Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 4

Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 4
4 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 VIKAN 25/5 - 31/5. ►UNGUR maður hefur verði dæmdur í Héraðs- dómi Reykjaness til tiu ára fangelsisvistar fyrir að hafa svipt stjúpföður sinn lífi að morgni 1. janúar sl. Ákærði undi dóminum sem verður ekki áfrýjað af ákæruvaldinu og hefur hinn dæmdi hafið afplánun á refsingunni. ►ÍSLENDINGARurðií fimmta sæti í heimsmeist- arakeppni i handbolta sem fram fór i Japan.Er þetta í fyrsta sinn sem ísland nær svo langt i keppninni. ► Skiptum í þrotabúi Miklagarðs hf. er lokið, tæpum fjórum árum eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Búið greiddi kröfur að fjárhæðs samtals 357 miiy., þar af voru 45 millj. forgangs- kröfur, sem greiddust að fullu. ►ENSKA stúlkan Mel B., ein af söngkonunum fimm í ensku hljómsveitinni Spice Girls, ætlað að giftast íslendingnum Fjölni Þor- geirssyni í sumar. Mel B. var stödd hér á landi í sið- ustu viku og héldu þau boð með vinum sínum á Astró. Spice Girls er ein vinsæl- asta hljómsveit heims um þessar mundir. ►INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að íbúar við Miklu- braut og aðrar götur, þar sem álag vegna umferðar- hávaða er mikið, geti sótt um styrk af 20 miiy. fram- lagi á fjárhagsáætlun til endurbóta á gluggum húsa sinna og bætt þannig hljóð- vist innan dyra. Aukinn þorskkvóti HAFRANNSÓKNASTOFNUN hefur iagt til að þorskkvótinn fyrir næsta fískveiðiár verði aukinn um 32 þús. tonn. Útflutningsverðmæti þessarar aukningar gæti verið um fjórir millj- arðar króna. Enn fremur er lagt til að leyfilegur afli úthafsrækju verði 70 þús. tonn en leyfilegur afli á þessu ári er 60 þús. tonn. Útflutningsverð- mæti 10 þús. tonnanna gæti verið 1,5 milljarðar. Miðlunartillaga RÍKISSÁTTASEMJARI hefur lagt fram miðlunartillögu í kjaradeilu verkalýðsfélaga- og vinnuveitenda á Vestfjörðum og var kosið um hana á föstudag. Verkfallið hefur staðið frá 20. apríl eða í sex vikur og hefur komið til átaka milli verkfallsmanna og verkamanna í landi þegar verk- fallsmenn stöðvuðu landanir skipa frá Vestfjörðum. SÍF kaupir hlut í Loppa Fisk í BURÐARLIÐNUM er samningur um kaup SÍF á helmingshlut í norska fiskvinnslufyrirtækinu Loppa Fisk. Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um kaupin en stjóm SÍF á eftir að samþykkja þau. Víking hf. kaupir Sól hf. VÍKING hf. á Akureyri hefur keypt öll hlutabréf í Sól hf. og verða fyrir- tækin sameinuð í kjölfarið. Hið sam- einaða fyrirtæki verður með bjór- framleiðslu á Akureyri og fram- leiðslu á smjörlíki, olíu, ávaxtasafa, grautum o.fl. í verksmiðjunni í Reykjavík. Ákveðið hefur verið að setja félagið á hlutabréfamarkað innan tíðar. DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra les samkomulag Rússa og NATO á leiðtogafundinum í París á þriðjudag. Tímamótasamkomu- lag NATO og Rússa LEIÐTOGAR Atlandshafsbandalags- ins, NATO, og Rússa undirrituðu tíma- mótasamkomulag um samstarf í varn- armálum í París á þriðjudag. Viðstadd- ir undirritun sáttmálans voru m.a. Bill Clinton Bandaríkjaforseti, Jacques Chirac Frakklandsforseti, Boris Jeltsín Rússlandsforseti og Davíð Oddson for- sætisráðherra íslands. Það þótti tíð- indum sæta er Jeltsín, Rússlandsfor- seti, lýsti því yfír á fundinum að Rúss- ar myndu fjarlægja kjarnaodda af flugskeytum sem miðað er á NATÓ- ríki. Forsætisráðherra Frakka boðar afsögn ALAIN Juppé, forsætisráðherra Frakk- lands, tilkynnti á mánudag að hann muni segja af sér eftir þingkosningam- ar óháð því hver fari með sigur af hólmi. Með afsögninni tók Juppé á sig ábyrgð á óvinsælum aðhaldsaðgerðum stjómarinnar og gaf Jacques Chirac, forseta, færi á að heita kjósendum nýrri byijun styðji þeir stjómarflokk- ana til áframhaldandi stjómarsetu. Philippe Seguin