Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 41 FRETTIR Kvöldganga út í Engey HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð út í Eng- ey í kvöld, miðvikudagskvöldið 26. mars. Farið verður frá Hafn- arhúsinu kl. 20 og gengið um borð í farþegabát við flotbryggju við Ægisgarð og ferjað úr bátn- um í eyna. Gengið verður með strönd eyj- arinnar og að bæjarstæðunum í fylgd kunnugra. Engey er nátt- úru- og minjaperla sem á fáa staði sér líka. Ef ekki gefur út í eyna verður gengið með höfninni og út í Örfirisey. Allir velkomnir. Trúnaðar- bréf afhent BENEDIKT Ásgeirsson, sendi- herra, afhenti 20. mars sl. Const- antinos Stephanopoulos, forseta Grikklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Grikklandi með aðsetur í London. Lúðrablásarar fra Bjorgvm 1 heimsókn UNGLINGALÚÐRASVEIT Hjálpræðishersins frá Björgvin heimsækir ísland í páskavikunni. Lúðrasveitina skipa 28 ungmenni og léku þau í gær á tónlistardeg- inum á Eiðistorgi, Seltjamamesi, og í dag verða þau með tónleika í Hinu húsinu kl. 14 og í Ráð- húsi Reykjavíkur kl. 16. Á skírdag munu þau spila á samkirkjulegri útvarpsmessu í Dómkirkjunni kl. 11, verða svo með tónleika í Norræna húsinu kl. 14 og spila á samkomu í Hjálp- ræðishemum kl. 20. Föstudaginn langa verður svo síðasta samkom- an með lúðrasveitinni en hún verð- ur í Dómkirkjunni kl. 20. Fyrirlestur um sólir o g svarthol UNDUR veraldar er yfirskrift fyrirlestraraðar á vegum Raun- vísindadeildar Háskóla íslands og Hollvinafélags hennar. Næsti fyr- irlestur er fimmtudaginn 27. mars kl. 14 í sal 3 í Háskólabíói en þar mun Gunnlaugur Björns- son stjarneðlisfræðingur endur- taka fyrirlesturinn Sólir og svart- hol: Nýjustu fréttir af furðum alheimsins. í erindinu verður fjallað m.a. um nýlegar uppgötvanir Hubble- sjónaukans, reikistjömur á braut um aðrar sólstjörnur, endalok stórra sólstjama og tilvist svart- hola. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Margir söfnuð- ir saman hjá Fíladelfíu SAMEIGINLEG samkoma fjöl- margra kristinna safnaða og sam- taka verður í Fíladelfíu, Hátúni 2, mánudaginn 31. mars. Sam- koman hefst kl. 20. Ræðumaður verður dr. Tissa Weerasingha frá Sri Lanka. Weerasingha hefur stofnsett um 50 kirkjur út frá móðurkirkjunni í Colombo og hefur auk þess skrif- að margar bækur. Hann er mörg- um vel kunnur því hann hefur áður komið hingað til lands og tekið þátt í sameiginlegu átaki samfélaganna. Samkomurnar eru öllum opnar og er aðgangur ókeypis. Gjöf til Bama- spítala Hringsins FRJÁLSA flugmannafélagið styrkti nýlega Barnaspítala Hringsins með 100 þús. króna gjöf. I Frjálsa flugmannafélaginu eru flugmenn Flugfélagsins Atl- anta. Á fundi félagsins fyrir skömmu var ákveðið að veita 100 þús. kr. til góðgerðarmála. Fyrir valinu varð Barnaspítali Hrings- ins. Á myndinni afhenda Krist- mundur Magnússon, formaður Frjálsa flugmannafélagsins, og Tómas Eyjólfsson, stjórnarmaður félagsins, Ásgeiri Haraldssyni, yfirlækni Barnaspítala Hringsins, gjöfina. Barnaspítali Hringsins þakkar af heilum hug þessa rausnarlegu gjöf. Samkírkjuleg gnðsþjón- usta í Dómkirkjunni SAMKIRKJULEG guðsþjónusta verður í Dómkirkjunni á skírdag kl. 11. Að guðsþjónustunni stendur Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga en hana skipa fulltrúar frá Aðvent- söfnuðinum, Fíladelfíusöfnuðinum, Hjálpræðishernum, Kaþólsku kirkj- unni á íslandi og Þjóðkirkjunni. Sú hefð hefur skapast að Samstarfs- nefndin sjái um útvarpsguðsþjón- ustu á skírdag og mun formaður nefndarinnar, sr. Hjalti Guðmunds- son, predika. Fulltrúar hinna ýmsu safnaða flytja bæn og lesa ritningarorð. Dómkórinn syngur undir stjóm Marteins H. Friðrikssonar dómorg- anista. Einnig leikur unglingalúðra- sveit Hjálpræðishersins frá Bergen í Noregi. Hlutverk ríkisins endurmetið í LEIÐARA Morgunblaðsins laugardaginn 