Morgunblaðið - 01.06.1997, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ1997 53
Morgunblaðið/Þorkell
ÁRNI Páll í harðfiskhjallinum sinum.
því mér fannst handritið ofsalega
fallegt og virkilega naut þess að
gera þá leikmynd.
Annars finnst mér alltaf mjög
gaman að vinna með Friðriki Þór
og Ara. Ég hef gert leikmyndimar
í öllum leiknu myndunum hans Frið-
riks Þórs. Þeir treysta manni full-
komlega. Friðrik Þór er heldur ekki
að slá manni neina gullhamra. Þeg-
ar hann kom út í Djöflaeyjusettið
eftir að hafa verið í útlöndum leit
hann yfír þetta og sagði: „Gimmí
fæv.“
Það var mjög gaman að vinna
þá leikmynd, en samt held ég mest
upp á Bíódaga. Ég er meira fyrir
svona ljúfari hluti," segir Ámi Páll.
Sjoppa á svörtum sandi
Nú ertu að vinna með Óskari
Jónassyni að myndinni Perlur og
svín. Er það spennandi verkefni?
„Það er alveg ofsalega gaman,
en alveg bijáluð vinna. Það em svo
margir staðir sem við þurfum að
fínna. Við emm alveg að drepa
tökumanninn og ljósagengið, því
við emm yfírleitt að vinna í ein-
hveijum holum þar sem er lágt til
lofts, en okkur Óskari fínnst það
rétta andrúmsloftið. Nú emm við
að smíða bakarí í stúdíói og þar
verða betri vinnuaðstæður.
Næsta verkefni mitt er svo dönsk
vegamynd sem gerist á íslandi og
það verður því mjög ólíkt verkefni.
Það mætti halda að lítið yrði fyrir
æig að gera. Margt virkar sakleys-
islegt í handriti þar sem þetta er
nútímamynd. T.d. hann keyrir út á
land og kemur að sjoppu á svörtum
sandi, þar sem sést hvorki hús né
. stingandi strá. Það mætti halda að
þetta kostaði ekki neitt. En það er
bara svartur sandur í Vík í Mýr-
dal. Að fara austur með 30 manna
starfslið, fimm smiði til að smíða
sjoppu og nokkra vömbíla sýnir að
það að búa til látlausa nútímamynd
er alls ekkert auðveldara."
Breiðafjarðarbarnið
Eins og er Iítur út fyrir að Árni
Páll hafi nóg að gera næstu 2-3
árin og þannig rúllar það áfram
án þess að nokkurt frí fáist. Hann
er þó með ýmislegt annað á pijón-
unum en leikmyndahönnun.
„Ég er alltaf að „plotta" eitthvað
með einhveijum. Nú er það t.d
Stefan Jarl, sænskur kvikmynda-
stjóri sem hefur búið til fínar
myndir. í júlí fer ég á Sauðárkrók
að setja upp mjög sniðugt verk-
stæðasafn. Við gerðum Vesturfa-
rasafnið á Hofsósi í fyrra og það
var mjög skemmtilegt og afslapp-
andi. Gott að losna úr þessu kvik-
myndabrasi.
Svo fer ég til Kölnar að kenna
við kvikmyndagerðarskóla og það
væri gaman að taka fjölskylduna
með. Ég er yfirleitt hálfgerður
amatörpabbi og á það sameiginlegt
með öllum þessum körlum í kvik-
myndagerð. Ég reyni þó að vinna
hér heima og hef komið mér upp
góðri aðstöðu. Á milli tarna pæli
ég í Naustum í Skagafirði. Þar
ætla ég að eyða ævikvöldinu við
myndlist og yrkja rímur um Breiða-
fjörðinn. Þessa braghendu gaf ég
pabba mínum á níræðisafmælinu
hans:
Home Sweet Home
Rennur dagur, roða slær á rastarblómin.
Lómurinn þá lækkar róminn
líkt og skynji helgidóminn.
í Breiðafirði barr mitt óx og bemskuhlynur.
Halda þangað vildi ég vinur
veröld þegar þessi hrynur.
Dætur ránar daðra þar við dökka hleina.
Heyri ég líka eina og eina
elska segist þessa steina.
Þegar á göngu þreyttur verð og þjakar elli.
Feginn legg ég vanga að velli
vist á ég sæti í Helgafelli.
Ég er Breiðfirðingur, fæddur í
Hólminum, nýt þess að vera við
sjóinn og borða selkjöt. Og ætli
myndlistin verði ekki þannig að ég
taki myndir af eyjunum í þoku, Jiar
sem þær svffa í loftinu," segir Arni
Páll að lokum, svifinn inn í drauma-
landið þar sem tíðin er rólegri.
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Líf eftir Plcasso
(Surviving Picasso)-k 'h
Stelpuklíkan
(Foxfíre)k -k'h
Nlðurtalning
(Countdown)k k 'h
Næturkossinn langl
(The LongKiss Good Night)k k k
Emma
(Emma)k k k
Niðurtalning
(Countdown)k k'h
Skólabílsránið
(Sudden Terror Hijacking of School
Bus 17)k
Vélrænlr böðlar
(Cyber Trackers)k'h
Hann heltir Hatur
(A Boy Called Hate)k 'h
Þrumurnar
(Rolling Thunder)k'h
Glæpastundln
(Crime Time)kk'h
Aftökullstinn
(The Assassination File)k k
Þytur í laufi
(Windin the Willows)k k
Moll Flanders
(Moll Flanders)k k k
Draugurinn Susie
(Susie Q)k 'h
Á Saga Clalss hæð Hótels Ésju
verid tekiri í wotkun 20 ný, st-
Herbergi. ÞaP hefur eirmig ve
opnuð frájrær aðstaða
til beilsu- ög líkamsræktar,
heilsulindln Planet Pulse.
pW Saga Class
herbergi
Einkaþjálfun
Spinning
Tækjasalur
Gufubað
Leirbað
Tyrkneskt bað
Nudd
Snyrtistofa
Heitir pottar
HOTEL ESJA
I C E L A N D A I R H O T E L S
Sími 50 50 950 • Fax 50 50 955