Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ - ► FYRSTU loðnunni var pakkað í nýju frystihúsi Sildarvinnslunnar á Nes- kaupstað í gær, þremur mánuðum eftir að bygg- ingarframkvæmdir hófust. Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 640 milljónir króna en frystigeta fyrirtækisins sexfaldast. ► ATL ANTSÁLHÓPUR- INN ætlar halda áfram að kanna hagkvæmni bygg- ingar álvers á Keilisnesi, að sögn talsmanns banda- riska fyrirtækisins Alum- ax. Hann segir þróun á álmarkaði hafa verið já- kvæða á síðustu mánuðum. ►ÁFORM eru um að reisa 4-5 þúsund fermetra verslunarhúsnæði milli suður- og norðurhluta Kringlunnar í Reykjavík og er áætlað að það verði tilbúið á næsta ári. Margar stórar verslunarbyggingar í miðbænum hafa skipt um eigendur að undanförnu. ► S VÍNARÆKTARFÉ- LAG íslands stefnir að því að flylja inn tvo nýja svína- stofna af tegundunum Yorkshire og Duroc. Þess- ir stofnar vaxa mun hraðar en sá íslenski og safna meiri kjöti, minni fitu. Þeir nýta fóðrið betur og eru fijósamari. ►HÁTT í tíu þúsund bílar voru fluttir inn í fyrra og hefur innflutningurinn ekki verið meiri síðan 1991. Bílgreinasambandið gerir ráð fyrir svipuðum fjölda árið 1997. Innflutn- ingur notaðra bíla hefur stóraukist. Mikil amfetamín- neysla unglinga SAMKVÆMT könnun Rannsókn- arstofnunar uppeldis- og menntamála er algengara að 15 ára unglingar hér á landi neyti amfetamíns en á hinum Norðurlöndunum. Sé litið til tuttugu Evrópuþjóða er ísland í átjánda sæti. Áfengisdrykkja er ekki meiri en í öðrum Evrópulöndum og hvergi eru fleiri bindindismenn á áfengi og sígar- ettur en hér á landi í þessum aldurs- hópi. Tollvörður grunaður um áfengissmygl FIMM menn, þar á meðal einn toll- vörður, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um aðild að áfengissmygli. Fjögur þúsund flöskur af vodka voru gerðar upptækar en talið er að mennirnir hafí samtals flutt inn 23.820 flöskur. Hús rýmd vegna snjóflóðahættu VEGNA snjóflóðahættu hafa 39 manns á Siglufírði og átta á Seyðis- firði þurft að rýma hús sín. Þrjú snjó- flóð hafa fallið á Seyðisfirði og stöðv- aðist eitt þeirra 3-400 metra frá íbúð- arhúsi. Fjöldi athugasemda vegna álvers HOLLU STUVERND ríkisins hefur borist fjöldi athugasemda frá ein- staklingum, félögum og stofnunum vegna starfsleyfis álvers Columbia Ventures á Grundartanga. Hollustu- vemd gerir ráð fyrir að afgreiða end- anlegar starfsleyfistillögur til um- hverfisráðuneytisins um miðjan næsta mánuð. Áfrýjun serbneskra sósíalista hafnað HÉRAÐSDÓMSTÓLL í Serbíu hafn- aði á föstudag beiðni Sósíaiistaflokks Slobodans Milosevic forseta um að hnekkja þeirri ákvörðun kjörstjórnar að viðurkenna sigur stjómarandstæð- inga í kosningum í Nis, næststærstu borg landsins, í nóvember. Á þriðju- dag úrskurðaði kjörstjómin í höfuð- borginni 'Belgrad einnig, að Zajedno, bandalag stjórnarandstöðuflokka, hefði sigrað í kosningunum þar; breytti því bæði eigin fyrri úrskurði svo og dómstóla. Sú ákvörðun kjör- stjómanna að ógilda kosningar í fjór- tán borgum og bæjum, meðal annars í Belgrad, hefur leitt tii daglegra mótmæla í höfuðborginni í rúma tvo mánuði, fyrir tilstilli Zajedno. Vuk Draskovic, einn af þremur leiðtogum bandalagsins, sagði í fyrradag að leiðtogar Vesturlanda þyrftu að taka Milosevic fastari tökum og knýja hann til að virða