Morgunblaðið - 26.03.1997, Síða 56
MYUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
H Tæknival
SKEIFUNNI 17
SlMI 550-4000 • FAX 550-4001
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
'"r
:£J>
Kjaraviðræður banka og bankamanna hefjast á ný
Morgunblaðið/Ásdís
ÞRÖNGT MEGA SÁTTIR SITJA
Báðir aðilar felldu
sáttatillöguna
SÁTTATILLAGA ríkissáttasemjara
í kjaradeilu Sambands íslenskra
bankamanna og bankanna var felld
af báðum deiluaðilum í gærkvöldi.
Af 3.136 félagsmönnum SÍB sem
atkvæði greiddu voru 2.843 andvígir
tillögunni, eða 92,5%. Samþykkir
voru 231, eða 7,5%. Kjörsókn var
93,1%. Bankamir og sparisjóðimir
vom allir andvígir tillögunni.
Vilhelm G. Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri SIB, segist ekki hafa
búist við svo afgerandi niðurstöðu,
en hún sé í samræmi við það sem
forysta bankamanna hafi vonast eft-
ir. Stjórn SÍB hvatti félagsmenn ein-
dregið til að fella sáttatillöguna.
Afstaða banka afdráttarlaus
Finnur Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
viðskiptabanka, segir að afstaða
banka og sparisjóða hafi verið af-
dráttarlaus, enda hafí verið við því
búist. Meginástæðan fyrir því að
bankarnir hafi hafnað tillögunni
hafi verið óánægja þeirra með
ákvæði hennar um sérstaka 0,7%
launahækkun til bankamanna vegna
svokallaðs gerðardómsmáls.
í fyrra nýttu bankamenn sér
ákvæði í lögum um kjarasamninga
til að bera það undir gerðardóm
hvort laun þeirra hefðu hækkað til
jafns við viðmiðunarhópa. Gerð-
ardómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að laun bankamanna hefðu
hækkað minna, en að munurinn
væri svo lítill, að ekki væri ástæða
til að breyta launum. Bankamenn
gerðu kröfu um þessa leiðréttingu
og sáttanefndin setti í tillögurnar
sérstaka 0,7% hækkun þess vegna,
en samninganefnd bankanna hefur
hins vegar ávallt hafnað þessari
kröfu.
Sáttasemjara ríkisins er lögum
samkvæmt skylt að leggja fram
sáttatillögu ef deiluaðilar ná ekki
samkomulagi um nýjan kjarasamn-
ing fimm dögum fýrir boðað verk-
fall. Nýr sáttafundur er boðaður
klukkan tvö á morgun. Takist ekki
samningar fyrir 4. apríl hefst verk-
fall bankamanna.
Tíu sáttafundir
Sáttafundir í kjaradeilum tíu
stéttarfélaga og viðsemjenda héldu
áfram hjá ríkissáttasemjara í gær
án þess að niðurstaða fengist í við-
ræðunum. í gærmorgun voru haldn-
ir fundir með fulltrúum bókasafns-
fræðinga, sálfræðinga, samninga-
nefndar Matvís, Rafiðnaðarsam-
bandsins (RSI) vegna sýning-
armanna í kvikmyndahúsum og full-
trúar Samiðnar áttu fund með samn-
inganefnd ríkisins.
Eftir hádegi hófust sáttafundir
milli RSÍ og Pósts og síma hf. og
fulltrúar starfsmanna álversins í
Straumsvík komu einnig til viðræðna
við vinnuveitendur upp úr hádeginu.
Þá héldu viðræður áfram í deilu
Flugfreyjufélagsins og Flugleiða síð-
degis og formenn aðildarfélaga
BSRB, sem hafa vísað deilum sínum
til sáttasemjara, komu til sáttafund:
ar með samninganefnd ríkisins. í
gær var einnig haldinn sáttafundur
í kjaradeilu flugvirkja og viðsemj-
enda þeirra.
Viðræðum verður haldið áfram í
dag í málum nokkurra félaga en
ekki verður boðað til fundar með
öðrum fyrr en eftir páska.
■ Kjarafréttir/10-11
Frystar loðnuafruðir
Verðmætið
2,4 milljarðar
Á LOÐNUVERTÍÐINNI sem nú er
að ljúka voru alls framleidd um
41.100 tonn af loðnuafurðum, fyrir
utan mjöl og lýsi, að verðmæti um
2,4 milljarðar króna. Alls voru fryst
um 18 þúsund tonn af loðnu á mark-
að í Rússlandi en um 18.800 tonn á
Seðlabankinn
Verðbólga
2,5%-3,5%
á samnings-
tímanum
BRÁÐABIRGÐAMAT Seðlabank-
ans á niðurstöðum kjarasamninga
er að verðbólga verði frá 2,5% til
3,5% á samningstímanum. Sam-
kvæmt þessu ættu samningarnir
ekki að hafa kollsteypu í för með
sér í efnahagslífinu.
