Morgunblaðið - 26.03.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samningsmarkmið
og möguleikar á uppsögn
Kaupmáttar-
aukning meiri en í
viðskiptalöndum
SAMKOMULAG náðist um helgina
um að setja sérstakt opnunarákvæði
í kjarasamningana sem undirritaðir
voru á mánudagskvöldið, ásamt
skýringTjm, þar sem kveðið er á um
viðbrögð ef kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna eykst ekki í samræmi við þró-
un í helstu viðskiptalöndum.
Samningsákvæðið er svohljóð-
andi: „Samningsaðilar eru sammála
um það markmið að stöðugleiki geti
haldist í íslensku efnahagslífi.
Samningsaðilar vænta þess að
hagvöxtur og framleiðniaukning
muni á næstu árum skapa forsendur
fyrir því að launabreytingar skv.
samningi þessum skili auknum
kaupmætti. Út frá því er gengið að
kaupmáttaraukning ráðstöfun-
artekna verði marktækt meiri en að
meðaltali í viðskiptalöndum okkar.
Leiði ófyrirséð atvik til þess að fram-
angreint mark náist ekki, þannig að
þróunin frá upphafi samningstímans
verði ekki með hliðstæðum hætti og
í viðskiptalöndunum, skulu fulltrúar
heildarsamtakanna leggja mat á
þróunina og gera tillögur um við-
brögð. Náist ekki samkomulag um
viðbrögð geta stjórnir heildarsam-
takanna sagt launalið samningsins
lausum með fjögurra mánaða fyrir-
vara. Komi til uppsagnar skv. fram-
anskráðu falla niður þær áfanga-
hækkanir sem ekki hafa komið til
framkvæmda þegar uppsögn er til-
kynnt."
I skýringum við opnunarákvæðið,
sem hagfræðingar ASÍ og VSÍ und-
irrita, segir: „Samningnum fylgir
minnisblað frá Þjóðhagsstofnun frá
24. mars 1997 um kjarasamninga,
samningsmarkmið og viðbragðs-
möguleika þar sem gerð er grein
fyrir þróun kaupmáttar ráðstöfunar-
tekna hér á landi undanfarin ár og
horfur á samningstímanum í saman-
burði við viðskiptalönd okkar.
Reglulegt samráð
Samningsákvæðið um samnings-
markmið felur í sér að fulltrúar
heildarsamtakanna skuli með reglu-
bundnum hætti bera saman ráðstöf-
unartekjur hér á landi og ráðstöfun-
artekjur í helstu viðskiptalöndum.
Gengið er út frá því að viðskipta-
lönd verði vegin saman með við-
skiptavog þeirri sem notuð er við
gengisákvarðanir. Þær athuganir
sem gerðar verða munu byggja á
árinu 1996 sem grunnári og mun
fyrsti samanburður liggja fyrir á
fyrri hluta ársins 1998. Á grund-
velli þessara athugana verður kann-
að hvort markmið samningsins hafi
gengið eftir á þeim tíma sem liðinn
er. Fari svo að kaupmáttaraukning
ráðstöfunartekna frá upphafi samn-
ingstímans verði ekki með hliðstæð-
um hætti og í viðskiptalöndunum
ber samtökunum að freista þess að
ná saman um tillögur um viðbrögð.
Náist ekki samkomulag um við-
brögð geta stjórnir heildarsamtak-
anna, hvor um sig, sagt launalið
samninganna lausum með fjögurra
mánaða fyrirvara."
VR bætir opnunar-
ákvæði í samninga
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur og samtök vinnuveit-
enda hafa náð samkomulagi um að
setja sams konar opnunarákvæði inn
í kjarasamning aðila sem gerður var
10. mars sl. og er að finna í kjara-
samningum sem VMSÍ, Dags-
brún/Framsókn, Samiðn og Lands-
samband verzlunarmanna eru með
í sínum samningum. Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, segir að
ástæðu þessa mætti ekki síst rekja
til nýlegra verðhækkana á brauði.
Atkvæðagreiðsla um kjarasamn-
ing VR hófst í fyrrakvöld og lýkur
kjörfundi kl. 18 í dag. í gærkvöldi
höfðu sjö hundruð félagsmenn kosið
en fimmtán þúsund eru á kjörskrá.
Éf færri en 20% félagsmanna, eða
þijú þúsund manns, kjósa telst
samningurinn samþykktur.
Magnús segir að á félagsfundum
að undanförnu hafi borið mikið á
þeim misskilningi félagsmanna að
samið hafi verið um sveigjanlegan
dagvinnutíma frá 8 til 20. „Það hef-
ur ekki verið samið um neina breyt-
ingu á vinnutíma. Það er hins vegar
heimilt að taka upp viðræður um
vinnutíma í fyrirtækjasamningum."
