Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Framlag Sementsverksmiðj- unnar hf. til umhverfisverndar UMRÆÐAN síð- ustu daga og vikur um mengun frá stóriðju hefur hvatt undirrit- aðan til þess að stinga niður penna og skýra frá því, sem gert hefur verið í umhverfismál- um Sementsverk- smiðjunnar síðastl- iðna tvo til þijá ára- tugi. Sementsverksmiðj- an er stóriðja af minnstu gerð. Lega verksmiðjunnar er ákaflega viðkvæm og óheppileg inni í miðj- um Akranesbæ, þar sem auk þess er allstór fiskimjöls- verksmiðja. íbúðabyggð er aðeins í nokkurra hundruð metra fjar- lægð frá þessum verksmiðjum. íbúar Akraness hafa að sjálfsögðu kvartað yfir mengun frá verk- smiðjunum gegnum árin, en mjög iniklum fjármunum hefur verið varið í mengunarvarnir í þeim báðum, þannig að mengun er nú hverfandi miðað við fyrri tíð. Sem- entsverksmiðjan fékk sitt fyrsta starfsleyfi árið 1972. Það var svo endumýjað 1981 og aftur árið 1994, þegar verksmiðjan fékk leyfi til þess að brenna úrgangsolíu í stað kola að hluta til. Aðalmengunarvaldamir í Sem- entsverksmiðjunni eru hávaði, ryk og koltvíoxið (C02). Hávaðameng- un er tæknilega erfitt að fást við, en vegna nágrennisins við íbúða- byggð er mjög nauðsynlegt að draga sem mest úr henni. Helst er að skerma hávaðavaldinn af og hefur það verið gert með þokka- legum árangri. Mikið ryk myndast við brennslu og mölun sementsins. Rykmagnið í ofninum er 15-20 tonn á dag. Rykið er hreinsað í sérstökum ryksíum, þar sem hreinsunin fer fram með háspenntu rafmagni. Útblást- urinn fer svo út um 68 metra háan skor- stein. Hreinsigetan var í upphafi 450 mg/m3, en er nú undir 100 mg/m3 útblásturs. A næstu árum stefnir Sementsverksmiðjan að því að minnka ryk- magnið í 50 mg/m3, sem er það mark, sem nýjum sementsverk- smiðjum verður gert að uppfylla í framtíð- inni í Evrópu. Þessi þróun er dæmigerð fyrir nútíma mengun- arvarnir, þar sem kröfur um mengun eru stöðugt í endurskoðun og hertar með tímanum. Að fengnu starfsleyfi 1994 hóf Sem- entsverksmiðjan svifryksmælingar umhverfis verksmiðjuna í sam- vinnu við Hollustuvernd ríkisins, til þess að kanna útbreiðslu ryks- ins frá útblæstri hennar. Ekki hefur verið hægt að greina hlut verksmiðjunnar í svifrykinu og virðist jarðvegsryk vera þar ráð- andi. Mælingar á þungmálmum í svifrykinu sýna hliðstæða niður- stöðu. Það ryk, sem til fellur í ryksíum ofnsins, hefur verið notað í fyllingar undir jarðveg eða urðað á annan hátt. Það samanstendur af skeljasandsmélu, sementsryki og alkalísöltum. Útblástursloftið frá ofninum er um 50.000 m3 á klst. Auk and- rúmslofts er í því talsvert af koltví- oxíði og vatnsgufu. Hverfandi magn er af köfnunarefnisoxíðum og brennisteinstvíoxíði. Brenni- steinstvíoxíð myndast þó í ofnin- um, en það binst brenndu kalki og alkalíoxíðum úr sementshrá- efnunum og verður hluti af sem- entinu. Á hverri klukkustund ijúka um 10 tonn af vatnsgufu og um Það er rökrétt ákvörðun Sementsverksmiðjunn- ar, segir Guðmundur Guðmundsson, að sækjast eftir brennslu úrgangsefna. 