Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 01.06.1997, Qupperneq 56
<ö> KÍÝH'fRU MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðiá/Jón Svavarsson STYTTAN Horft til hafs verður afhjúpuð í dag austast á Mið- ^ bakka Reykjavíkurhafnar. Horft til hafs afhjúp- uð á Miðbakka Fiskimenn breyttu bæ í borg STYTTAN Horft til hafs verður af- hjúpuð á sjómannadaginn austast á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Stytt- an er eftir Inga Þ. Gíslason og af- hjúpar bróðir hans, Gylfi Þ. Gísla- son, fyrrverandi ráðherra, styttuna. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, segir að styttan verði m.a. til þess að minna borgar- búa á að það voru fiskimenn sem breyttu bænum í borg. Ingi er látinn. Hann var kennari um margra ára skeið við Verslunar- skóla íslands. Hann lærði myndlist þjá Einari Jónssyni myndhöggvara og var nokkur ár í framhaldsnámi í Kaupmannahöfn. Sjómannadagsráð beitti sér fyrir því að styttan yrði sett upp og segir Guðmundur Hall- varðsson, formaður Sjómannadags- ráðs, að tilefnið sé 80 ára afmæli mt’ Reykjavfkurhafnar og sextugasti sjómannadagurinn. „Menn mega ekki gleyma því að það voru fiskimenn frá Reykjavík sem breyttu bænum í borg og koinu fótum undir efnahagslífíð í borginni. Við viljum minna á það með stytt- unni því það er hvergi nokkurs stað- ar neitt sem minnir á þessa stað- reynd í borginni," sagði Guðmundur. ■ Fáein orð/18 Eiga rétt á að sjá prófúrlausnir GRUNNSKÓLANEMENDUR sem tóku samræmd próf í vor eiga sam- kvæmt nýrri reglugerð um fyrir- komulag og framkvæmd samræmdra prófa í grunnskólum rétt á því að sjá úrlausnir sínar og fá af þeim ljósrit. Umsjónarmaður samræmdra prófa hjá Rannsóknastofnun uppeld- is- og menntamála segir þó að til þess að fá aðgang að prófunum þurfi nem- endurnir eða forráðamenn þeirra að senda inn skriflega beiðni. Þar er vís- að til tíundu greinar upplýsingalaga þar sem segir að stjórnvald geti sett það skilyrði að beiðni um aðgang að gögnum sé skrifleg. Finnbogi Gunnarsson, umsjónar- maður samræmdra prófa, segir að í beiðninni þurfi að koma fram nafn og heimilisfang nemandans, kennitala og skóli. Beiðnimar verði afgreiddar eftir þeirri röð sem þær berast og nauðsynlegt sé að nemendur framvísi persónuskilríkjum þegar þeir komi á prófsýningu. Nemendurnir geta fengið ljósrit af prófunum og kosta þau 20 kr. hver síða. Fyrsta prófsýningin verður hjá RUM á morgun mánudag og er þeg- ar fullbókað á hana. Sl. vor var einnig haldin prófsýning en þá mættu til- tölulega fáir, að sögn Finnboga. Frábær árangur ÍSLENDINGAR sigruðu Egypta, 23:20, í síðasta leik sínum á heims- meistaramótinu í handknattleik í Japan í gærmorgun og lentu þar með í 5. sæti. Þetta er besti árang- ur íslensks landsliðs í handknatt- leik á heimsmeistaramóti, en tví- vegis hafa íslendingar lent í sjötta sæti, 1961 og 1986. Arangurinn nú er frábær, liðið sigraði í sjö leikj- um, gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik. A myndinni fagna Is- lendingar glæsilegum sigri í gær- morgun, frá vinstri eru: Geir Sveinsson fyrirliði, Patrekur Jó- hannesson og Róbert Julian Dura- nona og lengst til hægri er Dagur Sigurðsson. ■ íþróttir / 14, 16 Þrír á sjúkrahús eftir veltu BIFREIÐ valt við Fellabæ um klukkan 22 á fóstudagskvöld og voru þrír menn fluttir á sjúkrahús- ið á Egilsstöðum í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Egilsstöðum virðist öku- maður