Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 1
112 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 121. TBL. 85. ÁRG. SUNNUDAGUR1. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Til hamingju með daginn, sjómenn Morgunblaðið/Kr. Ben. Á SÍLDVEIÐUM. Sjómenn halda sjómannadaginn há- tíðlegan um land allt í dag. Skipin eru flest í landi og því iiggja síldveiðar niðri eins og aðrar veiðar. Veiðzt hefur langleiðina í 200.000 tonn af sfld í vor og er heildarafli í lok maímánaðar orðinn meiri en nokkru sinni áður á sama tíma. Frá upphafi fiskveiðiársins hefur veiðst meira en 1,5 milljónir tonna, en afli á heilu ári hefur sjaldan verið meiri en það. Tvísýnt í Frakklandi París. Reuter. KJÓSENDUR, sem greiddu ekki atkvæði í mótmælaskyni eða kusu Pjóðíylkinguna í fyrri umferð frönsku kosninganna, gætu ráðið úr- slitum í annarri umferð kosninganna í dag. Fréttaskýrendur kváðust í gær þeirrar hyggju að Jacques Chirac forseti gæti aðeins komist hjá því að þurfa að deila völdum með andstæð- ingum sínum á vinstri vængnum tækist honum að ná í atkvæði stórs hluta þeirra, sem sneru baki við samsteypustjórn mið- og hægri- flokkanna fyrir viku þegar vinstri- flokkamir unnu óvæntan sigur. Chirac hefur reynt að nota liðna viku til að snúa taflinu sér í hag. Ala- in Juppe forsætisráðherra hefur vik- ið f'yrir Philippe Seguin, sem á að vera samviska stjórnarflokkanna í félagsmálum, og Alain Madelin, málsvara óhefts markaðsbúskapar, og hefur verið talað um „draumalið" Chiracs. Fréttaskýrendur telja hins vegar að þessar breytingar komi of seint til að Chirac nái að snúa við blaðinu. ■ Vinstrimenn/6 Óvænt yfírlýsing um EMU höfð eftir bankastjóra þýska seðiabankans Segir frestun evrósins koma til greina Frankfurt. Reuter HANS Tietmeyer, bankastjóri þýska seðlabankans, er ekki andvíg- ur því að gildistöku hins nýja sam- eiginlega gjaldmiðils, evrósins, verði frestað, samkvæmt upplýsing- um tímaritsins Der Spiegel. Talsmaður tímaritsins, sem stað- festi að upplýsingarnar væru ekki komnar beint frá bankastjóranum heldur ónafngreindum þýskum heimildarmönnum, sagði Tietmayer ekki sjá neitt athugavert við að fresta gildistöku evrósins, takist annaðhvort Þýskalandi eða Frakk- landi ekki að uppfylla Maastricht- skilyrðin. Seðlabankinn andmælti fyrr í vik- unni fyrirætlunum Theos Waigels fjármálaráðherra um að láta endur- meta gull- og fjármagnsbirgðir bankans. Vill hann að bankinn end- urgreiði ríkinu 20 milljarða marka í kjölfar endurmatsins til að auðvelda ríkissjóði að uppfylla inngönguskil- yrði Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU. Þessar deilur þýska bankans og ríkisstjórnarinnar hafa skapað óvissu á evrópskum fjármagns- markaði og vakið spumingar um trúverðugleika þýsku stjómarinnar. Þá virðist klofningur vera kominn upp í stjóminni vegna þessa máls. Þingmaður stjómarflokks frjálsra demókrata hefur hvatt ráðherrann til að afturkalla áform sín. Oskar Lafontaine, leiðtogi stjórnarandstöðuflokks sósíal- demókrata, sagði málið sýna að efnahagsstefna stjórnarinnar hefði brugðist og hvatti til að boðað yrði til kosninga. Stjórnarflokkur Indónesíu vinnur stórt í þingkosningum Framkvæmd kjörs- ins víða gagnrýnd Djakarta. Reuter. ALLT benti til stórsigurs stjómar- flokksins Golkar í þingkosningum í Indónesíu, sem fram fóm á fimmtu- dag. Þegar flest atkvæði höfðu verið talin stefndi í að Golkar fengi rúm- lega 74 af hundraði atkvæða. Þetta er bezta útkoma flokksins í kosning- um í þau nærri 30 ár sem flokkurinn hefur myndað ríkisstjórn landsins. Hefur framkvæmd kosninganna víða verið gagnrýnd og telja stjóm- málaskýrendur þessa niðurstöðu ekki koma á óvart. Ofbeldi setti svip sinn á aðdraganda kosninganna og í gær myrtu aðskilnaðarsinnar í Austur-Tímor, sem var portúgölsk nýlenda áður en landið var innlimað í Indónesíu árið 1976, sautján liðs- menn öryggissveita Indónesíu úr launsátri. Skæruliðar aðskilnaðar- sinna höfðu myrt 17 manns á síð- ustu sólarhringunum fyrir kosning- arnar. Leiðtogar Golkar-flokksins sögð- ust vera hissa á því hve stór kosn- ingasigur þeirra væri. „Hann kemur okkur á óvart þar sem við töldum okkur á gmndvelli eigin útreikninga ekki geta náð nema 70-71% at- kvæða,“ sagði Abdul Gafur, einn sjö formanna flokksins. Aðeins þremur flokkum var leyft að bjóða fram í kosningunum. Sam- einaði framfaraflokkurinn (PPP), flokkur múslima, hlaut tæp 23% at- kvæða, 6% meira en í síðustu kosn- ingum 1992, en flokkur kristinna þjóðemissinna, Lýðræðisflokkur Indónesíu, (PDI) beið afhroð. Bæði PPP og Óháða kosningaeft- irlitsnefndin (KIPP) kvörtuðu und- an útbreiddu kosningasvindli og bandaríska utamnkisráðuneytið gagnrýndi framkvæmd kosning- anna. Fonnaður PPP sagði að flokk- urinn myndi ákveða 5. júní hvort un- að yrði við hina opinbera niðurstöðu eða ekki. laxastofnar Bpetland Á HELJARÞRÖM Og Evpópa 12 KEXIÐ AÐ NORÐAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.