þingforseti og Alain Madelin, herskár frjálshyggjumaður, skipa nýtt „draumalið" stjórnarflokk- anna. ►LAURENT Kabila sór á fimmtudag embættiseið forseta Lýðveldisins Kongó, sem áður hér Zaire, og lofaði að efna til þing- og forsetakosninga í apríl árið 1999. Áður hafði hin nýja stjórn hans bannað starfsemi stjórnmálaflokka og útifundi í Kinshasa. Stjórnarandstæðingar hafa hundsað bannið og efnt til nokkurra mótmæla- funda. Daglegt líf virðist ganga sinn vanagang í Kinshasa. ►JOHNNY Paul Korma herforingi steypti lýðræðis- lega kjörinni stjórn Sierra Leone á mánudag. Leiðtog- ar Vestur-Afríkuríkja hafa samþykkt að styðja hernað- aríhlutun undir forystu Níg- eríumanna og búist er við að hersveitir þeirra grípi til aðgerða um helgina til að koma Ahmad Tejan Kabbah, forseta, aftur til valda. ► SVIPTINGASAMT hefur verið í Afghanistan undan- farna daga. Hersveitir Tale- ban-hreyfingarinnar virð- ast á undanhaldi eftir að þær voru hraktar burt frá borginni Mazar-i-Sharif á miðvikudag. Talebanar halda þó enn a.m.k. tveimur þriðju hlutum landssvæða í Afghanistan. ► MOHAMMAD Khatami sigurvegari forsetakosning- anna í íran segir aukið lýð- ræði tímabært þó vernda þurfi íslamska stjórnar- hætti. MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á sama báti, kennslumyndbönd fyrir skipstjórnarmenn Rétt viðbrögð við slysum á sjó ÚT HAFA komið á vegum slysa- og bráðamóttökudeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur, tvö myndbönd, Á sama báti, læknisverk sjómanna, sem ætluð eru fyrir skipstjórnarmenn á fískiskipum. Myndböndin sýna rétt viðbrögð við algengum slysum, sem sjómenn verða fyrir á sjó, oft á fjar- lægum miðum. „Sjómennskan er hættulegasta starfið á íslandi," sagði Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur. „Einn af hveijum tíu slasast á hveiju ári og jafnvel fleiri. Slys eru svo algeng að skipstjómarmenn lenda fyrr eða síðar í því að sauma saman sár ásamt ýmsu öðm og stundum er fólkið svo mikið slasað að þeir verða að bregðast við til þess að halda lífí í viðkomandi þar til hjálp berst. Þeir eiga engra kosta völ, sérstak- lega þegar skipin em farin að sækja æ lengra á haf út. Myndböndin em því tæki til að hjálpa þeim að bregð- ast rétt við.“ Sigurður Ásgeir Kristinsson var fyrsti læknirinn, sem sendur var til aðstoðar í Smugunni árið 1994 og sagði hann að þá þegar hefði verið ljóst að margt mætti betur fara í heilbrigðisþjónustu sjómanna. Símaráðgjöf „Síðan fyrsti túrinn var farinn höfum við verið að beijast fyrir að fá fjármagn til að sinna þessum hlutum," sagði hann. „Við læknar höfum verið með símaráðgjöf við skipstjómarmenn og er það von okkar að á næstu ámm verði hægt að útvíkka þá þjónustu með svokall- aðri fjarlæknisfræði." Fimm læknar deildarinnar hafa mannað þyrluvaktina og sjá þeir læknar einnig um ráðgjöf til sjó- manna, sérstaklega þegar um alvar- leg tilfelli er að ræða en menn leita einnig til deildarinnar með spurn- ingar um lyf og fleira. Þá hafa lækn- ar og hjúkmnarfræðingar á slysa- deild í mörg ár séð um bóklega kennslu nemenda í Stýrimannaskó- lanum og hafa þeir jafnframt heim- sótt slysadeildina og fylgst með því sem þar fer fram. Verklegt nám „Fyrir nokkra var tekið upp sam- starf milli slysadeildar, Stýrimanna- skólans og Slysavarnaskóla sjó- manna um endurmenntunarnám- skeið fyrir skipstjómarmenn, þar sem við sjáum um bóklega hlutann og var nú í fyrsta sinn boðið upp á verklegt nám á slysadeild. Þeir fengu að vera hér í tvo daga og vom óhemju þakklátir fyrir það litla sem þeir fengu. Þetta vom stýrimenn sem hafa lent í að sinna slösuðum og vita hvar skórinn kreppir,“ sagði Sigurður Ásgeir. „En það er þannig að jafnvel þó þeir séu hér í tvo daga þá líða stundum margir mánuðir þar til þeir lenda í að sinna slösuðum manni." Sagðist Sigurður Ásgeir vonast til að með bættri