Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ■+■ Guðbjörg Rúna * Guðmundsdóttir fæddist í Reyiyavík 2. október 1923. Hún lést á Landspít- alanum 7. janúar síðastliðinn eftir stutta en erfiða sjúkralegu. Faðir Rúnu var Guðmund- ur Helgi, húsgagna- smíðameistari og bæjarfulltrúi, f. 13.4. 1899, d. 6.5. 1983, sonur Guð- mundar Guðmunds- sonar öku- og versl- unarmanns og Dagbjartar Grímsdóttur. Móðir rúnu var Magdalena Helga, f. 8.3. 1895, d. 1965, dóttir Runólfs Magnús- sonar fiskmatsmanns og Guð- rúnar Guðmundsdóttur. Systk- ini Rúnu eru Hörður, f. 12.12. 1921, d. 5.4. 1922, Dagbjört, bankafulltrúi, f. 4.9. 1925, d. 26.11. 1968, Gunnar Magnús, hæstaréttardómari, f. 12.2. 1928, og Óskar, framkvæmda- stjóri, f. 20.5. 1933. Börn Rúnu eru Anna Magda- lena, listamaður, f. 1945, Guð- rún Áslaug, húsmóðir, f. 1948. Jóna Rúna, rithöfundur og sjá- Fallin er hjartans fögur rós og föl er kalda bráin. Hún sem var mitt lífsins ljós ljúfust allra er dáin. (Höf. Jóna Rúna Kvaran) Þetta ljóð var sérstaklega ort með Rúnu Guðmundsdóttur í huga og er því við hæfí að birta það hér til heiðurs þeirri merkilegustu konu sem ég hef kynnst. Ég sit hér á rúmi mínu og get ekki sofið en tek mér þess í stað blað og penna í hönd til þess að sefa hug minn. Amma Rúna sagði skilið við þennan jarðneska heim fyrr í kvöld, hinn 7.janúar 1997, á nákvæmlega sama tfma og faðir minn lést fyrir þremur árum. Ég er staðföst í trú minni á það að hann hafí sótt hana og fært í faðm síns heittelskaða föður sem hún dáði mest allra manna. Amma Rúna var án efa í hug allra sem kynntust henni stórbrotin mannvera sem eyddi allri sinni ævi í að gefa öðrum af sjálfri sér. Hún var sýnileg uppspretta endalauss andlegs styrks sem bæði ættingjar og utanaðkomandi nutu góðs af. Margir einstaklingar eiga henni iíf sitt að launa hvort heldur er í óeig- andi, f. 1952, Guð- rnundur Helgi, raf- eindavirkj ameistari og kennari, f. 1954, Sophia, fótaað- gerða- og snyrti- fræðingur, f. 1959, Dagbjört Hugrún, fótaaðgerða- og snyrtifræðingur, f. 1963, og Rósa, fótaaðgerða- og snyrtifræðingur, f. 1965. Rúna ól upp tvo dóttursyni sína. Þá bræður Runólf Vigfús, læknanema, og Ásgeir Val, menntaskóla- nema. Barnabörn Rúnu eru 18 og barnabarnabörn 2. Á sínum yngri árum starfaði Rúna við líknarstörf á ýmsum stofnunum auk þess sem hún lærði og vann við kjólasaum. Rúna vann um árabil sem dagmóðir og stuðn- ingsaðili. í áratugi bað Rúna í sjálfboðavinnu fyrir fjölda fólks sem leitaði ásjár hennar vegna fyrirbæna. Eftir Rúnu liggur mikið magn margs konar lista- verka og hannyrða. Minningarathöfn um Rúnu fór fram í kyrrþey að ósk hinn- ar látnu. inlegum eða bókstaflegum skilningi og hún var þungamiðjan í sam- heldni fjölskyldunnar. Kletturinn sem við treystum öll á. Lífíð mun verða mörgum þungbært án stöð- ugrar viðveru hennar hér og eflaust þyngist nú róðurinn enn hjá Sophiu móðursystur minni sem staðið hef- ur á hetjulegan hátt í áralangri baráttu fyrir dætrum sínum. En mundu Sophia mín, að amma Rúna hélt alltaf í vonina