Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 17
NEYTENDUR
Kaffihúsið Puccini
Þar sem kaffiboll-
inn er í fyrirrúmi
KAFFIHÚSIÐ Puccini kúrir í pínu-
litlu húsi ofarlega við Vitastíginn. Á
efri hæðinni snarkar í arninum og
gestir sitja í hádeginu við eldinn og
oma sér á kaffibolla. Klassísk tónlist-
in truflar ekki niðursokkna gestina
og kertaljós loga á borðum. Það er
reyndar einkenni allra svokallaðra
Bamie’s kaffihúsa í heiminum að
vera í litlum og hlýlegum húsakynn-
um þar sem kaffibollinn skipar fyrsta
sætið og andrúmsloftið á að vera
rólegt. Puccini er hluti af bandarísku
kaffihúsakeðjunni Bamie’s coffie &
tea company sem hóf starfsemi í litlu
húsnæði í miðborg Orlando á síðasta
áratug. Í dag skipta kaffi- og veit-
ingahúsin með þessu nafni hundruð-
um og útibú em ekki einungis í
Bandaríkjunum heldur víða um heim.
Tilviyun að farið var í
kaffihúsarekstur
„Það var eiginlega tilviljun sem
réð því að ég fékk umboðið," segir
Öm Þorvarðarson einn af eigendum
Puccini. „Ég var á ferð um Bandarík-
in og rakst á svona kaffihús. Þegar
ég fór heim var kaffi þaðan í fartesk-
inu, ég var hvattur til að hafa sam-
band og fá umboðið og sló tii.“ Það
tók Öm og meðeigendur hans nokk-
urn tíma að finna nógu lítið og hent-
ugt hús fyrir kaffihúsið en þegar það
var fundið var ekki eftir neinu að
bíða. „Við rifum niður allt úr húsinu
og má segja að við höfum endur-
byggt það áður en við opnuðum í
haust. Þó að gæðaeftirlit fyrirtækis-
ins sé mjög strangt fengum við nokk-
uð frjálsar hendur við hönnun hús-
næðisins. Þeir sendu síðan starfs-
mann sinn hingað fyrir jólin án þess
að láta okkur vita til að taka út starf-
semina og það var ekki fyrr en þeir
höfðu samband við okkur í janúar
að við vissum af því að hann he.fði
verið hér.
60 kaffitegundir
Örn segir að kaffihúsin erlendis
bjóði gestum sínum upp á um sextíu
kaffítegundir, sama fjölda af teteg-
undum og tíu mismunandi kakó-
blöndur. Til stendur að auka úrvalið
á Puccini en enn sem komið er eru
kaffitegundimar 26 og 12 mismun-
andi tetegundir. „Við bjóðum gestum
kaffi hússins „Bamie’s special" sem
er hellt uppá með gamaldags aðferð
en hinar tegundirnar eru í pressu-
könnum."
Bróðir Arnars, Hjalti Þorvarðar-
son, sér um daglegan rekstur en
hann er matreiðslumaður. „Hann sér
til þess að viðskiptavinir geti fengið
sér súpu og brauð í hádeginu og auk
þess er boðið upp á bökur, kökur og
brauð.” Öm segir að kaffihúsakeðjan
sé reyndar með sína eigin uppskrifta-
bók og stendur til að baka uppúr
henni með tímanum.
Jazzkaffi á döfinni
Það er ýmislegt annað á döfinni,
von á nýju eðalkaffi 100% Jamaica
blue mountain og einnig jazzkaffi.
„Jazzkaffið kom á markað í haust
og sló í gegn vestra. í kjölfarið var
stofnaður jazzklúbbur Bamie’s og
með hvetjum 500 gramma kaffi-
pakka fylgir geisladiskur og jazz-
tímarit. Það sama verður upp á ten-
ingnum hér, kaffinu fylgir þessi
glaðningur og við erum að velta fyr-
ir okkur uppákomum tengdum jazzi
þegar kaffíð kemur til landsins.”
Við fengum að glugga í upp-
skriftabók Bamie’s og rákumst þar
á eftirfarandi uppskrift.
Beikon- og ostoboilur
Miðað er við bandarisk bollamól
(sem eru stærri en við eigum að
venjast)
1 ^bollar hveiti
2 '/stsk. lyftiduft
'Atsk. salt
’/sbolli sterkur ostur
2 msk sykur
10 sneiðar beikon, steikt og mulið
1 stórt lausþeytt egg
lúbolli mjólk
V3bo11i grænmetisolía
Blandið saman í skál hveiti, lyfti-
dufti, salti, osti, sykri og beikoni.
Bætið út í eggjum, mjólk og olíu
og hrærið í uns blandan er orðin
jöfn og blaut. Setjið deigið í vel
smurð lítil pappaform (muffinsform)
og rúmlega hálffyllið þau. Bakið við
200°C í 20-22 mínútur eða þangað
til kökumar eru orðnar gylltar. ■
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BRÆÐURNIR Örn og Hjalti Þorvarðarsynir sem reka kaffihús-
ið Puccini ásamt eiginkonu Hjalta, Ernu Eyjólfsdóttur, og for-
eldrum, Þorvarði Þorvarðarsyni og Erlu Lýðsson Hjaltadóttur.
ppfiSB
með bragðið i huga