Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga myndina Anaconda með Eric Stoltz, Jennifer Lopez, Jon Voight og Ice Cube í aðalhlutverkum Á SIGLINGU sinni upp fljótið inn í myrkviði regnskóg arins eru kvikmyndagerðarmenn- imir grunlausir um þær ógnir sem bíða þeirra. Og einhvern veginn tengjast þessir risar djúpstæðum ótta sem fólk hefur alltaf fundið til andspænis slöngum og snákum." Myndin var að hálfu leyti tekin upp í regnskógunum í Brasilíu und- ir stjórn Llosa sem er hagvanur þar eftir að hafa gert þrjár aðrar kvikmyndir í frumskóginum. Að hálfu leyti var myndin tekin upp í stúdíói í Kaliforníu þar sem búið var til regnskógarsvæði með fossi og öllu. I aðalhlutverkum eru engar stór- stjörnur en farsælir leikarai- á borð við Eric Stoltz og Jon Voight og einnig rísandi stjörnur á borð við Jennifer Lopez og Ice Cube. Jon Voight, sem leikur illmennið Sarone, gaf síðast að líta í Mission: Impossible á móti Tom Cruise og þar áður í litlu hlutverki í Heat á móti De Niro og Pacino. Þekktari er hann þó úr eldri myndum á borð við Runaway Train, Deliverance og Midnight Cowboy. Eric Stoltz var enn á tánings- aldri þegar hann lék í myndinni Mask á móti Cher árið 1981 en fyr- ir frammistöðu sína í henni sló hann í gegn og hlaut Golden Globe- tilnefningu en áður hafði hann m.a. leikið í hinni þekktu Fast Times at Ridgemont High. Þekktustu mynd- ir hans síðustu ár eru Pulp Fiction, Rob Roy og Little Women en í öll- um hefur hann verið í aukahlut- verki. Jennifer Lopéz hefur leikið í sjónvarpsþáttum vestanhafs en auk þess í Money Train á móti Snipes og Harrelson; á móti Robin Willi- ams í Jack og nú síðast á móti Jack Nicholson í Blood and Wine, sem verið er að sýna hér á landi um þessar mundir. Rapparinn Ice Cube er þekktari sem tónlistarmaður en hefur getið sér ágætt orðspor sem leikari, í myndum John Singletons, Boyz’N’The Hood og Higher Learning og í Trespass eftir Walt- er Hill. Aðalstjarnan í myndinni Anaconda er þó sjálf titil-“persón- an“, slangan ógurlega Anaconda. Við einstök atriði í myndinni var notast við alls 18 alvöru lifandi Anaeonda-slöngur, sú stærsta 6 metra löng. I návígi og við við- kvæmustu skotin voru notaðar vél- rænar eftirlíkingar. Þær hannaði Walt Conti sá sem bjó til eftirlík- ingar af höfrungum og hvölum í myndunum Free Willy og Flipper. Með vökvadælum, rafeindabúnaði og tölvum bjó Conti til tvær vél- rænar slöngur, önnur var 8 metra en hin 13 metra löng. Sú stærri var rúmlega tonn á þyngd. Útkoman var líka sú að myndin Anaconda náði miklum vinsældum í Bandaríkjunum þegai- hún var frumsýnd í mars. I tvær vikur var hún mest sótta myndin í öllum Bandaríkjunum. Ógnvaldur regnskóganna ANACONDA hefur hita- skynjara óg á ekki erfitt með að finna líkama með heitu blóði. Hún ræðst til atlögu, vefur sig utan um þig og faðmar þig þéttar en ástin þín. Síðan nýtur þú þeirra forréttinda að heyra beinin í þér brotna áður en kraftur- inn í faðmlaginu sprengir í þér æð- arnar. Þá gleypir hún þig í heilu lagi. Anacondan er fullkomin drápsvél." Svona lýsir Paul Sanore (Jon Voight) Anaconda-kyrkislöngu, æðsta dýrinu í fæðukeðjunni í myrkviðum regnskóganna við Amazon-fljótið. Sarone er sjarmer- andi einfari sem hópur kvikmynda- gerðarmanna hittir einan á báti á þessum afskekkta stað þangað sem þau eru komin með myndavélar sínar og hljóðbúnað til þess að fínna Shirishama-indíána, þjóð- flokk sem sögur herma að finnist á þessum slóðum en engar skráðar heimildir eru þó til um. Fyrir leiðangrinum fer mann- fræðingurinn Steven Cale (Eric Stoltz) en honum fylgja leikstjórinn Terri Flores (Jennifer Lopez), myndatökumaðurinn Danny (Ice Cube), hljóðmaðurinn Gary (Owen