Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
JÓHANN, Edda Heiðrún og Ingvar búa sig undir
að tökur hefjist.
EDD A Heiðrún Bachman leikur eiganda
undirfataverslunar.
EGILL Eðvarðsson, upptökustjóri, og Jóhann
Sigurðarson, leikstjóri, bera saman bækur sínar.
Gluggað
í gamlar
skræður
ÖKUR fara fram í Saga
Film um þessar mundir á
Fornbókaversluninni,
nýjum sjónvarpsþáttum
sem sýndir verða um páskana á
Stöð 2. „Hugmyndin að þáttunum
kviknaði fyrir sex til sjö árum,“
segir Jóhann Sigurðarson, leik-
stjóri, en handritsgerð var í höndum
hans og Guðmundar Ólafssonar,
sem fer með stórt hlutverk í þáttun-
um.
„Ég ráðfærði mig við aðra og
niðurstaðan varð sú að mönnum
leist vel á hugmyndina,“ heldur
Jóhann áfram. „Eg fékk þess vegna
Guðmund Ólafsson í lið með mér
og fengum við handritsstyrk frá
Menningarsjóði útvarpsstöðva. í
fyrra fengum við svo framleiðslu-
styrk úr sama sjóði, sem hljóðaði
upp á 3,5 milljónir, og tók Saga
Film verkefnið að sér.“
Ógiftur sérvitur sælkeri
Jóhann segist vissulega hafa verið
tíður gestur í fornbókabúðum, en
það hafi þó ekki gert útslagið um
staðarvalið. „Þættir af þessu tagi
geta gerst hvar sem er, á heilsuhæl-
um, í bókabúðum eða á bílaverk-
stæðum. Líklega er algengast að
þeir gerist á heimilum," segir hann.
„Fornbókaverslun er hins vegar
skemmtilegur bakgrunnur fyrir
þættina vegna þess að sífellt er
hægt að flétta inn í söguþráðinn
tilvitnunum í bækur, blöð og tíma-
rit. Það styður hvert annað í heil-
stæðri mynd af fólkinu og um-
hverfi þess.“
Rögnvaldur Hjördal og Björn
ísleifsson eru eigendur fornbóka-
verslunarinnar og eru leiknir af
Ingvari Sigurðssyni og Guðmundi
Ólafssyni. „Rögnvaldur er ógiftur
sérvitringur sem leggur mikla rækt
við andlegu hliðina," segir Jóhann.
„Hann er meðlimur í sælkera-
klúbbi, ferðast um allan heim og
hefur ákveðinn og afgerandi stíl.“
Björn er andstæða hans, á konu
og börn og stendur í stöðugu basli
við að láta enda ná saman. Hann
þarf oft að bregða sér úr vinnunni
til að sinna heimilisstörfunum eða
sækja bömin í leikskólann.
Vafasöm viðskipti
í næsta húsi við hliðina á forn-
bókaversluninni er undirfataverslun
og er eigandi hennar Ester Ákadótt-
ir, sem leikin er af Eddu Heiðrúnu
Bachman. „Hún er einstæð og sjálf-
Morgunblaðið/Golli
GUÐMUNDUR Ólafsson í þungum þönkum.
stæð kona í atvinnurekstri sem
berst fyrir tilveru sinni,“ segir Jó-
hann. „Á sama tíma er hún ákaf-
lega draumlynd manneskja."
Danni, einn af fastagestum forn-
bókaverslunarinnar, er leikinn af
Steini Ármanni Magnússyni. Hann
er að skjóta sig í Ester og má lýsa
sambandi þeirra þannig að þau séu
stundum saman og stundum sund-
ur. Hann hefur átt undir högg að
sækja um ævina og kemur fyrir að
hann eigi í vafasömum viðskiptum.
Alltaf eitthvað til að rannsaka
Laddi er í hlutverki rannsóknar-
lögreglumanns sem heimsækir
verslunina reglulega og segir sögur
af atburðum næturinnar. „Hann lif-
ir sig inn í starfið fram í fingur-
góma og finnst allt grunsamlegt,"
segir Laddi og blandar sér í sam-
ræðurnar. Hvað er hann þá að rann-
saka? spyr blaðamaður. „Það má
alltaf finna eitthvað til að rann-
saka,“ svarar Laddi með tvíræðu
brosi.
