Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 7
FRÉTTIR
nstn.
RÆS TIVAGNAR
RÆSTIÁHÖLD
Arnarberg ehf.
Fossháls 27, DragháJsmegin
Sími 567 7557 • Fax 567 7559
Blasir við að
sameining verði rædd
Grétar segir að ef það væri verið
að stofna verkalýðshreyfingu í dag
myndi það ekki hvarfla að neinum að
skipta hópnum í tvö heildarsamtök,
þ.e. í BSRB og ASI, vegna þess að
aðilar að þeim samtökum störfuðu
jafnvel á sömu vinnustöðunum með
mjög svipuð kjör. „Auk þess eru
fímm til sex þúsund félagar í Alþýðu-
sambandinu sem vinna hjá sveitarfé-
lögum og ríki.“ Grétar segir það
blasa við að það verði látið reyna á
viðræður um sameiningu þó hanr
vilji ekki spá neinu um niðurstöður.
Jens Andrésson segist sammáh
því að það eigi að vinna að samein
ingu ASÍ og BSRB og vísar m.a. í til
lögu þings BSRB frá því í apríl sl
þar sem hvatt er til þess að samtöl
launafólks í landinu endurmeti skipu
lagsform sitt frá gi'unni með það fyr
ir augum að efla og bæta samstöði
sína. Þingið beindi því einnig ti
stjómar BSRB að taka þegar í staí
upp viðræður við önnur samtöi
launafólks með það að markmiði a<
Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ
Sameining ASI og
BSRB líklega rædd
formlega í vetur
GRÉTAR Þorsteinsson forseti ASÍ
segir að sameining ASI og BSRB
hafi borið á góma innan Alþýðusam-
bandsins án þess þó að formleg
ákvörðun um að óska eftir viðræðum
hafi verið tekin. Aðspui’ður hvort
slík ákvörðun sé á döfinni segist
Grétar alveg eins eiga von á því að
fulltrúar samtakanna eigi eftir að
ræða málið með formlegum hætti á
þessum vetri.
Ekki náðist tal af Ögmundi
Jónassyni formanni BSRB, en Jens
Andrésson, 2. varaformaður BSRB,
tekur í svipaðan streng og Grétar og
telur einsýnt að sameining ASI og
BSRB verði formlega rædd-á næsta
ári.
Hann benti ennfremur á að for-
maður BSRB hefði talað í þessa veru
á þingi ASÍ fyrir um tveimur árum og
að forystumenn opinberra staifs-
manna væru að gera sér betur og bet-
ur grein fyrir því að þetta væri það
sem koma skyldi og það fyrr en síðar.
Ástráður Haraldsson, lögmaður
ASI, sagði í samtah við Morgunblaðið
um heigina að það væri engin skyn-
samleg ástæða lengur til að láta fé-
lagsaðild að verkalýðsfélögum ráðast
af því hvort fólk starfaði hjá ríkinu
eða einkaaðilum og að þessi skipting
heildarsamtakanna í ASI og BSRB
væri að hans áliti tímaskekkja.
Grétar segir aðspurður um þessi
ummæli Astráðs að það væri nú einu
sinni staðreynd að þessum samtök-
um væri skipt með þessum hætti í
dag hvort sem mönnum sýndist það
tímaskekkja eða ekki. „Ég er hins
vegar þeirrar skoðunar að það sé
ágengt viðfangsefni fyrir bæði þessi
samtök að setjast yfir hvort ekki sé
grundvöllur til þess að starfa miklu
þéttar saman eða sameinast. Menn
hafa ekki sest formlega yfir þetta
enn þá en raddir um að það verði
gert heyrast í báðum samtökunum,"
segir Grétar.
boða til sameiginlegs þings þar sem
fjallað yrði um það hvernig launafólk
gæti orðið samstíga til framtíðar.
Jens getur þess ennfremur að ASI
og BSRB séu í mjög góðu samstarfi
á vettvangi neytendasamtakanna og
telur að eftir því sem umræðan um
samstarf bæði þróist og þroskist
verði sameining augljósari kostur í
stöðunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Góður
hagnaður
ÞESSIR tveir ungu sölumenn
voru búnir að leggja undir sig
heilan bekk við Dunhaga í
Reykjavík þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins átti leið fram-
hjá á dögunum. Drengirnir,
Sarot og Steinar Atli, voru
ánægðir með söluna og sögðust
hafa grætt þá þegar heilar 150
krónur. Ekki fylgdi sögunni
hvort þeir hygðust leggja fyrir
sig sölumennsku þegar þeir
væru orðnir stórir en óneitan-
lega bera þeir sig fagmannlega
að.
Mitsubishi Carisma er bíll fyrir fólk sem kann að njóta
lífsins. Fágaður og rennilegur sinnir hann þörfum þínum
fyrirrými, hagkvæmni, þægindi og öryggi um leið og hann
uppfylliróskirþínarum mikla orku og góða aksturseiginleika.
60
WWM
Þegar kalt er uti, varar
útiloftshitavísirinn þig við
kuldanum og hálkunni.
INVECS-II. Skynvædd
sjálfskipting. Skiptingin er
mýkri en ívenjulegum
sjálfskiptingum.
NýirSRS hliðarloftpúðar sem
fyllast lofti við hliðarárekstur
og hreyfast með
framsætunum.
Hemlalæsivöm (ABS).
Þriggja rása stjómbúnaður
sérumað hjólin læsast aldrei
föst þegar hemlað er.
Loftpúðar og bílbelti með
forstrekkingu fyrirökumann
og farþega frammi.
)NNUN: RÚNA B5742 •LJÓSMYNDUN: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON OG ARIMAGG