Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 19

Morgunblaðið - 01.06.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 LISTIR Fyrstu tónleikar sumarsins í Lista- safni Siguijóns LISTASAFN Siguijóns Ólafssonar gengst eins og undanfarin ár fyrir vikulegum sumartónleikum í sal safnsins á Laugamesi á þriðjudags- kvöldum kl. 20.30. Hefst tónleikaröð- in næstkomandi þriðjudag, 3. júní, en þá munu Jón Aðalsteinn Þorgeirs- son klarinettleikari, Sigurður Hall- dórsson sellóleikari og Om Magnús- son píanóleikari flytja tríó op.ll eftir Ludwig van Beethoven, tríó op.114 eftir Johannes Brahms og þjóðlög í útsetningu Þorkels Sigurbjömssonar. Birgitta Spur, sem skipuleggur tónleikaröðina, segir að hún verði með hefðbundnu sniði að þessu sinni en þetta er níunda sumarið sem lista- safnið efnir til vikulegra sumartón- leika. „Við duttum strax niður á form sem hentar okkur vel, það er að bjóða upp á um klukkustundar langa tónleika og hafa kaffistofuna opna á eftir, þar sem fólk getur staldrað við og horft á sólarlagið, ef þess er kostur." Að sögn Birgittu var lítil hefð fyrir sumartónleikum í Reykjavík þegar Listasafn Siguijóns ákvað að brydda upp á þessari nýjung í starfi sínu sumarið 1989. „Það má eigin- lega segja að við höfum mtt braut- ina en núna hikar enginn við að efna til tónleika að sumri til í borginni. Fyrir vikið er „vertíð“ tónlistar- manna orðin lengri," segir Birgitta og bætir við að erlendir ferðamenn hafi kunnað vel að meta framtakið, þótt íslenskir áheyrendur hafi jafnan verið í meirihluta. Birgitta lofar fjölbreyttum tón- leikum í sumar — sem endranær. Næstu tónleikar verða 10. júní, þeg- ar Einar Kristján Einarsson gítar- leikari kemur fram, 24. júní verður Hlíf Siguijónsdóttir fiðluleikari á ferðinni og 1. júlí munu Wout Oosterkamp bassabarítonsöngvari og Elísabet Waage hörpuleikari efna til tónleika í Listasafni Siguijóns Ólafssonar. SIGURÐUR Halldórsson, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson og Örn Magnússon ríða á vaðið á vikulegum sumartónleikum í Listasafni Siguijóns. Sumar myndirnar lýsa framand- legum stað. Þetta er borg sem maður ekki þekkir; sundurgrafin Miklabraut 1956, maður með dauða rottu á fjörusteini, þegjanda- leg og umkomulaus hús í þorpi 1865; „Talandi þögn geta hús okk- ar verið vitni“. (Sigfús Daðason) En sumt kannast maður líka við. Fólk á leið úr messu í heiðríkju og roki og raflýst Aðalstræti um jól 1955, tæknivæðingin komin til sög- unnar. Myndirnar og ljóðin eru sam- eiginlegt minni okkar, saman mynda þau þátt í skynjun okkar og skilningi á borginni, umhverfinu. Spegilmynd sjálfs sín Garðar Baldvinsson bókmennta- fræðingur velur ljóðin á sýninguna og ritar ítarlega og skemmtilega ritgerð í sýningarskrá. Þar segir meðal annars: „A þessari öld hefur Reykjavík mótast sem borg, sund- urgrafin á ýmsum stöðum mestalla öldina. Hins vegar ríkir mikil tog- streita í ljóðum um það hvaða fyrir- bæri þessi borg er og myndast í þeim gjarnan áköf spenna milli ólíkra tímasviða einsog ljóðin séu brú milli fortíðar sem einkennist af eins konar „borgarsveit“ og nútíðar sem markast af „stórborgarmynd" Reykjavíkur. Þessi spenna magnast á sýningunni með þessum tímamun milli ljóðanna og myndanna sem getur spannað allt að tæpri öld.“ Garðar segir sýninguna enn- fremur lýsa því mannhverfa sjón- arhorni „sem sumir telja einkenna nútímann þegar manneskjan og mannleg vitund er miðja heimsins sem allt tekur mið af.“ Hann seg- ir að það vakni ýmsar spurningar um þessa mannlegu vitund. „Áhorfandinn gæti hér verið í hverri vistarveru Lækjargötu 4 sem ljóðmælandi að horfa á hina miklu mynd, fjallahringinn, Esjuna sem er orðið fjallið mitt, eða sá ljóðmælandi sem horfir á götusóp- arann ráfa um göturnar, ellegar sá sem sér spegilmynd sína spegl- ast „glerbrot úr sekúndu“ í mynd sem hann veit ekki hvort sýnir hann sjálfan eða mynd hans. Það er þannig komin ný vídd í „hina miklu speki“ Rimbauds (og Antons Helga Jónssonar og Megasar) að ég sé ekki ég heldur annar, því áhorfandinn er spegilmynd sjálfs sín, einhver annar og eitthvað enn annað.“ Árbæjarsafn á fjörutíu ára af- mæli í ár og er húsið, Lækjargata 4 og sýningin, opnuð í tilefni þess. Veitingasalan í Dillonshúsi opnar um leið og safnið en í sumar munu þar verða bornar fram randalínur og ýmsir þjóðlegir réttir. Húsdýr verða á safnasvæðinu í sumar og handverksfólk að störfum flesta daga, auk þess sem sérstök dag- skrá verður alla sunnudaga. t t iiflt tftt/ji t9t/ (ý/4)rtt Kirkjusandur 1-3-5 2ja tH 3ja herbergja ö SVALIR HERBERGI o in 4 — 1 SVALIR \ 84m2 HERBERGI I þessum glæsilegu byggingum eru enn lausar nokkrar 2ja til 3ja herbergja íbúðir sem eru sérstaklega hannaðar fyrir einstaklinga sem vilja hafa rúmt um sig. Allir íbúar njóta frábærs útsýnis á þessum eftirsótta stað. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja vera lausir við umhirðu lóðar og sameignar. Greiður aðgangur er að bílskýli þaðan sem gengið er inn í lyftu. Allur frágangur er fyrsta flokks bæði innanhúss og utan. Gríptu tækifærið strax og heimsæktu okkur eða hringdu til að fá upplýsingar í síma 588 9090 og 577 3700. íbúðaverð frá kr. 8.250.000 • Verð á bílskýli kr. 600.000 j Öll verð eru bundin vísitölu byggingarkostnaðar frá desember 1996 (217,8) ) Komdu á staðinn og skoðaðu hjá okkur í dag milli kl. 13-15 EIGNAMIÐLUNIN ehf Síðumúla 21 • Sími 588 9090 STOFNAÐ 1965 Ármannsfell hf. Leggur grunn að góðri framtíð Ármannsfell hf. • Funahöfða 19 • Sími 577 3700 (Kirkjusandur) LaugardaluF)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.