Morgunblaðið - 26.03.1997, Side 14

Morgunblaðið - 26.03.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans, á fundi Verslunarráðs um uppstokkun á fjármálamarkaði Þátttöku ríkisins lýk- uránæstu 4—7 árum ÞÁTTTÖKU ríkisins á fjármála- markaði mun ljúka á næstu 4-7 árum. Fyrst verður seldur þriðj- ungshluti í ríkisviðskiptabönkun- um og 49% hluti a.m.k. í flárfestingar- banka ef stofnaður verður. Þáttur í þessu verður væntanlega grundvallar- endurskipu- lagning og breyting á húsnæðislánakerfinu, væntan- lega með tilfærslu þess til banka- kerfisins. Jafnframt mun frelsi í lífeyrissparnaði aukast samhliða því sem ný hugsun ryður sér þar til rúms. Þetta kom m.a. fram í máli Kjartans Gunnarssonar, for- manns bankaráðs Landsbank- ans, á morjgunverðarfundi Versl- unarráðs Islands í gær sem bar yfirskriftina „Uppstokkun á fjármálamarkaðnum". Kjartan lýsti þar ennfremur þeirri skoð- un sinni að næsta stórverkefnið á sviði endurskipulagningar fjár- málamarkaðarins á Islandi, eftir að rikisviðskiptabönkunum hef- ur verið breytt í hlutafélög, hlyti að vera að kanna frekar mögu- Kjartan Gunnarsson leika á nánari samvinnu og samruna fyrirtækja á þessum markaði og væri þá ekki ein- vörðungu um að ræða bankana sjálfa heldur einnig önnur fjár- málafyrirtæki þeim tengd eða í eigu þeirra. Ríkisfyrirtæki eiga ekki að vera steinrunnar stofnanir Kjartan varði í ræðu sinni þá ákvörðun Landsbankans að ganga til samninga um kaup og kauprétt á hlutabréfum Eignarhaldsféjags Brunabóta- félagsins í VÍS og sagði m.a. um þá ákvörðun: „Sá sem tekur að sér forystustörf i fyrirtæki í eigu skattgreiðenda hefur raunveruiega bara eina skyldu gagnvart fyrirtækinu og skatt- greiðendunum. Honum ber að leggja sig allan fram um það að reka fyrirtækið eins vel og hann getur. Honum ber að tryggja að allir möguleikar fyrirtækisins til þess að stækka og eflast séu nýttir. Ef menn gera þetta ekki þá eru menn raunverulega að svíkja umbjóð- endur sína. Kjartan kvaðst verða svolítið var við það viðhorf að mörgum fyndist að það væri algjörlega óforsvaranlegt og óþolandi að ríkisfyrirtæki tækju jafn afger- andi forystu í uppstokkun og umskiptum á fjármálamarkaðn- um á Islandi eins og Landsbank- inn hefði gert með kaupum sín- um á hlut Brunabótafélagsins í VÍS. „Það er eins og margir sem gagnrýna þá ráðstöfun telji að ríkisfyrirtæki eigi að vera stein- runnar stofnanir sem megi helst ekkert gera nema drabbast nið- ur. Ég tel að þetta sé mjög rangt viðhorf. Það er eðlilegt að reynt sé að reka ríkisfyrirtæki eins vel og kostur er, ekki síst þau fyrir- tæki sem eru í samkeppni. Landsbankinn er í samkeppni við annan ríkisbanka, við einka- banka og við sparisjóði, hann er ekki einokunarfyrirtæki. Það geta allir keppt við Landsbank- ann í því að lána peninga og það geta margir keppt við hann í því að ávaxta peninga. Hann er við- skiptafyrirtæki, hann er ekki stofnun. Þessi ákvörðun var við- skiptalegs eðlis og framhald hennar verður líka viðskiptalegs eðlis. Ég held þess vegna að það hefði verið stórlega og alvarlega ámælisvert af stjórnendum Landsbankans, sem hafa nú um fjögurra ára skeið unnið mark- visst að því að taka þátt í starf- semi á sviði líftrygginga og lífey- ristrygginga, að láta tækifæri af þessu tagi fram hjá sér fara.“ Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra, um kaup Landsbankans á hlut Brunabótar í VÍS Forræði og ábyrgð ríkis ins forsenda kaupanna EINAR Sveinsson, framkvæmda- stjóri Sjóvár-Almennra trygginga, segir það deginum ljósara að for- senda fyrir kaupum Landsbank- ans á hlut í VÍS hafi verið sú að bankinn sé á forræði og ábyrgð ríkis- ins. „Þetta var pólitísk ákvörðun sem er stefnumark- andi og hefur fordæmisgildi fyrir þá þróun sem hér mun verða til mjög langrar framtíðar. Það er í raun á valdi stjórnvalda að marka stefnuna því spumingin hlýtur að snúast um það hvort öðrum standi svipað til boða komi fram óskir þar