bifreiðarinnar hafa misst vald á henni með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og valt. Meiðsli ökumanns og tveggja far- þega voru ekki talin alvarleg sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu, en allir þrír voru þó fluttir á sjúkrahúsið eins og áður sagði. Bifreiðin er talin gjörónýt. Morgunblaðið/Einar Falur Kjaradeilan á Vestfjörðum komin í algjöran hnút eftir sex vikna verkfall 58% ASV voru á móti MIÐLUNARTILLAGA sáttasemjara var felld í atkvæðagreiðslu hjá verkalýðsfélögunum á Vestfjörðum í gær. Nei sögðu 280 eða 59,1%, já 185 eða 39%. Auðir og ógildir seðlar voru 9 sem er 1,9%. Vinnuveitendur samþykktu hins vegar tillöguna með miklum meirihluta atkvæða. Vinnuveitendur innan Vinnuveitendafélags Vestfjarða og VSI samþykktu tillöguna með 86,8% gegn 13,2%, en innan Vinnumálasam- bandsins samþykktu vinnuveitendur tillöguna með 66,7% gegn 33,3%. Deilan alvarleg og engin lausn í sjónmáli „Eg get ekki séð annað en deilan sé í enn al- varlegri og fastari hnút en hún hefur nokki-u sinni verið og sé ekki neina lausn í sjónmáli," sagði Einar Jónatansson, formaður Vinnuveit- endafélags Vestfjarða, aðspurður um niðurstöð- “ una. Sagði hann að sáttasemjari væri áfram með Vinnuveitendur samþykktu miðlunartillöguna málið og hann gæti ekki séð lausn með eða án tilhlutunar ríkisstjórnarinnar. „Ástandið er hörmulegt fyrir Vestfirði eftir sex vikna verkfall og ég er sannfærður um að áhrifin á byggðina hér og atvinnulífið eiu orðin varanleg. Nú liggur ekkert annað fyrir en að verkfall verði hér áfram næstu vikurnar og í kjölfar þess óttast ég mjög aukinn brottflutning fólks og að fyrirtækin dragi úr starfsemi sinni svo sem bolfískvinnslu og að störfum fækki. Það hefur líka verið ljóst frá því tillagan kom fram að forysta ASV lagði allt kapp á að tillagan yrði felld." Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, segir að niðurstaða kosninganna leggist ágætlega í sig og hún sýni að verkafólk hafi ekki ekki verið að berjast fyrir þeim hug- myndum sem miðlunartillagan fól í sér. Ótvíræður stuðningur við samninganefndina „Niðurstaðan kemm- ekki mjög á óvart en í lít- illæti hefði ég kannski haldið að munurinn yrði minni. En niðurstaðan er ótvíræður stuðningur við sjónarmið samninganefndarinnar. Vinnuveit- endur verða að gefa meira út en þetta, ætli þeir að fá samning en þeir virðast ekld hafa gert sér grein fyrir því að verið er að semja,“ segir Pétur. Verkfallið hefur nú staðið yfír í um sex vikur og segir Pétur verkafólk tilbúið að vera í verk- falli annan eins tíma, sé þess þörf. „Við erum til- búin að beijast fram í rauðan dauðann," segir hann. Tíu skip á veiðum ÚTLIT er fyrir að tíu íslensk skip verði að veiðum í dag, sjó- mannadaginn, samkvæmt upp- lýsingum frá Tilkynningaskyld- unni. Atta íslensk skip eru við veiðar á Flæmska hattinum og eitt í Barentshafi skammt fírá Svalbarða. Línubáturinn Hrannar frá Hafnarfirði hafði einnig tilkynnt sig skömmu fyrir hádegi í gær, þar sem skipið var að veiðum á Reykjaneshrygg, og mátti af því ráða að það myndi halda áfram veiðum. Þá hélt togarinn Engey frá Vigo á Spáni í fyrrakvöld á leið til íslands, en skipið hefur verið á veiðum við Falklandseyjar að undanförnu. Auk þess voru nokkur flutningaskip á siglingu, en að öðru leyti voru skip á leið í land eða verið að binda þau við bryggju um hádegisbil í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.