Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 17
ERLENT
ANTHONY Minghella leikstjóri (t.h.) fapiar með Ralph
Fiennes, stjörnu English Patient, að lokinni afhendingu
Óskarsverðlaunanna.
FRANCES McDormand var valin besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Fargo og handritshöfund-
ar myndarinnar, bræðurnir Ethan (t.v.) og Joel Coen fengu verðlaun fyrir besta upprunalega kvikmynda-
handritið. Sá síðarnefndi er eiginmaður McDormands.
Ástarsaga^úr seinna stríði
sópaði til sín Oskarsverðlaunum
OSKARSHAFAR
Los Angeles. Reuter.
KVIKMYND um ástarsögu úr
seinna stríðinu, „The English
Patient“, hlaut flest verðlaun
bandarísku _ kvikmyndaakadem-
íunnar er Óskarsverðlaunin voru
afhent í Los Angeles í 69. sinn í
fyrrakvöld. Komu níu Óskarsverð-
laun í hlut aðstandenda myndar-
innar og hefur hún því skipað sér
á bekk með kvikmyndunum Gigi
og Síðasti keisarinn hvað varð-
launafjölda áhrærir. Einungis Ben
Hur, sem fékk 11 Óskarsverðlaun
1959, og West Side Story, sem
fékk 10 árið 1961, hafa hlotið
fleiri verðlaun.
Myndin hlaut verðlaun sem
besta kvikmyndin, fyrir bestu leik-
stjórn, bestu framleiðslu, bestu
listrænu leikstjóm, bestu kvik-
myndun, bestu búningahönnun,
bestu klippingu, bestu frumsömdu
tónlistina og bestu hljóðupptökuna.
Hvað leiklist áhrærir komu að-
eins ein verðlaun í hlut English
patient en þau fékk franska leik-
konan Juliette Binoche í flokki
besta aukahlutverks kvenna. Var
þetta í fyrsta sinn sem hún var
tilnefnd til verðlauna. Átti hún alls
ekki von á að hljóta Óskar og hrós-
aði hinni gamalreyndu Lauren
Bacall fyrir hlutverk í myndinni
The Mirror Has Two
Faces í þakkarræðu
sinni.
„Ég segi alveg
satt, ég bjóst ekki við
þessu, hélt að Lauren
fengi verðlaunin og
undirbjó því enga
ræðu. Hún verð-
skuldar þau,“ sagði
Binoche. Bacall var
tilnefnd til verðlauna
í fyrsta sinn og
bjuggust margir við
því að hún fengi þau
eftir langan og far-
sælan feril á hvíta
tjaldinu.
Óskarsverðlaun
fyrir besta aðalhlut-
verk karls hlaut Geoffrey Rush
sem lék ástralskan píanóleikara,
David Helfgott, í kvikmyndinni
Shine. Fjallar hún um erfiðan feril
píanóleikara, sem var fagnað sem
undrabami í æsku en átti síðan
við geðræn vandamál að stríða.
Lék hann tónlist úr myndinni við
verðlaunaathöfnina.
Reuter
BESTI leikarinn:
Geoffrey Rush
Sömuleiðis söng Madonna titil-
lag Evitu, kvikmyndarinnar um
Evu Peron, eiginkonu
argentínska harðstjór-
ans Juans Perons, við
athöfnina. Madonna
var ekki tilnefnd til
verðlauna en titillagið,
You Must Love Me,
samið af Andrew Lloyd
Webber og Tim Rice,
var valið besta kvik-
myndalagið.
Besta leikkonan var
valin Frances McDor-
mand fyrir leik sinn í
glæpamyndinni Fargo
þar sem hún lék van-
færan lögreglustjóra.
Óháð kvikmyndaver
fagna sigri
Fallast á
að fara
til Kúbu
Kemur vín í veg
fyrir Alzheimer?
hótelsins í Hollywood ásamt göml-
um keppinaut sínum, George Fore-
man. Mynd um einvígi þeirra um
heimsmeistaratitilinn, sem háð var
á sínum tíma í Zaire, When We
Were Kings, hlaut óskarsverðlaun
í flokki heimildakvikmynda.
Kolya besta
erlenda myndin
Tékkneska kvikmyndin Kolya
var valin besta erlenda myndin.
Hún fjallar um endurkomu aldraðs
sellóleikara er hann og rússneskur
drengur ferðast um tékkneskar
sveitir í árdaga Flauelsbyitingar-
innar svonefndu árið 1989.
delstu flokkar
Óskarsverðlauna,
sem veitt voru
í fyrrakvöld
Besta kvikmyndin
„The English Patient'
Besti leikarinn
Geoffrey Rush
.Shine"
B$sta teikkonan 1
Frances McDormand
.Fargo"
Anthony Mlnghella
„The English Patient"
Besta aukahhitvetk karia
Cuba Goodlng Jr.