Wilson), framleiðslustjórinn Denise Kalberg (Kari Wuhrer) og þulurinn Warren Westridge (Jonathan Hyde). Með tæki sín að vopni og full bjartsýni manna sem ekki vita hvað þeir eru að fara út í sigla þau niður ána og á leiðinni rekast þau á Paul Sarone. Hann hefur búið í frumskóginum árum saman og hann kemur sér í vinfengi við kvik- myndagerðarmennina. Hann segist þekkja til indíánanna og þótt þau treysti honum ekki fyllilega ákveða þau að fylgja honum. En Sarone hefur sínar eigin ástæður fyrir því að vilja fá fylgd inn í myrkviði skógarins, upp eftir fljótinu. Hann er í eigin leiðangri og er að eltast við stórhættulega 13 metra langa Anaconda-slöngu, rán- dýi- sem er svo hættulegt viðureign- ar að það eru til sagnir um það víða. LENGSTA Anaconda-slangan sein staðfest vitneskja er um var 12,5 inetrar á lengd en þjóðsögurnar í regnskóginum segja að til séu allt að því 30 metra langar slöngur, það hefur bara ekki tekist að veiða þær og mæla. Kvenslöngurnar er sterkara kynið hjá Anacondunni og miðað við þær eru karlarnir bæði rýrir og rindilslegir. Sagt er að Anaconda- slöngur hafi verið til á jörðinni frá forsögulegum tíma og séu í raun náskyldir ættingjar risaeðlanna. Þeu-ra kjörlendi var í vatni en þróunin bar þær upp á þurrt land. Þar kunnu þær ekki fyllilega við sig og lifa nú hvort heldur er í vatni, þar sem þær ferðast um á talsverðum hraða, eða á þurru landi, þangað sem þær koma tii að fá sér í svanginn. Þetta eni hættulegustu slöngur í heitni, sannkölluð rándýr sem líta á allt og alla sem bráð. Antiiópur, apar og villisvín eru meðal þess sem Anaeondurnar gæða sér helst á. Þær velja sig um dýrin, kreista þau eins og tannkremstúbu, gleypa í heilu lagi og gefa sér svo góðan tíma i að melta og jórtra á bráðinni. JENNIFER Lopez, Jon Vo ight, Ice Cube og Eric Stoltz eru í helstu hlutverkum f Anaconda. Paul Sarone er staðráðinn í að fóma öllu sem þarf til þess að fínna það. Með þessari þráhyggju sinni leiðir hann kvikmyndamennina á villigötur í fangið á ófétinu þannig að þeir þurfa að taka á öllu sínu til þess að komast af. „í mínum huga er Anaconda- slangan tákn hins illa,“ segir leik- stjóri myndarinnar, Luis Llosa. „En við höfum líka í myndinni mann sem er tákn hins illa og það er Paul Sarone. Þegar hann kemur um borð í bátinn hjá kvikmynda- gerðarmönnunum breytist allt. Fólk sem var góðar manneskjur dags daglega uppgötvar að í þeim býr dökk hlið sem það vissi ekki af en sem kemur fram fyrir tilstilli þessa manns. Ég held ekki að kvik- myndagerðarmönnúnum líði nokkurn tímann vel í návist hans vegna þess að yfir honum er ein- hver framandi og villt dulúð.“ Leikstjórinn Luis Llosa er Per- úmaður en hefur leikstýrt nokkrum bandarískum myndum, m.a. The Specialist með Sylvester Stallone, Sharon Stone og James Woods. Meðal framleiðanda myndai’inn- ar eru Verna Harrah og Susan Ru- skin en myndin er byggð á handriti eftir Hans Bauer, Jim Cash og Jack Epps. Framleiðandinn Ruskin segist h£ifa fallið fyrir sögunni strax og hún las hana. „Það sem sló mig var það að ég sá í sögunni möguleika á að skjóta fólki skelk í bringu og búa til hasar- mynd um leið. Harrah var álíka spennt: „Ég held að allir kunni að meta það að upplifa ótta svo fram- arlega sem þeir vita að þeir eru í raun og veru öryggir. Þess háttar tilfinningu var að finna í handrit- inu,“ segir hún. Hluti þess sem höfðaði til kvik- myndagerðarmannanna var það að risaslangan Anaconda er ekki ein- göngu skáldsöguleg. „Við ætluðum okkur ekki að búa til vísindaskáld- sögu,“ segir Ruskin. „Það er ekkert óraunverulegt við söguna. Slöngur eins og Anacondan okkar eru til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.