Morgunblaðið/Kristinn
MJÓLK ekið í Bónusverslun í Reykjavík í gærmorgun
Mjólkurdreifing af stað á ný
Aðaláherslaá
mjólk og rjóma
PÖKKUN og dreifing á mjólk hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík
kemst ekki í eðlilegt horft fyrr en
eftir páska en lögð er aðaláhersla á
að pakka söluhæstu afurðunum nú
fyrir páska, nýmjólk, léttmjólk og
rjóma. Mjólkurfræðingar sömdu við
Vinnumálasambandið í gærmorgun
og frestuðu þar með verkfalli, en
það stóð í u.þ.b. átta klukkustundir.
Verkfallið tafði ekki dreifingu á
mjólk í gær.
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, tjáði Morgun-
blaðinu í gær að eftir rúmlega
tveggja vikna stöðvun vegna verk-
falls Dagsbrúnar tæki tíma að ná
upp framleiðslu á öllum vörum og
fylla verslanir. Því yrðu ýmsar sýrð-
ar mjólkurvörur ef til vill ekki í boði
fyrr en eftir páska.
Pakkað var dálitlu af mjólk á
mánudagskvöld sem fór í dreifíngu
í gærmorgun. Haldið var í gær áfram
og fullum afköstum náð þegar leið á
morguninn. Guðlaugur Björgvinsson
sagði að eftir svo langt hlé og þegar
páskar væru framundan væri eftir-
spurnin mikil. Spurning væri hvað
mikið menn kæmust yfír fyrsta dag-
inn, í byrjun væri lögð áhersla á söiu-
hæstu tegundirnar, nýmjólk, létt-
mjólk og ijóma, enda páskar fram-
undan. „Búðimar eru að mestu leyti
tómar hvað mjólkurvörur varðar og
það tekur einhvem tíma að hafa allar
vömr á boðstólum. Hugsaniegt er að
fleiri dagar líði þar til fólk fer að fínna
allar tegundir, til dæmis allar sýrðar
mjólkurafurðir, það mun vafalaust
dragast fram yfír páska,“ sagði Guð-
laugur.
Hvergi hellt niður
Móttaka stöðvaðist í rúman hálfan
mánuð. Framleiðendur á svæði
Mjólkursamsölunnar, á Kjalarnesi, í
Kjós, Borgarfirði, Mýrum og sunn-
anverðu Snæfellsnesi, komu afurð-
um sínum í Mjólkurstöðina í Búðar-
dal og í Mjólkurbú Flóamanna á
Selfossi og þurftu bændur því ekki
að hella niður mjólk meðan á verk-
falli stóð. Úr þeirri mjólk hafa verið
framieiddar ýmsar geymsluþolnar
vörur, ostar og mjólkurduft.
„Það á síðan eftir að fínna markað
fyrir þessar vörur, markað sem greið-
ir viðunandi verð, því þetta er fram-
leiðsla umfram markað okkar. Það
getur orðið þrautin þyngri og því
hætt við að þessar vörur lendi á er-
lendum markaði og þar er ekki borg-
að hátt verð,“ sagði Guðlaugur enn-
fremur og kvað menn telja þetta
skárra en þurfa að hella mjólkinni
niður.
Mjólkurfræðingar sömdu
Geir Jónsson, formaður Mjólkur-
fræðingafélags íslands, sagði að
kjarasamningur félagsins og Vinnu-
málasambandsins væri á svipuðum
nótum og samningarnir sem gerðir
voru í fyrradag. Samningurinn færði
mjólkurfræðingum 13-14% kaup-
hækkun á samningstímanum, sem í
er þijú ár. Mjólkurfræðingar hefðu
lagt talsverða áherslu á menntamál
og aldurshækkanir og þeir hefðu náð
þar vissum áfanga.
Geir sagðist almennt vera sáttur
við þennan samning og mælt með
að hann yrði samþykktur. Mjólkur-
fræðingar hefðu reyndar ekki ætlað
sér að semja til svo langs tíma, en
fallist á þriggja ára samning gegn
því að fá nokkrar breytingar á sér-
kjörum. Atkvæðagreiðslu um samn-
inginn á að vera lokið 15. apríl.
„Efnislega eins og
VR samningurinn ‘4
Tekist á
um yfir-
vinnuálag
SAMNINGAR eru ekki í aug-
sýn í kjaraviðræðum Félags
bókagerðarmanna og viðsemj-
enda, að sögn Sæmundar Árna-
sonar, formanns félagsins.
„Okkur standa til boða sömu
prósentuhækkanir og aðrir
hafa samið um að undanfömu.
