Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 41 sig ævinlega fyrir þeim. Hann lék við þau og oft stóðu þau opin- mynnt og horfðu stórum augum á Jonna galdra fram tónlist úr bama- hljóðfærum sem við höfðum talið ónýt. Skilaboð Jonna á símsvaran- um mínum voru einstæð - nýr gjömingur í hvert sinn. Jonni varð- veitti æskuna betur en nokkur sem ég hef þekkt. Árin virtust ekkert bíta á hann - þrátt fyrir skyldur hjónabands og foðurhlutverk var hann alltaf sami strákurinn í sér. Jonni var sá eini í mínum vinahópi sem allt fram á síðasta dag átti það til að hringja í mig og spyija hvort ég væri ekki „til í að koma út að leika“. Þá fómm við gjaman með fótbolta á eitthvert túnið í Vesturbænum, spörkuðum á milli og héldum uppi samræðum um leið. Til marks um að Jonni sleppti aldr- ei anda unglingsáranna sá ég hann aldrei gefa síða hárið eftir með öllu. Jonni var KR-ingur af hörðustu gerð en sýndi tryggð minni við Fram ætíð mikið umburðarlyndi. Við höfðum reyndar yndi af því að bauna hvor á annan í þeim efnum eftir gengi liðanna hveiju sinni, en fullkomin virðing ríkti ætíð fyrir tryggð hins við sitt félag. Við Jonni áttum það sameiginlegt að vera miklir „sjónvarpsíþróttamenn". Þeir era ófáir leikirnir sem við höf- um horft á saman bæði í handbolta og fótbolta. Þegar kom að Heims- meistarakeppni eða Evrópukeppni stilltum við saman strengi okkar og litum á dagana framundan sem hátíð. Ég veit að það er eigingjöm afstaða en ég finn svo sárt fyrir því hve margar minningar mínar hafa orðið fyrir gengisfellingu. Minningar sem maður á einn era einskis virði í samanburði við þær sem maður getur deilt með öðram. Eftir andlát Jonna er ég fátækari og svo mun um marga fleiri. Við Valdís vottum Svövu, Kiddu, Ingi- björgu, Bimu og Atla okkar dýpstu samúð. Hafliði Skúiason. Mig langar að minnast í fáeinum orðum Jónasar Bjömssonar tónlist- armanns sem lést með sviplegum hætti af slysförum á erlendri grandu fyrir mánuði. Ég kynntist Jónasi um miðjan áttunda áratug- inn þegar leiðir okkar lágu saman á tónlistarbrautinni. Jónas hafði þá um skeið leikið á trompet í Skóla- hljómsveit Kópavogs undir farsælli stjóm foður síns, Bjöms Guðjóns- sonar. Stigu margir verðandi tón- listarmenn og -konur sín fyrstu spor á listabrautinni í þeirri merku sveit. Jónas var einnig mjög liðtæk- ur slagverksleikari, enda snemma sóst eftir liðsemd hans í rokkhljóm- sveitum. Tónlistarsmekkur okkar var um margt líkur og spannaði allt frá rokki þess tíma til blús- og djasstónlistar og bræðings þessara greina á meiði alþýðutónlistar. Ég tók snemma eftir því hve gott eyra Jónas hafði fyrir tónlist og var hann oft hvatamaður að því að sækja tónleika sem buðust hér í borg. Má þar nefna atriði á listahá- tíð Reykjavíkur þar sem heims- frægir listamenn á borð við Cleo Laine og John Dankworth komu fram, auk merkra íslenskra sveita eins og Hins íslenska þursaflokks. Þá var Jónas hrókur alls fagnaðar. Síðar skildu leiðir og ég fór inn á nýjan starfsvettvang en Jónas hélt áfram að starfa við tónlist. Ég minnist þess þegar leiðir okkar lágu saman að nýju árið 1982 að hann sagðist stoltur vera búinn að festa ráð sitt og byggi á Sauðár- króki, léki með hljómsveit Geir- mundar og ferðaðist vítt og breitt um landið. Hittumst við Jónas af og til næstu árin en stilltum svo saman strengi okkar í danshljóm- sveit árið 1988. Hafði Jónas nokkra áður flutt suður með fjölskyldu sína, stundaði tónlistarkennslu í ýmsum skólum og drýgði tekjumar með því að leika í danshljómsveit okkar um helgar. Kynni okkar Jón- asar urðu þá enn nánari enda vor- um við í nær daglegu sambandi á þeim tíma. Ég kom oft á heimili þeirra Jónasar og Svövu á Seilu- granda. Varð ég þess strax áskynja að þar bjó samhent fjölskylda. Mannvænleg og prúð böm þeirra hjóna heilsuðu gestinum glaðlega við komuna og margt var spjallað yfír ijúkandi tebolla. Kímnigáfu Jónasar var við bragðið og hafði hann ávallt frá einhveiju spaugi- legu að segja. Hann var ætíð hress í bragði og aldrei lognmolla í kring- um hann. Eftirtektarvert var hve vinmargur Jónas var. Hann átti vini og kunningja á mörgum stöð- um víðsvegar um landið. Oft og tíðum fóram við Jónas saman á völlinn til að hvetja og sjá Vestur- bæjarliðið KR leika. Var hann mik- ill knattspyrnuáhugamaður og sjálfur liðtækur í íþróttinni. Eftir