Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 52

Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 52
52 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ 1 MYNDBÖINID/KVBKMYIMDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP 1 SUIMIMUDAGSMYIMDIR SJÓIMVARPSSTÖÐVANNA I Stöð 2 ►20.50 Stöð 2 sýndi í gærkvöidi frönsku gamanmyndina Indíáni í stórborginni og í kvöld er annar franskur grínsmellur á boð- stólum, sem er skömminni skárri, þótt vinsældir hans séu fyrir minn smekk umfram verðleika. Þetta er myndin Gestirnir (Les visiteurs. 1993), dellugamanmynd með tíma- flakkskjama þar sem miðaldariddar- ar þurfa að fínna fótum sínum forr- áð í nútímanum. Sum atvikin eru vel unnin sjónræn kómík en mikið er líka af bjánagangi. Leikstjóri Je- an-Marc Poiret og meðal leikara Christian Clavier og Jean Reno. ★ ★‘ASýn ►23.55 Námsmanna- gleði (Student Affairs) er sam- kvæmt prentaðri dagskrá „erótísk og ærslafull gamanmynd um uppá- tæki skólanema“. Annað er ekki um hana vitað. Annað þurfum við tæp- ast um hana að vita. Hvað er erótísk- ara og ærslafyllra en uppátæki skólanema? Eða frumlegra? Árni Þórarinsson Rocboh Roobok Skór fyrir dömur og herra. Verð aðeins: Sendum í póstkröfu OTUR HF HEILDVERSLUN Vesturhlíð 7, sími: 561 9477 Fax: 561-9419 Útsölustaðir: Sparta Laugavegi, Boltamaðurinn Laugavegi, Maraþon Kringlunni, Skæði Kringlunni, Músík & Sport Hafnarfirði, Toppmenn og sport Akureyri, Sportlíf Selfossi, og Ozone Akranesi. 11 ; ■*-? Sérstakt kynnl&gartilboð: SíLF'jRKO'ií kt.4«7 jO -veitir ótakmarkaðan töivuaðgang út júní -þegar tölvur eru lausar Tölvunámskeið í boði næstu vikur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur M. 13 Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur M. 15 Internet Internet Internet Internet Internet Internet M. 17 Grunnur Word Internet o o o o o Q Unglinganámskeið í boði hern dag kl. 13.00-15.00 fyrir byrjendur og lærðari Erum nú að safna áhugasömu fólki á fjögur námskeið í heimasíðugerð. Látið skrá ykkur og kennarinn mun hafa samband. Við höldum námskeið í hverju sem er fyrir lágmark þrjá nemendur. Tilvalið fyrir fyrirtæki og hópa. Tveggja tíma námskeið aðeins 1.400 krónur. Meira en 30 námskeið í boði í hverri viku við þitt hæfi. Hámark 9 nemendur á hverju námskeiði - nettengdir við tölvu kennara. Frábærir kennarar frá Tölvuskóla Reykjavíkur einfalda málin. KEPPNISMÓT í QUAKE NETLEIK mMmíuJ «2 xnet á sunnudaginn kl. 12.00 til að velja 15 manna landslið íslands sem leikur landsleiki sumarsins. Keppt verður á þreföldu landsleiksborði í 30 nettengdum tölvum. Öllum er heimil þátttaka og skráning er hafin hjá xnet í síma 562 9030. Opið alla daga frá morgni til kvölds kl. 10-01 xnet.xs Nóatúni 17 - sími 562 9030 - www.xnet.is Alltaf meira gaman að búa til þrívídd * Ami Páll Jóhannsson er okkar reyndasti leikmyndahönnuður. Hann hefur unnið við um þrjátíu kvikmyndir, stuttar og langar. Hann sagðí Hildi Loftsdóttur sitt af hverju. ÁRNI Páll Jóhannsson leikmynda- hönnuður lærði ljósmyndun og átti litstækkunarfyrirtæki. Hann kenndi ljósmyndun við Myndlista- og handíðaskólann í tólf ár og lærði mikið af því, að eigin sögn. Hann hóf kvikmyndaferil sinn sem annar tökumaður í myndinni Rokk í Reykjavík ásamt fyrrverandi nem- anda sínum, Ara Kristinssyni. Maður gerir allt „Eftir „Rokkið“ fór allt á hausinn og þá var ákveðið að gera auglýs- ingar til að redda aurum. Þar fann ég að það var svo helv... gaman í leikmyndinni, miklu skemmtilegra en að hanga á vélinni. Maður ræður miklu um útlitið, þetta er mjög skapandi og hentar mér vel. Það er alltaf meira gaman að búa til þrívídd. Eftir auglýsingarnar hef ég alltaf verið í leikmyndinni, en gripið inn í verk aðstoðartöku- manns, annars tökumanns og ljós- myndara. Mig minnir