Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnir í
þjálfa
KRISTRÚN Sigurjónsdóttir, for-
maður samninganefndar þroska-
þjálfa, segir allt útlit fyrir að
þroskaþjálfar fari í verkfall nk.
mánudag. Breitt bil sé enn á milli
samningsaðila. Samninganefnd rík-
isins hafí hafíiað því að veita
þroskaþjálfum sambærilegar
hækkanir og leikskólakennarar og
grunnskólakennarar hafi samið um.
Þroskaþjálfar hafa boðað verk-
fall hjá ríkinu og Reykjavíkurborg
3. nóvember hafí samningar ekki
tekist. Verkfallið hefur áhrif á
dagvistarstofnanir fatlaðra, þ.e.
Bjarkarás, Lyngás og Lækjarás.
Það hefur einnig áhrif á Grein-
ingarstöð ríkisins og á skamm-
tímavistun fatlaðra. Um helmingi
þeirra, sem verkfallið nær til, er
gert að vinna í verkfallinu og þess
vegna eru það 90-100 manns sem
leggja niður störf í verkfallinu.
Breitt bil á milli aðila
Kristrún sagði að verkfall
þroskaþjálfa kæmi illa við þá sem
síst skyldi. „Þetta er neyðarúr-
ræði, en við sjáum engin önnur ráð
en að fara í verkfall. Við höfum
ekki hugsað okkur að halda áfram
að selja okkar vinnu á útsölu."
Kristrún sagði að mjög breitt
bil væri milli samningsaðila. Upp-
hafleg krafa þroskaþjálfa væri
um 110 þúsund króna lágmarks-
laun og um 45% heildarhækkun
launa. Samninganefndin hefði
lækkað kröfur sínar og boðist til
að sættast á 106 þúsund króna
lágmarkslaun. Lágmarkslaunin
væru rúmlega 74 þúsund á mán-
verkfall þroska-
á mánudaginn
Morgunblaðið/Þorkell
SKELLI verkfall þroskaþjálfa á hefur það áhrif á dagvistai-stofn-
anir fatlaðra, þar á meðal Bjarkarás, þar sem
myndin var tekin í gær.
uði í dag. Prósentuhækkanir á svo
lága upphæð yrðu eðlilega að vera
miklar.
„Sé mið tekið af viðbrögðum
samninganefndar ríkisins við kröf-
um okkar er ljóst að það er fjarri
því að við eigum að fá sambærileg
kjör og þær stéttir sem samið hef-
ur verið við að undanförnu. Við
teljum eðlilegt að miða okkur við
leikskólakennara og grunnskóla-
kennara. Við höfum að baki jafn-
langt nám, þ.e. þriggja ára há-
skólanám að loknu stúdentsprófi,
og rætt er um að sameina skólann
hjá þessum þremur stéttum."
Nýr samningafundur er boðaður
í kjaradeilunni í dag.
Fiskiðjan Frejja
á Suðureyri í
nauðasamninga
Náist samningar ekki verður
fyrirtækið lýst gjaldþrota
STJÓRN Fiskiðjunnar Freyju á Suð-
ureyri hefur farið fram á nauða-
samninga við lánardrottna sína en
jafnframt liggur fyrir samþykkt um
að fyrirtækið verði lýst gjaldþrota
takist þeir ekki. Búist er við, að það
liggi fyrir í dag eða morgun hvert
framhaldið verður að sögn Gunnars
Birgissonar, stjórnarformanns í
Freyju.
Miklir erfíðleikar hafa verið í
rekstri Freyju um margra ára skeið
en einhver hagnaður var þó 1994
og ’95. Önnur ár hefur fyrirtækið
verið rekið með tapi og á síðasta
ári var tap af reglulegri starfsemi
53 milljónir króna en rekstrartekjur
302 millj. kr. Eigið fé fyrirtækisins
var 19 millj. kr. um síðustu áramót
en er nú uppurið.
Ný stjórn var skipuð í Freyju í lok
ágúst sl. og er hún þannig skipuð,
að Gunnar Birgisson, stjórnarmaður
í íslenskum sjávarafurðum, er for-
maður; varaformaður er Konráð
Jakobsson og aðrir í stjórn eru Krist-
ján G. Jóakimsson, stjórnarmaður í
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna;
Eggert Jónsson og Lárus Hagalíns-
son.
Gunnar segir, að nýju stjóminni
hafí verið það ljóst strax, að staðan
væri mjög erfið. Því hafí verið ákveð-
ið að kanna það fyrir lok september
hvort rekstrargrundvöllur væri fyrir
hendi og hvort unnt væri að fá nýja
aðila að rekstrinum þar sem fyrir lá,
að aðaleigendumir höfðu ekki hug á
að reka fyrirtækið áfram.