lyfjakistu um borð í fiskiskipum, betri sam- skiptum við lækna í landi, sem hafa kynnst aðstæðum á sjó af eigin raun og endurmenntunamámskeiðum, geti læknar áttað sig á hvað menn kunna og geta við þær aðstæður sem upp koma en nauðsynlegt sé fýrir skipstjómarmenn að rifja upp við- brögðin og þá komi myndböndin að góðu gagni. „í upphafi var ætlunin að kenna mönnum að sauma sár og deyfa en ég hef heyrt ótal sögur af mönnum sem hafa verið saumaðir án þess_ að vera deyfðir,“ sagði Sig- urður Ásgeir. Um 60 mín. efni er samtals á báðum myndböndunum. Á fyrra bandinu er stuttur inngangur, síðan er flallað um hvemig bregðast á við þegar komið er að slysi, hvernig skal hafa samband við lækni í landi, hvernig mæla á og skrá lífsmark, öndunaraðstoð við höfuðáverka, við- brögð við áverka á hrygg og mjað- magrind, loftvega- og bijósthols- skoðun, kviðarholsskoðun, með- höndlun áverka á útlimum og um- búðir. Á síðara bandinu er kennt að deyfa, sauma sár, fjarlægja öng- ul, fjallað um augnáverka, með- höndlun brunasára, hvernig setja á upp æðalegg þ.e. vökva og lyfja- gjöf, hvernig setja á upp þvaglegg, kafli um áfallahjálp, viðbrögð við eitrunum og loks eru lokaorð. Kafl- arnir eru tímasettir þannig að auð- velt er að finna þá á myndbandinu. Myndböndin fást á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur og er hægt að nálgast þau í síma 525-1712. Morgunblaðaið/Ásdís SIGURÐUR Ásgeir Kristinsson, sérfræðingur á slysa- og bráða- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur, og Brynjólfur Mogensen yfirlækn- ir með myndbönd ætluð skipstjórnarmönnum á fiskiskipum með leiðbeiningum um viðbrögð við slysum á sjó. Valur Ingimundarson um samskipti íslands og Bandaríkjanna á 5. og 6. áratugnum Engar kjarnorku- flaugar á Islandi .# ÉL % 20.-31. MiM' 100? VALUR Ingi- mundarson sagnfræðingur sagði í erindi, sem hann flutti á lokadegi hins íslenska sögu- þings, að kjarnorkuflaugarnar, sem H.C. Hansen, forsætisráðherra Danmerkur, heimilaði Bandaríkja- mönnum á laun að koma fyrir á Grænlandi á árunum 1959-1965 hefðu verið sömu tegundar og þær flaugar, sem bandaríski herinn hugðist koma fyrir á íslandi. Valur sagði að nýjar heimildir Bandaríkj- unum bentu til þess að engin kjarn- orkuvopn hefðu verið geymd á ís- landi. Bandaríkjamenn ráðgerðu að setja upp NIKE-loftvarnarflaugar með kjarnaoddum á íslandi á áran- um 1957-1959 og kom fram hjá Val að ekki varð af því vegna þess að þeirra var talin þörf annars stað- ar. Valur sagði að í upphafi sjöunda áratugarins hefði verið gert ráð fyr- ir þvi í hemaðaráætlunum Banda- ríkjamanna að koma fyrir kjarnorku- vopnum á vegum flotans á stríðstím- um. í bók sinni, „í eldlínu kalda stríðs- ins“, sem kom út á síðasta ári, kvaðst Valur ekki hafa fundið heimildir, sem bentu til þess að kjarnorkuvopn hefðu verið geymd á íslandi og í fyrirlestrinum sagði hann að nýjar heimildir úr banöaríska utanríkis- ráðuneytinu renndu enn frekar stoð- um undir þá niðurstöðu. Jesse L. Byock lýsti því hvernig höfundur Egils sögu birti menning- arlega sjálfsmynd íslendinga þeirra tíma og setti fortíðararfinn í sam- hengi. Hann segir áherslu íslend- ingasagnanna á samskipti við kon- unga hafa verið til þess ætlaða að varpa ljósi á stjórnmál og þjóðerni, enda hafi ágengni Noregskonunga verið eina ógnunin við sjálfstæði þjóðarinnar. Sagan hefur tapað sameiningarhlutverkinu Guðmundur Hálfdánarson dósent sagði í fyrirlestri sínum að íslands- sagan hefði að miklu leyti tapað hlutverki þjóðernislegs sameiningar- tákns, enda hafi hafi sú sögutúlkun byggt á því að „gleyma" þeim þátt- um fortíðarinnar sem sundruðu þjóð- inni. Hann taldi að með því að losna undan þessu hlutverki hafi sagn- fræðina öðlast aukið sjálfstæði en þjóðin hafi fundið sér önnur samein- ingartákn. J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.