Morgunblaðið - 06.07.1997, Side 32

Morgunblaðið - 06.07.1997, Side 32
^32 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 MIIMIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, SVAVAR STEINN PÁLSSON, Ásabraut 6, Sandgerði, lést á gjörgæslu Sjúkrahúss Reykjavíkur mánu- daginn 30. júní. Hann verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á björgunarsveitina Sigurvon, Sandgerði, eða Hvalsnes- kirkju. Sesselja Aðalsteinsdóttir, Kári Jónsson, Páll Gíslason, Ósk Guðmundsdóttir, Ingvar Júlíus Helgason, Guðbjörg Sif Sigrúnardóttir, Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, Arnar Óskarsson, María Guðmunda Páisdóttir, Gísli Jónatan Pálsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGLJÓT HÓLMFRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR frá Seyðisfirði, Eiðistorgi 7, Seltjarnarnesi, sem lést mánudaginn 30. júní, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, miðviku- daginn 9. júlí kl. 14.00. Jóhannes Ágústsson, Hrólfur Brynjar Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir, Dúa Berg, Ágúst Fannar og Bjarki Fannar Hrólfur. Maria Ohlsson, Anne-Lie Ardenheim, + Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa GUNNARS PÁLS JÓAKIMSSONAR fiskifræðings í Kiel, fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 10.30. Helga Jóakimsson, böm, tengdabörn og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON frá Skálanesi, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni sunnudagsins 29. júní. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju í dag, mánudaginn 7. júlí, kl. 14.00. Böm, tengdadóttir og barnabörn. + Bróðir minn og vinur okkar, KARL HILMAR JOHNSEN, sem lést á Kumbaravogi föstudaginn 27. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskaþellu þriöjudaginn 8. júlí kl. 13.30. Knud Chr. Juel og starfsfólk Blindravinafélags íslands. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR, Aðalgötu 14, Keflavík, sem lést á heimili sínu mánudaginn 30. júnl sl., verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 8. júlí kl. 14.00. Erla Eyjólfsdóttir, Magnús Hvanndal Hannesson, Hafsteinn Eyjólfsson, Inga Lóa Hallgrímsdóttir, Bragi Eyjólfsson, Elísabet Dröfn Ástvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. LÝÐUR PÁLSSON + Lýður Pálsson fæddist í Hlíð í Gnúpverjahreppi hinn 2. júlí 1906. Hann lést á Vífils- stöðum 26. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Páll Lýðsson bóndi í Hlíð, f. 1869, d. 1943, og kona hans Ragnhildur Einars- dóttir frá Hæli, f. 1878, d. 1954. Systkini Lýðs voru: Einar Pálsson, ban- kaútibússljóri á Sel- fossi, d. 1980, Aldís Pálsdóttir húsfreyja í Litlu Sandvík, Stein- ar Páisson bóndi í Hlíð, d. 1997, Bjarni Pálsson, iðnskólastjóri og byggingarfulltrúi á Selfossi, d. 1987, Ragnheiður Pálsdóttir húsmóðir á Selfossi, og fóstur- systir Hulda Runólfsdóttir, kennari í Hafnarfirði. Lýður giftist árið 1942 Guð- björgu Steinsdóttur, f. 8. apríl 1910, d. 1. apríl 1995. Foreldrar hennar voru Steinn Magnússon og kona hans Sólveig Guð- mundsdóttir í Bjargarkoti í Fljótshlíð. Sonur Guðbjargar og fóst- ursonur Lýðs er Steinn Þorgeirsson vélatæknifræðing- ur. Kona hans er Svanhildur Sveins- dóttir frá Selfossi. Þeirra börn eru: Guðbjörg, Sveinn Arnar og Ragnar Páll. Lýður lauk gagn- fræðaprófi frá Flensborg árið 1924 og prófi frá Samvinnuskólanum árið 1929. Hann vann lengi á búi foreldra sinna í Hlíð. Var síðan bóndi þar frá 1942 til 1971. Lýður var hrepp- stjóri þeirra Gnúpveija í nær 30 ár. Hann brá búi árið 1971 og flutti, ásamt Guðbjörgu konu sinni, til Reykjavíkur. Vann hann þar ýmis störf til eftirlaunaaldurs, og bjuggu þau lengst af í Gautlandi 21. Utför Lýðs fer fram frá Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði á morg- un, mánudaginn 8. júlí, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar ég kveð Lýð föðurbróður minn í hinsta sinn eftir fjörutíu ára samvistir horfi