Morgunblaðið - 26.03.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 26.03.1997, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 71.TBL. 85.ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Bush stekk- ur í fallhlíf GEORGE Bush, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, stökk í fallhlíf yfir eyðimörk í Arizona í gær og efndi þar með loforð sem hann gaf eftir fyrsta failhlífarstökk sitt þegar herflugvél hans var skotin niður yfír Kyrrahafi í síðari heims- styijöldinni. Bush, sem er 72 ára, stökk úr flugvél í um 3.800 metra hæð og lendingin gekk að óskum. Tveir sérfræðingar í fallhlífar- stökki höfðu þjálfað forsetann fyrrverandi og stukku með hon- um. Hann var í fyrstu festur með ólum við sérfræðingana en leyst- ur frá þeim þegar fallhlíf hans opnaðist. Vextirnir hækkaðir Washington. Reuter. SEÐLABANKI Bandaríkjanna ákvað í gær að hækka skammtíma- vexti viðskiptabanka í fyrsta sinn í rúm tvö ár til að freista þess að afstýra aukinni verðbólgu og draga úr þenslu í efnahagnum. Vextirnir voru hækkaðir um fjórð- ung úr prósenti og verða 5,50%. Líklegt er að ákvörðunin leiði til hærri vaxta fyrir neytendur og fyrir- tæki og sæti gagnrýni þingmanna, sem telja hana ekki nauðsynlega. Flokkur forseta Zaire reynir að semja um vopnahlé við uppreisnarmenn Vill mynda ríkisstjórn með Kabila Kinshasa. Reuter. FLOKKUR Mobutu Sese Seko, for- seta Zaire, kvaðst í gær vera reiðu- búinn að „deila völdunum" með upp- reisnarmönnum, sem hafa lagt undir sig um þriðjung landsins. Fast var lagt að Mobutu og Laurent Kabila, leiðtoga uppreisnarmanna, að semja um frið, en ekki var ljóst í gær hvort Kabila féllist á myndun samsteypu- stjórnar. Bandarikjamenn, Belgar og Frakkar söfnuðu liði á landamær- um Kongó og Zaire og undirbjuggu brottflutning Vesturlandabúa í Zaire versnaði ástandið. Banza Mukalayi, varaformaður flokks Mobutu, sagði að flokkurinn myndi fyrst reyna að ná samkomu- lagi við uppreisnarmennina um vopnahlé og síðan yrði rædd myndun samsteypustjórnar sem yrði við völd fram að þingkosningum, sem stefnt er að ekki síðar en í júlí. Uppreisnar- mennirnir eru enn um þúsund km austur af Kinshasa, höfuðborg Za- ire, en þeir stefna nú á Shaba-hér- að, sem er auðugt af málmum, og hafa hingað til mætt lítilli mótstöðu stjórnarhersins . Að sögn suður-afrískra heimild- armanna hefur Kabila faliið frá kröfu um beinar viðræður við Mob- utu og fallist á að semja við nefnd, sem forsetinn skipaði. Skæruliða- leiðtoginn væri hins vegar aðeins reiðubúinn til að semja í eitt skipti fyrir öll og niðurstaðan yrði að vera afgerandi. Friðarviðræður í Togo Suður-afrískir sendierindrekar, sem ræddu við Mobutu á sunnudag og færðu honum nýjar friðartillögur Reuter GAMALL rúandískur flóttamaður hnígur niður eftir Hanga göngu til þorps í Zaire, þar sem um 17.000 flóttamenn bíða eftir matvælum frá hjálparstofnunum. Flóttamennirnir hafa reikað um austurhluta Zaire í rúma fjóra mánuði og segjast nú vilja snúa aftur til Rúanda sem allra fyrst. sögðu að þeim yrði svarað innan tveggja sólarhringa. Sá frestur rann út í gærkvöldi. Mobutu og Kabila hafa sent samn- ingamenn til borgarinnar Lome í Togo til að sitja sérstakan fund Ein- ingarsamtaka Afríku (OAU), sem hefst í dag. Háttsettir bandarískir og franskir embættismenn eru einn- ig komnir til Lome til að sitja fund- inn. Hyggjast þeir reyna að koma í veg fyrir að Zaire leysist upp. Ekki þurfti heldur vitnanna við um samstarf Bandaríkjamanna og Frakka í Brazzaville, höfuðborg Kongó. Á flugvellinum þar voru um eitt þúsund bandarískir og franskir hermenn ásamt belgískum. Verið var að búa sveitirnar undir