Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
247. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fyrsti leiðtogafundur Kína og Bandaríkjanna í átta ár haldinn í Washingion
Clinton heimilar sölu á
kjarnakljúfum til Kína
Washington. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, ræddi í gær við Jiang Zemin, for-
seta Kína, og samþykkti að heimila sölu á bandarískum kjamakljúfum til
Kína eftir að Jiang lofaði að Kinverjar myndu ekki aðstoða ríki eins og
Iran við smíði kjarnavopna. Þetta er fyrsti leiðtogafundur Bandaríkjanna
og Kína í átta ár og Clinton þáði boð kínverska forsetans um að heim-
sækja Kínverja á næsta ári.
Clinton sagði í gærkvöldi að
samkomulagið um samvinnu ríkj-
anna í kjarnorkumálum væri báð-
um ríkjunum í hag. „Það þjónar
þjóðarhagsmunum Bandaríkjanna,
umhverfis- og viðskiptahagsmun-
um,“ sagði Clinton á sameiginleg-
um blaðamannafundi forsetanna
eftir nærri tveggja stunda viðræð-
ur þeirra í Hvíta húsinu í gær.
Samkomulagið er fagnaðarefni
fyrir bandarísk fyrirtæki, sem sjá
fram á mjög arðbær viðskipti í
Kína, en líklegt þykir að forsetinn
sæti harðri gagnrýni þingmanna,
sem hafa varað við því að viðskipt-
in geti stuðlað að útbreiðslu
kjarnavopna í heiminum og
tortryggja loforð Kínverja.
Á öndverðum meiði um
mannréttindi
Forsetamir lýstu fundinum sem
tímamótum í samskiptum ríkj-
anna, sem hafa verið stirð eftir
blóðsúthellingarnar á Torgi hins
himneska friðar í Peking árið 1989,
og þeir hvöttu til þess að ríkin
tækju höndum saman til að stuðla
að friði og hagsæld í heiminum.
Clinton kvaðst hafa rætt mann-
réttindabrot Kínverja ítarlega við
Jiang og sagði að þeir hefðu verið
á öndverðum meiði um hvernig
túlka bæri atburðina á Torgi hins
himneska friðar. Jiang neitaði að
biðjast afsökunar á aðgerðum kín-
verska hersins í Peking og sagði
að þær hefðu verið „nauðsynlegar"
til að tryggja áframhaldandi um-
bætur í Kína.
Jiang kvaðst ennfremur stefna
að „friðsamlegri endursamein-
ingu“ kínverska meginlandsins og
Tævans en sagðist ekki geta hafn-
að valdbeitingu til að koma í veg
fyrir að Tævan lýsti yfir sjálfstæði.
Beint símasamband
ákveðið
Þegar kínverska forsetanum var
ekið að Hvíta húsinu komst hann
ekki hjá því að heyra í ýmsum hóp-
um mótmælenda sem söfnuðust
þar saman til að fordæma mann-
réttindabrot kommúnistastjórnar-
innar og stefnu hennar í málefnum
Tíbets og Tævans.
Forsetarnir ræddust við á
óformlegum fundi kvöldið áður og
ákváðu þá að koma á beinu síma-
sambandi milli Hvíta hússins og
forsetaskrifstofunnar í Peking líkt
og milli leiðtoga Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna á tímum kalda
stríðsins.
Síðasti leiðtogafundur Banda-
ríkjanna og Kína var í febrúar
1989 þegar George Bush,
þáverandi forseti Bandaríkjanna,
fór til Peking nokkrum mánuðum
fyrir blóðsúthellingarnar þar.
■ Kínverskir ráðamenn/20
Reuters
JIANG Zemin, forseti Kína, og Bill Clinton Bandaríkjaforseti fylgjast
með trommu- og lúðrasveit í búningum frá nýlendutímanum við
móttökuathöfn í garði Hvíta hússins í Washington.
Kauphallarviðskipti
glæðast
„Sveifl-
ur gætu
orðið til
góðs“
New York. Reuters.
GENGI verðbréfa í kauphöllum
heimsins rétti úr kútnum í gær,
einkum eftir að Aian Greenspan,
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
lýsti sveiflum undanfarinna daga á
verðbréfamörkuðunum þannig að
þær myndu þegar frá liði verða
álitnar hafa jákvæð áhrif.