og hefði aldrei gefíst upp. Þú ert ekki móðurlaus frekar en dætur þínar, því amma Rúna mun fylgjast með þér úr fjar- lægð og vaka yfír Dagbjörtu og Rúnu litlu. Ömmu Rúnu var móðurhlutverk- ið eðlislægt og var ég aðeins ein af ótal mörgum sem nutu góðs af kærleiksríkum faðmi hennar. Ásamt móður minni er amma Rúna sú manneskja sem dýpst áhrif hef- ur haft á mig og ég er sú sem ég er í dag að miklu leyti fyrir hennar tilstuðlan. Ég hálfólst upp hjá henni sem lítil stúlka og síðustu árin eyddi ég hverjum sunnudegi með henni á Túngötunni þar sem við fengum okkur heitt súkkulaði og meðlæti á meðan við spjölluðum um lífið og tilvenma og horfðum á sjón- varpið. Ég er þakklát almættinu fyrir þessar gleðistundir sem ég átti með henni þrátt fyrir að ég kvíði fyrir næsta sunnudegi og tómarúmstilfinningunni sem hon- um mun fylgja. Ég veit fyrir víst að ég mun aldr- ei kynnast neinum sem tekst á við erfiðleika af jafn miklu æðruleysi og amma Rúna gerði. Líf hennar var nánast þrautaganga frá upp- hafi til enda og ég vildi óska þess að hún hefði fengið að njóta ein- hverrar uppskeru erfiðis síns og góðmennsku í lifanda lífí, en ég efast ekki um að henni verður ríku- lega launað á himnum. Hún átti ætíð við nóg af vandamálum að kljást í fjölskyldumálum, sérstak- lega vegna erfiðra heimilisað- stæðna og líkamlegir kvillar voru einnig ætíð til staðar. Útslitin fyrir aldur fram af þrældómi var líkami hennar illa farinn og kvalirnar og þjáningamar sem hún fór í gegnum áram saman þess vegna eru ólýsan- legar, en blikna í samanburði við þá sálarangist sem hijáði hana vegna Sophiu, Dagbjartar og Rúnu litlu. Elsku amma Rúna mín, nú hefur þér loksins verið líknað og færður sá friður sem þú þráðir alltaf í lif- anda lífí. Tilhugsunin um að lifa án þín er mér óbærileg enda bægi ég henni stöðugt frá mér. Þú varst sem ylvolgur sólargeisli í lífi mínu og annarra fjölskyldumeðlima og ég veit og geri ráð fýrir að þú og pabbi fylgist með mér, enda ólíkt þér að láta af gömlum vana. Ég þurrka nú saknaðartár af kinnum mínum til þess að þau hindri ekki framgang þinn þar sem þú tekur fyrstu skrefin á nýjum stað. Þú alltaf verður einstök rós elsku vinan góða. í krafti trúar kveiki ljós og kveóju sendi hljóða. (Höf. Jóna Rúna Kvaran) Þín elskandi Nína Rúna Kvaran. Lífíð gengur sinn vanagang. Dagur rennur í kjölfar nætur og lífsklukkan tifar. Þrátt fýrir þessar staðreyndir er lífið á ákveðinn hátt hverfult og vissum óumflýjanlegum breytingum undirorpið. Traust björg og mannlegir máttarstólpar era ákveðnir aflgjafar í lífi okkar margra. Þessir mikilvægu lífshvat- ar vilja gjaman verða í hugum okk- ar sem njótum návistar þeirra óhagganlegir og eilífir. Hafi þeir verið okkur til styrktar og gleði reiknum við einfaldlega með tilvist þeirra án breytinga eða frávika. Það er því erfitt þegar við þurfum að horfast í augu við þann veraleika að einstaklingur sem okkur er kær vegna eðliskosta sinna og andlegs atgervis sé horfinn á vit feðra sinna. Fráfall Rúnu Guðmundsdóttur er staðreyndarveruleiki