Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingmenn á Austurlandi hafa skiptar skoðanir á Fljótsdalsvirkjun
Gild rök verða að vera fyr-
ir breytingii á ákvörðun
SKIPTAR skoðanir eru á því hvort
unnt er að taka til endurskoðunar
ákvörðun um virkjanaleyfi Fljóts-
dalsvirkjunar sem veitt var 1991 en
svæðisnefnd um skipulag miðhá-
lendis telur að minnka eigi lón virkj-
unarinnar og skoða aðra kosti. Þing-
menn og sveitarstjórnarmenn á
Austurlandi, sem Morgunblaðið
ræddi við í gærmorgun, eru ekki á
einu máli um möguleika þess.
„Það verða að vera mikil og gild
rök fyrir breytingu á ákvörðun eins
og um Fljótsdalsvirkjun sem hefur
gengið í gegnum ákveðinn feril.
Menn geta ekki einfaldlega sagt nú
að þetta skuli ekki eiga fram að
ganga,“ sagði Egill Jónsson alþingis-
maður er hann var spurður álits.
„Menn gengu ekki að því gruflandi
að landið sem færi undir lón væri
verðmætt. Þar sem þessi virkjunar-
áform eru ekki uppi á borðinu nú
verður ekki séð að virkjunin rísi á
næstu árum. Þess vegna gefst
kannski tími til að íjalla um málið
á ný og það er ekkert sem mælt
getur á móti því. En það er meira
en að segja það að taka upp ákvarð-
anir sem þessar sem teknar voru
fyrir fáum árum, ég held að ráð-
herra sé ekkert í góðri aðstöðu til
þess og tel ég það meira en hæpið,“
segir þingmaðurinn að lokum.
Æskilegast að hverfa frá
FU ótsdalsvirkjun
„Ég tel fulla ástæðu til að taka
málið upp á ný og raunar sjálfsagt
og fagna því að tillaga er komin frá
svæðisnefndinni um að hafna virkj-
uninni,“ segir Hjörleifur Guttorms-
son alþingismaður. „Ég tel sjálfsagt
að nú fari fram umhverfismat ef
hugsað er til framkvæmda þama en
æskilegast væri að hverfa frá hug-
myndinni um virkjun Jökulsár á
Fljótsdal. Rökin eru ljós og viðhorfin
til gildis verndunar hafa styrkst
verulega hin síðari ár.“
Helgi Halldórsson, bæjarstjóri á
Egilsstöðum, segir þessa hugmynd
nýja en virkjanir á þessu svæði snerti
bæjarbúa óbeint þar sem hér sé
nánast um eitt atvinnusvæði að
ræða, ekki síst í ljósi hugsanlegrar
sameiningar fimm hreppa sem kosið
verður um í haust. Hann telur við-
horf til náttúruverndar hafa breyst
og að réttast væri að skoða alla
kosti sem væru í boði í virkjanamál-
um svæðisins almennt og flýta sér
hægt í þessum efnum.
Amór Benediktsson á Hvanná,
sem á sæti í hálendisnefndinni, seg-
ir nefndina leggja til að Eyjabakka-
lón verði minnkað til að draga úr
gróðureyðingu. „Við leggjum til að
Hraunaveita verði aflögð og þar með
em ekki forsendur fyrir svo stóru
lóni við Eyjabakka. Ég á frekar von
á að sá virkjanakostur sem ákveðinn
hafði verið muni verða endurskoðað-
ur. Hinn almenni borgari lítur þann-
ig á að við eigum ekki að spilla gróð-
urfari um of og við erum bara að
taka á því bæði gagnvart Austfirð-
ingum og öðrum landsmönnum. En
við teljum að hægt sé að nota aðra
útfærslu sem leita þarf að.“
Morgunblaðið/Ásdís
Hestar fluttir út í Viðey
Smáþjóðaleikarnir
Haldnir í
Laugardal
SUNDÆFINGAR fyrir Smáþjóða-
leikana hefjast í Laugardalslaug
klukkan tíu í dag, en fýrstu viðgerð
eftir óhappið á föstudag þegar rúða
í horni laugarinnar gaf sig, lauk
skömmu fyrir hádegi í gær.
Ómar Einarsson, framkvæmda-
stjóri íþrótta- og tómstundaráðs,
segir að stálplata hafi verið sett í
stað gluggans og sé um frambúðar-
ráðstöfun að ræða.
„Ástandið er miklu betra en við
þorðum að vona og ekkert því til
fyrirstöðu að halda hér Smáþjóða-
leikana eins og fyrirhugað var,“
segir Ómar.
Kyndilhlaup í hvassviðri
Hópur ungmenna lagði af stað í
svo kallað kyndilhlaup frá Borgar-
nesi um klukkan níu í gærmorgun
og átti að hlaupa með kyndil til
Reykjavíkur og koma með hann á
setningu Smáþjóðaleikanna. Fyrsta
tilraun varð hins vegar endaslepp
þar sem hlaupararnir komust ein-
göngu yfir brúna áður en þeir urðu
að fresta för vegna hvassviðris.
Ekki þótti ráð að halda áfram för
undir Hafnarfjalli.