að lútandi. Við sem stöndum utan við verðum að laga okkur að þessari þróun,“ sagði hann m.a. á morgunverðarfundi Verslunarráðs sem haldinn var í gær. Einar gagnrýndi einnig harð- lega meðferð kaupverðsins í reikningum Landsbankans. „Ekk- ert félag annað en það sem heyr- ir beint undir forsjá opinberra aðila og er í þeirra eigu hefði verið látið komast upp með aðra eins lagalega og bókhaldslega loftfimleika eins og Landsbankinn fær að gera með þessum kaupum í VÍS. Með því að gera samning um einhvem kauprétt á hlutabréf- um til nokkurra ára, þegar aug- ljóslega er um að ræða skuld- bindingu af hálfu bankans um að tryggja sölu og söluverð þess- ara bréfa til þriðja aðila geti hann ekki sjálfur klárað málið, þá er litið svo á að ekkert hafi í raun farið fram. Engu að síður á bankinn að fá yfirráðarétt allra bréfanna. Álengdar situr banka- eftirlitið hjá með hendur í skauti. Ég hefði haft gaman af að sjá svipinn á okkar eftirlitsaðila, Vátryggingaeftirlitinu, hefðum við lagt samsvarandi mál á þess borð,“ sagði hann. Þá lýsti Einar einnig skoðun- um sínum á stöðu Eignarhalds- félags Brunabótafélagsins og benti á að sameigendur félags- ins væru tilgreindir í lögum vátryggingatakarnir, þ.e. við- skiptavinir félagsins, sem er einkenni gagnkvæms trygg- ingafélags og síðan svonefndur sameignarsjóður. „Eignarrétt- indi sameigendanna eru hins vegar gerð óvirk nema til slita komi á félaginu. Þetta skiptir miklu máli í ljósi þeirrar um- ræðu sem orðið hefur um fram- tíð Brunabótar í kjölfar sölu á öllum eignarhlutum félagsins sem lýtur að vátrygginga- rekstri. í sjálfu sér er vel fram- kvæmanlegt að breyta gagn- kvæmu tryggingafélagi í hluta- félag og get ég nefnt dæmi frá Danmörku þar sem trygginga- félagið Topdanmark fór í gegn- um slíka formbreytingu og voru hluthafar um 500 þúsund í byrj- un með lágmarkshlut 500 ís- lenskar krónur. Hér var sú leið ekki valin heldur fer í raun fram eignaupptaka allra þeirra sem viðskipti áttu við Brunabót, þar sem eignaréttindin eru óvirk, nafnið tómt. Það er verið að færa þessar eignir hægt og bít- andi til sameignarsjóðsins sem sveitarfélögin fá í sinn hlut ef félaginu verður slitið.“ „Greiðir ekki krónu í skatt“ Þá vakti Einar athygli á því að Eignarhaldsfélagið skil- greindi sjálft sig undir ákvæði í lögum um tekju- og eignarskatt sem kveður á um að sveitarfélög og fyrirtæki og stofnanir sem þau reka skuli vera undanþegin tekju- og eignarsköttum. „Þetta þykir mér með ólíkindum. Hvorki er félagið í eigu sveitar- félaganna né er það á ótakmark- aða ábyrgð sveitarfélaganna,“ sagði hann. Benti hann á að hefði hlutafélag selt Landsbank- anum hlutinn í VÍS á 3.500 millj- ónir næmi söluhagnaður miðað við raunverulega bókfært verð bréfanna nálægt 3 þúsund millj- ónum. Það þyrfti ekki glöggan mann til þess að reikna það út að tekjuskattur til ríkissjóðs næmi nálægt 1.000 milljónum króna. Eignarhaldsfélag Bruna- bótafélagsins myndi hins vegar ekki greiða eina einustu krónu í skatt af sínum söluhagnaði. Einar Sveinsson Eignarhlutur vestfirskra sjávarútvegs- fyrirtækja í SH Eign hlutfall (%) milljónirkr. Hraðfrystuhús Norðurtangans hf., ísafirði 6,7 455,0 íshúsfélag ísfirðinga hf. ísafirði 6,6 448,0 Hraðfrystihúsið hf., Hnífsdal 3,67 249,0 Frostí hf., Súðavík 3,19 216,6 Oddi hf., Patreksfirði 0,21 14,2 Fiskiðjan Freyja hf., Suðureyri 0,14 9,5 Sund hf., ísafirði 0,13 8,8 Bakki hf., Bolungarvík 0,088 5,9 Gunnvör hf., ísafirði 0,045 3,0 20,773 1.410,0 Níu vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki Eiga 1, arða ísafirði. Morguilblaðið. EINS og greint var frá hér í blað- inu nýverið hefur Lífeyrissjóður verslunarmanna keypt eignarhlut Hraðfrystihússins Norðurtanga hf. á ísafirði í Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Kaupin eru gerð með fyr- irvara um forkaupsrétt stjórnar og hluthafa Sölumiðstöðvarinnar en síðla árs í fyrra var tekin ákvörðun um að breyta Sölumiðstöðinni