sem undir- strikar einmitt þessi sjónarmið. Rúna var óvenjulegur og kær- leiksríkur máttarstólpi velvilja og góðgimi. Allir sem þekktu Rúnu höfðu tilfinningu þess að hún væri óhagganleg sem klettur auk þess að vera djúpvitur og merkilegur máttarstólpi skilnings og samúðar. í Rúnu huga vora allir einhvers virði og áttu sinn rétt. Það var því ekki að ástæðulausu sem margir leituð huggunar og uppörvunar hjá henni í gegnum tíðina. Hún gat gefíð öðram von og trú á tilgang þess sem lífíð færði þeim í fang þótt erfitt væri á stundum. Rúna var vitur og göfuglynd og gat því bæði huggað og hvatt. Það mátti einu skipta hvaða vind- um lífíð blés um Rúnu og hennar fólk. Hún stóð af sér ótrúlegustu raunir og erfiðleika. Það gerði hún kannski ekki síst vegna staðfastrar guðstrúar sinnar og jákvæðs skap- lyndis. Glöð og létt í lund var Rúna raungóð, staðföst, ákveðin og sönn. Trú hennar á mannkærleika og góðvild var ófrávíkjanleg. Hún sagði e.t.v. ekki mikið en hugsaði því mun meira og lét verkin tala. Rúna var alin upp hjá góðum og dugmiklum foreldram í vesturbæn- um við gjöfult atlæti og umhyggju. Rúna var sérstaklega hænd að föð- ur sínum og með þeim ríkti alla tíð miklill kærleikur. í uppvextinum var það glöð pabbastelpa sem gladdi samferðafólk sitt með hlýju og glettnu brosi. Kímnigáfa og góð- girni vora strax áberandi eðliskost- ir. Hún reyndi á þeim tíma að lúra frameftir á sunnudagsmorgnum til að þurfa ekki að fara í nýþvegna ullarsokkana sem stungu. Freist- andi morgunkaffið varð þó til að drífa hana fram úr því að það beið ávallt lagterta með sultu á eldhús- borðinu. Hún geymdi sér hana allt- af þar til síðast og sá ekki eftir því. Það var án efa ýmislegt sem dreif á daga Rúnu í uppvextinum. Rúna fékk t.d. lömunarveiki tveggja ára og var vart hugað líf auk þess sem hún var átján ára illa haldin af bijósthimnubólgu sem næstum varð henni um megn. Afleiðingar lömun- arveikinnar á fætur Rúnu urðu miklar og þær fjötraðu hana illilega eftir miðjan aldur. Rúna átti þrátt fýrir örðug veikindi á tímabilum skemmtilegar stundir sem barn og unglingur. Hún dvaldi til að mynda mörg sumur hjá ættfólki sínu í Lykkju á Kjalarnesi. Það munaði um krafta hennar því Rúna var alla tíð ósérhlífin og öflug til vinnu og verka. Rúna nam um tíma í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur. Þar sótti hún m.a. þá visku í húshaldi og hannyrðum sem sjálfsagt þótti á þeim tímum að ungar stúlkur kynnu skil á. Hún brautskráðist þaðan með láði eða með tæpa tíu í meðal- einkunn enda fjölgáfuð og listfeng. Rúna lærði síðar kjólasaum og vann við hann um tíma. Rúna elskaði börn og þráði að eignast sín eigin. Hún lét þessa þrá verða að veruleika og valdi að böm- in yrðu mörg. Bömin vora hennar líf og yndi. Rúna hélt ungahópnum sínum saman eftir bestu getu og kom öllum til manns. Þótt lífsbjörg- in væri oft örðug á mannmörgu heimili vora erfiðleikamir til að sigrast á þeim. Oftar en ekki var litla íbúðin hennar jafnframt full af aðkomufólki og börnum sem áttu höfði sínu að halla