Morgunblaðið - 06.07.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.07.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 13 PHILIPPE Séguln eftir að hann varð forseti ekki tek- ið eftir því hvernig flokkurinn glat- aði .jarðvegi sínum og rótum“. Vatn á myllu Le Pens Þetta hefur Jean-Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, þess flokks, sem er yst á hægri vængn- um í frönskum stjómmálum, fært sér í nyt. Hann hefur tekið þau mál sem hægrimenn nær miðju hafa venjulega eignað sér og gert að sínum. Hann hefur hampað íjöl- skyldugildum, fordæmt spillingu, lagt áherslu á öryggi og baráttu gegn glæpum um leið og hann und- irstrikar nauðsyn þess að Frakkar haldi sjálfstæði sínu. Staða RPR og Lýðræðisbanda- lagsins (UDF), sem störfuðu saman í stjórn Juppes, er ekki síst erfið vegna fylgis Þjóðfylkingarinnar sem fékk 15,3% atkvæða í kosning- unum. RPR fékk aðeins 16,8% og munurinn er því ekki mikill þótt staðan á þingi beri öðru vitni. Þar hefur RPR 140 sæti, en Þjóðfylkingin aðeins eitt. Þegar hefur átt sér stað ákveðin nálgun við Þjóðfylking- una. Charles Pasqua, fyrr- verandi innan- ríkisráðherra, skoraði á alla hægrimenn að vinna saman gegn vinstri- mönnum í kosn- ingunum. Alain Peyrefitte, sem var upplýsinga- ráðherra í stjórn Charles de Gaulles og situr í frönsku aka- demíunni, sagði að gera ætti bandalag við Þjóðfylkinguna, en reyndar með því skilyrði að það væri án Le Pens. Alain Griott- eray, fyrrverandi þingmaður, færir söguleg rök að því að í lagi sé að ganga til samstarfs við Le Pen: Francois Mitterrand hafi á sínum tíma gert samkomulag við komm- únista til að ná völdum, þrátt fyrir glæpi Stalíns. „Vandi hægrimanna er sá eftir kosningarnar að þeir hafa meiri- hluta í atkvæðum, en minnihluta í þingsætum talið,“ sagði stjórnmála- fræðingurinnn Reynie. „Hið mikla fylgi Þjóðfylkingarinnar gerir að verkum að þeir geta ekki sigrað vinstrimenn án hennar og að því leyti væri rökrétt að RPR gengi til samstarfs við hana. Almennings- álitið er hins vegar mjög viðkvæmt í þessum efnum og Chirac er per- sónulega andvígur sliku samstarfí sem gerir að verkum að það er erf- itt að ímynda sér að myndað verði bandalag. Sennilegra er að einhvers konar samvinna verði í einstökum kjördæmum." Slík samvinna var ekki óþekkt í síðustu kosningum. Níu af þing- mönnum hægrimanna héldu sæti sínu aðeins vegna þess að þeir nutu stuðnings Þjóðfylkingarinnar, en það er alls ekki víst að Þjóðfylking- in stökkvi til við það eitt að gaullist- ar bjóði þeim faðminn. Bruno Megr- et, sem hefur átt stóran þátt í að Þjóðfylkingin nýtur nú meiri viður- kenningar en áður og að öfgastimp- illinn er að hverfa af flokknum, er hlynntur nálgun við hægrimenn nær miðju. Le Pen er hins vegar ekki sjálfur sama sinnis og hann er ekki einn á báti. „í Þjóðfylkingunni er nú veðjað á það að flokkurinn geti náð 25% fylgi,“ sagði Reynie. „Hann gæti nýtt sér meðbyrinn til þess að taka 7% af RPR og 3% af UDF. Það hljómar ótrúlega, en er ekki útilok- að.“ Reynie sagði að fylgi Þjóðfylk- ingarinnar ætti sér ýmsar rætur. Flokkurinn væri mjög lífseigur og hefði haldið velli frá 1972. Hann nyti góðs af slæmu efnahagsástandi og neikvæðri umfjöllun ijölmiðla, sérstaklega landsblaðanna þriggja, sem í raun séu Parísarblöð. En vinstri vængurinn ætti einnig sök á velgengni flokksins. Fyrsta verk Jospins eftir að hann tók embætti hefði verið að tilkynna að ákveðin hópur ólöglegra innflytjenda fengi fullgild skilríki. Þjóðfylkingin hefði gagnrýnt þetta en hinir hægri flokkarnir hefðu haldið að sér hönd- um vegna þess að þeir vildu ekki að hægt yrði að væna þá um óvild í garð útlendinga. Þetta hefði ekki verið nein tilviljun og Jospin væri óhræddur við að nota mál af þessu tagi til að dreifa fylgi hægrimanna enn frekar. Lambroschini á dagblaðinu Le Figaro sagði að ástæðan fyrir því að Þjóðfylkingunni gæti enn vaxið ásmegin á næstunni væri sú að fólk myndi brátt komast að því að Jospin og sósíalistar væru í engu frábrugðnir gaullistum og UDF. Jospin væri þegar byijaður að svíkja það sem hann hefði lofað. „Þetta er himnasending fyrir Le Pen,“ sagði Lambroschini. „Nú getur hann sagt að sín stefna verði öðru- vísi en það sem allir hinir hafa fram að færa.