12 tonn af koltvíoxíði upp úr skor- steininum. Sementsverksmiðjan nýtir um 10% af orku vatnsguf- unnar til upphitunar, en þarna fer mikil orka til spillis. Koltvíoxíð myndast að jöfnum hlutum úr skeljasandinum og elds- neytinu, sem er aðallega kol. Eng- in nothæf hreinsitæki eru til fyrir koltvíoxíð, svo að annarra leiða verður að leita, ef minnka á meng- unaráhrif þess. Sl. 25 ár hefur Sementsverksmiðjan blandað saman við sementið líparíti og síð- ar kísilryki frá ísl. járnblendifélag- inu. Er þessi íblöndun nú 10% af þyngd alls sements frá verksmiðj- unni, sem minnkar þörf fyrir sama magn af sementsgjalli í sementið og um leið minnkar árlegt út- streymi koltvíoxíðs um 10%. Enn er unnið að því að auka íblöndun óbrenndra efna í sementið og eru likur á að takist að auka þau um önnur 10%. Rannsóknir, sem staðið hafa yfir í 2-3 áratugi hafa sýnt ótví- rætt, að sementsofnar og þá sér- staklega langir votofnar eins og ofn Sementsverksmiðjunnar, eru mjög heppilegir til þess að eyða úrgangsefnum. Skýring þessa er hátt hitastig í ofninum (um 1450 °C), svo og mikið efnismagn, lang- ur viðverutími og heppileg efna- samsetning í honum. Sements- verksmiðjan fékk starfsleyfi til brennslu úrgangsolíu og nokkurra lífrænna leysiefna árið 1994. Árið 1996 eyddi verksmiðjan 5.600 tonnum af úrgangsolíu og sparaði þannig innflutning á 7.600 tonn- um af kolum, rúmlega helming kolaþarfar ársins. Fleiri orkurík úrgangsefni en olía eru vandamál hér á landi. Má þar nefna ónýta hjólbarða, rúllubaggaplast og pappír sem dæmi. Sementsverk- smiðjan hefur hug á að spreyta sig á eyðingu þessara efna. Brennsla fastra úrgangsefna krefst kostnaðarsamra breytinga á ofninum og hún stendur ekki undir sér fjárhagslega. Erlendis er sett á umhverfisgjald, til þess að standa undir söfnun og eyðingu þessara efna og er það mál nú í skoðun hérlendis. Á alþjóðavettvangi og einnig hér á landi hafa menn sett sér takmörk um minnkun á útstreymi koltvíoxíðs á áratugnum 1990- 2000. Ríkisstjórn íslands setti sér það mark að minnka magnið um 100.000 tonn á þeim tíma. Einnig er talið líklegt að eldsneyti verði skattlagt í framtíðinni. Rætt hefur verið um í því samhengi að nýting orku úr úrgangsefnum komi til frádráttar, þegar minnkunin er reiknuð út og verði einnig undan- þegin skatti. Verði sú raunin hefur Sementsverksmiðjan lagt stóran skerf, til þess að markmið ríkis- stjórnarinnar náist. Því er það rök- rétt ákvörðun Sementsverksmiðj- unnar að sækjast eftir brennslu úrgangsefna. Verksmiðjan fær með því tvöfalt hlutverk, meðan hún framleiðir sement stuðlar hún að umhverfisvernd og sparar þjóð- félaginu byggingu á dýrum eyð- ingarstöðvum fyrir úrgang. Aðal- vandamálið við brennslu úrgangs- efna er næsta umhverfi. Sérstak- lega á Sementsverksmiðjan hér við mikinn vanda að etja vegna legu sinnar inni í miðjum Akra- nesbæ. Því verður hún að treysta mjög á skilning næstu nágranna Guðmundur Guðmundsson ITALSKIR SKÓR VORLÍNAN 1997 38 ÞREP LAUGAVEGI 76 - SÍMI 551 5813 Furðuleg viðbrögð