í hennar hlýja faðmi. Hún virtist alltaf hafa tíma til að koma ýmsum hlutum í verk. Sólarhringurinn hjá henni virtist tvöfaldur. Hannyrðir vora alla tíð líf og yndi Rúnu. Margir fallegir skrautmunir og eftirtektarverð listaverk liggja eftir hana auk þess sem sokkar, peysur og húfur hafa yljað ýmsum fýrir hennar framtak og gjafmildi. Eg varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Rúnu sem fullorðinni konu. Hún hafði þá þegar fjölfatl- ast mikið vegna lömunarveikinnar og þrældóms. Persónuleikinn var það óvenjulegur og stórbrotinn að maður varla tók eftir því að hún studdist við stuðningstæki þegar hún fór ferða sinna. Mér fannst strax eins og ég hefði alltaf þekkt hana. Við spjölluðum um lífsins gagn og nauðsynjar. Þegar ég kom inn úr vetrarkuldanum í hlýjuna á heimili hennar var það miklu meira en ylurinn sem skapaðist fyrir til- verkan Hitaveitu Reykjavíkur sem tók á móti mér. Það var hjartahlýja Rúnu og sálarstyrkur sem settu sitt svipmót á aðstæður hennar og út- geislun. Hún var lifandi ylgjafi vel- vildar og gleði. Þrátt fyrir marg- flókna líkamlega fötlun seinustu árin var andlitið slétt og fallegt, hárið svart og mikið og augun skýr og himinblá. Hún var margflókin manngerð og fjölgáfuð sem unni menningu og listum. Rúna elskaði bækur og tónlist öðra meira. Rúna las t.d. um það bil bók á dag allt síðasta ár. Ég var svo heppin um tíma að fá að styðja Rúnu lítillega á ýmsan hátt. Oftar en ekki var hún þó búin að hafa allt til svo að minnar aðstoð- ar var jafnvel ekki þörf. í kjölfar morgunverkanna tók við heitur kaffísopi og jafnvel lagkaka auk spjalls sem skipti mig miklu máli. Rúna vildi frekar leggja á sig sjálfa ómælt erfiði varðandi daglega til- vera sína fremur en að láta mig eða aðra létta undir með sér ef hún gat komist hjá því vegna fötlunar sinnar og þverrandi lífsafls. Hún var í raun hetja sem barðist við lík- amlega fjötra um árabil. Rúna yfír- steig þótt ótrúlegt sé þær hömlur sem fjötrum fylgja iðulega með því að bugast aldrei. Rúna trúði á já- kvæðan tilgang tilveru okkar og leit á örðugleika sem tækifæri til þess að þroskast í gegnum. Hún kvartaði ekki eða bugaðist. Til fjölda ára bað Rúna fyrir fólki sem leitaði til hennar í von um leið- sögn og styrk þegar það sá engan tilgang með tilvist sinni. Óhætt er að fullyrða að í ótal tilvika var Rúna bænheyrð vegna vanmáttar og veikinda annarra. Rúna var mjög dulræn og upplifði margþætta yfir- skilvitlega reynslu á langri ævi. Hún var rammskygn, afar forspá og með RÚNA G UÐMUNDSDÓTTIR óvenju næma og eftirtektarverða dulheym. Rúna flíkaði ekki þessum þáttum persónu sinnar en þeir sem ungengust hana gátu ekki komist hjá því að verða þess áskynja að í sál Rúnu bjuggu ókunn öfl sem virt- ust hlaðin dulúð og mannkærleika. Sem dæmi um yfírburði hennar á þessum sviðum má nefna að Rúna upplifði á magnaðan hátt, að mér sjáandi, í eigin sál og á sjálfs sín líkama snjóflóðið skelfilega á Flat- eyri og afleiðingar þess á líf og kringumstæður þorpsbúa rúmum sólarhring áður en þær