Morgunblaðið - 30.10.1997, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þrír
slasast í
árekstri
ÞRENNT slasaðist í allhörð-
um árekstri tveggja bíla við
brúna á Skaftafellsá í Öræfum
í gærmorgun. Var fólkið flutt
með sjúkrabfl til Reykjavíkur.
Áreksturinn varð við ein-
breiða brú yfir Skaftafellsá um
klukkan 11 í gærmorgun. Að
sögn lögreglunnar á Höfn í
Homafirði slösuðust þrír í öðr-
um bílnum en enginn í hinum.
Alvarlegustu meiðslin hlaut
kona sem lærbrotnaði. Voru öll
þrjú flutt í sjúkrabíl til Reykja-
vikur.
Reykjavíkur, sem stofnað var að
frumkvæði iðnaðarmanna árið
1897.
Iðnó endurbyggt
Eftir að Leikfélag Reylqavíkur
flutti starfsemi sína úr Iðnó árið
1986 varð mikil óvissa um framtíð
hússins, en árið 1992 fór svo að
verkalýðsfélögin Dagsbrún, Fram-
sókn og Sjómannafélag Reykjavík-
ur leystu til sm húsið frá Alþýðu-
húsinu hf., sem hafði átt það frá
1940, og gerðu samning við
Reykjavíkurborg um að borgin
legði fram fé til viðgerðar gegn að
hámarki 55% eignarhlut.
Framkvæmdir að endurbygg-
ingu hússins hófust árið 1993 og
það endurgert að utan. Eftir þann
áfanga lágu framkvæmdir niðri
um tíma en hófust aftur á þessu
ári er borgaryfirvöld ákváðu að
endurbygging hússins að innan-
verðu skyldi haldið áfram.
. ... Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ÞORSTEINN Pálsson og Ingibjörg Rafnar ásamt Steinþóri Gestssyni frá Hæli, fyrrverandi alþingismanni.
Sjávarútvegsráðherra fimmtugur
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra átti fimmtugsafmæii
í gær, miðvikudagimi 29. október.
Hann hélt afmælisdaginn hátíðleg-
an ásamt fjölskyldu sinni, í sumar-
bústað fiölskyldunnar að Fiúðum í
Hrunamannahreppi.
Ráðherrann og fjölskylda ætluðu
reyndar að halda daginn hátíðleg-
an í kyrrþey og iáta lítið fyrir sér
fara, en sunnlenskir sjálfstæðis-
menn létu slík áfonn sem vind um
eyru þjóta og tóku hús á Þorsteini
snemma í gærmorgun og komu
færandi hendi. Þeir færðu Þor-
steini forláta stuðlabergsstein m
áletruðum skildi. Samkvæmt
fregnum að austan var gestkvær
lijá þeim Þorsteini og Ingibjörgu
Rafnar, eiginkonu hans, langt fr
eftir kvöidi.
Borgarstjóri um fjárhagsvanda Sjúkrahúss Reykjavíkur
Ráðherra vissi um rekstrarhalla
þrátt fyrir aukna fjárveitingu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að Friðriki Soph-
ussyni fjármálaráðherra hafi verið
það ljóst þegar skrifað var undir
samkomulag um þá þjónustu sem
Sjúkrahúsi Reykjavíkur er ætlað að
veita að halli yrði á rekstri sjúkra-
húsanna i Reykjavík þrátt fyrir
aukna fjárveitingu. „Hann vissi að
það vantaði 150 milljónir eftir að bú-
ið var að skrifa undir samninginn og
hann veit líka að þessar fjárhæðir á
fjárlögunum duga hvergi til þess að
standa undir þeirri þjónustu sem
ríkið ætlar þessum spítölum að
veita,“ sagði borgarstjóri.
Fjármálaráðherra sagði í frétt í
Morgunblaðinu í gær að þrátt fyrir
að Sjúkrahús Reykjavíkur hefði
gert eigin rekstraráætlun og ríkið
komið til móts við þær áætlanir að
fullu kæmi nú fram að 150 milljónir
vantaði í reksturinn á þessu ári.
„Fjármálaráðherra var það ljóst
þegar skrifað var undir samkomu-
lagið og um það fór fram mikil um-
ræða milli mín og hans og heilbrigð-
isráðherra að þrátt fyrir þessar fjár-
veitingar til Sjúkrahúss Reykjavík-
ur og Landspítalans væri fyrirséð að
halli yrði á rekstri þeirra á árinu,“
sagði borgarstjóri. „Þetta á ekki að
koma honum á óvart.“
Borgarstjóri sagði að í minnisblaði
þriggja manna nefndar þeirra Magn-
úsar Péturssonar, ráðuneytisstjóra
fjármálaráðuneytisins, Kristjáns Er-
lendssonar, skrifstofustjóra heil-
brigðisráðuneytisins, og Hjörleifs B.