Um sl. mánaðamót höfðu nokkrir
gefíð sig fram, sem áhuga höfðu á
að koma að rekstrinum, og var þá
ákveðið að leita nauðasamninga. Eru
tveir helstu kröfuhafarnir Sparisjóð-
ur Bolungarvíkur og Byggðastofn-
un.
Hluti af veðkröfum seldur
Gunnar segir, að fyrir rúmri viku
hafí Sparisjóðurinn ákveðið að sam-
þykkja ekki nauðasamninga en farið
í þess stað fram á, að frystihús
Freyju yrði keypt út úr fyrirtækinu
með svipuðum hætti og gerðist með
frystihús Fáfnis á Þingeyri. I fyrra-
dag hefði hins vegar komið á dag-
inn, að Sparisjóður Bolungarvíkur
væri búinn að selja hluta af veðkröf-
um sínum. í framhaldi af því hefði
hann fallist á nauðasamninga en það
hafði ekki verið staðfest þegar blað-
ið fór í prentun. Telur Gunnar, að
það muni skýrast í dag eða morgun
hvort Freyja fer í gjaldþrot.
Hluthafar í Freyju eru yfir 30
talsins en helstu eigendur eru Hrað-
frystihúsið hf. og Básafell með 35%
hvort, ísafjarðarbær með um 7%,
Olís 5,6% og Skeljungur, Burðarás
og Jöklar með tæp 3% hvert.
Björk fær lofsamlega umsögn í Time
Undirtónn hættu
og ofbeldis
M U S l C
Songs from Tomomnv
Futurístic pop by
sínger Björk and fa
hop band T
FwtsAwd'* troundbrMkmcdebot
UtUl. Qf TM UfíN «*CK»K£i ft** Wm»
«0 »0 G»U***t* Mmtmwia
Ovtiax, onAt wUfe OMhhi% wtU»
twii'inx «ni« «k< í
cMku A»i lÍKtMninn npcM wiOt » •
pari*»UK>« MoO'A'^T.tfx. s.i/cí tAo i
■ \b*t tx;w»wwd, in m«<*», íro»»> ?
a tri-fi ftlm. Tíic sontí ot> Pot-
f (i*hr.<n} twvc OW UUtKldg fealM«:?
all *ecrn conrt ructon a x»ftc- /.
bnd Ot tXctpnit. i'riídtnvt• u>nfr>ftíut t
Cwít tUrtw, ■nbo, aions tviih
bani,f«a*m» Iho rxxc ITxiwbvwi.*xr* ‘i
titnpty, ~I'm nt* * vcry cplímntkr ptrr-
í-»i. réíUy.'
ftiuti'* «t»A, in ctwtrwi. Kw Uwí* ,
tharacferiacd by *«» i»wtw*«t*i *pr^d>»- I
fínctv V«* iKa lv»»pcij»!i.tít ’
d>Ot«!d tuA Ue rnííttkro Uu %U£ia*n<nx
orhckt>(Kwiív'. Ttfnxishout
tUtrtc » * owrcnl U tUwfx «r.<i ciofctKV-
0>» tiv.'4rí%inv, SctrítcSotriU. 8fjtUúay'..
"l'tn st (twaítin o( lik»c«. *«>y Imt.-/1 k tínc
fhupc r*f 3 jjirl." And wtlk
t**.Ut*rkní5w<*J fívto, xJx; *ínpt." Kmcuvc
bui f pnt baw u> r*pkxíc.' TU sd- J
W>’* muni rí a ocitarón cé ríaoicaJf
*fytc (viobus ai*l ctrlkw> znci frmmog V
HOMOGENIC, nýjasta plata
Bjarkar Guðmundsdóttur, er
til umfjöllunar í tímaritinu
Time í þessari viku undir fyr-
irsögninni „Söngvar morgun-
dagsins“. Segir þar að tónlist
Bjarkar eigi það sammerkt
með hljómsveitinni Portis-
head að þótt á henni sé fram-
tíðarbragur sé hljómurinn
aldrei ómennskur og það sé
hennar helsti kostur.
í greininni segir að oft
ímyndi menn sér að framtíðin
beri í skauti sér klóna, vél-
menni og geimverur um leið
og hlutir eins og vinátta, fjöl-
skylda og trú hverfi. Tónlist
Bjarkar og Portishead, sem
nýverið gaf út plötu sam-
nefnda hljómsveitinni, sé
framtíðartónn, en hann sé
aldrei ómennskur.