Eilífðarstúdentinn Jón stúd er
einnig fastagestur í fornbókaversl-
uninni. „Hann er eins og margmiðl-
unardiskur um skáldskap og þjóð-
háttafræði,“ segir Hjálmar Hjálm-
arsson, sem fer með hlutverk hans
í þáttunum. „Hann er að ljúka við
langa ritgerð um draugasögur, sem
gengur heldur treglega, enda eru
alltaf nýjar og nýjar upplýsingar
að koma í ljós.“
Svarar bleiku spurningunum
Skyndilega bregður Hjálmar sér í
hlutverk Jóns stúds, teygir sig inn
STÓR- ÚTSALA
Frábærir KHANtfDK vetrarhjólbarðar!
145R12 •5rt«9- 3.113 stgr
155R12 -6:969- 3.233 stgr
135R13 4399- 2.990 stgr
145R13 -s^ee- 3.120 stgr
155R13 -5309- 3.233 stgr
165R13 -5330- 3.320 stgr
175/70R13 3.590 stgr
175R14 -fr439- 3.850 stgr
185R14 -7 rrnn -rrrutr 4.280 stgr
185/60R14
195/60R14
175/70R14
185/70R14
185/65R15
195/65R15
&em
&840'
4.367 stgr
4.660 stgr
4.193 stgr
4.127 stgr
4.657 stgr
5.300 stgr
Jeppadekk 25% afsl.
235/75 R15 kr.4úrfÖ0 kr. 8.025 stgr. • 30-9.50 R15 kr. JÁÆSOkr. 8.737 stgr.
31-10.50 R15 kr.4&65&kr. 9.487 slgr. • 33-12.50 R15 kr. 4á65frkr. 11.662
NYBARÐI
GOÐATÚNI 4-6, GARÐABÆ
SÍMI 565 86 00
Sendum í póstki\öi
SKÚTUVOGI2
SÍMI 568 30 80
fyrir afgreiðsluborðið og dregur
fram bók sem hann segir að væri
áreiðanlega í sérstöku uppáhaldi
hjá Jóni. Blaðamanni þykir hún
vera í þurrari kantinum, en um er
að ræða Hæstarréttardóma frá
árinu 1944.
Hjálmar þreifar hins vegar á
bókinni og opnar hana svo, að því
er virðist af mikilli innlifun, bendir
á einn dóminn og segir: „Jón hefði
einmitt gaman af þessum dómi.“
Hann réttir blaðamanni bókina sem
sér að um er að ræða mál sem var
tilkomið vegna þess að Hálfdán
Kristjánsson var kallaður „striga-
kjaftur" og um hann var sagt: „En
Dána gamla þótti sopinn góður,
og þurfti oft að endurreisa hann.“
„Þetta er einmitt þjóðlegur fróð-
leikur í anda Jóns stúds," segir
Hjálmar. „Hann hefur gaman af
því að grúska í gömlum skræðum
og leita að einhverju bitastæðu.“
„Enda veit hann allt,“ segir Jó-
hann. „Hann getur meira að segja
líka svarað bleiku spurningunum
[í Trivial] og veit meira en Ester
um kóngafólkið þótt Ester kaupi
alltaf Hello.“
Erfiðleikar
sem Bond á
við að etja
Pierce
Brosnan
► TÖKUR á nýrri kvikmynd
um James Bond eiga að hefj-
ast í febrúar. Samt á ennþá
eftir að finna leikara í hlut-
verk
helsta ill-
mennis
myndar-
innar. Efst
á óska-
listanum
voru Sean
Connery,
sem sjálf-
ur lék 007
á sínum
tíma, og
Terence Stamp. Þeir voru
ekki til viðræðu. Anthony
Hopkins, sem lengi hefur
sýnt áhuga á að leika and-
stæðing Bonds, var önnum
kafinn.
Þetta eru ekki einu erfið-
leikarnir sem upp hafa kom-
ið. Áætlað hafði verið að tök-
ur færu fram í Leavesden-
kvikmyndaverinu, en George
Lucas hefur nú hrifsað það
til sín fyrir framhald á
myndaröðinni um Stjörnu-
stríð. Þurftu því Roger
Spottiswoode, leikstjóri, og
aðstandendur Bond-myndar-
innar að byrja upp á nýtt í
St. Albans.
Talsmaður Eon, sem fram-
leiðir Bond-myndina, sagði í
samtali við fréttamenn að
þrátt fyrir þetta yrði staðið
við fyrri áætlanir um að
frumsýna myndina um næstu
jól. Hann sagði að nokkrir
góðir og virtir leikarar
kæmu til greina í hlutverk
þorparans, en enn ætti eftir
að ganga frá samningum.