að Jónas hætti í hljómsveit okkar og hóf að leika með Rúnari Þór leið lengra á milli þess að við hitt- umst. Fylgdist ég með honum úr ijarlægð, heyrði lög þeirra félaga í útvarpi og var stundum í símsam- bandi við hann. Ég hitti Jónas í hinsta sinn að kvöldi Þoriáksmessu í fyrra á Laugaveginum þar sem hann spók- aði sig með fjölskyldu sinni í góða veðrinu ásamt þúsundum lands- manna. Ekki vissi ég þá að það yrðu okkar síðustu fundir. Ég kveð góðan samferðarmann með söknuði og bið um styrk til handa Svövu, bömunum og öllum aðstandendum Jónasar sem syrgja sárt. Sverrir Konráðsson. Vatn þitt spegilslétta speglar sjálfan þig á fleti myndir flétta farin ævistig. Brotnar myndir berast eins og brek að strönd línur ljóssins skerast skiptir lit á hönd. (Úr texta Heimis Más.) Leiðir okkar Jónasar lágu saman í gegnum tónlistina fyrir um tíu áram. Mér var bent á hann þegar ég var að leita að trommuleikara í hljómsveitina mína. Strax eftir fyrsta kvöldið vissi ég að þama var kominn maður sem var gott að vinna með og hann spilaði með mér allt þar til hann lést af slysför- um á Spáni í síðasta mánuði. Jónas þvældist með mér og hljómsveitinni um allt land og allan þennan tíma skyggði aldrei á vin- áttu okkar. Enda deildum við öðr- um áhugamálum en tónlistinni, sérstaklega fótboltanum. Við fór- um saman á alla leiki KR sem við gátum sótt enda báðir miklir stuðn- ingsmenn liðsins. í ágúst síðastliðn- um fór hljómsveitin til Spánar og dvaldi þar við spilamennsku í rúm- an mánuð. Við voram allir sam- mála um að ferðin hefði gengið svo vel að það væri þess virði að fara aftur utan. Það var í þessari seinni ferð sem hið hörmulega slys átti sér stað. Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyram þegar mér vora borin tíðindi af dauða Jónasar og var reyndar lengi að átta mig á þessari staðrejmd. Aðeins nokkram klukkustundum áður lék allt í lyndi og við slógum á létta strengi eins og við voram vanir. Þessi atburður sýnir manni hvað það er stutt milli lífs og dauða. Enginn veit hvenær kallið kemur og þegar það kemur er gott að eiga öll sín mál uppgerð. Þannig var það með okkur Jónas. Við áttum í sjálfu sér ekkert órætt því eins og áður sagði féll aldrei skuggi á okkar vináttu. En það breytir ekki því að ég sakna hans mikið. Það er undar- legt að koma fram og spila án þess að hafa Jónas vin minn glaðan í bragði við trommusettið. Hann var orðinn svo fastur punktur í tilver- unni. í huga mér verður hann líka alltaf við trommusettið þó aðir fylli hans skarð. Ég er Jónasi þakklátur fyrir vin- áttuna og samstarfíð þennan tæpa áratug sem við áttum saman. Hann var bæði samstarfsmaður og vinur og sú vinátta mun alltaf eiga sinn fasta sess í hjarta mér þar til ég þarf að svara því kalli sem hann hefur nú fengið á besta aldri. Jónas spilaði inn á margar af mínum plöt- um. Ég get því haldið áfram að hlusta á hann tromma og er þakk- látur fyrir það. En Jónas spilaði ekki bara á trommur. Hann var lærður trompetleikari og kenndi á það hljóðfæri ásamt trommunum. Jónas var því íjölhæfur maður þó hann vildi ekki gera mikið úr hæfí- leikum sínum sjálfur. Það var ekki hans stfll að gorta af eigin verðleik- um nema í gríni í hópi okkar vin- anna. Það er óneitanlega tómlegra um að litast í lífinu eftir að Jónas er farinn. Vinnufélaginn, vinurinn og samferðamaðurinn á fótbolta- völlinn hefur skilið eftir sig vand- fyllt skarð. En alveg eins og ég sé hann fyrir mér við trommusettið verður hann mér ljóslifandi á fót- boltavellinum líka og það er góð tilhugsun. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka þessum góða vini mínum fyrir samfylgdina í gegnum lífið. Ég treysti því að hann sé í góðum höndum og að hann sé hrókur alls fagnaðar þar eins og hann var með okkur sem þekktum hann. Ég og Heimir Már bróðir minn sem kynntist Jónasi í gegnum textasamstarf sitt við hljómsveit- ina, sendum Svövu og bömum hennar og Jónasar, Ingibjörgu, Bimu og Atla og foreldram Jónas- ar og systkinum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Rúnar Þór. Mig setti hljóðan þegar mér var sagt að Jónas væri dáinn. Hugurinn leitar aftur til þess tíma þegar leið- ir okkar frænda lágu saman í Skólahljómsveit Kópavogs. Þar var Jonni hrókur alls fagnaðar, jafnvíg- ur á trompet og trommur og átti það til að grípa önnur hljóðfæri. Hann hafði