Athugasemdir við yfirlýsingar sjávarútvegsráðherra um tillögur Samtaka iðnaðarins til sveiflujöfnunar SAMTÖK iðnaðar- ins kynntu á nýliðnu Iðnþingi tillögur að sveiflujöfnun í efna- hagslífinu. Tillögurn- ar eru byggðar á vinnu hagvaxtar- nefndar Samtakanna sem gaf þær út í sér- stakri skýrslu undir heitinu Nýting nátt- úruauðlinda og staða samkeppnisgreina. Hér er um að ræða margra mánaða vinnu aðila innan Samtak- anna sem lítur nú dagsins ljós. í skýrsl- unni er gert ráð fyrir fimm mismunandi aðgerðum sem leiða skulu til viðvarandi sveiflu- jöfnunar hér á landi. Ein af þeim er gjaldtaka fyrir veiðiheimildir. Hvorki er hér tilefni né ráðrúm til þess að færa rök fyrir þeim röksemdum sem liggja að baki því að Samtökin leggja svo ríkulega áherslu á að stjórnvöld grípi til viðeigandi aðgerða til þess að jafna sveiflur í efnahagslífinu. Þeir sem vilja kynna sér þau rök er bent á skýrsluna sjálfa og einn- ig aðra skýrslu sem gefin var út haustið 1994 af iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu um starfsskil- yrði iðnaðar. Það skal aðeins áréttað að sveiflujöfnun er for- senda þess að hér á landi geti þrifist heil- brigt atvinnulíf eins og í öðrum saman- burðarlöndum okkar. Samtök iðnaðarins hafa um árabil lagt ríkulega áherslu á að halda úti málefnalegri umræðu um nauðsyn sveiflujöfnunar. Á undanförnum árum hafa æ fleiri hér á landi skilið nauðsyn jöfnunar hagsveiflna, hagfræðingar, fulltrú- ar sjávarútvegsfyrirtækja og al- menningur. Umræðan hefur orðið skynsamlegri, málefnalegri og markvissari með tímanum. Ráðherra flýr málefnalega umræðu Af þessum ástæðum hefur mér þótt skjóta skökku við hve mál- flutningur útvegsmanna sem og háttvirts sjávarútvegsráðherra, Þorsteins Pálssonar, hefur verið fjarri því að vera vitrænn. Þessar áhyggjur lét ég í ljós í örstuttu fréttaviðtali á Stöð 2 sl. föstudag. í ljósi þess má heita í hæsta máta furðulegt hvernig háttvirtur sjáv- arútvegsráðherra bregst við í sama fréttatíma þegar bornar eru undir hann niðurstöður hagvaxtar- nefndar Samtaka iðnaðarins. Hann talar um að iðnaðurinn sé Sveiflujöfnun er for- senda þess, segir Har- aldur Sumarliðason, að hér geti þrifist heil- brigt atvinnulíf. með þessum hætti að ráðast á og veikja sjávarútveginn! Margt ann- að í máli ráðherra er jafnfjarri skynsemi. Annaðhvort hefur ráðherrann ekki kynnt sér tillögur Samtak- anna nógu vel eða hann er vísvit- andi að tala um hug sér. Markmið Samtakanna með tillögum til sveiflujöfnunar hefur það alls ekki að markmiði að spilla fyrir sjávar- útveginum heldur að treysta til langframa sem hagstæðust skil- yrði atvinnulífsins, þ.m.t. sjávarút- vegsins. Þetta hlýtur háttvirtur sjávarútvegsráðherra að vita og við þessum atriðum vilja Samtök Haraldur Sumarliðason og bæjaryfirvalda, ef hún kemur til með að takast á við eyðingu fastra úrgangsefna. Með réttri tækni á að vera hægt að halda óþægindum næsta nágrennis í lág- marki og vönduð nágrannakynn- ing er nauðsynleg. Rétt er að geta þess hér, að mengun frá