ég á eftir einum af mínum allra traustustu vinum. Raunar er tilfínningin líkari því sem um föður minn væri að ræða enda tók hann mér alltaf sem eigin dótt- ur og sonum mínum var hann eins og besti afi. Ég ólst upp í nábýli við Lýð og konu hans Guðbjörgu, bjó hjá þeim á skólaárum mínum í Reykjavík og eftir að ég stofnaði fjölskyldu var heimili þeirra griðastaður fjölskyldu minnar. Eftir að Guðbjörg dó hélt Lýður uppi heimili þeirra og áfram leituðu sporin þangað, smá sem stór. Nú eru tímarnir breyttir en minn- ingarnar streyma fram og ylja. Það er eins og maður finni trausta ná- vist Lýðs, vinar sem stóð alltaf með sínum eins og klettur, sagði ekki margt en var til staðar óhagganleg- ur. Hann lét heldur ekki óbreytan- lega hluti raska ró sinni. Sem dæmi um það svaf hann rólega þó rigndi ofan í flatt hey og hafði það meira að segja á orði að hann svæfi aldr- ei betur en í rigningu. Þannig var æðruleysi Lýðs. Hann lagði hins vegar mikla áherslu á að koma í veg fyrir óhöpp og gætti þess vel að fyllsta öryggis væri gætt. Það var Lýð mikið áfall þegar faðir minn veiktist í vetur og dó. Þeir höfðu alið saman aldur sinn og starfað saman mestan hluta ævinnar og böndin voru sterk. Það var næstum eins og þeir þyrftu ekki að tala saman, þeir læsu hug hvor annars. Sú yfirvegun og ró sem ríkti á dánarbeði þeirra beggja er dýrmætt vegamesti fyrir þá sem eftir lifa. Um leið og ég votta Steini, Svönu og börnum þeirra mína innilegustu samúð vil ég þakka þeim hversu frábærlega þeir studdu bæði Guð- björgu og Lýð þegar hallaði að degi. Slík vinátta er okkur hinum til hvatningar og eftirbreytni. Elín Erna Steinarsdóttir. Það varð stutt á milli bræðranna, föður míns og Lýðs, sem við kveðj- um nú. Það má teljast hafa verið einstaklega góð samvinna sem þeir bræðurnir höfðu með sér í búskapn- um í Hlíð, fyrst í félagsbúi, en síðar voru þeir hvor með sinn bústofn, en útihús og vélar voru í félags- rekstri. Lýður var mjög framfara- sinnaður og áhugasamur um upp- byggingu jarðarinnar, ræktun, byggingar, tækjakaup og annað sem til framfara horfði. Það var að vísu komið fram á seinni búskaparár hans, þegar við unnum saman, og búskapur hans kominn í fastar skorður, en hann var samt ávallt áhugasamur um það sem til framfara horfði. Það var einkennilegt hve Lýður var fljótur að vinna ýmis verk þrátt fyrir nokkra bæklun á handlegg. Hann var einhvern tíma spurður hvers vegna hann væri sérstaklega fljótur að binda hey. Hann sagðist telja handtökin og finna út hvernig vinna mætti verkið með sem fæst- um handtökum. Nú til dags er þetta víst kallað gæðastjórnun. Ekki varð vart neins sérstaks asa, en fum- laust var unnið. Lýður var vel menntaður, enda útskrifaðist hann frá Flensborg og Samvinnuskólan- um með hæstu einkunnum. Sér- staklega var hann mikill stærðfræ- ingur og áhugamaður um þau fræði. Einnig var hann mikill skák- maður. Það var ávallt mikið fjöl- menni á heimili Lýðs og Guðbjargar og það eru margir sem eiga góðar minningar um þau hjón og dvöl sína hjá þeim. Guðbjörg var afburða vin- sæl, hún var svo hlý og það var ávallt veislumatur á borðum. Lýður var alveg sallarólegur þótt fyrirferð gæti verið i krökkum. Hann hafði líka gaman af smá prakkaraskap, frumlegur í tilsvör- um og uppátækjum. Eg vil þakka Lýð sérstaklega hve hann hvatti mig til náms, og hann hafði sér- staka ánægju af að aðstoða við úrlausn stærðfræðiviðfangsefna. Lýður og Guðbjörg voru orðin roskin þegar þau hættu búskap og fluttu suður, en Lýður vann samt ýmis störf á nýjum vettvangi. Það var auðfundið að hann hafði hug. á störfum sem hæfðu betur menntun hans og kunnáttu, en núna tel ég að hann muni vera kominn á heimavöll að sinna stærðfræði og öðrum vísindum. Við sem bjuggum í austurbænum þökkum Lýð og Guðbjörgu fyrir einstakt samstarf og vináttu. Páll Ragnar Steinarsson. Fyrir rúmum tveimur árum kvöddum við Guðbjörgu Steinsdótt- ur, fyrir fjórum mánuðum Steinar