meðfædda tónlistar- gáfu og var snemma farinn að spila í rokkhljómsveitum meðfram lúðra- sveitinni sem þó átti alltaf hug hans. Ég fékk einu sinni fyrir frændsakir að vera með á æfíngu en efnisskráin samanstóð af Led Zeppelin og Black Sabbath og reyndist ungum trompetleikara of- raun. Þrátt fyrir að leiðir skildi var alltaf góð taug á milli okkar og báðir vildum við rækta betur tengslin. Hann átti þó framkvæði að því að smala saman í frændgarð- inn til fagnaðar þegar það var gert. Síðast hitti ég Jonna frænda á KR-vellinum. Þar var hann tíður gestur og við hittumst þar oft. Eitt sinn bauð hann mér heim til sín út á Granda eftir leik. Þar sýndi hann mér gamlar myndir af félögum í Lúðrasveit Reykjavíkur sem hann hafði uppi á vegg í tónlistarat- hvarfí sínu í geymslu niðri í kjall- ara. Fyrir miðri mynd var afí okk- ar, með pírð augu bakvið kringlótt gleraugu og glott á vör. Við náðum hvoragur að kynnast honum. Jonni spurði mig hvort afí hlyti ekki að hafa verið húmoristi af myndinni að dæma. Ég samsinnti því og við sátum lengi saman og létum hug- ann reika í allar áttir. Á þessum góðu stundum nálguðumst við frændur. Jonni var heiðarlegur og einlægur og sá alltaf broslegu hlið- amar á málunum. Afí okkar dó fyrir aldur fram í Reykjavík. Núna er Jónas dáinn á Benidorm á Spáni, alltof ungur. Hann var nýlega orðinn varafor- maður Lúðrasveitar Reykjavíkur og fetaði þar í fótspor Guðjóns afa sem var formaður og einn af stofn- endum sveitarinnar. Örlög þeirra áttu eftir að tvinnast saman á fleiri vegu áður en yfír lauk. Jónas var góður drengur og fé- lagi og ég á eftir að sakna hans mikið. Fjölskyldu hans, Svövu og bömunum, Bimi, Ingibjörgu og Önnu Þóra, sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng á eftir að vera þeim dýrmæt og hjálpa þeim í sorginni. Guðjón Guðmundsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FREYJA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Ásgarði, Húsavfk, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju föstu- daginn 31. október kl. 13.30. Páll Vigfússon, Gísli Vigfússon, Helgi Vigfússon, Elísabet Vigfúsdóttir, Hjálmar Vigfússon, Sigurður Vigfússon, Ragnheiður Valdimarsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Leifur Jósefsson, Hildur Kristjánsdóttir, Dögg Hringsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, LILJA G. ODDGEIRSDÓTTIR, Háaleitisbraut 103, Reykjavík, er lést á Landspítalanum laugardaginn 25. október, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu þriðjudaginn 4. nóvember kl. 13.30. Ólafur H. Ólafsson, Baldína H. Ólafsdóttir, Kristján Sigurjónsson, Ólafur E. Ólafsson, Jóhanna Reynisdóttir, Oddgeir H. Ólafsson, Ásta Sigurðardóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR, Lyngholti, sem lést á Sjúkrahúsi Hvammstanga 20. októ- ber, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugardaginn 1. nóvember kl. 14.00. Ragnheiður Björnsdóttir, Maria Björnsdóttir, Sævar J. Straumland, Margrét Birna Hannesdóttir, Herdís Hannesdóttir, Hannes G. Jónsson, Haukur Hannesson, Inga Lára Hansdóttir, Guðný Hannesdóttir, Gréta Hauksdóttir, önnur barnabörn og langömmuböm. + Móðir mín og tengdamóðir, ÞORGERÐUR HAUKSDÓTTIR kennari, Hólabraut 20, Akureyri, verður jarðsett frá Akureyrarkirkju föstudaginn 31. október kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Guðmundar Óla Haukssonar, reikningur nr. 322-13-877054 í Búnaðarbanka Islands. Haukur Ingibergsson, Bima Bjarnadóttir, böm og barnabörn. + Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR ODDBERG SIGURÐSSON (Beggi), lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 23. október sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. október kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heilsugæslustöð Hrafnistu. Innilegustu þakkir fyrir góðan hlýhug til allra á Hrafnistu. María Theresa B. Einarsson, Magnús Þór Einarsson, Sigurlín Einarsdóttir, Sigurrós Einarsdóttir, Fríða Einarsdóttir, Unnur Einarsdóttir, Rafn Einarsson, Málhildur Sigurbjörnsdóttir, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, Ásta Sigurbjörnsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Jón Sigbjörnsson, Már Elfson, Gunnar Haraldsson, Elín Ó. Eiríksdóttir, Arthúr Eyjólfsson, Hafsteinn M. Sigurðsson,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.