verk- smiðjunni minnkar fremur en hitt við brennslu þessara úrgarigsefna. Gróður vinnur koltvíoxíð úr loft- inu og bindur kolefnið úr því en skilar súrefni til andrúmsloftsins. Gróður er því náttúruleg vöm gegn uppsöfnun koltvíoxíðs í andrúms- loftinu og hættunni á gróðurhúsa- áhrifum. Sementsverksmiðjan hef- ur skoðað þann möguleika lauslega að nota koltvíoxíð frá verksmiðj- unni í gróðurhúsum, sem staðsett væru á verksmiðjulóðinni. Þetta er tæknilega hægt en ekki hag- kvæmt. En Sementsverksmiðjan hefur afmarkað svæði í skipulagi verksmiðjunnar bæði fyrir gróður- hús og fískrækt, ef það yrði hag- kvæmur kostur í framtíðinni. Almenn ræktun skóglendis er þó metnaðarfyllsta aðgerðin í þessu samhengi. Hin gífurlega gróðureyðing hérlendis er í raun mengun og er það umhugsunar- efni hversu lítil athygli beinist að þessu mikilvæga máli miðað við umræðuna um stóriðju og virkjan- ir. Virðist umhverfismat þá ekki eins nauðsynlegt. íslenskur iðnað- ur, sérstaklega þau fyrirtæki, sem láta frá sér koltvíoxíð, ættu að skoða það í alvöru að styðja við eða stunda skógrækt, en fá í stað- inn undanþágu frá orkuskatti. Það myndi gefa iðnaðinum góða ímynd. Skógræktaraðgerðir ís- lenska járnblendifélagsins eru hér góð byijun og fyrirmynd, en hafa ekki farið hátt í mengunarumræð- unni um þá verksmiðju. Sements- verksmiðjan hefur kannað lítillega kostnað við skógrækt. Hann er um kr. 250.000 á hektara og ann- að eins kostar að girða hann. Girða verður vegna búfénaðar og mikils- vert er að leysa það vandamál, ef ráðist verður í miklar skógræktar- aðgerðir, því að um mikla fjár- muni er að tefla. . Höfundur er tæknilegur ráðgjafi Sementsverksmiðjunnar hf. iðnaðarins fá viðbrögð hjá stjórn- völdum. Ávæningur um öfund og árásargirni hjálpar umræðunni ekki neitt heldur opinberar einung- is málefnafátækt þeirra sem þann- ig tala. Sameiginlegir hagsmunir í húfi Það er rétt hjá háttvirtum sjávar- útvegsráðherra að iðnaður og sjáv- arútvegur eiga að vinna saman af þeirri einföldu ástæðu að hagsmun- ir þeirra liggja saman. Samtök iðn- aðarins hafa lengi barist fyrir því að horft væri á atvinnulífíð sem eina heild en það ekki sundrað í ímyndaða höfuðatvinnuvegi og stuðningsgreinar. Þessi hugsun þokast áfram enda eiga iðnfyrir- tæki og sjávarútvegsfyrirtæki, bæði stór og smá, gott samstarf um allt land. Þetta samstarf má styrkja enn frekar með sameigin- legri vinnu iðnaðar og sjávarútvegs um raunhæfar aðgerðir til sveiflu- jöfnunar. Sjávarútvegurinn hefur hins vegar hingað til kosið að hreyta ónotum í hugmyndir iðnað- arins. Og nú bætir sjávarútvegs- ráðherra um betur og gefur tillög- um hagvaxtarnefndar Samtakanna langt nef, augljóslega án þess að hafa kynnt sér þær til hlítar. Næst þegar háttvirtur sjávarút- vegsráðherra lýsir skoðun sinni á sveiflujöfnun væri ávinningur að því, bæði fyrir iðnað og sjávarút- veg, að fá að heyra gild rök hans með eða gegn tillögum Samtaka iðnaðarins. Höfundur er formaður Samtaka iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.