaðan þeim eru
komnir ýmsir góðir eiginleikar.
Ég vil votta Siggu, öllum börn-
um þínum, tengdabörnum, barna-
börnum, barnabarnabörnum og
öðrum ættingjum innilega samúð
mína. Megi algóður Guð leiða þau
og styrkja. Ennfremur vil ég votta
samúð mína vinum þínum og spila-
félögum í Hraunbæ 103.
Af vinnu oft var höndin hijúf
en hreyfing hver var fín
þegar hún svo létt og ljúf
lék við bömin sín.
Kátt var mörgum stuttum stúf
við stöðugt spaug og grin.
Bágt hér sjálfsagt ýmsir eiga
en oftar á sút erum gjörn.
Þá er gott fyrir mennsk að mega
mannanna börn
minning og orðið muna fleyga,
það mótar skjól og vöm.
Gott var að vera hesturinn hans
sem höndum mjúkum taumum beitti.
Hrafnar svífa í sorgar krans
syrgjandi þann sem bjargir veitti.
Við heiðram minningu þessa manns
sem margra hryggð í gleði breytti.
(Har. Har.)
Trausti.
Nú þegar þú ert allt í einu hrif-
inn frá okkur, elsku afi minn, fyll-
ist ég söknuði, og tómleika. Ég á
erfitt með að trúa því að þú eigir
ekki eftir að koma til okkar oftar.
Ég man svo vel stundirnar sem við
áttum saman á Rauðarárstígnum,
og alla litlu hlutina sem gerðu
bernskuna mína svo sérstaka. En
við sem eftir lifum megum ekki
vera eigingjörn. Ég veit að þér
fannst gott að fá hvíldina þína, þó
að ég viti einnig að þú hefðir gjarn-
an viljað vera lengur hjá okkur.
Nú ert þú kominn til betri staðar,
og þín bíða ný verkefni, og það er
okkur hinum huggun harmi gegn,
að þegar okkar tími kemur stendur
þú glaðlegur að vanda í gættinni,
og segir: Komdu fagnandi, elsku
frænka mín.
Nú era lokuð augun hans afa
en áfram stjarna hans skín.
Ég veit að Guði finnst gott að hafa
glaðværan fengið til sín
mann sem fannst gaman að glensa og
skrafa.
Af guði sé blessuð minningin þín.
(Har. Har.)
Þín frænka,
Anna Sigríður.
Elsku afi. Við viljum þakka þér
fyrir stundirnar sem við höfum átt
saman í gegnum tíðina. Við munum
sakna þín mjög mikið og varðveita
minningu um yndislegan langafa.
Þínar frænkur,
íris Þöll, Halla Ýr, Tinna Rut
og Inga Karen.
Viö erum
a vaktinni
til 22.00
ill liviM vikunnar
LYFJA
Lágmúla 5
Sími 533 2300
Eitt bla5
fyrir alla!
- kjarni málsins
FALLEG SERBYLIA FRABÆRU VERÐI
Fullbúnar 3ja og 4ra íbúðir við Laufrima 10-14 og Vættaborgir 6-8
Sýningaríbúð við Starengi 18 opin í dag kl. 13—15
Ýmsar upplýsingar
• íbúðunum skilað fullfrágengnum að innan sem utan
• Hver íbúð er sérbýli með sérinngangi og sameign er í
lágmarki
• Lóð fullfrágengin
• Kirsuberjaviður í innréttingum
og hurðum
« Flísalagt eldbás og bað
«• Þvottahús í hverri íbúð
• Hiti í gangstéttum
• Malbikuð bílastæði
• Öll gólf frágengin, parket eða linoleumdúkur
• Örstutt í þjónustu svo sem grunnskóla, leikskóla og
leikvöll
Verð á 3ja herbergja íbúð frá kr. 7.050.000
Verð á 4ra herbergja íbáð frá kr. 8.000.000
3ja herbergja íbúð: Dæmi um greiðslur:
Greiðsla við samning 400.000
Húsbréf 4.935.000
Greiðsla við afhendingu 1.715.000
Samtals: Verð 7.050.000
Mótás ehf
Sími 567 0765
Stangarhylur 5
Fax 567 0513