Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SVONA Siv mín, þú ferð létt með að svolgra úr þessum kaleik líka. . .
Deilt um framtíð Miklu-
brautar í skipulag’snefnd
FRESTAÐ var afgreiðslu skýrslu
um skipulag Miklubrautar á síðasta
fundi skipulagsnefndar Reykjavíkur
og kaflanum um loft- og hávaða-
mengun var vísað til heilbrigðis-
nefndar. í bókun borgarfulltrúa
Reykjavíkurlista segir að lagning
Miklubrautar í stokk sé verulega til
bóta fyrir íbúa en í bókun borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokks segir að ef
gatan verði lögð í stokk myndi um-
ferðin færast inn í nærliggjandi
íbúðahverfi.
I bókun borgarfulltrúa Reykjavík-
urlista segir meðal annars, að skylt
sé að stíga fyrstu skrefin í þá átt
að sporna við óheftri aukningu
einkabíla í borginni. Þess vegna sé
í aðalskipulagi gert ráð fyrir tiltölu-
lega lítilli aukningu umferðarrýmis
vestan Elliðaáa. Ahersla verði lögð
á að aðalgatnakerfið verði lagfært
til muna í því skyni að fækka um-
ferðarslysum og draga úr mengun.
í mótsögn við eigin lausnir
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks bókuðu
mótmæli gegn tillögu Reykjavíkur-
lista um uppbyggingu Miklubrautar,
sem sé meginumferðaræð í Reykja-
vík. Bent er á að fulltrúar Reykjavík-
urlista séu í sínum sérbókunum í
mótsögn við þær lausnir sem þeir
leggi til að fylgt verði. Sérstaklega
eigi þeir erfítt með að gera upp hug
sinn um hvort gatnamót við Kringlu-
mýrarbraut eigi að vera ljósastýrð
eða mislæg. Sjálfstæðismenn leggi
til að arðbærasti kosturinn verði val-
inn með þeirri breytingu þó að Miklu-
brautin verði ekki lögð í rör eða stokk
vestast og að gatnamót við Kringlu-
mýrarbraut og Skeiðarvog verði mis-
læg. Fram kemur að lagning Miklu-
brautar í stokk að Snorrabraut muni
draga úr hávaða og loftmengun við
götuna en aðgengi að Hlíðunum
myndi versna og umferð flytjast yfír
á íbúðargötur. Leita þyrfti annarra
lausna við mengunarvandanum hvort
sem þær fælu í sér kaup á íbúðum
við götuna eða ekki.
í bókun Reykjavíkurlista segir
meðai annars að tillögur varðandi
Miklubraut séu byggðar á skýrslu
og nákvæmri úttekt, sem unnin sé
í samræmi við sambærilegar for-
sendur í umferðarskipulagi og verið
hafi. Bent er á að mislæg gatnamót
í íbúðahverfí í nágrenni miðbæja séu
vandleyst hvað varðaði umhverfis-
sjónarmið.
Lagning Miklubrautar í stokk að
vestan sé veruleg bót fyrir þau hús
sem búa við mestu loft- og hávaða-
mengunina og bæti aðgengi að úti-
vistarsvæðinu á Miklatúni. Sam-
kvæmt tillögunni sé gert ráð fyrir
grænu svæði, þar sem nú sé stór
og fjölfarin umferðaræð. Nánari út-
færsla bíði deiliskipulags sem unnið
verði í samvinnu við íbúa.
Kynslóðareikningar til
hliðsjónar við fjárlagagerð
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi
tillaga til þingsályktunar um gerð
svokallaðra kynslóðareikninga til
hliðsjónar við gerð fjárlaga og opin-
berra áætlana. Flutningsmenn eru
Steingrímur J. Sigfússon og Ög-
mundur Jónasson, Alþýðubanda-
lagi.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir að kynslóðareikningar hafí verið
gerðir á síðustu árum í Bandaríkj-
unum, Japan, Þýskalandi, á Norður-
löndum og víðar. í þeim er reynt
að spá um líklega skattbyrði núlif-
andi og komandi kynslóða og hvaða
breytingar þurfi að gera í efnhags-
málum til að jafna skattbyrði kyn-
slóða.
Meðal þess sem tekið er tillit til
við útreikningana er afkoma hins
opinbera, tilhögun tekjuöflunar og
ráðstöfun tekna hins opinbera,
breytingar í aldurssamsetningu
þjóðarinnar, raunvexti, hagvöxt,
atvinnuástand og fyrirkomulag líf-
eyrismála.
í Bandaríkjunum hafa kynslóð-
aútreikningar valdið töluverðum
deilum um það hversu hratt eigi að
minnka ríkissjóðshallann.
Rannsóknir á 18. aldar frædum
*
Aljánda öldin -
átök tveggja
heimsmynda
Næstkomandi
laugardag verður í
fyrirlestrarsal
Þjóðarbókhlöðu klukkan 13
haldin ráðstefna um stöðu
rannsókna í 18. aldar fræð-
um hér á landi. Fyrirlesarar
verða Guðmundur Hálfdan-
arson, sem talar um sagn-
fræði, Vésteinn Ólason talar
um bókmenntir, Gísli Sig-
urðsson ræðir um þjóð-
fræði, Svavar Sigurmunds-
son ij'allar um málfræði og
Inga Huld Hákonardóttir
um kvennafræði. Að lokn-
um erindum verða pail-
borðsumræður sem fyrirles-
arar taka þátt í auk Gunn-
ars Harðarsonar, lektors í
heimspeki. Ráðstefnan er
öllum opin, fundarstjóri er
Sveinn Ingvi Egilsson. Ráð- VéSteÍnn OlaSOn
stefnunni lýkur klukkan
16.30. í fyrirlestrunum verður
gerð grein fyrir rannsóknum á 18.
aldar efni, hvað hefur verið tekið
fyrir og hvernig til hefur tekist.