úr samvinnufélagi í lokað hlutafélag og hefur félagið sjálft og einstaka hluthafar forkaupsrétt að hlutum séu þeir seldir. Hlutur Norðurtangans í Sölumið- 4 millj- ÍSH stöð hraðfrystihúsanna var 6,7% og var söluverð 455 milljónir króna. Miðað við sama gengi hlutabréfa nemur hlutur níu vestfirskra fyrir- tækja í Sölumiðstöðinni rúmum 1,4, milljörðum króna. Á meðfylgjandi töflu má sjá hvernig hlutur vest- firsku sjávarútvegsfyrirtækjanna í SH skiptist: Framangreind hlutafjáreign er miðað við 31. desember 1995 en einhveijar breytingar munu hafa átt sér stað á eignarhaldi síðan þá, meðal annars milli íshúsfélags ís- firðinga og Gunnvarar hf. Aukinn hagnaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna HAGNAÐUR af reglulegri starfsemi Mjólkurbús flóamanna nam 115,6 milljónum króna á síðasta ári en 68,2 milljónum árið áður. Þessi bætta afkoma er m.a. rakin til hag- ræðingar vegna lokunar Mjólkur- samlags Borgfirðinga á sl. ári og fleiri aðgerða. Þá hækkaði verð þann 1. febrúar á sl. ári, en fram til þess tíma hafði verðið ekki hækkað síðan 1992, þrátt fyrir umtalsverðar kostnaðarhækkanir, að því er fram kemur í frétt frá félaginu. Heildartekjur námu 2.195 milljón- um og hækkuðu um 7,8% á milli ára. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og skatta námu 2.119 milljónum hækkuðu 6,4% milli ára. Hagnaður fyrir fjármagnsliðj nam 76,3 milljón- um. Til ráðstöfunar skv. rekstrar- reikningi er 72,2 milljóna hagnaður. Greiddur verður arður til framleið- enda að fjárhæð 29,9 milljónir, en þar af 7,3 milljónir lagðar í stofn- sjóð. Vextir í stofnsjóð og varasjóð nema 22,7 milljónum og í varasjóð eru lagðar 19,2 milljónum. Eigið fé nam 1.592,1 milljónum í árslok eða 85,57% af heildareigrium og hækkað á árinu um 5,33%. Veltufé frá rekstri var 185 milljónir og hækkaði um 57 milljónir milli ára. Innlögð mjólk nam 26,5 milljónum lítra, en að auki var keypt prótein- ríkt undanrennuþykkni (Kvarg) frá Mjólkursamlagi KEA. Að því með- töldu voru 37,0 milljónir lítra til ráð- stöfunar. Flutningar á mjólk frá framleiðendum gengu vel á árinu og skila hagræðingaraðgerðir und- angenginna ára þeim árangri að flutningskostnaður lækkar fimmta árið í röð. Er hann nú 3,83% af skráðu grundvallarverði. Undir lok ársins fékk MBF vottun frá vottunarstofunni Túni ehf. til að taka á móti, vinna og dreifa lífræn- um mjólkurvörum. Er MBF fyrst afurðastöðva í mjólkuriðnaði til að hljóta slíka vottun. Nýr stjómarfor- maður Tæknivals hf. • EINAR Kristinn Jónsson var kjörinn stjórnarformaður Tæknivals hf. á fyrsta fundi nýrrar stjórnar fyrirtækisins eftir aðalfund í síðustu viku. Einar Kristinn tekur við stjórnar- formennsku af Ey- steini Helgasyni, framkvæmdastjóra Plastprents hf. Einar Kristinn lauk námi frá Verslunarskóla Is- lands 1977 og námi frá viðskipta- deild Háskóla íslands af endurskoð- unarsviði 1981. Hann er rekstrarhag- fræðingur MBA á sviði stefnumótun- ar og framkvæmdastjórnar fyrir- tækja frá IMB (áður IMEDE) í Lausanne í Sviss 1987. Einar Krist- inn starfaði við endurskoðun hjá KPMG Endurskoðun hf. 1979-1981. Hann var sölu- og innkaupastjóri hjá Pennanum sf. 1981-1984, fram- kvæmdastjóri SÁÁ 1984-1986 og fjármálastjóri hjá Smjörlíki hf./Sól hf. 1988-1994. Samhliða framhalds- námi erlendis sinnti Einar ráðgjaf- arverkefnum í Sviss og Þýskalandi árið 1987. Frá 1994 hefur Einar gegnt ýmsum ráðgjafar- og stjóm- unarstörfum sem framkvæmdastjóri og aðaleigandi Markviss ehf., fjár- mála- og rekstrarráðgjöf og setið í stjórn fjölmargra fyrirtækja, þ.m.t. Búlandstinds hf., Tanga hf., Odda hf., Þórsbergs hf. og íslenskrar margmiðlunar hf. Einar Kristinn er kvæntur Kristínu Einarsdóttur kaup- manni og eiga þau tvö börn. Á aðalfundi Tæknivals hf. voru kjörnir í stjóm auk Einars Kristins, þeir Rúnar Sigurðsson, Ómar Örn Ólafsson, Gylfi Arnbjörnsson og Gunnar Þór Gíslason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.