Greenspan, sem margir telja
áhrifamestan allra manna sem
koma nálægt seðlabankastjórn,
sagði einnig í ræðu sem hann hélt
fyrir neðri deild bandaríska þings-
ins, að sveiflurnar á gjaldeyris-
mörkuðum Asíu, sem ollu írafári á
verðbréfamörkuðum víða um heim
í kjölfarið, myndu ekki hafa nein
teljandi áhrif á efnahag
Bandaríkjanna. Hann sagði
verðbréfamarkaðinn nú vera „ekki
eins fjarri réttu róli“ og hann var
áður og að hans mati myndu
nýjustu sveiflurnar á mörkuðunum
að nokkrum árum liðnum verða
taldar hafa orðið til góðs.
Þessi ummæli Greenspans
leiddu til þess að Dow Jones-
vísitalan, sem mælir gengi
verðbréfa á Wall Street, hækkaði
um 120 stig, eða um 1,6%, ofan á þá
miklu hækkun sem varð í fyrradag
þegar vísitalan hækkaði um 337
stig. Vísitalan lækkaði þó síðar og
þegar kauphöllinni var lokað í
gærkvöldi var hún komin í 7.506,67
stig og hafði þá hækkað um 8,35
stig samtals yfir daginn.
■ Verðbréfamarkaðir/22
Mandela
heiðrar
Gaddafi
MUAMMAR Gaddafi, leiðtogi Lí-
býu (t.h.), ræddi í gær við Nelson
Mandela, forseta Suður-Afríku,
sem sæmdi hann æðstu suður-
afrísku orðunni sem útlendingur
getur fengið. Mandela flutti stutt
ávarp af þessu tilefni á íþróttaleik-
vangi í líbýska bænum Zuwarah og
skoraði á Gaddafi að styðja tilraun-
ir Sameinuðu þjóðanna til að
„draga úr spennu, átökum og of-
beldi“ í heiminum.Gaddafi tók vel í
þessa áskorun en bætti við að hann
hygðist ekki verða við kröfu stjórn-
valda í Bandarfkjunum og Bret-
landi um að framselja tvo líbýska
leyniþjónustumenn, sem eru grun-
aðir um aðild að sprengjutilræði í
bandarískri farþegaþotu yfír
skoska bænum Lockerbie sem kost-
aði 270 manns lífið árið 1988. Hann
setti það sem skilyrði fyrir framsali
mannanna að þeir yrðu sóttir til
saka í „hlutlausu landi“.
Reuters
Yopnaeftirlit
stöðvað í írak
Bagdad, Washington. Reuters.
SAMEINUÐU þjóðirnar ákváðu í
gærkvöldi að stöðva vopnaeftirlit
sitt í Irak eftir að þarlendir ráða-
menn ákváðu að banna Banda-
ríkjamönnum að taka þátt í því.
„Við getum ekki sætt okkur við
ákvörðun íraka,“ sagði Anne
Luzzatto, talsmaður Bandaríkja-
forseta. „írakar geta ekki sagt
Sameinuðu þjóðunum hverjir eigi
að Uika þátt í eftirlitinu."
Irakar sögðust ætla að halda
áfram samstarfi sínu við eftirlits-
nefnd Sameinuðu þjóðanna, að
minnsta kosti tímabundið, en
kröfðust þess að bandarísku eftir-
litsmennirnir íæru frá Irak innan
viku. Að sögn írösku fréttastofunn-
ar INA gaf stjórnin í Bagdad Sam-
einuðu þjóðunum stuttan frest til
að aflétta refsiaðgerðum gegn
Irak. Ef samtökin yrðu ekki við
þeirri kröfu myndu írakar hætta
samstarfinu við eftirlitsnefndina,
sem fylgist með upprætingu gjör-
eyðingarvopna í Irak.
Fundum aflýst
Frakkar og Bretar mótmæltu
einnig ákvörðun íraka og Richard
Butler, formaður eftirlitsnefndar-
innar, stöðvaði vopnaeftirlitið í
gærkvöldi. Hann kvaðst einnig
hafa aflýst f'yrirhugaðri heimsókn
sinni til íraks í nóvember og fund-
um með íröskum embættismönn-
umíNewYork.
Fréttaskýrendur sögðu að Irak-
ar virtust vera að reyna að reka
fleyg milli Bandaríkjanna og ann-
arra ríkja sem eiga aðild að örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna en
töldu þá tilraun geta komið þeim
sjálfum í koll.