Tónlist Bjarkar einkennist
af þrálátum gáska, en það
beri ekki að villast á léttu
lundarfari og grunnfærni eða
skorti á slægð. Á Homogenic
allri megi greina undirtón
hættu og ofbeldis og vitnar
gagnrýnandi blaðsins,
Christopher John Farley, í
texta laganna Bachelorette
og Pluto máli sínu til stuðn-
ings. Á plötunni ljósti saman
klassískum stíl með fiðlum og
sellóum og sársaukafullum
rafmagnstakti.
Farley telur að rödd Bjark-
ar gefi plötunni heildarsvip
og um leið persónulegan blæ.
„Björk æpir og stynur og
syngur sterkar, ferskar nótur
eða gerir hvað sem þarf til
að koma til skila þeim tilfinn-
ingum, sem bijótast um í
henni,“ skrifar hann. „Það
sem er spennandi við flutning
hennar er að hann virðist af
fingrum fram.“
Gagnrýnandinn lýsir broti
úr myndbandi Bjarkar við
lagið Joga og segir að þar
sjáist myndir unnar í tölvu
af miklum landflæmum úr
lofti og síðan megi greina
Björk á hárri hæð með opið
bijósthol þar sem allt sé á
iði: „Myndavélin steypir sér
inn í hana. I framtíðarheimi
tölvumynda hefur hjartað
enn mesta aðdráttaraflið."
Hellismótið
Jón Viktor
gæti náð
Bezold
SÆVAR Bjamason og Jón
Ámi Halldórsson eru í 3.- 8.
sæti eftir 6. umferð alþjóðlega
Hellismótsins í skák, með 4
vinninga hvor. Skák Jóns
Viktors Gunnarssonar og
Ludgers Keitlinghaus fór í
bið. Vinni Jón Viktor kemst
hann við hlið Michaels Bez-
olds í 1. sæti með 5 vinninga.
Jafntefli nafnanna
í gær gerðu Helgi Ólafsson
og Helgi Áss Grétarsson jafn-
tefli, Sævar vann alþjóðlega
meistarann Persson, en
Hannes Hlífar tapaði fyrir
Hector.
7. umferð verður tefld í dag
og hefst hún kl. 17.
MEÐ blaðinu í dag fylgir átta
síðna auglýsingablað frá
Magasín.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Jóhann gefur ekki kost á sér
JÓHANN G. Bergþórsson, sem var í 2. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfírði við
síðustu bæjarstjómarkosningar, hefur ákveð-
ið að taka ekki þátt í prófkjöri flokksins fyr-
ir bæjarstjómarkosningarnar í vor, en fram-
boðsfrestur rann út í gærkveldi. Þá hefur
Ellert Borgar Þorvaldsson einnig ákveðið að
gefa ekki kost á sér.
í yfirlýsingu sem Jóhann skilaði til kjömefnd-
ar skömmu fyrir lok framboðsfrests í gær-
kvöldi segir hann að lokað prófkjör sé „fyrst
og fremst vilji „flokkseigendafélagsins“. Ljós
og leynd afskipti þess af framboðsmálum
flokksins em til þess að draga úr áhrifum al-
mennra kjósenda flokksins á skipan listans sem
þó að mati undirritaðs hefur verið eitt aðals-
merki flokksins fram til þessa. Ákvörðun um
lokað prófkjör er tekin þrátt fyrir eindreginn
vilja þess sem nú situr í fyrsta sæti til þess
að prófkjörið yrði opið. Afgerandi höfnun á
sjónarmiðum þess sem skipar efsta sæti og
leiðir þar með hópinn er ekki til þess fallin að
auka trúverðugleika á forystu Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði."
Sérframboð
ekki útilokað
Jóhann og Ellert Borgar Þorvaldsson, tveir
af fjómm bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins,
hafa undanfarin misseri verið í meirihlutasam-
starfi við Alþýðuflokkinn í Hafnarfirði. Spurður
hvort sérframboð kæmi til greina sagði Jóhann
það ekki útilokað en engin ákvörðun hefði ver-
ið tekin um það ennþá. „Það er nógur tími til
kosninga og það verður bara að koma í ljós,“
sagði Jóhann.
Nöfn frambjóðenda
opinberuð eftir helgi
Ekki fengust gefnar upplýsingar um þá sem
gefa kost á sér í prófkjörinu í gærkvöldi eftir
að framboðsfrestur rann út og verða upplýs-
ingar þar um ekki gefnar fyrr en eftir aðalfund
fulltrúaráðsins á mánudaginn kemur, sam-
kvæmt upplýsingum kjömefndar.