“ BRESKUR hermaður stendur vörð við kirkjuna í Drumcree sem verður mlðpunktur göngu Óraníumanna á sunnudag. ef göngunni verður ekki hleypt í gegn. Hatur er hið raunverulega vandamál Robert McCartney, eini þingmað- ur sambandsflokksins UKUP, kom fram með uppástungu að lausn: að yfirvöld auglýsi þá ákvörðun sína að leyfa Óraníumönnum að þramma niður Garvaghy-veg en að Óraníu- menn afþakki síðan leyfið og taki aðra leið niður í miðbæ Portadown. Þannig myndu allir halda virðingu sinni og enginn hefði sést hafa tap- að stöðunni. Þótt leiðarahöfundar dagblaðsins The Irish Times hafi hrósað McCartney fyrir hófsama og ásættanlega lausn er ekki víst að hún sé það kraftaverk sem menn bíða eftir og á föstudag var ljóst að hún var ekki lengur til umræðu. En það er heldur ekki víst að krafta- verk dugi til því hinir ótalmörgu róttæklingar beggja vegna línunnar hafa í raun beðið þessa dags tilbún- ir til að láta nú sverfa til stáls og hefna fyrir öll ódæðisverkin (ímynd- uð sem raunveruleg) sem hinir hafa framið undanfarna mánuði og í gegnum tíðina. Nú skulu hinir fá að kenna á því. Víglínan milli „okk- ar“ og „hinna“ var mörkuð fyrir löngu og það er þessi víglína, rótgró- in sem hún er í vitund manna, sem er aðalvandamálið og hún hverfur ekki sjálfkrafa, jafnvel þótt pólitísk sátt náist um framtíð Norður- írlands - sem Tony Blair telur af talsverðri bjartsýni að verði fundin fyrir lok næstkomandi maímánaðar. Mögulegar lausnir eru nefnilega ótalmargar en skipta litlu máli á meðan undir niðri krauma eldar haturs. Þetta hatur í grasrótinni hverfur ekki sem dögg fyrir sólu með samningum milli stjómmála- leiðtoga. Betri ferðirnar á næstunni THAILAND Einstakt tækifæri 2. ágúst, flug, glæsileg gisting, fararstj. - 8 dagar Bangkok aðeins kr. 99 þús. - má framlengja. ^ K 4 LISTA- TÖRFRAR ÍTALÍU 9. ágúst, 15 daga ferð í algjörum sérflokki, sem sýnir allt það besta í landi lista og fegurðar undir fararstjórn Ingólfs. 2 forfallasæti. Ummæli farþega: „Þessi ferð ein var meira virði en allar ferðir sem ég hef farið í.“ í/ Það besta í VÍETNAM - 4. okt. Fyrsta Víetnamferðin á vegum Heimsklúbbs Ingólfs með hóp sérfræðinga var 1995. Ferð númer tvö verður í okt. nk. þar sem aðeins það besta er í boði, t.d. besta hótel SAIGON í 4 daga. 36 heimsfarar hafa staðfest þátttöku, aðeins 4 sæti laus. Berið saman gæði og verð. í sömu ferð býðst að skoða það besta í Malasíu, Singapore og Dubai. Mesta Austurlandaævintýri sem um getur, og þú lifir sældarlífi á mestu glæsihótelum heimsins í 3 vikur. Fararstjóm Ingólfs. NÝJUNG MALASÍA OG THAILAND Flug til KUALA LUMPUR, höfuðborgar Malasíu, sem nú er ein nýtískulegasta borg heimsins. Gist á glæsilegu NEW WORLD HOTEL, andspænis hæstu turaum heimsins. Fjölbreytt menning, lágt verðlag og fullt af unaðssemdum. Eftir 4 daga flug til PHUKET í Thailandi, nú vinsælasta stað í Austurlöndum. Vikudvöl á fyrsta flokks hóteli á Patong ströndinni. Önnur vika ókeypis. Flug til baka um Kuala Lumpur eða Bangkok gegn aukagjaldi. Verð kr. 138.600 í tvíb. „HÖLL GYLLTU HESTANNAW verður opnuð á næstu dögum um hálftíma leið frá Kuala Lumpur. Hún verður aðsetur gesta okkar í ferðinni „Töfrar 1001 nætur“, nú talinn glæsilegasti gististaður heimsins með öllu sem hugurinn girnist en á samningsverði Heimsklúbbsins kostar það ekki meira en hótel á hringveginum um ísland. Hvers konar íþróttaaðstaða, sund, golf, tennis, siglingar, útreiðar, 7 mismunandi veitingasalir með úrvali úr matreiðslu heimsins, dans- og leiksýningar, barir, næturklúbbur, verslanir. Fæst einnig í sérpöntuðum ferðum Heimsklúbbsins. DUBAI staður í þjóðbraut Djásn Austurlanda við Persaflóa. Kemur á óvart með glæsileika og hæsta lífsstandard í heimi. HOTEL AL BUSTAN verður aðsetur okkar í ferðinni „Töfrar 1001 nætur“. Það er sannkallaður töfraheimur þar sem í anddyri hótelsins gengurðu um pálmum skreytta stíga með fossum og gosbrunnum. Ný viðmiðun á ferðalögum. 4 síðustu sætin. SIGLING Á KARÍBAHAFI Þátttaka í siglingum á bestu skemmtiskipum heimsins hefur margfaldast fyrir tilstilli Heimsklúbbsins. Nýjar pantanir nærri daglega. Glæsilegt tilboð: Vikusigling á INSPIRATION á nýrri siglingaleið + vikudvöl í landi draumaeyjunnar DOMINIKANA, 5* Hotel Renaissance. Rómaður ísl. fararstjóri. 8 pláss laus. Nýr 5* gististaður í Puerto Plata kynntur fljótlega. Verið velkomin að njóta fagþjónustu okkar, reynslu og frábærra sambanda, sem geta sparað þér mistök og stórfé. Skrifstofan í Austurstræti 17, 4. hæð, opin daglega kl. 9-17. Sími 562 0400, fax 562 6564. FERÐASKRIFSTOFAN PRIAAA" HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS Austurstræti 17. 4. hæð 101 Revkiavík. sími 562-0400. tax 562-6564
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.