Morgunblaðið - 26.03.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997 53
MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJOIMVARP
Kröftugt réttar-
haldsdrama
Morðstund.
(ATimetoKill)
Spcnnumynd
★ ★★
Framleiðendur: Amon Milchan,
Michael Nathanson, Hunt Lowry
og John Grisham. Leikstjóri: Joel
Schumacher. Handritshöfundur:
Akiva Goldsman byggt á bók John
Grisham. Kvikmyndataka: Peter
Menzies. Tónlist: Elliot Goldenthal.
Aðalhlutverk: Matthew McConn-
aughey, Samuel L. Jackson, Kevin
Spacey og Sandra Bullock. 143
mín. Bandaríkin. Warner myndir
1997. Útgáfudagur: 17. mars.
Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
10 ÁRA gamalli blökkustúlku er
nauðgað og misþyrmt alvarlega af
tveimur suðurrískum kynþáttahöt-
urum. Faðir
stúlkunnar, Carl
Lee (Jackson),
tekur lögin í sín-
ar hendur, þegar
útlit er fyrir að
ódæðismennimir
fái vægan dóm.
Þá fer allt í háa-
loft, og er líður
að réttarhöldun-
um yfir honum
kemur betur ljós að það er ekki
einungis einn maður sem dómur
mun verða kveðinn upp yfir, heldur
margir ólíkir málstaðir.
„Morðstund" er á köflum mjög
áhrifamikil mynd, sem tekst á við
mörg atriði í samskiptum hvítra og
svartra í suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Ólíkt mörgum löngum mynd-
um (myndin er 143 mín) skaðar
lengdin myndina ekki, heldur veitir
hún kvikmyndagerðarmönnunum
svigrúm til að leggja áherslu á
mannlega þáttinn, sem virðist oft
gleymast í öllu lögfræðirausinu.
Matthew McConnaughey nær mjög
góðum tökum á krefjandi hlutverki
sínu, sem lögfæðingurinn sem tekur
að sér að veija Carl Lee og sannar
það að hann sé upprennandi kvik-
myndastjarna. Aðrir leikarar eru
allir með tölu prýðilegir, meira að
segja í minnstu hlutverkum og eiga
aðstandendur myndarinnar hrós
skilið að hafa komið saman slíku
úrvalsliði leikara. Schumacher,
sem áður hefur leikstýrt annari
Grisham mynd ,„The Client", held-
ur vel utan um atburðarás myndar-
innar. Handritið er vel skrifað, þó
svo að hin margumtalaða banda-
ríska væmni læðist inní lokamínút-
ur myndarinnar, sem gæti ofboðið
sumum. Þegar á heldina er litið
er „Morðstund" frábær afþreying
og góð dæmisaga um tengslin á
milli ólíkra kynþátta.
Ottó Geir Borg
Ný mynd um
Fridu Kahlo
►MEXÍKÓSKA leikkonan Salma Hayek hefur hreppt
aðalhlutverkið í kvikmynd um ævi listmálarans Fridu
Kahlo. Hayek, sem er þekkt hér á Fróni fyrir smáhlut-
verk í „From Dusk Till Dawn“ og aðalkvenhlutverkið
í „Desperado", er vinsæl sjónvarpsstjarna í Mexíkó.
Frida Kahlo lenti ung í mjög alvarlegu slysi og var
bundin í hjólastól til æviloka. Það af traði henni þó ekki
frá því að hafa áhrif í listamannahópum ásamt manni
sinum, listamanninum Diego Rivera.
Að sögn Hayek hefur Frida sérstaka þýðingu fyrir íbúa
Mexíkó. Hún er fulltrúi tímabils þar sem list og stjórnmál
fléttuðust saman og fólk var ófeimið við að tjá skoðanir
sínar. „Saga Fridu veitir Mexikóbúum innblástur," segir
Hayek.
Mexikóski leikstjórinn Roberto Sneider stjórnar þess-
ari útgáfu af lífi Fridu. Mynd Sneider verður byggð á
bók Hayden Herrera „Frida: A Biography of Frida Ka-
hlo“, og eru það Trimark Pictures sem framleiða hana.
Líf Fridu hefur áður verið kvikmyndað. Árið 1984
leikstýrði Paul Leduc kvikmyndinni „Fridu“ með
Ofeliu Medina í aðalhlutverki, og árið 1992 gerði
Ken Mandel heimildarmyndina „Frida Kahlo: A
Ribbon around a Bomb“.
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar siðustu
ár til þess að koma ævisögu listakonunnar á
hvíta tjaldið með stjömum á borð við Madonnu
og Lauru San Giacomo. Úr þeim myndum hefur
ekkert orðið m.a. vegna óánægju Bandaríkja-
manna af mexíkóskum uppmna sem vilja að mexí-
kósk leikkona fari með hlutverk Fridu.
HJÚLASHAUTA SÖNGLEIKURINN SEM HEFUR FAfílQ SIGURFOR UM HEIMALLAN
SALMA Hayek fer
með hlutverk
Fridu Kahlo í
nýrri mynd
um ævi lista-
konunnar.
rrv
Kakkalakkakímni
IDIR
íbúö Joe
(Joe’s Apartment)
Gamanmynd
★ 'h
Framleiðandi: Diana Phillips og
Bonni Lee. Leikstjóri: John Payson.
Handritshöfundur: John Payson,
byggt á MTV stuttmyndinni „Joe’s
Apartment". Kvikmyndataka: Pet-
er Demig. Tónlist: Carter Burwell.
Aðalhlutverk: Jerry O’Connel, Meg-
an Ward og Robert Vaughn. 77
mín. Bandaríkin. Warner myndir
1997. Útgáfudagur: 13. mars.
Myndin er öllum leyfð.
ÞESSI mynd er gott dæmi um
heiladautt skemmtiefni, sem sjón-
varpstöðin MTV hefur sent frá sér
á síðustu árum. Beavis og Butthead
og aðrar persónur stöðvarinnar hafa
öðlast heimsfrægð og endurspegla
oft bandaríska þjóðfélagsþegna á
ógurlega sannfærandi máta. „íbúð
Joe“ íjallar um einn af þessum þegn-
um, sem verður fyrir því óláni að
leigja íbúð þar sem 50.000 syngj-
andi og dansandi kakkalakkar eru
innifaldir í leigunni. '
Kakkalakkamir reyna sitt besta
að halda þessari rugluðu hugmynd
á lofti, en þeir verða aldrei neitt
annað en afsk-
ræmdar útgáfur
af litlu sætu dýr-
unum úr Disney
myndunum. Ekki
bætir það úr
skák að fyrir
utan raddirnar
hafa kakkalakk-
arnir engin út-
litsleg einkenni,
svo eftir að hafa séð einn kakkal-
akka hefur maður séð þá alla. Það
má hlæja einstaka sinnum að þess-
ari óttalegu vitleysu, en aldrei nægi-
lega mikið til þess að hægt sé að
mæla með henni sem afþreyingu.
Helsti kostur myndarinnar er sá að
hún er stutt.
Biddu um Banana Boat
ef þú vilt spara 40-60%
SYNINGAR:
ÞRIDJUDAG 8. APRlL KL 21:00
MWVIKUDAG 9 APRIL
KL 17:00 00 KL21.00
MWA 0G
B0RDAPANTAN1R
ÍSÍMASB8 7111
MIÐAVERDKR 1200
HORMÉXA-áimÝSIHGAfiERfl