Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 13 FRÉTTIR Lengi verið vilji alþingismanna að gera landið að einu gjaldsvæði fyrir símaþjónustu Ráðherra varaði við kostnaðartilfærslum Akvæði um að sama notkunargjald fyrir símaþjónustu skuli vera alls staðar á landinu er að finna í fjarskiptalögnm sem samþykkt voru á Alþingi í desember 1996.139. grein segir að notkunar- gjald fyrir talsímaþjónustu hjá hverjum rekstrarleyfíshafa fyrir sig skuli vera hið sama alls staðar á landinu eigi síðar en 1. júlí 1998. ÁKVÆÐI þetta var sett í lögin að tillögu meirihluta samgöngunefndar og þegar hann mælti fyrir tillögunni sagði Einar K. Guðfmnsson þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, formaður nefnd- arinnar, að með þessu væri verið að tryggja fyrri markmið sem fólust í breytingu á fjarskiptalöggjöfinni vor- ið 1995. Sagði Einar að breytingin í eitt gjaldsvæði væri möguleg með hliðsjón af tækniframförum, en rétt væri að veita nokkum aðlögunartíma svo að sem minnst röskun hlytist af. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í samgöngunefnd töldu hins vegar ekki þörf á aðlögunartíma og fluttu þeir tillögu um að landið yrði gert að einu gjaldsvæði 1. júlí 1996. Róttæk breyting Umræða um að breyta landinu í eitt gjaldsvæði hefur lengi verið við lýði og í mars árið 1995 sagði Hall- dór Blöndal samgönguráðgherra, þegar hann kynnti fækkun gjald- svæða Pósts og síma sem fól í sér 28-74% lækkun símkostnaðar utan höfuðborgarsvæðisins, að til athug- unar hefði verið að stíga þá skrefið til fulls og gera landið að einu gjald- svæði. Hann sagði að ákveðið hefði verið að bíða með það þar sem t.d. hefði þurft að koma til hækkun stað- arsímtala ef farið hefði verið út í svo róttæka breytingu. í janúar sama ár lögðu þrír þing- menn Alþýðubandalagsins, þau Ragnar Arnalds, Margrét Frímanns- dóttir og Jóhann Ársælsson, fram frumvarp til laga á Alþingi um jöfn- un verðlags, þar á meðal jöfnun sím- kostnaðar. í frumvarpinu var gert ráð fyrir að samgönguráðherra skyldi ákveða eigi síðar en 1. apríl 1995 að landið allt yrði eitt gjald- svæði og öll símtöl innanlands verð- lögð á sama hátt, óháð vegalengdum milli notenda. Þegar Ragnar mælti fyrir frum- varpinu sagði hann að ekki sæjust nein rök eða sanngirni sem mæltu með þvi að dýrara væri fyrir símnot- anda í einum landsflórðungi en öðrum að hringja til höfuðborgarsvæðisins, og mishá gjöld eftir svæðisnúmerum tvímælalaust leifar frá því símaþjón- ustan var handvirk. Þarna væri því um að ræða mismunun sem ætti engan rétt á sér, væri algjörlega úr- elt og ætti því tafarlaust að afnema. Undir þetta tók Páll Pétursson félagsmálaráðherra sem sagði að það væri sjálfsagt mál að öll símtöl innan- lands væru verðlögð á sama hátt, og það væri „aldeilis ótrúleg íhaldssemi hjá símanum að hafa þijóskast við að stíga jöfnunarskrefið til fulls“. Löngu úrelt svæðaskipting í mars árið 1996 beindi Siv Frið- leifsdóttir, þingmaður Framsóknar- flokks, fyrirspurn til samgönguráð- herra um það hvort til stæði að taka upp eina gjaldskrá Pósts og síma um land allt, en þá hafði gjaldsvæð- unum fækkað niður í þrjú. Sagði hún m.a. að það hlyti að vera kappsmál að allir landsmenn hefðu sömu möguleika til að hýta sér upplýsinga- tæknina. Nefndi hún sem kost í því sambandi að Póstur og sími „leggi niður löngu úrelta svæðaskiptingu landsins og taki upp einn taxta fyr- ir öll almenn símtöl innanlands þann- ig að allir sitji við sama borð.“ Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði í svari sínu að það væri rétt að pólitískur þrýstingur hefði verið jafnvel svo áratugum skiptir um að jafna þann mun sem verið hefði á langlínusímtölum og innan- svæðasímtölum. Hann sagði að ef sú leið yrði farin að taka upp gjald- skrá fyrir öll símtöl þá myndu inni- falin skref hjá símnotendum á lands- byggðinni hverfa því merkingarlaust væri að hafa þau. „Jafnframt liggur fyrir að þung- inn af gjaldheimtunni mun færast til í einhverjum mæli. Hann mun áreiðanlega færast frá atvinnu- rekstrinum yfir á einstaklingana, á heimilin. Það mun verða kostnaðar- tilfærsla frá fyrirtækjum yfir á heim- ili ef landið verður gert að einu gjald- svæði. Ég hygg að allir séu sam- mála um það sem sett hafa sig inn í þessi mál. Eigi að síður geta menn talið að fyrir því geti verið rök. Það er annað mál. Eins og sakir standa er næsta skref sem tekið verður að fækka gjaldsvæðum niður í tvö, sem hefur auðvitað verulega lækkun í för með sér . . . og halda áfram í átt til fulls jafnaðar eins og hefur verið stefna Póst og síma. Það að breyta landinu einnig í eina gjaldskrá hefur erfíðleika í för með sér í sambandi við línuleigu og ýmislegt því líkt sem sem skýrir auðvitað betur að kostn- aðartilfærslan færist yfir á einstakl- ingana, yfir á heimilin frá atvinnu- rekstrinum, auk þess sem ýmsar spurningar vakna í sambandi við samkeppnisstöðu Pósts og síma síðar meir þegar talsíminn verður gefínn fijáls eftir tvö ár,“ sagði samgöngu- ráðherra. Bætti hann síðar við að auðvitað stæði til að sami taxti yrði á Interneti um land allt. Eitt brýnasta hagsmunamál landsbyggðarinnar I umræðum um málið sagði Guðjón Guðmundsson þingmaður Sjálfstæð- isflokks að jöfnun símkostnaðar væri tvímælalaust eitt mikilvægasta og brýnasta hagsmunamál landsbyggð- arinnar, og Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði það ekki vera vansalaust að einstakl- ingar og fyrirtæki þessa lands skyldu búa við viðskiptahindranir af því tagi sem fælust í svæðaskiptingu hvað gjaldskrá varðar. Sagði hún að gera ætti landið að einu gjaldsvæði þegar Póstur og sími yrði gerður að hlutafé- lagi. Jón Kristjánsson þingmaður Framsóknarflokks sagði að hann teldi að kominn væri tími til að stíga skref- ið til fulls ogjafna símkostnað. Tækn- in stæði því ekki fyrir þrifum, því kominn væri ljósleiðari hringinn í kringum landið. Sú fjárfesting hefði verið að mestu leyti greidd af erlend- um aðilum þannig að fjárfestingar- kostnaður ætti ekki að kalla á mis- munandi gjaldskrá. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260 SVIPMIKILL EÐALVAGN frá aðeins 1.778 þúsund krónum! Hyundai Sonata er flaggskip Hyundai flotans; svipsterkur og glæsilegur bíll á góðu verði. Hyundai er breiður og rúmgóður eðalvagn með 139 hestafla 2000 vél og er einstaklega lipur og mjúkur í akstri. Tveir líknarbelgir, ABS bremsukerfi, styrktarbitar í hurðum o.fl. tryggir öryggi farþeganna. N Ú ER LAG - SONATA <B> HYunoni - til framtíðar B&L, Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13, Sími: 575 1200, Söludeild: 575 1220, Fax: 568 3818, Email: bl@bl.is, Internet: www.bt.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.