Pálsson og nú Lýð bróður hans. Þarna hafa á tiltölulega stuttum tíma farið yfir móðuna miklu þijú af þeim fjórum sem stóðu fyrir búinu í Hlíð í Gnúpveijahreppi á þeim tíma þegar ég var þar í sveit. Katrin Árnadóttir er nú ein eftir til að halda uppi merkinu sem hún gerir með reisn. Ég tel mig hafa verið gæfumann að fá að eyða sumrum æsku minnar í návist þessa fólks og í því um- hverfi sem þau þjuggu í, mótuðu og mótuðust af. Ég var í sveit hjá Guðbjörgu og Lýð löngu áður en minni mitt nær til. Þegar ég fyrst man til gerði ég ekkert til gagns en þeim mun fleira til gamans. Eftir því sem þroski sagði til um bættust við störf og ábyrgð. Á Hlíð- arheimilinu voru margir krakkar á misjöfnum aldri og hver tók við starfi af öðrum eldri þegar sá fékk þroska til að takast á við enn vanda- samari verkefni. Lýður og Steinar voru að ýmsu leyti ólíkir en að öðru leyti líkir. Þetta held ég að hafi verið búrekstr- inum frekar til bóta. Lýður var full- trúi hefðar og nokkurrar fastheldni en Steinar hygg ég að hafi lagt meiri áherslu á nýja tækni og vinnu- brögð. Búrekstur var verulega vinnuaflsfrekari þá en nú, þótt vinnutími og álag á þá sem greinina stunda í dag hafi áreiðanlega ekki minnkað. Það hefur því verið tölu- vert atriði að hafa nægilegan og hæfan mannskap til að ná því að nýta þurrk til heyverkunar og koma heyjum heim og í hlöðu. En örugg- lega var mikilvægast af öllu að hafa stjórn og skipulag á verkum. Sveitadvölin hjá Lýð og Guð- björgu kenndi mér að vinna og að meta gildi vinnu og samvinnu. Fyr- ir það er ég þakklátur og tel að uppeldið í sveitinni hafi verið mér vegarnesti sem ég bý að enn. Þarna hefur einnig efalítið verið lagður grunnurinn að því að ég hef varið allri starfsævi minni til þessa að sinna málefnum hinna dreifðari byggða og landsbyggðarinnar. I Hlíð var margt fleira gert en að annast skepnur og afla heyja. í því mikla íjölmenni sem var á sumr- in á báðum bæjunum var margt skemmtilegt brallað þótt ég sé ekki viss um að það væri allt samkvæmt forskrift húsbændanna. Efst í minn- ingunni eru þar íþróttamótin sem haldin voru árlega milli krakkanna í Hlíð og á Hæli um nokkurra ára skeið. Það var tvímælalaust mann- bætandi að fá að taka þátt í því fjölskrúðuga mannlífi sem þarna fór fram. En Lýður bóndi átti einnig áhugamál sem kannski var honum miklu kærara en brauðstritið þar sem var skákin þótt ég næði aldrei áhuga eða árangri á því sviði. Marg- ur sem leið átti hjá garði í Hlíð atti kappi við Lýð á þeim vettvangi og þegar þau hjónin fluttu til Reykjavíkur hygg ég að hann hafi getað sinnt skákinni svo sem honum líkaði. Lýður var vel að sér um marga hluti og þess nutum við sem áhuga höfðum á slíku. Mér er meðal ann- ars minnisstætt að hjá honum lærði ég margt í stærðfræði, meðal ann- ars algebru, því hann átti auðvelt með að útskýra leyndardóma henn- ar. Eftir aðstoðina frá honum átti ég ekki í neinum erfiðleikum með að skilja námsefnið. Nú er komið að leiðarlokum. Þótt langt sé síðan Lýður og Guð- björg slepptu af mér beislinu á ég þeim þakkarskuld að gjalda sem ekki verður nú greidd með öðrum hætti en þessum fátæklegu þakkar- orðum og með þeirri hlýju sem ég ber í huga þegar ég minnist þeirra. Sigurður Guðmundsson. Nú eru fallnir frá, með stuttu millibili, tveir heiðursmenn: Lýður Pálsson og Steinar Pálsson, bænd- ur í Hlíð í Gnúpveijahreppi. Ég var svo lánsamur að kynnast þeim vel því ég var heimalningur á bænum, eins og raunar bræður mínir báðir. Og auðvitað er Hlíð yndislegasti staður á jörðinni enda er varla til hlýlegra og fegurra bæjarstæði með kafloðið lágatúnið og stórhól í forgrunni en stöðulbali, hálsinn og fjallið rísa á bak við bæinn. Þannig sé ég Hlíð fyrir mér á sól- ríkum sumardegi snemma í júlí og ef ég man rétt var oft byijað að slá heimatúnið á afmælisdaginn hans Lýðs, annan júlí. í vesturbæn- um bjuggu Lýður og Guðbjörg en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.