úrslit borgarstjórn- arkosninganna. Milosevic sniðgekk þessa kröfu í ávarpi sem hann flutti í fyrradag og talið er að hann hafi ekki stutt þá ákvörðun kjörstjórn- anna í Nis og Belgrad að viðurkenna sigra stjórnarandstöðunnar. Fögnuður og svika- brigsl í Hebron ÍSRAELSKIR hermenn yfírgáfu í fyrradag bækistöðvarnar, sem þeir hafa haft í Hebron um 30 ára skeið, og létu þær í hendur palestínskum lögreglumönnum. Samkomulag tókst loks á miðvikudag um brottflutning ísraelskra hersveita frá borginni. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði í gær, að samningurinn um Hebron gæti orðið grundvöllur friðar milli Israela og Palestínumanna. ►BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, hefur sæmt Bob Dole, keppinaut sinn í kosningunum í nóv- ember, æðstu orðu sem óbreyttur borgari getur fengið í Bandaríkjunum, Frelsisorðunni. ► LÍKUR á kosningum í Bretlandi í mars eða apríl hafa aukist þar sem flokk- urinn hefur nú færri þing- menn en Verkamanna- flokkurinn vegna andláts eins þingmanns síns. ►í NÝRRI skýrslu, sem lögð var fram í Danmörku á föstudag, kemur fram að Jens Otto Krag, þáver- andi forsætisráðherra Danmerkur, sagði dönsku þjóðinni ósatt þegar hann neitaði því á sjöunda ára- tugnum að kjarnavopn hefðu verið geymd í bandarísku herstöðinni í Thule á Norður-Græn- landi. ► Breyta verður hliðar- stýrum 2.700 Boeing-737 þotna, samkvæmt ákvörð- un bandaríska loftferða- eftirlitsins (FAA). Boeing- verksmiðjurnar bera kostnað af breytingunum. ►HÁTÍÐ ARHÖLD voru í Danaveldi á miðvikudag er fagnað var 25 ára setu Margrétar Þórhildur drottningar á valdastóli. ►LÖGREGLANíLos Angeles leitar morðingja sonar leikarans og þátta- höfundarins Bills Cosbys en hann fannst látinn við hraðbraut í Bel Air, að- faramótt fimmtudags. FRETTIR Ráðstöfun Tryggvagötu 15 rædd í borgarstjórn R-listi gagnrýndur fyrir tillitsleysi við leigutaka MEIRIHLUTI borgarstjórnar í Reykjavík var harðlega gagnrýnd- ur á borgarstjórnarfundi á fimmtu- dag fyrir að hafa ekki gert leigu- tökum í Tryggvagötu 15 viðvart um þá fyrirætlun borgaryfirvalda að gera húsið að safnahúsi þriggja borgarstofnana, Borgarbókasafns, Borgarskjalasafns og Ljósmynda- safns Reykjavíkur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að borgin myndi taka þátt í kostnaði leigutaka sem hlytist af röskun við að flytja i nýtt húsnæði. Sagði hún á hinn bóginn ekki óeðlilegt að hugmyndir um ráðstöfun eigna borgarinnar væru eingöngu á vitorði embættis- manna þangað til stefnumarkandi ákvörðun þar að lútandi væri tekin. Inga Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, taldi framkomu borgarinnar gagnvart leigutökuunum mjög gagnrýni- verða. Sagði hún að embættismenn borgarinnar hefðu athugað þann kost allt síðasta sumar að færa söfnin í húsið á sama tíma og leigu- takar hafí í góðri trú lagt í mikinn kostnað við að gera upp húsnæði sitt. Viðurkenndi hún að Reykja- víkurborg hefði fullan rétt til að segja upp leigusamningi en hins vegar hefði verið eðlilegra að hafa samráð við leigutaka um ráðstöfun hússins. Nefndi hún sem dæmi að aðeins hefðu liðið fjórir mánuðir frá því að samningur um Ieigu hafi verið undirritaður við einn leigu- taka þar til hugmyndir um safna- hús voru fyrst settar fram í fyrra. Aðlögunartími rúmur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ítrekaði