Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 8
8 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Áhrif farsímans
rannsökuð
BLAÐRAÐU aðeins lengnr elskan . . .
Kleppsspítali
Opið hús
vegna 90
ára afmælis
OPIÐ hús verður hjá geðdeild
Landspítalans í dag, sunnu-
dag, í tilefni af 90 ára af-
mæli deildarinnar sem haldið
var upp á með athöfn á
Kleppsspítala síðastliðinn
þriðjudag.
Opið verður milli klukkan
14 og 18 og geta gestir skoð-
að sig um á Kleppsspítala, í
Bergiðjunni sem er vemdaður
vinnustaður og á vistheimilinu
Víðihlíð en þessar byggingar
em allar á lóð Kleppsspítala
við Vatnagarða í Reykjavík.
Þá verður einnig opið hús hjá
bama- og unglingageðdeild
Landspítalans við Dalbraut 12.
Breyttir heimsóknartímar
sængurkvennadeildar
Komíð til móts
við óskir feðra
FRÁ og með deginum í dag, 1.
júní, verða breytingar á heimsókn-
artímum á sængurkvennadeild
Landspítalans. Heimsóknartíminn
lengist og mun standa yfir frá
kl.14.00 til 21.00. Hann er hins
vegar eingöngu ætlaður feðmm
barna, systkinum og ömmum og
öfum. Þessar breytingar eru gerðar
fyrst og fremst vegna óska feðra
um betra aðgengi.
Að sögn Guðrúnar Bjargar
Sveinbjömsdóttur, yfirljósmóður,
hafa hugmyndir í þessa átt lengi
SWISSCARE
POUR
G I V E N C H Y
NATURAL GLOW
PROTECTIVE SKINCARE
NÝTT FRÁ GIVENCHY:
Krem, sem kallar fram
náttúrulegan Ijóma húðarinnar,
evkur sólbrúnku, vinnur gegn
öldrun húðar og er rakagefandi.
ÚTSÖLUSTA
Hygea
Evita -
I
verið ræddar. Heimsóknir á deildina
hafí verið mjög miklar og mæður
jafnvel tekið á móti allt að 15 gest-
um í einum heimsóknartíma sem
valdi miklum erli á deildinni og
sérstaklega með tilliti til þess að
konur liggi margar saman á hverri
stofu. Það sem hrinti hugmyndinni
loks í framkvæmd var niðurstaða
viðtala sem Ingólfur Gíslason vann
fyrir jafnréttisnefnd feðra. Þar kom
fram almenn ósk feðra um að fyrir-
komulagi heimsóknartíma yrði
breytt og þá jafnvel á kostnað stór-
fjölskyldunnar, vina og vinnufélaga.
Fyrirkomulag sem þetta, og jafnvel
strangara, er viðhaft á hinum Norð-
urlöndunum og víðar. „Markmið
okkar er að styðja við fjölskylduna
og við sáum ekki að við gætum
gert það öðruvísi en á kostnað þess-
ara gífurlega miklu heimsókna,“
segir Guðrún.
14% mæðra fara snemma heim
Þessar ráðstafanir tengjast
einnig því að mæður fara í vax-
andi mæli heim innan 36 klst. eft-
ir fæðingu. Þær nýta sér heima-
þjónur.tu ljósmæðra sem styrkt er
af Tryggingarstofnun og felur í
sér fræðslu og eftirlit ljósmóður
barnsins í allt að viku frá fæð-
ingu.„Mikill kostur við heimaþjón-
ustuna er að faðirinn er þátttak-
andi allan tímann sem ekki hefur
verið hægt að bjóða upp á hér á
deildinni," segir Guðrún. Hún bæt-
ir því við að viðbrögð sem hún
hafi fengið við breytingunum hafi
yfirleitt verið jákvæð og flestum
þótt tími til kominn að draga úr
aðsókn gesta á deildina. Feður séu
mjög ánægðir og þetta sé í raun
enn eitt skrefið í átt til jafnréttis.
Að sögn Guðrúnar hefur verið
talsvert af fæðingum í maí en
næsta stóra fæðingarhrinan komi
ekki fyrr en í september.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
Kaffisala á
sj ómannadaginn
er mikilvæg
SLYSAVARNA-
DEILD kvenna í
Reykjavík mun
venju samkvæmt standa
fyrir veitingasölu við
Reykjavíkurhöfn á sjó-
mannadaginn, ásamt
kaffisölu í félagsheimil-
inu Höllubúð að Sóltúni
20. Félagið var stofnað
árið 1930 og var fyrsta
kvennadeildin innan
Slysavarnafélags íslands,
sem stofnað var tveimur
árum fyrr. Um þijú-
hundruð konur eru nú
skráðir félagar. Hrafn-
hildur Scheving hefur
setið í stjórn félagsins í
fimm ár og verið formað-
ur síðan 1995.
- Að hvaða málum hef-
ur Slysavarnadeild
kvenna starfað?
„Kvennadeildin hefur í gegn-
um tíðina starfað að ýmsum
mikilvægum málum sem snerta
slysavarnir og björgunarmál.