hörmungar dundu yfir. Dulsýnir hennar og skynjanir reyndust alltaf eiga við rök að styðjast. Til fróðleiks um margbreyti- lega og sérkennilega lífsgöngu Rúnu má geta þess að hún var óvenju sjálfstæð og framtakssöm. Rúna átti bíl og bát á sínum yngri árum og var til þess tekið á þeim tíma. Hún reri sjálf til fiskjar. Rúna var á margan hátt á undan sinni samtlð. Hún var mjög ung þegar hún tamdi sér hollustusjónarmið ýmiss konar. Fæðubótarefni og hollur matur skiptu hana máli. Börnin hennar nutu þar sem og á öðram sviðum góðs af hyggjuviti hennar og forsjálni. Rúna átti hjól á sínum yngri fullorðinsárum. Hún notaði það óspart löngu áður en það þótti viðunandi að móðir reiddi bömin sín á stóra tvíhjóli um bæ- inn. Pabbi hennar lét sérsmíða þetta hjól handa henni. Það var óvenju burðugt og veigamikið. Rúnu fannst ótrúlegt að Sigga Magg á Grettisgöturóló væri ömmusystir mín. Henni þótti jafn- framt afar sérstætt að hafa hitt einhvern skyldan Siggu sem tengd- ist inn í örlagavef hennar sjálfrar á mjög sérstakan hátt. En víða liggja ófyrirsjáanleg vegamót sam- skipta. Lífið og tilveran er óneitan- lega margslungin og óvænt. Við ræddum m.a. um eftirmælaskrif og annað sem fylgir umskiptum á milli heimanna. Hún hafði staðfasta skoðun á þeim málum og hafði jafn- vel á orði að eftirmæli um sig kærði hún sig ekki um í blöðum. Eg benti henni á að hún myndi engu fá um það ráðið ef einhver vildi minnast hennar og svarið sem ég fékk var: „Það er víst rétt, Jóhanna mín. Það hefur aldrei verið mér að skapi að taka ráðin af öðram!“ Rúna var alltaf mikið jólabarn og kvaddi þessa jarðvist daginn eftir þrettándann. Jólabækurnar eru enn ólesnar utan bókin um „Bassa“ Gunnar Huseby æskuvin- inn sem á erfíðum stundum létti henni og börnum hennar lífið með eftirminnilegum hætti. Gunnar hafði eðalhjarta að mati Rúnu og barna hennar. Það er mikill harmur fyrir alla fjölskylduna að sjá á eftir elsku- ríkri ættmóður, félaga og vini í raun. Máttarstólpans með gullhjart- að, kærleiksríka viðmótið og léttu lundina. Heimkoman í ríki Drottins hefur vafalaust verið Rúnu góð vegna kærleiksverka hennar og mannkosta. Rúna kveið því ekki að sameinast liðnum ástvinum sínum aftur þó að hún kysi ýmissa hluta vegna að fá að vera lengur á með- al okkar. Með vinsemd og virðingu kveð ég nú vinkonu mína Rúnu Guð- mundsdóttur um leið og ég votta ástvinum hennar samúð mína. Blessuð sé minning merkilegrar konu. Jóhanna B. Magnúsdóttir. Elsku amma okkar. Við viljum kveðja þig með þessum fáu orðum þó svo að við hefðum viljað gera það á annan hátt. Við héldum að við gætum fengið miklu lengri tíma með þér því eins og þú veist þá vill maður alltaf lifa í voninni. Við getum ekki enn trúað þvi að þú sért farin frá okkur en við reynum að sætta okkur við það því að við vitum að þú ert komin á góðan stað þar sem þér líður vel. Það var svo margt sem við áttum eftir að segja við þig en við trúum því að við fáuin annað tækifæri og guð einn veit hvenær það verður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.