að Löggulíf eftir Þrá- in Bertelsson hafi verið fyrsta myndin þar sem ég var alfarið í leikmyndinni. Auk þess lék ég, að mig minnir, sjö hlutverk í þeirri mynd. M.a. blindan mann sem keyrði Volkswagen. Maður gerir allt í þessum helv.... bíómyndum,“ segir Árni Páll og maður skynjar það ástar-haturssamband sem hann á í við þetta bæði gefandi og lýj- andi starf. Kvikmynd er mikil samvinna Leikmyndin er í raun alls staðar í kvikmyndinni. Þess vegna er erf- itt að átta sig á því í hveiju starf þitt felst nákvæmlega. „Leikmyndahönnuður fer af stað á undan flestum öðrum. Les hand- ritið, finnur tökustaði, ákveður leik- muni umfram það sem nefnt er í handriti. Svo er það náttúrulega að teikna leikmyndina og hanna hana; finna einhveija fleti á útlitinu og þá bæði í sambandi við söguna sjálfa og karakterana, en ég er allt- af að apa smekk þeirra eftir. Þetta er mikil samvinna og ég vinn eitt- hvað með öllum í myndinni. Ég er í mjög nánu sambandi við töku- manninn og auðvitað leikstjórann. Ég þarf að skapa öllum vinnupláss og leikurunum pláss til þess að leika, sem oft getur reynst snúið. Hljóðmenn geta t.d. ekki unnið þar sem er mikið bergmál og hávaði. Ég pæli út staðsetningar glugga á húsum og hugsa í raun eins og töku- maður. Það er gott að þekkja lins- urnar og myndavélina sjálfa og hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Litir og ljós skipta líka miklu máli, bæði í sambandi við útlitið og filmuna. Þetta er því mjög góður bakgrunnur sem ég hef fyrir þetta starf. Bæði myndlistarbröltið og, ekki síður, ljósmyndunin.“ Að þjóna sögunni Starfið hlýtur að vera mjög mis- jafnt eftir því með hvaða leikstjóra þú ert að vinna og hve mikið fjár- magn þú færð til verksins? „Jú, sumir vilja leikmyndina frek- ar hráa og í minni kantinum, þar sem þeir stíla upp á leikarana og tilfinningarnar. Áðrir eru mjög harðir leikmyndaleikstjórar og vilja hafa mikið af öllu. Jafnvel 360 gráða sett þótt það þurfi ekki. Peningar eru yfirleitt af skornum skammti við gerð kvikmynda og leikstjórar geta náttúrulega ekki beðið um það sem þeir hafa ekki efni á, en ég reyni vitanlega alltaf að gera allt á sem ódýrastan hátt. Ég er ekki alltaf sammála leikstjór- anum, en rífst ekki við hann. Mað- ur má heldur aldrei gleyma því að leikmyndin er ekki sjálfstætt lista- verk, heldur er maður að þjóna sög- unni án þess að gefa hana alla upp. Eftir því sem leikmyndin er látlausari og þjónar sögunni betur, þeim mun betri er hún,“ segir Árni Páll. „Gimmí fæv“ Eftir þijátíu kvikmyndir, er þá eitthvert verk sem stendur upp úr hjá þér? „Mér finnst leikmyndin að Bíó- dögum hans Friðriks Þórs sú falleg- asta sem ég hef gert. Hún var útpæld og stal engu frá sögunni, Kínverskur leigumorðingi ► HONG Kong-kvikmynda- stjarnan Chow Yun-Fat hefur lokið að leika í bandarísku kvik- myndinni „The Replacement Killers". Yun-Fat, sem er þekkt- astur í Bandaríkjunum og Evr- ópu fyrir samstarf sitt við hasarmyndaleikstjórann John Woo, er að færa sig um set eins og fleiri úr kvikmyndaheimin- um í Hong Kong vegna væntan- legrar yfirtöku Kína. I „The Replacement Killers" leikur Yun-Fat kínverskan inn- flytjenda í Los Angeles sem reynir að flýja fortíð sína sem leigumorðingi. Hann tók að sér eitt lokaverkefni til þess að komast til Bandaríkjanna en þegar á hólminn er komið vill liann ekki ljúka verkinu. Hann neyðist þess vegna til þess að leggja á flótta, og fær sér til aðstoðar skjaiafalsara sem leik- inn er af Miru Sorvino. „The Replacement Killers“ er fyrsta kvikmynd leikstjórans Antoine Fuqua en hann hefur aðallega unnið við gerð auglýs- inga og tónlistarmyndbanda. Þó að tökum á myndinni sé lok- ið er hún ekki væntanleg á markaðinn fyrr en í byrjun árs 1998.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.