VIÐEYJARFERJAN flutti
óvenjulegan farm frá Reykjavík
út í Viðey á föstudag. Það voru
hátt í þijátíu hestar frá Laxnesi
í Mosfellsdal, en í Viðey verður
starfrækt hestaieiga og reiðskóli
í sumar. Farnar voru tvær ferðir
og voru hestarnir fluttir á
pramma sem ferjan dró á eftir
sér. Að sögn Hauks Þórarinssonar
í Laxnesi gengu flutningamir
vel. „Þeir voru svolítið hræddir
við að fara á prammann en stóðu
alveg grafkyrrir þegar þeir voru
komnir á hann,“ sagði Haukur.
Steingrímur Signr-
geirsson fréttasljórí
erlendra frétta
verið í námsleyfi til
að ljúka námi í
stjórnmálafræði frá
Háskóla íslands.
Steingrímur hóf
störf á ritstjórn
Morgunblaðsins
1986, fyrst sem
sumarmaður og
hefur unnið þar
óslitið síðan með
námshléum. Seinni
árin hefur hann
starfað á erlendri
fréttadeild blaðsins,
m.a. sem staðgeng-
ill fréttastjóra.
Hann hefur um ára-
bil séð um þáttinn
1986, nam þýzku og stjórnmála- „Matur og vín“ hér í blaðinu.
fræði við háskóla í Trier í Þýzka- Steingrímur Sigurgeirsson er
landi á árunum 1988 til 1991. kvæntur Maríu Guðmundsdóttur
Síðastliðinn vetur hefur hann og eiga þau eina dóttur.
STEINGRÍMUR
Sigurgeirsson hefur
verið ráðinn frétta-
stjóri erlendra frétta
við Morgunblaðið.
Ásgeir Sverrisson,
sem gegnt hefur því
starfi nokkur
undanfarin ár, lét
af því fyrr á þessu
ári, þegar hann fór
til námsdvalar á
Spáni.
Steingímur Sig-
urgeirsson er 31 árs.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum við
Hamrahlíð árið
Steingrímur
Sigurgeirsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
JHHHÉÉHHÉL ' í 7«
nmm ***&»<#■ - >
:
Bílvelta á Breiðholtsbraut
BIFREIÐ rakst í vegrið á mótum
Breiðholtsbrautar og Reykjanes-
brautar laust fyrir klukkan sjö í
gærmorgun, með þeim afleiðingum
að hún valt. Bifreiðin ók vestur
Breiðholtsbraut og hugðist öku-
maður hennar beygja inn á Reykja-
nesbraut þegar slysið varð. Ekki
þurfti að kalla til tækjabíl slökkvi-
liðs, en það var kallað á vettvang
til að hreinsa burt bensín af slys-
stað. Ökumaður og farþegi voru
fluttir á slysadeild, en meiðsl þeirra
voru talin óveruleg. Grunur leikur
á ölvun, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu.
á heljarþröm
►Þrátt fyrir að Norður-Atlants-
hafslaxasjóðurinn hafi náð að
uppræta nær alla úthafsveiði á
laxi síðustu 5-6 árin er ekkert lát
á hnignun laxastofna. /10
Stefnubreyting -
en í hvaða átt?
►Nýafstaðnar kosningar í Bret-
landi voru vissulega sögulegar, en
nákvæmlega í hvaða átt sagan
tekur stefnu er meira álitamál. /12
Ég f iskaði lótt
►Sjórinn hefur löngum verið líf
ogyndi Gríms Karlssonar fyrrver-
andi skipstjóra og skipalíkana-
smiðs. /20
Kexið að norðan
►í Viðskiptum/Atvinnulífi er rætt
við Eyþór Jósepsson hjá Kexverk-
smiðjunni á Akureyri. /24
B
► l—32
Hlýtt fólk í köldu landi
►Þótt byggðir Austur-Grænlands
séu umgirtar ís og jökli er fólkið
hlýtt og glatt. Morgunblaðsmenn
kynntust einstakri gestrisni næstu
nágranna okkar. /1&15-18
Að vakna af
draumi lífsins
►Hér á landi er hópur sem iðkar
zen-hugleiðslu. Kennari hópsins
er Jakusho Kwong-roshi hefur
dvalið hér á landi síðastliðna daga.
/4
Öskjuhlíð - marg-
þætt útivistarperla
►Öskjuhlíðin er lifandi og nærtæk
kennslustofa í jarðfræði, fugla-
fræði og grasafræði fyrir fólk á
öllum aldri. /6
FERÐALÖG
► 1-4
Boston
►Markverðir staðir og ailir í
göngufæri. /2
Hvalir í návígi
►Vinsældir hvalaskoðunaferða
vaxa enn. /4
BÍLAR____________
► 1-4
Góð blanda
► Siguijeppi Einars Þórs
Gnnlaugssonar er blanda úr ólík-
ustu biltegundum. /3
Reynsluakstur
►Sportlegur og fjölskylduvænn
AlfaRomeo 146. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1—16
Reykjanes
►Staða gróðurs og uppgræðslu.
/14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42
Leiðari 28 Skák 42
Helgispjall 28 Fólk i fréttum 44
Reykjavikurbréf 28 Bíó/dans 46
Minningar 32 Útv./sjónv. 50,54
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 24b
ídag 42 Mannlifsstr. 30b
Brids 42
INNLENDAR FI ÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
l