Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ 8 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997________________________ FRÉTTIR Eldri borgarar afhenda Alþingi kröfugerð um bætt hjör ÞAÐ styttist nú líka í að ég bætist í hópinn, elskurnar mínar . . . Hótelkostnaður langt undir verðlistaverði KRISTÍN Aðalsteinsdóttir, sölu- stjóri á Hótel Cabin, sem var opn- að í Reykjavík í sumar, segir að tilkoma hótelsins hafi leitt til þess að verð á hótelgistingu í borginni sé lægra yfir vetrarmánuðina en áður. Hótelstjórar nokkurra stærstu hótela borgarinnar segja hins vegar að verðið sé svipað og í fyrra. Cabin-hótel hefur mun minni herbergi en önnur hótel en þeim fylgja sturta, sjónvarp og sími. Kristín segir að verðið hjá Cabin- hóteli hafi verið uppundir helmingi lægra enda borgi viðskiptavinir annarra meira fyrir stærri her- bergi. Frá því að vetrarverðskrá tók gildi 1. október með lægra verði í takt við minni eftirspum á markaðinum hafi hins vegar önnur hótel stórlækkað sitt verð og jafn- vel farið niður fyrir Hótel Cabin. Lækkandi hótelkostnaður Tveggja manna herbergi hjá Cabin kostar í vetur 4.900 krónur um helgar en 3.900 krónur virka daga með morgunverði. Eins manns herbergi kostar 3.300 krón- ur en 3.800 krónur um helgar. Auk þess eru 27 eins manns herbergi sem ekki hafa glugga út úr húsinu og kosta 2.000 kr. í miðri viku og 2.500 kr. um helgar. „Nú hafa önnur hótel verið að auglýsa lægri verð þannig að það er greinilegt að þetta hótel hefur orðið þess valdandi að hótel- kostnaður hefur lækkað í Reykja- vík yfir veturinn," segir Kristín. Einar Olgeirsson, hótelstjóri Flugleiðahótelanna Hótels Esju og Hótels Loftleiða, lýsir annars kon- ar verðþróun milli ára. Hann segir að Flugleiðahótelin selji nú eins manns herbergi á 3.900 krónur en tveggja manna á 5.200. Sama verð gildi helgar og virka daga. Þetta sé sama verð og gilti að vetrarlagi í fyrra. Hótelin bjóði auk þess til- boð tengt flugfargjöldum þar sem verð á tveggja manna herbergi sé 5.200 krónur. Jónas Hvannberg, hótelstjóri Hótels Sögu, segir að samkvæmt verðskrá sé verð á tveggja manna herbergi í vetur 10.700 krónur en að hafi verið 10.600 kr. í fyrra. gangi eru helgarpakkar þar sem tveggja manna herbergi kostar 5.900 krónur. Það sé sama verð á helgartilboði og í fyrra. Jónas segir að þessi verð gildi eingöngu um helgar en selt sé fullu verði vírka daga. Eins manns herbergi kostar 9.300 fullu verði, sem er 300 kr. hækkun frá í fyrra en á helgartilboði er kostnaðurinn 4.900 en var 4.700 í fyrra, að sögn Jónasar. Helgartilboð alla vikuna Hvorki Einar, Jónas né Bjarni Ásgeirsson, hótelstjóri Grand Hót- els Reykjavíkur, kannast því við að tilkoma Cabin-hótels hafi áhrif á verð hótelþjónustu yfir vetrar- mánuðina í Reykjavík. Bjarni segir að Grand Hótel selji tveggja manna herbergi á 10.300 krónur sam- kvæmt verðlista en 6.300 á helg- artilboði, sem samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins gildir í raun alla vikuna, nema við alþjóðlegar pantanir. Að sögn Bjarna var helg- artilboðið 5.900 krónur í fyrra. Eins manns herbergi eru á helgar- tilboðum seld á 4.800 en sam- kvæmt verðlista er verðið 6.300 krónur. Þýzkaland og Island bandamenn í NATO Náin varnarsam- vinna við Banda- ríkin Evrópu holl Werner Holzer AVEGUM Varð- bergs, Samtaka um vestræna samvinnu (SVS) og þýzk- íslenzka vináttufélagsins Germaníu hélt sl. Iaugar- dag Werner Holzer, fyrr- verandi aðalritstjóri Frankfurter Rundschau, opið erindi á Hótel Sögu undir yfirskriftinni „Þýzkaland og ísland eru bandamenn í NATO“. Áður en Holzer, sem hefur meðal annars tekið þátt í að rækta tengsl Þýzka- lands við Norður-Ameríku allt frá árinu 1950, flutti erindið náði Morgunblaðið tali af honum og fékk hann til að tjá sig um efnisval sitt. „Þessi yfirskrift nær yfir vítt svið. Það sem fyrirlestur minn fjallar um er májefni sem snertir hvort tveggja ísland og Þýzkaland, það er hið breytta hlut- verk Atlantshafsbandalagsins eft- ir hrun Sovétríkjanna og stækkun bandalagsins til austurs - hvaða ríki fá fyrst að gerast aðilar og hver ekki. Þar með kem ég að því að fjalla um möguleikana og þörf- ina á að setja NATO ný markmið. Hvaða verkefnum getur það sinnt í framtíðinni og hvers vegna er það yfirleitt enn til?