.Jerry Maguire”
Besta aukahlutverk kvenna
Juliette Binoche
.The English Patient"
Besta erlenda ManyncKn
„Kolya“
Tékklandi
Svokölluð óháð kvikmyndaver,
sem ekki eru hluti risakvikmynda-
veranna í Hollywood, fóru með sig-
ur af hólmi á verðlaunaathöfninni.
Unnu þau til sjö af átta eftirsótt-
ustu verðlaununum.
Hnefaleikahetjan Muhammad
Ali hlaut langvarandi lófaklapp er
hann tróð upp á sviði Mondrian-
BT. tölvur kynna
Við hjá BT. Tölvum höíum ákveðið að leggja
hönd á plng i samningaviðræðum stétta
landsins. Af jjvi tdafni munum við slá 13000
krónur af fenningartilboði okkar í mars.
Ef tittnðið hentar ekki þörfum þínum mun
starfsfnlk okkar veita þér vandaða ráðgjöf
við val á töhru sem hentar þér og þinum
og það sem meira er að þú munt örugglega
ná samningum.
133 jjíöJWjiMljijjiijúlIiföN
Lima. Reuter.
LIÐSMENN skæruliðasamtakanna
Tupac Amaru, sem haldið hafa gísl-
um í bústað japanska sendiherrans
í Lima, höfuðborg Perú, í 98 daga,
voru sagðir hafa fallist á það í gær
að fara til Kúbu og binda þannig
enda á sendiráðstökuna.
Heimildarmenn, sem kröfðust
nafnleyndar, hermdu, að perúsk
stjórnvöld hefðu fallist á að skæru-
liðamir fengju að taka a.m.k. átta
gísla með sér til Kúbu sem trygg-
ingu fyrir að ekki yrði reynt að góma
þá á leiðinni þangað. Þegar þangað
kæmi yrði gíslunum sleppt.
Meðal gíslanna, sem Tupac Am-
aru-liðamir vilja hafa með sér, eru
Francisco Tudela, utanríkisráðherra
Perú, og Morihisha Aoki, sendiherra
Japans.
París. Reuter.
ÞRJÚ til fjögur glös af léttu
víni á dag geta komið í veg
fyrir að menn sýkist af Alzhei-
mers-sjúkdómnum og þjáist af
elliglöpum samkvæmt rann-
sókn vísindamanna við há-
skólasjúkrahúsið í Bordeaux,
höfuðborg helsta vínhéraðs
Frakka, sem birt var á mánu-
dag.
Niðurstöður rannsóknarinn-
ar benda til þess að hófleg vín-
drykkja dragi úr hættunni á
Alzheimer og elliglöpum svo
nemi 75%. Rannsóknin hefur
fengið mikla umfjöllun í
Frakklandi. Þar eru um 350
þúsund manns með Alzheimer
og 90 þúsund ný tilfelli grein-
ast árlega.
Jean-Marc Orgogozo stjórn-
aði rannsókninni, en um 4.000
manns tóku þátt í henni. Hann
sagði að það væri of snemmt
að segja öldruðum að drekka
vín til að veijast elligiöpum eða
Alzheimer. Rannsóknin gæfí
hins vegar sterklega til kynna
að létt vin gætu hjálpað.
„Það var sýnu minna um
[Alzheimer og elliglöp] meðal
þeirra þátttakenda í tilraun-
inni, sem drukku vín i hófi,“
sagði Orgogozo og bætti við
að enginn vínframleiðandi
hefði styrkt rannsóknina.
Verfl
trítan méturíorl
grunnur i vélinni fyrir framtlðar stækkunarmöguleika
133 magmriAa iiiniinii
Pentium örgjörvi sem flýtir fyrir við nám og störf
minni
ieð mörg forrit opin 1 einu
m/2mJb i minni
im flýtir fyrir í leikjum og margmiðlun
lággaisU litaslcfár
og góður skjár sem vemdar augun þegar álaglð er mikið
Ouantum HarAur diskur
geymslupláss fyrir vinnugögnin þfn
KrsAa gaisUdrii
geisladrifin i Hag sem eru frábær i leikjum og margmiðlun
1B Mta hljóðkorí
- Kristaltmr hljómur við tónlistarhlustun e
25 watta hátalarar
- Góðir hétalarar mað hljómstyrks- og bassastillingum
Windows 95 atýrikaríU uppsatt og i gaUUdisk
- Vinsælasta stýrikerii heims fylgir með á geisladisk og uppsett i vélinni
102 knappa lyklahord og 3 hnappm mús
- Frábært lyklaborð frá Digital og straumlfnu benius mús fylgja vélinni
Et leikjaspifun
Höpc//wwwJiönhmrjs
BI^Tfflwur
Gransásvagur 3 ■ 108 Rsykjavik
Simi : 588 5900 - Fas : 588 5905
OpniuiartUii viriu daga : 10:00 -19:00
Opnunartími laugardaga ; 10:00 -10:00