Vésteinn Ólason tekur t.d. fyrir
bókmenntir í „víðu“ samhengi.
- Mér er ætlað að gefa þarna
yfirlit yfír rannsóknir á bók-
menntasögu," sagði Vésteinn. „Eg
skal taka það fram að ég er ekki
sérfræðingur í bókmenntum 18.
aldar en hef samt starfs míns
vegna fylgst með því sem þar
hefur verið að gerast. Það er nokk-
uð sérstakt margt með 18. öldina,
bókmenntasaga og almenn menn-
ingarsaga eru þar mjög samflétt-
aðar. A þessari öld fara nýjar
hugmyndir að takast á við eldri
heimsmynd.
Hver er munurinn á hinni eldri
og yngri heimsmynd
- Eldri heimsmyndin er um-
fram allt heimsmynd hins svokall-
aða lútherska rétttrúnaðar, það
eru lífsskoðanir og trúarhug-
myndir sem við getum kynnst t.d.
í Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar og Vídalínspostillu. Sam-
kvæmt þessari heimsmynd er allt
ráð mannsins og náttúran ! hendi
Guðs. Jafnframt fléttast inn í
þetta bæði lærðar og alþýðlegar
hugmyndir um samhengi yfirnátt-
úrlegra og náttúrlegra fyrirbæra
og margs konar dulúð sem er
okkur býsna framandi nú á dög-
um. Upplýsingin á sér rætur í
athugun á náttúrunni, í skynsem-
ishyggju og trú á það að menn
geti bætt líf sitt fyrir tilstilli upp-
lýsingar, það er að segja vitneskju
um heiminn og náttúruna og skiln-
ings á náttúrulögmálum. Þess
vegna má segja að Upplýsingar-
bókmenntirnar séu að mjög miklu
leyti uppeldis- og kennslubók-
menntir, svo sem Búnaðarbálkur
Eggerts Ólafssonar,
Atli eftir Bjöm í Sauð-
lauksdal eða rit þeirra
Hannesar Finnssonar
og Magnúsar Steph-
ensen.
Hvað er meginefni þíns
fyrirlesturs.
- Það er að vekja athygli á
þeim miklu rannsóknum á þessu
tímabili, sem hafa birst á undan-
förnum árum. Raunar mætti telja
upp margt af sviðum sem skarast
við bókmenntasöguna, eins og t.d.
rannsóknir Lofts Guttormssonar á
fræðslumálum og alþýðumenn-
ingu, rannsóknir Hjalta Hugason-
ar á guðfræði og trúarlífi, Sveins
Einarssonar á leiklistarsögunni og
síðast en ekki síst rannsóknir Inga
Sigurðssonar. Mitt efni er auðvit-
að bókmenntirnar um fram allt
Upplýsingin á
sér rætur í at-
hugun á nátt-
úrunni.
► Vésteinn Ólason er fæddur á
Hornafirði árið 1939. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Laugarvatni árið 1959
og meistaraprófi í íslenskum
fræðum árið 1968. Doktors-
prófi lauk hann árið 1983,
hvoru tveggja frá Háskóla Is-
lands. Hann hefur starfað við
háskólakennslu og fræðistörf
síðustu 30 árin. Nú er hann
prófessor í íslenskum bók-
menntum við HÍ. Hann er
kvæntur Unni A. Jónsdóttur
kennara. Þau eiga tvö börn.
og þar fer mest fyrir því sem
Matthías Viðar Sæmundsson hef-
ur verð að gera. Reyndar hafa
mjög margir af nemendum hans
skrifað prófritgerðir um efni frá
þessum tíma. Eg gæti nefnt sem
dæmi ritgerð Maríu Önnu Þor-
steinsdóttur, Tveggja heima sýn,
um sögu Ólafs Þórhallasonar. Það
er að mínum dómi mjög merkileg
rannsókn á stórmerkilegu bók-
menntaverki sem nánast ekkert
hefur verið rannsakað til þessa
og leiðir í ljós sérstæða samteng-
ingu hugmynda Upplýsingarinnar
og hefðbundins íslensks sagna-
arfs. Sagan er eftir Eirík Laxdal
og hana má telja fyrstu íslensku
skáldsöguna.
Hvað er það helst sem Matthías
Viðar hefur leitt í Ijós með rann-
sóknum sínum?
- Matthías hefur glímt mikið
við einmitt átök þessara tveggja
heimsmynda sem ég gat um áðan.
Annars vegar í því sem hann hef-
ur skrifað um galdra og hug-
myndaheim fyrri tíðar og síðan
um verk Upplýsingarmanna í
mjög rækilegum kafla í þriðja
bindi íslenskrar bókmenntasögu,
sem kom út núna fyrir
stuttu. Matthías reynir
að sýna fram á hvernig
hugmyndir einstakling-
anna um sjálfa sig eru
að breytast í þeim bók-
menntum sem samdar
eru á þessu tímabili,
ekki síst í sjálfsævisögulegum
bókmenntum og draga fram sér-
stakar mótsagnir sem eru áber-
andi hjá íslenskum höfundum.
Upplýsingin barst hingað seint og
átti nokkuð erfítt uppdráttar sem
eðlilegt var vegna þess að hún
barst hér inn í nánast örbjarga
samfélag. Vitanlega mun ég reyna
að koma að fleiri efnum en þessum
tveimur verkum sem ég er búinn
að nefna því margt fleira um þenn-
an tíma verðskuldar að því sé
gaumur gefínn.