fyrri yfírlýs- ingar um að borgin myndi aðstoða leigutaka við að fínna nýtt hús- næði fyrir starfsemi sína. Minnti hún á að aðlögunartími væri rúm- ur. Stefnt væri að því að hluti safnastarfseminnar flytti inn í fyrsta lagi haustið 1998 en endan- lega yrði safnahúsið tekið í notkun árið 2000. Borgarstjóri sagði að vitanlega myndi borgin greiða þann kostnað sem orðið hefði við breytingar á húsnæðinu og bæta leigutökum tjón sem hlytist af röskuninni, eftir því sem við á. í svari við fyrirspurn Ingu Jónu sagði borgarstjóri að fjárútlát vegna uppsagnar leigu- samnings yrðu ekki umtalsverð. Borgarstjóri sagði mikilvægt að með þessari lausn tækist loks að leysa húsnæðisvanda Borgarbóka- safnsins. Segir hún fyrirhugað safnahús við Tryggvagötu 15 væri mjög góð lausn fyrir söfnin og hagkvæm fyrir borgina. Hag- kvæmt væri að reka söfnin á einum stað en með því móti mætti sam- nýta tækni og aðstöðu. Þá hafi verið ákveðið að selja húsnæði í eigu borgarinnar í Aðalstræti 6, þangað sem áður var fyrirhugað að flytja Borgarbókasafnið. Frostíjörðu hamlar j arðvinnu FROSTAKAFLINN langi í nóv- ember síðastliðnum gerði það að verkum að gangstéttafram- kvæmdum og ýmissi annarri jarðvinnu varð að hætta mun fyrr en venjulega og verður þráðurinn tekinn upp þegar vor- ar. Þessir islensku karlmenn sem urðu á vegi ljósmyndara í Þing- holtunum í vikunni létu sér þó fátt fyrir bijósti brenna og unnu af kappi. Morgunblaðið/Golli Bíll út af við Köldukvísl BÍLL fór út af veginum við Köldu- kvísl um sexleytið á föstudag en ill- viðri geisaði þá á norðanverðu Snæ- fellsnesi. Þrír voru í bílnum og sakaði eng- an. Að sögn lögreglu í Stykkishólmi voru fleiri ferðalangar í hrakningum og veitti björgunarsveitin þeim að- stoð. Óvenju margir sprautufíkl- ar sýktir af lifrarbólgu C ÓVENJU mörg tilfelli af veirusýk- ingu af völdum lifrarbólgu C hafa fundist meðal þeirra sprautufíkla sem hafa komið inn á Vog undan- farin þijú ár. Að sögn Þórarins Tyrfíngssonar /yfirlæknis á Vogi voru um fjörutíu ný tilfelli af þess- ari sýkingu greind á síðasta ári, en það sé meira en áður hafi þekkst. „Við höfum komist að því að meira en helmingur þeirra sprautu- fíkla, sem hafa sprautað sig yfir lengra tímabil en eitt ár og oftar en tíu sinnum, eru með lifrarbólgu C eða um 60% þessa hóps. Lifrar- bólga B, sem geisaði meðal sprautufíkla á árunum 1989 fram til 1990 virðist hins vegar vera á undanhaldi," segir Þórarinn. Hann segir ennfremur að lifrar- bólga C smitist eingöngu við blóð- blöndun og dreifist auðveldlega á milli sprautufíkla vegna þess að þeir skiptist á um að nota sömu sprautur og nálar, en lifrarbólga B smitist auk þess við samfarir. Þá segir hann að munurinn á þessum náskyldu veirum sé sá að líkaminn geti í flestum tilfellum losað sig við B veiruna, en C veiran sé alltaf í líkamanum hjá stórum hluta sjúkl- inga. Til sé bóluefni við B veirunni en ekki C veirunni. „Sumir þeirra sem eru sýktir af C veirunni geta lifað árum saman án þess að kenna sér meins, en oft getur hún leitt til langvarandi lifrarbólgu, sem erfitt er að lækna,“ segir hann. Að lokum kemur fram í máli Þórarins að enn sem komið er hafi ekki greinst alnæmi á meðal ís- lenskra sprautufíkla. I > t i í k b I > I I I I I I I I » h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.