Ekki hefur þó tekist að ganga
frá kjarasamningi en við erum
með sömu kröfu og verkalýðs-
hreyfingin hefur verið með um
að færa taxta nær greiddu
kaupi. Hins vegar erum við
ekki ánægð með það sem við
höfum fengið í hendurnar
vegna þess að því fylgir sú
krafa frá atvinnurekendum að
færa aukavinnuálag úr 100% í
80%,“ segir Sæmundur.
Kjaradeilunni hefur ekki ver-
ið vísað til ríkissáttasemjara.
ÞESSI samningur er efnislega sá
sami og VR gerði við vinnuveitend-
ur 10. þessa mánaðar. Við fögnum
að sjálfsögðu að samningar skuli
hafa tekist og hægt er að létta af
verkföllum,“ sagði Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, um kjara-
samningana sem gerðir voru sl.
mánudagskvöld. Hann sagðist ekki
geta svarað því hvort þessir samn-
ingar kæmu til með að hafa áhrif
á atkvæðagreiðslur um þá samn-
inga sem VR hefur gert.
Magnús sagðist leggja mikla
áherslu á að vinnuveitendur gerðu
ekki tilraun til að velta kauphækk-
unum út í verðlagið. Þeir þyrftu
ekki á því að halda og þess vegna
myndi það fara mjög illa í verka-
lýðshreyfinguna ef þeir gerðu það.
„Okkar samningar og þessir eru
innan þeirra marka sem opinberar
tölur sögðu til um að stöðugleikinn
ætti að þola. Honum er ekki stefílt
í hættu með þessu. Ef hins vegar
það gerist að fyrirtæki fara að
hækka vöru og þjónustu, sem er
ekki í takt við það sem búið var
að segja að atvinnulífið þyldi, þá
eru fyrirtækin að stofna stöðugíeik-
anum í hættu. Kjarasamningamir
gera það ekki. Það er mikil ögrun
við stöðugleikann ef vinnuveitendur
ætla að leyfa sér í skjóli þess að
þeir hafi þurft að taka á sig nokkr-
ar launahækkanir, að hækka verð
á vöru og þjónustu."
Gæti haft áhrif á
atkvæðagreiðslu Iðju
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, sagði að kjarasamningarnir
hefðu trúlega áhrif á atkvæða-
greiðslu félagsmanna Iðju um
samning sem Iðja gerði við vinnu-
veitendur 10. mars. sl. Áhrifin yrðu
hugsanlega þau að auka líkur á að
samningurinn yrði felldur. Stefnt
er að því að ljúka talningu um
samninginn 4. apríl.
Guðmundur Þ. hafði ekki skoðað
hina nýgerðu samninga þegar rætt
var við hann og sagðist því eiga
erfít.t með að tjá sig um þá í einstök-
um atriðum. Iðjusamningurinn gildir
til október 1999, en samningamir
sem gerðir vom sl. mánudag gilda
til 15. febrúar árið 2000. Guðmund-
ur sagði að Iðja hefði ekki treyst
sér til að gera svo langan samning.
Iðja hefði einnig verið andvígt
ákvæði um vinnustaðaþátt samn-
inga og hafnað því að setja það inn
í sinn samning. Þar væri gert ráð
fyrir mjög rúmum ákvæðum um vin-
nutíma. Iðja hefði hins vegar fallist
á að setja inn í sinn samning þrengra
ákvæði um sveigjanlegan vinnutíma.
RSÍ svikið um gildistimann
„Þórarinn V. Þórarinsson er að
ijúfa ákveðið samkomulag við Raf-
iðnaðarsambandið með þessum
samningum. Við settum það skil-
yrði fyrir því að við skrifuðum und-
ir samninginn, að samningslok hjá
okkur yrðu á öðrum tíma en hjá
öðrum samtökum.
í ljósi þess sem á undan er geng-
ið viljum við alls ekki vera í sam-
floti með öðrum við gerð kjara-
samninga," sagði Guðmundur
Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar-
sambandsins.
Guðmundur sagðist undrandi á
þeirri kröfu sem vinnuveitendur
höfðu uppi um að Dagsbrún og
Framsókn aflýstu verkfalli áður en
skrifað yrði undir nýjan samning.
Hann sagðist ekki skilja orð fram-
kvæmdastjóra VSÍ um að vinnu-
veitendur vildu móta nýja hefð í
sambandi við afboðun verkfalls.
Þórarinn hefði skrifað undir kjara-
samning við Rafiðnaðarsambandið
án þess að setja fram kröfu um
afboðun verkfalls þrátt fyrir að
RSÍ hefði boðað verkfall með sama
hætti og Dagsbrún og Framsókn.
Þetta verkfall myndi skella á 4.
apríl ef félagsmenn RSÍ felldu ný-
gerða samninga.