22. mars sl. var vitn- að í erindi orkumálastjóra á nýaf- stöðnum ársfundi Orkustofnunar. Af því tilefni hefur orkumálastjóri, Þorkell Helgason, óskað eftir að allur viðkomandi kafli erindisins verði birtur í blaðinu: „Á seinustu ámm hefur víða í hinum vestræna heimi farið fram endurmat á hlutverki ríkisvaldsins. Tilefnið hefur víðast verið það að þanþol hins opinbera rekstrar er talið vera þrotið, þar sem ekki verði lengra gengið í almennri skatt- heimtu. Spurt er hvað hið opinbera skuli kosta og hvernig verkefnum þess skuli sinnt. Þessi umræða hefur teygt sig hingað til lands, enda þótt hlutfall skattheimtu í þjóðarbúskapnum sé minna hér en í flestum grannlönd- um. Þegar hefur orðið eða er í gerjun stefnubreyting sem á sér breiðan pólitískan hljómgrunn. For- stjórar opinberra stofnána verða því að miða stefnu sína og stjórnun við þessa staðreynd. Helstu atriði í þessum efnum, sem þessir stjórnendur þurfa að taka mið af, em að mínu mati þessi: Að jafnaði er ekki að vænta aukinna fjárveitinga ríkisins til rekstrarins og má fremur búast við samdrætti. Þar sem því verður á einhvem hátt við komið verður einka- eða einokunarstaða hins opinbera rekstrar afnumin og verkefnin eftir föngum færð til einkamarkaðar. Sá opinberi rekstur sem eftir lif- ir verður að standast allar sömu kröfur og hver annar rekstur á samkeppnismarkaði. Þetta kallar m.a. á að tryggt sé að samkeppnis- rekstur hins opinbera sé vel að- greindur frá hefðbundnum opinber- um rekstri, þ.a. fyrir það sé girt að samkeppnisreksturinn njóti stuðnings af opinberu fé. Fjárveitingavaldið mun í æ rík- ara mæli líta á sig sem kaupanda þjónustu. Liðin er sú tíð að fjárveit- ingar miðist við starfsmannafjölda. Spurt verður hvaða þjónusta verður leyst af hendi fyrir hið opinbera fé. Hitt, hvort það skapar fleiri eða færri mönnum störf verður auka- atriði. Krafíst verður síaukins árangurs og hann mældur, veginn og met- inn. Og uppfylli stjórnendurnir ekki væntingar verða þeir látnir víkja. Þetta eru aðstæður og kröfur sem ekki verður undan vikist. En þá þurfa stofnanir og stjórnendur líka að hafa það svigrúm og þau tæki sem til þarf. Fyrir það fyrsta verður fyrirkomulag starfsmanna- mála og kjör hjá hinu opinbera að vera hliðstæð því sem gildir á einkamarkaði. Enn er langur vegur frá því að svo sé. Ný lög um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkis- ins virðast mér litlu hafa breytt til aukins sveigjanleika í mannaráðn- ingum og launamálum. Og ég tel mig hafa reynslu fyrir því, að ákvæði um ráðningartíma, tilfærsl- ur og uppsagnir í starfi séu þungla- malegri en áður var, öndvert við markmið lagasetningarinnar. Framundan eru kjarasamningar við opinbera starfsmenn þar sem þess er freistað af ríkisins hálfu að semja um launakerfí sem geri það kleift að hvetja starfsfólk til dáða, m.a. með aðlögun að aðstæðum á hveij- um vinnustað. Ekki virðist þessi viðleitni fá almennan hljómgrunn hjá viðsemjendum og er örðugt að sjá að fastheldni í niðurnjörvað launakerfí þjóni langtímahagsmun- um opinberra starfsmanna. Þá sýnist mér að stjórnvöld séu enn mjög tvístígandi með umsvif og hlutverk opinbers rekstrar. Þannig hafa rannsóknarstofnanir hins opinbera verið hvattar til þess á liðnum árum að afla verkefna, og þar með eigin fjár. Þetta hefur verið gert með ýmsu móti: Öflun rannsóknarstyrkja innan lands og utan eða tekjuöflun með þjónustu- verkefnum. Nú er svo komið að þetta eigið aflafé rannsóknarstofn- ananna er í velflestum tilvikum orðið álíka eða jafnvel meira en opinbert framlag til þeirra. Tekjur Orkustofnunar af þjónusturann- sóknum námu á sl. ári um 43% af veltu en fjárveitingar í gegnum iðnaðarráðuneyti námu 49%. Af- gangurinn, 8%, var fjárveiting á vegum utanríkisráðuneytis til jarð- hitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóð- anna, og