Kvaran, borgarlögmanns, til borgar-
stjóra, fjármála- og heilbrigðisráð-
herra, kæmi fram að ekki væri búið
að komast fyrir fjárhagsvanda spít-
alanna þrátt fyrir framlög ríkisins.
Borgarstjóri sagði að vegna þeirr-
ar umræðu sem fram hefði farið í
borgarráði um fjárhagsvandann
hefði hún ákveðið að leggja minnis-
blaðið fram í borgarráði. „Eg gerði
það vegna þess að í samkomulaginu
var setning á þá leið að eigendur og
stjórnendur spítalans ættu að bera
ábyrgð á hallanum sem eftir stæði,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
„Ég neitaði að skrifa undir sam-
komulagið með þessari setningu
inni. Það er fjármálaráðherra alveg
ljóst því við stóðum í miklu þrefi
þegar verið var að ganga frá sam-
komulaginu. Sú setning var tekin út
úr textanum en hún rataði síðan inn
í fjárlagafrumvarpið. Þannig að mér
finnst verið komið aftan að manni.
Fjármálaráðherra veit líka, að
þriggja manna nefndin sér ekki
ENDURGERÐ veitingasalarins á annarri hæð er iangt komin. Búið er að pússa
upp skrautlista á loftinu eins og glöggt má sjá.
Morgunblaðið/Þorkell
UNNIÐ á loftinu yfir áhorfendasalnum.
Að sögn Þórarins Magnússonar
verður lokið við að gera upp kjall-
ara, jarðhæð og veitingasal á
annarri hæð í desember nk., en í
mars á næsta ári er áætiað að búið
verði að taka allt húsið í gegn
nema risið. Það á að klára f apríl
nk.
Borgaryfirvöld ákváðu að færa
húsið í sem upprunalegast horf, en
samkvæmt því verður aðalinn-
gangur hússins við vesturenda
þess. I austurálmu er verið að gera
upp Ieiksviðið og kjaUarann þar
undir, en f miðbyggingunni verður
áhorfendasalurinn eins og áður og
samsfða honum eldhúsið. Endur-
gerð veitingasalarins og setustofu
á annarri hæð er langt komin.
Brjóstpanill meðfram veggjum
hefur verið pússaður upp og það
sama á við um skrautloftið.
Endurbygging
Iðnó að mestu
lokið í desember
Endurbygging Iðnó gengur samkvæmt
áætlun, að sögn Þórarins Magnússonar
formanns endurbyggingarnefndar Iðnó, en
stefnt er að því að stórum hluta fram-
kvæmdanna verði lokið í desember. Arna
Schram leit við í Iðnó í gær í fylgd Páls V.
Bjarnasonar arkitekts.
IÐNÓ eða Iðnaðarmannahúsið eins
og það upphaflega var kallað var
reist fyrir tilstuðlan Iðnaðar-
mannafélags Reykjavíkur árið
1897 og átti það m.a. að hýsa sam-
komur félagsins. Iðnaðarmannafé-
lagið hafði fengið útmælda lóð í
Tjörninni árið 1893 og þremur ár-
um sfðar hófst bygging hússins á
uppfyllingu sem gerð hafði verið
út í norðurenda Tjarnarinnar.
Fram kemur í byggingasögu
Reylqavíkur í ritstjórn Hjörleifs
Stefánssonar að húsið hafi verið
reist eftir teikningum Einars Páls-
sonar trésmíðameistara, sem
einnig var yfirsmiður hússins.
Iðnó er gert úr þremur hlutum;
miðhús sem snýr mæni í austur og
vestur og hús við báða enda þess
er snúa göflum í norður og suður.
Það er tvflyft grindarhús og hefur
ávallt verið jámklætt með járn-
þaki. Undir austurálmunni er
kjallari og þar fyrir ofan var gert
leiksvið og aðstaða fyrir leikara,
en í miðbyggingunni áhorfendasal-
ur. í vestasta hluta hússins var
inngangur á neðri hæð en veit-
ingasalur á þeirri efri.
Lengi fram eftir öldinni var
Iðnó að mestu notað til dansleikja-
og samkomuhalds, en auk þess
hýsti það starfsemi Leikfélags