“ - En hvað um samband íslands og Þýzkalands sérstaklega? „Samband íslands og Þýzka- lands innan NATO er fullkomlega hnökralaust; það er enginn ágrein- ingur milli þessara tveggja banda- manna innan bandalagsins. Ástæðurnar fyrir þessu eru fjöl- þættar. ísland er eitt af stofnríkj- um NATO - eftir því sem ég kemst næst myndi bandalagið ekki heita NATO ef ísland hefði ekki verið með frá upphafi. Þessi áherzla í nafni samtakanna á Norður-Atl- antshaf skilst mér að hafi komið til vegna eindreginnar óskar ís- lendinga. Annars héti bandalagið ef til vill ATO, Atlantic Treaty Organization.“ Annað sem íslendingar og Þýzkaland eiga sameiginlegt hvað varðar samstarfið innan NATO varðar tengsl bandalagsins við hinn fyrrverandi óvin í austri. Hvorug þjóðin vill að hin breytta staða í heimsmálunum leiði til nýrrar blokkamyndunar, hvort sem er milli arftakaríkja Sovétríkj- anna, Rússlands sérstaklega, og NATO eða milli þessara ríkja og Evrópusambandsins. Að þessu er ekki hlaupið, það vitum við. En ég sé líka hagsmuni íslands og Þýzkalands fara saman í hinu nýja sam- starfi sem er verið að koma á meðal ríkjanna í kringum Eystrasalt. Eystrasaltsráðið gæti orðið gagnlegur vettvangur til að byggja upp traust samstarf milli Norðurlandanna, Þýzkalands, Pól- lands, Eystrasaltsríkjanna þriggja og Rússlands. Síðan er annað sem varðar ís- lenzka hagsmuni í þessu sambandi beinlínis, bæði fyrr og síðar, en það eru skipasamgöngur á haf- svæðinu allt frá Murmansk til Svalbarða og Grænlands sem og í Eystrasaltinu. Ég tel að Þjóðverj- ar hafi mikinn skilning á því áhyggjuefni íslendinga, að ekki verði með breytingunum skapaðir nýir óvissuþættir. Mikilvægi Is- lands í NATO lá jú ætíð fyrst og fremst í landfræðilegri legu þess, úti í Atlantshafinu. ►Werner Holzer er fæddur í Zweibriicken í Þýzkalandi árið 1926. Hann hóf blaðamennsku- feril sinn 1947 fyrir Mannheim- er Morgen, Der Ruf og Siid- deutsche Zeitung. Um tíma var hann fréttaritari Siiddeutsche Zeitung, Frankfurter Rund- schau og Tagesanzeiger í Ziirich. Einnig starfaði hann um tíma sem blaðamaður í araba- löndum, Afríku, Bandaríkjun- um og Víetnam, eða þar til hann tók við starfi aðalritstjóra Frankfurter Rundschau árið 1973. Því starfi gegndi hann til 1991.1991-1995 vann Holzer að því að koma á fót fréttastofu í Washington fyrir þýzka sjón- varpsfyrirtækið Vox og var fréttastjóri þar, en er nú kom- inn á eftirlaun. - Mikilvægið lá í legu landsins, segirðu, en hefur það þá ekki lengur mikilvægu hlutverki að gegna? „Nei, ég vil ekki segja að Island hafi ekki lengur mikilvægu hlut- verki að gegna í NATO. Heimurinn tekur ekki slíkum stakkaskiptum þó að valdahlutföllinn færist eilítið til. Með legu íslands hefur það eftir sem áður mikilvægu hlutverki að gegna, þó að þetta hlutverk hafi breytzt nokkuð. Framlag íslands til starfsemi NATO tengist því sem ég tel að sé meginástæðan fyrir því að bandalagið er ennþá til. Það er eina varnarbandalagið í heiminum sem virkar. Þetta blasir við einkum ef maður ber NATO saman við Öryggis- og samvinnustofnun Evr- ópu, sem bæði ísland og Þýzkaland eru einnig aðilar að. Markmið þeirrar stofnunar eru göfug, en hún skilar ekki nándarnærri sama ár- angri og NATO gerir.“ - Er ekki rétt að ísland og Þýzkaland séu samheijar innan NATO aðþvíleytinu að bæði lönd- in vilji að Bandaríkin haldi áfram virkri þátttöku í vörnum Evrópu? Innan Evrðpu eru allháværar raddir um að Evrópa sjái um sig alfarið sjálf að þessu leytinu, ekki satt? „Jú, þetta er hárrétt. Það hefur lengi verið togstreita fyrir hendi milli svokallaðra „Atlantshafs- sinna" og „Meginlandssinna" í evrópskum stjórnmálum, líka inn- an Þýzkalands. En ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að Megin- landssinnarnir hafí rangt fyrir sér. Það hefur sýnt sig að það er öllum Evrópuþjóðunum til hagsbóta ef Bandaríkjamenn taka virkan þátt í varnarsamvinnunni." ísland ber ábyrgð á „N“- inu í NATO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.