Deildin stóð meðal annars að
byggingu fyrstu skipbrots-
mannaskýlanna sem reist voru á
íslandi og átti þátt í byggingu
Slysavarnafélagshússins við
Grandagarð. Félagskonur sáu
um allar innréttingar í fyrsta
björgunarskipið, Sæbjörgu, og
hafa aflað fjár til að styrkja
Björgunarsveitina Ingólf í
Reykjavík til tækjakaupa. Konur
fóru á fyrstu árunum út um allt
land til að kynna Slysavarnafé-
lagið og starfsemi þess og upp
úr því voru víða stofnaðar björg-
unar- og slysavamasveitir.
Helstu fjáröflunarleiðir Kvenna-
deildarinnar í gegnum tíðina
hafa verið merkjasala og kaffí-
sala. Á árum áður voru haldin
bingó í stærstu samkomuhúsum
bæjarins og komust þá færri að
en vildu. Síðari ár höfum við
einbeitt okkur að verkefnum sem
lúta að slysavörnum á landi. Við
höfum meðal annars tekið þátt
í átaksverkefninu Vörn fyrir
böm, sem Slysavarnafélag ís-
lands og Umferðarráð standa að.
í því sambandi höfum við meðal
annars athugað öryggisbúnað
fyrir böm í bílum við leikskóla
borgarinnar. í byijun júní fer
af stað átak til að hvetja fólk
til að nota bílbelti og _____
við munum standa á
götuhornum og við
helstu umferðaræðar
og athuga bílbelta-
notkun. Kvennadeild-
in hefur einnig staðið
fyrir námskeiðum í fyrstu hjálp
og um eldvarnir og öryggi barna.
Þau eru opin öllum og hafa ver-
ið vel sótt. Við gáfum nýlega
öllum heilsugæslustöðvum í
Reykjavík töflur með upplýsing-
um um öryggishluti fyrir heim-
ili. Hjúkrunarfræðingar hafa svo
farið í gegnum þessi atriði með
ungum foreldrum."
- Er félagsstarfið líflegt?
„Við höldum yfírleitt sex fundi
á ári. Á jólafundinum er alltaf
mikil hátíðarstemmning og
sömuleiðis á aðalfundinum sem
haldinn er í febrúar, en þá blót-
um við þorra. í apríl er svo hald-
inn afmælisfundur og þá fáum
við til okkar skemmtikrafta_ og
gerum okkur glaðan dag. Árið
1993 festi deildin í fyrsta sinn
Hrafnhildur Scheving
► Hrafnhildur Scheving
fæddist í Reykjavík 3. júlí
1961. Hún hefur starfað hjá
íslandsbanka síðan 1991 og
gegnt formennsku í Slysa-
varnadeild kvenna í Reykjavík
síðastliðin tvö ár. Hrafnhildur
á þrjár dætur og eitt barna-
barn.
Veitingasalan
er okkar
stærsta fjár-
öflunarleið
kaup á húsnæði undir starfsem-
ina. Það stendur við Sóltún 20
og hefur fengið nafnið Höllubúð.
Þar erum við með góðan sal, þar
sem við verðum með kaffihlað-
borð á sunnudaginn. Við reynum
að fara í a.m.k. eina dags- eða
helgarferð innanlands á hveiju
sumri og til útlanda á tveggja
til fjögurra ára fresti, þar sem
við höfum hitt fólk sem vinnur
að svipuðum málum. Einnig má
nefna að kvennadeildirnar um
allt land halda þing á hveiju
hausti til að fara yfir stöðu mála
og miðla þekkingu sinni og
reynslu."
- Hvaða hlutverki gegnir veit-
ingasalan í starfsemi félagsins?
„Veitingasala á sjómanna-
daginn er okkar stærsta fjáröfl-
unarleið og allur ágóði af henni
rennur til björgunarmála. Und-
anfarin ár hafa ýmis félagasam-
tök verið að seilast inn á þennan
markað, svo samkeppnin er orð-
in hörð. Mér finnst reyndar per-
_________ sónulega að sjó-
mannadagurinn eigi
að vera helgaður sjó-
manna- og slysa-
varnafélögunum og
þau eigi að njóta góðs
af sölu á þessum degi.
verðum með sölutjöld á
Við
Miðbakka við Reykjavíkurhöfn,
þar sem við bökum vöfflur og
bjóðum til sölu kaffi og gos-
drykki. Við seljum einnig
Lukkupakka með óvæntu inni-
haldi, sem félagskonan Aðal-
heiður Guðmundsdóttir hefur
útbúið af miklum hagleik. Einn-
ig verðum við með glæsilegt
kaffihlaðborð í salnum í Höllu-
búð. Fyrirtæki hafa styrkt okk-
ur með því að leggja til hráefni
og á laugardaginn komum við
saman og bökum tertur, útbúum
salöt og fleira. Þá myndast
skemmtileg stemmning og það
eru ávallt þreyttar og ánægðar
konur sem halda heim að kvöldi
sjómannadags eftir annir helg-
arinnar.“