að haida yfir Zaire-fljót til Kinshasa þannig að hægt yrði að flytja nokk- ur þúsund Vesturlandabúa, sem þar eru búsettir, á brott versni ástandið skyndilega. Reuter ALBANSKUR sjómaður rær í átt að brennandi báti í höfninni I Durres í Albaníu. Fólk sem reyndi að flýja landið kveikti í gömlum bátum í höfninni eftir að þeim tókst ekki að ræsa vélar þeirra. Moskvu. The Daily Telegraph. BORÍS Nemtsov, nýr aðstoðar- forsætisráðherra Rússlands, hefur valdið titringi meðal skriffinna í Kreml, sem eru ekki hrifnir af þeim tilmælum hans að þeir segi skilið við útlendu eðalvagnana og aki rússneskum bifreiðum. Nemtsov hefur mælt með því að embættismennirnir fái Volgu-bíla, sem þykja harla ótraustir og eru með svo stíf stýri að þau reyna jafnvel á handstyrk rússneskra lyft- ingamanna. Meðmæli aðstoð- arforsætisráðherrans ættu ekki að koma á óvart því Volg- urnar eru framleiddar í Nísní Novgorod, þar sem hann var héraðsstjóri áður en hann gekk til liðs við stjórnina. Deilt um Volg- una í Kreml Pavel Borodín, sem annast öll bílakaup fyrir embættis- mennina, er ekki ginnkeyptur fyrir Volgunni. „Við keyptum áður um 700 Volgur á ári,“ sagði hann. „Þar af biluðu 200 strax, 300 innan hálfs mánaðar og afgangurinn á þremur vik- um. Núna kaupum við bíla af gerðinni Volvo, Saab, Audi og Mercedes." Verksmiðjan framleiddi eitt sinn sérsmíðaðar Volgur eftir pöntun í því skyni að sýna fram á að þær jöfnuðust á við út- lendu bílana. „Þegar ég opnaði farangursgeymsluna duttu afturljósin af,“ sagði Borodín. „Þegar ég opnaði vélarhlífina hrundu framljósin. Ég lokaði hurðinni og hún datt af. Eftir 10.000 km bilaði gírkassinn." Jeltsín á Mercedes Borodín kann að ýkja galla bílsins, en alkunna er að menn þurfa oft að leggja mikið á sig til að koma nýjum rússneskum bílum í viðunandi ástand. Þeir sem til þekkja segja að þess vegna sé ráðlegt að kaupa frekar góða notaða bíla, því fyrri eigendur hafi þá leyst by ij unarör ðugleikana. Borís Jeltsín, forseta Rúss- lands, er yfirleitt ekið til vinnu í Mercedes en hann stígur stundum í gamlan rússneskan ZIL-bíl við formleg tækifæri. Viktor Tsjernomyrdín notar oftast Mercedes, en þegar hann vill sýna að hann sé mað- ur fólksins lætur hann taka myndir af sér við eilífðariðju rússneskra karlmanna - bard- ús undir vélarhlíf Lödunnar sinnar. Albanía Lögreglu- þjónar myrtir Tirana. Reuter. FJÓRIR lögreglumenn voru myrtir í Albaníu í fyrrinótt, þrír þeirra í borginni Vlore í suðurhlutanum sem er á valdi uppreisnarmanna. Lögreglumennirnir i Vlore voru að elta stolna bifreið þegar vopnað- ir menn í tveimur öðrum bílum sátu fyrir þeim og hófu skothríð. Yfir- völd staðfestu að fjórði lögreglu- maðurinn hefði verið myrtur í Tir- ana en vildu ekki veita frekari upp- lýsingar um morðið. ESB leggst ekki gegn íhlutun einstakra ríkja Stór hluti suðurhlutans er á valdi vopnaðra uppreisnarmanna og glæpahópa og ráðamenn í Albaníu hafa óskað eftir aðstoð erlendra ríkja við að koma á lögum og reglu í landinu. Utanríkisráðherrar ríkja Evrópusambandsins (ESB) sögðust í gær ekki leggjast gegn því að einstök ríki utan eða innan ESB sendu hermenn til Albaníu í því skyni að aðstoða við dreifingu hjálp- argagna. Ráðherrarnir náðu þó ekki samkomulagi um að senda fjölþjóð- legar hersveitir til að koma á lögum og reglu í landinu. Tyrkir hafa þegar lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir að senda hermenn til Albaníu. ítölsk _sjón- varpsstöð skýrði frá því að ítalir, Frakkar, Spánverjar og Portúgalir vildu einnig senda þangað hermenn ef samkomulag næðist um einhvers konar íhlutun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.