Morgunblaðið - 06.07.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 47
FRUMSYNING: MENN I SVORTU
FANGAFLUG
11. B.i. 12 ára. SEDIGITAL
SHjDIGITAL
Æ:-mrrteA
FXAIOCAI'Jl li T
...í öllum |x;im ævintýrum .
sem þú gctur ímyndaö þér!
islenskt tal
Hringjarjnn í
]\(0TRfJ3AMH
SAMBÍOm SAMBlÓm SAMBÍÓ
SAMBMO
Con Air kemur frá Jerry Bruckheimer sem gerði The Rock og Crimson
Tide. Frábær háloftatryllir með Nicholas Cage og John Malkovich sem
hinn alræmdi Cyrus „the Virus".
Spennumynd ársins 1997 sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum!
Paul McCartney.
Lagasmíðarnar nauðsyn
FYRIR stuttu kom út breiðskífan
Flaming Pie, fyrsta sólóskífa Pauls
McCartneys í fjögur ár. Þær 27
plötur sem hann hefur sent frá sér,
ýmist einn eða með sveit sinni
Wings, hafa verið misjafnar að
gæðum, en Paul segir að á Flaming
Pie hafi hann einna helst viljað stíga
skref aftur til fyrri tíma, gefa út
plötu sér til skemmtunar fyrst og
fremst.
í kynningarviðtali segir hann að
hann hafi ekki samið lög með út-
gáfu í huga, þau hafi komið af sjálfu
sér og iðulega óvænt þar sem hann
sat á biðstofu eða slæptist í fríi.
Þegar svo kom að því að taka plöt-
una upp var það gert á mettíma.
Ýmsir leggja Paul lið á plötunni
nýju, þar á meðal Ringo Starr, Jeff
Lynne, Steve Miller og George
Martin. Annars koma færri við sögu
en á fyrri plötum því sjálfur leikur
á Paul á fjölda hljóðfæra, vegna
vísvitandi tilraunar til að hafa verk-
ið sem einfaldast.
Vert er að geta þess að sonur hans
stígur fyrstu skrefín á tónlistar-
brautinni með því að leika á gítar
í einu lagi og eiginkonan Linda
kemur við sögu.
Paul McCartney er talinn með
ríkustu mönnum Bretlands og víst
að hann þarf ekki að lyfta litla-
fíngri frekar en hann vill. Hann
leggur og áherslu á að lagasmíðam-
ar séu sér nauðsyn og vinnan við
að undirbúa endurútgáfur Bítla-
verkanna hafi minnt sig rækilega
á að það eigi að vera skemmtilegt
að semja og taka upp tónlist, ekki
síður en að hlusta á hana.
Afmælis-
veisla í
Noregi
NORSKU konungshjónin héldu
upp á sextugsafmæli sitt á dög-
unum. Hátíðahöldin stóðu í
nokkra daga og var konungsfjöl-
skyldum frá allri Evrópu boðið
til gleðinnar. Meðal þess sem
bryddað var upp á var sigling
meðfram ströndum Noregs norð-
ur Jfyrir heimskautsbaug.
í þeirri ferð var notast við
þrjár skútur. Mesta athygli vakti
skútan sem hlaut gælunafnið
„ástarfleyið" en í henni var yngri
kynslóð konungborinna saman
komin. Þar á meðal voru Hákon
krónprins Norðmanna, Friðrik
krónprins Danmerkur, Filip
krónprins Spánar, gríski prins-
inn og prinsessan og Viktoría
krónprinsessa Svíþjóðar.
wmm
WmMA
■1
í:i
v **■';
- V*
V:;-
VIKTORÍ A hin sænska vekur alltaf mikla athygli, hér er hún
á tali við Felipe Spánarprins.
Vel heppnuð
Vestmanna-
eyjaferð
HÚSMÆÐUR úr Borgarbyggð
brugðu sér í orlofsferð til Vest-
mannaeyja fyrir skömmu. Þetta
er í fjórða sinn sem þær sækja
Eyjar heim og skemmtu þær sér
vel að venju. Hér sjáum við glað-
væran hópinn samankominn.