má líta á það sem sölu á þjónustu í þessu samhengi. En nú hafa margir forstöðumenn rannsóknarstofnana það á tilfínn- ingunni að stjórnvöldum þyki nóg að gert og að þau vilji takmarka möguleika stofnana til að sinna verkefnum á markaði, jafnvel til að afla styrkja. Leikreglurnar í þessum efnum verði umfram allt að vera skýrar: Fyrst þarf að ákveða verksvið stofnana og þá um leið að kveða á um hvaða rekstur eigi að færa á einkamarkað eftir því sem hann getur við honum tek- ið. En þegar slíkur heildarrammi er fenginn verður að heimila stofn- unum að haga rekstri sínum á sem hagkvæmastann hátt; þar með tal- ið að afla fanga þar sem henta þykir og framboð er að fá. En að sjálfsögðu verður að hafa það tryggt að hugsanlegur samkeppn- isrekstur sé ekki rekinn með niður- greiðslum af neinu tagi. Það er vaxandi skilningur meðal almenn- ings, stjórnmálamanna, stjórnenda og starfsmanna opinberra stofn- ana að endurskoða verði tilgang og hlutverk opinbers rekstrar og að hann eigi sér sín takmörk. Ég er með fyrrgreindum orðum að vara við öfgum í þessum efnum: Að samdráttur i opinberum rekstri fái ómarkvissan sjálfstilgang. Það þarf ekki að vera sjálfgefið að opinber rekstur eigi að hopa hve- nær sern glittir í einhvern einka- rekstur. í okkar örsmáa þjóðfélagi getur verið ávinningur að því að opinber rekstur og einkarekstur starfi samhliða og jafnvel saman. Þetta kann sérstaklega að vera ákjósanlegt í rannsóknarstarf- semi, þar sem einkarekstur er a.m.k. enn of óburðugur til að tak- ast á við brýn verkefni fyrir at- vinnulífið." Skatta- mál hjá Heimdalli FUNDUR í skattahópi Heim- dallar verður í kvöld kl. 20.30 þar sem m.a. verður fjallað um hvernig staðið skuli að skipu- lagningu fyrir skattadag ársins 1997. Þegar fundi skattahóps lýkur um kl. 22 hefst opið hús. „Allir Heimdellingar og vinir þeirra eru velkomnir til að slá á létta strengi og lyfta sér að- eins upp fyrir páskafríið. Bæði fundurinn og opna húsið eru í húsi Sjálfstæðisflokksins, Val- höll, við Háaleitisbraut," segir í fréttatilkynningu Heimdallar. Ræktunar- sýning hesta- mannafé- lagsins Gusts HIN árlega ræktunarsýning hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi, svokölluð dymbil- vikusýning, verður haldin í Reiðhöll Gusts í kvöld, miðviku- dagskvöld, og hefst sýningin kl. 20.30. Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir böm. Forsala aðgöngum- iða verður í Reiðhöllinni í dag kl. 16. Meðal atriða á sýningunni má nefna að ræktunarbú sýna afurðir sínar en þar getur m.a. að líta þekkt hross eins og Maístjömu og stóðhestinn Loga, úrvalshryssur og stóð- hestar í Gusti koma fram, landsþekktir skeiðmeistarar leggja gæðinga sína, í fyrsta sinn verður keppt í stökki í reiðhöll hér landi og Bragi Andrésson mætir með Pilt. Þá mun Helga Rós Indriðadóttir syngja nokkur lög, segir í fréttatilkynningu. LEIÐRÉTT Nóg bensín á Þyrli Þeirrar ónákvæmni gætti í frétt Morgunblaðsins í gær, um bensínskort, að sagt var að all- ar bensínstöðvar frá Ferstiklu í Hvalfirði austur til Hafnar í Hornafirði hefðu verið orðnar bensínlausar. Þetta var ekki rétt, samkvæmt því sem starfs- fólk Veitingarstofunnar Þyrils í Hvalfirði upplýsti í gær, því þar mun að sögn ávallt hafa verið til nægt bensín. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Röng dagsetning í minningarorðum um Stein- unni Traustadóttur sem birtust í blaðinu 9. mars síðastliðinn var rangt farið með útfarardag Steinunnar. Hið rétta er að Steinunn var jarðsungin 2. des- ember. Hlutaðeigandi eru beðn- ir velvirðingar á mistökunum. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför EINARS MALMQUIST. Guðbjörg Malmquist, Ása Malmquist, Einar Fr. Malmquist, Kalla Malmquist, Gunnar Malmquist, Úlfar Malmquist, Gunnar M. Gunnarsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.