Þetta kom fram í erindi Birgis
ísleifs Gunnarssonar, bankastjóra
Seðlabankans, á ársfundi bankans
í gær. Birgir Isleifur tók skýrt fram
að spáin væri gerð á grundvelli
þeirra upplýsinga sem unnt hefði
verið að afla í gær og að henni
yrði að taka með þeim fyrirvara að
ekki væru öll kurl til grafar komin
í kjaraviðræðum.
Seðlabankinn spáir 1,9% verð-
bólgu á þessu ári og 3,4% árið 1998
en að verðbólga muni síðan fara
lækkandi þe'gar horft er fram til
ársins 1999. Reiknað er með að
breytingar frá upphafi til loka árs
verði 2,7% á þessu ári og 3% á hinu
næsta.
■ Kjarasamningar/29
Sauðburður
hafinn á Hópi
Grindavík. Morgunblaðið.
GUÐMUNDUR Þorsteinsson, útgerðarmaður
og sauðfjárbóndi í Grindavík, hefur staðið í
ströngu að undanförnu. Mitt í því sem hann
hefur leitað að báti í staðinn fyrir Þorstein
GK sem strandaði við Krísuvíkurberg fyrir
skömmu eru kindurnar hans byrjaðar að bera
og ef að likum lætur bera 45 ær eða liðlega
helmingnrinn yfir páskana 6-7 vikum fyrir
tímann.
„Eina skýringin á þessum vandræðum er sú
að hrútur frá öðrum bónda hefur komist inn
í hólfið hjá kindunum í nóvember löngu eftir
að ég fjarlægði mína hrúta frá þeim og hefur
hann atast í þeim þá daga sem ég lét þær eftir-
litslausar vegna kuldakastsins sem gekk yfir,“
sagði Guðmundur.
„Fyrsta ærin bar 8. mars og er eðlileg skýr-
ing á því þar sem við höfum alltaf fengið eina
til tvær snemmgengnar. Nú hafa þrjár borið
til viðbótar og ég á von á að rúmlega 40 beri
yfir páskahátíðina, þannig að hér verður orðið
ansi þröngt og erfitt ef tíð verður slæm og
ekkert hægt að hleypa út. Sauðburður hjá hin-
um helmingnum verður siðan á eðlilegum tíma
um miðjan maí svo hér verður tvöfaldur sauð-
burður ef svo má að orði komast," sagði Guð-
mundur og bætti við að hann væri sennilega
búinn að finna bát og trúlega yrði gengið frá
kaupum næstu daga.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
GUÐMUNDUR Þorsteinsson önnum kafinn
i fjárhúsinu.
markaði í Asíu, einkum Japan. Alls
voru framleidd um 4.300 tonn af
loðnuhrognum á vertíðinni.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
framleiddi á vertíðinni um 13 þúsund
tonn af loðnu á Japansmarkað, um
7 þúsund tonn af loðnu á Rússlands-
markað og um 3.300 tonn af loðnu-
hrognum og er áætlað verðmæti
þeirra um 450 milljónir. Verðmæti
allra afurðanna er áætlað um 1,5
milljarðar króna.
Islenskar sjávarafurðir fram-
leiddu um 17.800 tonn af loðnuaf-
urðum á vertíðinni, að verðmæti um
860 milljónir króna, að undanskildu
verðmæti loðnuhrogna, þar sem ekki
hefur verið samið um verð á þeim
ennþá, en alls nam framleiðsla ÍS á
loðnuhrognum um 1.000 tonnum.
Um 11 þúsund tonn af loðnu voru
fryst og seld á markað í Rússlandi
og alls fóru um 5.800 tonn á mark-
aði í Asíu, nær eingöngu til Japans.
■ Um 36 þúsund/C2
-------------------
Lífrænt gas
fyrir SVR?
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR Sjálf-
stæðisflokksins hafa lagt fram til-
lögu í borgarráði um að könnuð verði
hagkvæmi þess að nýta lífrænt gas
sem eldsneyti fyrir strætisvagna
Reykjavíkurborgar. Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað.
Lagt er til að skipaður verði starfs-
hópur til að kanna tæknilega þætti
og hagkvæmni, leggja fram áætlun
um tilraunaverkefni og að tillögur
liggi fyrir 15. júní nk. Bent er á að
tækni til að nýta gas sem eldsneyti
ökutækja sé vel þekkt. Þá hafi til-
raunir með gasvinnslu hafí staðið
yflr hjá Sorpu um nokkurt skeið.