Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 25 plast/POB var með um 35 manns á launaskrá um þetta leyti og því fækkaði um helming við sölu á prentsmiðjunni." Samhliða sölunni á POB keypti Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna helmingshlut í Akoplasti í gegnum Plastprent í Reykjavík en SH átti á þeim tíma 30% hlut í Plastprenti. Nýir eigendur komu með aukið fjár- magn inn í fyrirtækið og aukin við- skipti. Fjármagnið var notað til að stækka Akoplast um helming og kaupa vélar og tæki og þar starfa nú um 20 manns. Eyþór hafði starfað við prentið og eftir söluna á POB var honum falið að leita nýrra tækifæra fyrir Upphaf. Hann segir að ýmislegt hafi komið til greina í þeirri vinnu en niðurstaðan hafi verið að setja á stofn kexverksmiðju á Akureyri eins og áður er getið. Eyþór er þar við stjórnvölinn en Daníel og Jóhann hjá Akoplasti. Eyþór, Jóhann og Daníel hafa starfað náið saman frá árinu 1991 en Steinþór og Ómar, sem voru með þeim í upphafi, hafa sagt skil- ið við hópinn. Samvinna þeirra hef- ur gengið mjög vel og þeir hafa verið óhræddir að takast á við ný og ögrandi verkefni. „Við höfum lært mikið á öllu þessu brölti okkar undanfarin ár og það hefur komið farsællega út fyrir Akoplast. Sam- starf okkar við Plastprent í gegnum Akoplast og SH í kexverksmiðjunni hefur gengið mjög vel og verið gríð- arlega hollt fyrir okkur." Eyþór segir ýmsa möguleika í boði í atvinnulífinu, menn verði hins vegar að hafa þor til að takast á við hlutina. Það að setja á stofn fyrirtæki kosti mikinn undirbúning og menn verði að leggja dæmin vel niður fyrir sig. „Fyrirtæki eiga nú mun betri aðgang að ijármagni en áður og það skiptir miklu máli fyr- ir atvinnulífið." Framleiðslan er komin í fullan gang og hér er Eyþór með nokkrum starfsstúlkum sínum. málin. Eftir sameininguna sá ég einnig um framleiðsluna í prentinu, ásamt Bjama Sigurðssyni, einum af fyrri eigendum POB.“ Eitt af stærstu verkefnum POB á þessum tíma var prentun á ávís- anaheftum fyrir Landsbankann en með tilkomu debetkortana var fyrir- sjáanlegur samdráttur á því sviði. Nýir eigendur fóru því að leita leiða til að mæta fyrirsjáanlegum sam- drætti og sóttu enn frekar inn á bókaprentun. Einnig var hafin út- gáfa á auglýsingablaðinu Lífs- marki, sem gefið var út vikulega og átti að vera svar við þeim tekju- missi sem samdráttur í prentun ávísanahefta hefði í för með sér. Húsnæðið að springa „Þar vorum við fullbráðir á okk- ur. í fyrsta lagi dróst prentun ávís- anahefta ekki saman fyrr en ári eftir að því var spáð og í öðru lagi var mikið mál að gefa út Lífsmark. Við seldum því blaðið og útgáfunni var hætt nokkru síðar. Einnig fórum við að prenta bækl- ing fyrir ferðamenn sem ber heitið „What’s on in Reykjavík“ og eign- uðumst þá útgáfu fljótlega. Við gerðum ýmsar breytingar til batn- aðar á útgáfunni en seldum hana á síðasta ári. Árið 1995 var aftur komin upp sú staða að húsnæðið var að springa utan af Akoplast/POB og kom þá m.a. til tals að færa starfsemina í sundur og flytja þá prentsmiðjuna frá Tryggvabrautinni. Á þessum tíma fór umræðan um sölumál ÚA í gang og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna og íslenskar sjávarafurðir fóru að berjast um fyrirtækið. Vegna tengsla okkar við sjávarút- veginn í gegnum plastframleiðsluna lentum við inn í þessari umræðu. í kjölfarið sáum við fram á möguleika á að fá nýtt fjármagn inn í plast- framleiðsluna og stækka þá vinnslu og jafnframt að flytja prentsmiðj- una í annað húsnæði." Þegar hér var komið sögu leitaði Rósa Guðmundsdóttir í Ásprenti eftir kaupum á prentsmiðju POB og eftir viðræður þar um varð niður- staðan sú að selja Ásprenti prent- smiðjuna. Eyþór segir að hlutirnir hafí gengið hratt fyrir sig og viku eftir að Rósa lýsti yfir áhuga á kaupunum voru þau gengin í gegn. Salan á POB erfið „Sú ákvörðun að selja POB var okkur þremenningum nokkuð erfið og það var eins og við hefðum misst eitthvað. Við höfðum byggt fyrir- tækið upp með öllu þessu góða fólki sem starfaði með okkur en þarna skildu leiðir, réttum þremur árum eftir að við komum að rekstrinum. Að öðrum ólöstuðum reyndist Bjarni heitinn Sigurðsson okkur geysilega vel. Á þessum tíma hafði samkeppnin í prentiðnaðinum auk- ist til muna og litaprentvélarnar í bænum orðnar þrjár. Við stóðum því frammi fyrir því að bæta okkar vélakost og taka forystuna á ný eða selja og það varð niðurstaðan. Ako- Meindl Island herra- ou dömuskór Heimasíða: www.samvinn.is. SmnviniiiiferlHr-Laiiilsyii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 Hafnarfjörflur: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 ísafjörður: Hafnarstræti 7 • S.456 5390 Einnig umboðsmenn um land allt ÓDÝRAR GÆÐA ÞAK- SKRÚFUR Al Ryðfríar Galvaniseraðar Heitgalvaniseraðar Gönguskór úr hágæða leðrí. Gore-tex f innra byrði og góð útöndun. Vibram Multigriff sóli. -góOlr I lengrl gBnguferðlr. Dömust. 37-43 Kr. 16.640,- Herrast. 41-46 Kr. 16.900.- Stærðir 47-48 Kr. 17.900.- -ferðin gengur vel á Meindl HSÚmíFSH OUKSIBJM . S/Mf Mf 2022 Samvinnuferðir - Landsýn býður ótrúlegar ævintýra- siglingar í sumar. Þar ber fyrst að nefna siglingu um Malacca- flóann með viðkomu á drauma- eyjunni Bali í Indónesíu. Þetta er ferð sem líður aldrei úr minni. 25. sept 9. okt Verð 198.600 Icr* *Á mann í tvíbýli. Innifalið: Flug, gisting með morgunverði á Bali, akstur til og frá flugvelli erlendis, skemmtisigling með fullu fæði, hafnargjöld, hálfsdags skoðunarferð um Singspore, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar. Karíbahafiö m - Þá er ekki síðra að taka sér ferð með skemmtiferða- skipunum Ecstacy eða Fascination um draumalönd Karíbahafsins með viðkomu á Flórída. Aðstaðan um borð er framúrskarandi og ekki er með nokkru móti annað hægt en að njóta lífsins til fulls! L 10. - 18. okt. --- Verð: 99.900 kr.* 24. okt. - 8. nóv.- Verð: 162.500 krJ * Á mann. Innifalið: Flug, gisting, skemmtisigling í fjórar nætur / eina viku með fullu fæði og skemmtidagskrá alla daga, hafnargjöld, akstur erlendis samkv. leiðarlýsingu, íslensk fararstjórn og skattar. Söðulskinnur í úrvali Suðurlandsbraut 22 Sími: 588 3220

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.