Morgunblaðið - 30.10.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Ung’ir nemendur fá
viðurkenningar
Akranesi - Tveir nemendur í
Grundaskóla á Akranesi, þeir Ey-
þór Friðriksson og Bjarki Þór Guð-
mundsson, sigruðu í hjóireiða-
keppni grunnskólanna sem haldin
var í Reykjavík nú á haustdögum.
Keppni þessi er á vegum Umferð-
arráðs og er einn þáttur í fjöl-
breyttu fræðslustarfi þess með
nemendum grunnskólanna.
Keppni þessi er haldin árlega
meðal 8. bekkjar grunnskólabarna
og er börnunum í upphafi sent
bréf með spurningum um umferð-
armál sem þau eiga að svara. Hlut-
skörpustu nemendurnir í hveijum
skóla taka síðan þátt í hjólreiða-
keppni í sínu kjördæmi og þeir
tveir sem sigra þar halda áfram í
úrslitakeppni sem fram fer í
Reykjavík.
Að þessu sinni voru þeir Eyþór
og Bjarki sigurvegarar á Vestur-
landi og síðan einnig í landskeppn-
inni. Á dögunum voru þeim afhent-
ar viðurkenningar í tilefni af sigr-
inum heima á Akranesi. Þar var
lögreglan á Akranesi, ásamt Vá-
tryggingafélagi íslands hf., sem
færði þeim bókagjafír og Akranes-
deild Rauða krossins sem afhenti
þeim hjólreiðahjálma að viðstödd-
um bekkjarsystkinum þeirra svo
og skólastjóra og kennurum
Grundaskóla. Þeir Pétur Jóhannes-
son lögreglumaður og Gísli Björns-
son, formaður Rauða kross deildar-
innar, afhentu gjafirnar um leið
og þeir vildu leggja áherslu á gildi
þeirrar umferðarfræðslu sem fram
fer i skólunum og þátttöku skóla-
barna í leik og starfi á því sviði.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
TVEIR nemendur í Grundaskóla á Akranesi, þeir Eyþór Frið-
riksson og Bjarki Þór Guðmundsson, sigruðu í hjólreiðakeppni
grunnskólanna.
69.900,-
• 43 db (re 1 pw)
• Turbo þurrkun
• Hurðar bremsa
• Sjálfvirk vatns-
skömmtun
• Vatnsöryggiskerfi
Uppþvottavél á mynd 8180
Verfc 124.714,-
Þýskt vörumerki
þýskt hugvit
þýsk framleiðsla
ara
Umboðsmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir,
Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúð.Búðardal. Vestfiröir: Geirseyrarbúöin.Patreksfiröi.
Rafverk.Bolungarvík. Straumur.ísafirði.Norðurland: Kf.Steingrfmsfjaröar.Hólmavik. Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA.Dalvík.
KEA, Siglufiröi. KEA, Ólafsfiröi. Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urð, Raufarhöfn.Lóniö, Þórshöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupstaö.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn. Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk.
AEG
Uppþvottavelan
Eruþærtil
hlioölatari?
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ÞÓRHALLUR Kristinsson ásamt föður sínum, Kristni Þórhallssyni, sem sér nú á eftir bátnum
til sona sinna í Svíþjóð.
Eikarbáturinn Gísli lóðs seldur til Svíþjóðar
Gerður út á sjóstanga-
veiðar á Eyrarsundi
EIKARBÁTNUM Gísla lóðs úr
Grindavík verður á næstunni siglt
til Svíþjóðar þaðan sem hann verð-
ur gerður út til sjóstangaveiða í
Eyrarsundi og í Kattegat af fyrir-
tæki í eigu Islendinga.
Bræðurnir Þórhallur Kristinsson
og Guðmundur Kristinsson hafa
stundað útgerð af þessu tagi frá
bænum Raa í grennd við Helsing-
borg um nokkurra ára skeið og
hafa keypt Gísla lóðs til þess að
anna aukinni eftirspurn og hefur
báturinn fengið nafnið Islandia.
Nú er unnið að lagfæringum á
Gísla lóðs í Grindavíkurhöfn. Eftir
siglinguna til Svíþjóðar verður
skipið tekið til gagngerra endur-
bóta.
Þórhallur Kristinsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að fyrir
rækju þeir bræður 80 tonna eikar-
bát sem tekur allt upp í 50 farþega
til sjóstangaveiða. Hugmyndin er
að um 60 manns geti farið til sjó-
stangaveiða á endurbættum Gísla
lóðs.
Veiða þorsk og síld á stöng
„Það aflast alveg þokkalega í
Eyrarsundinu og það hefur verið
að aukast frekar en hitt. Við höfum
verið að fá tegundir eins og ýsu
og ufsa sem hurfu úr sundinu
vegna mengunar fyrir nokkrum
áratugum en eru að snúa aftur,“
sagði Þórhallur. „Aðallega erum
við samt að fá þorsk og síld. Síld-
in tekur á stöng ef maður notar
slóða með fímm smákrókum."
Allt sumarið sigla þeir bræður
þtjár ferðir á dag, alla daga vik-
unnar, með veiðimenn. Yfirleitt eru
þeir tveir í áhöfn en með 1-2 að-
stoðarmenn yfir háannatímann.
Yfir veturinn er farin ein ferð alla
daga nema mánudaga. Þórhallur
segir að sjóstangaveiði og sigling-
arnar séu vinsælar, bæði hjá al-
menningi og í starfsmannaferðum.
Ekki síst hafi gamlir eikarbátar
aðdráttarafl fyrir fólk. Aðallega
eru farnar styttri ferðir á Eyrar-
sund en einnig er nokkuð um lengri
ferðir vestur í Kattegat.
Báturinn sem þeir bræður eiga
fyrir er eikarbátur smíðaður 1934.
Áuk þess hafa þeir þriðja bátinn í
skemmtisiglingum út í eyjuna Ven
á Eyrarsundi en sá er smíðaður
fyrir aldamót; gömul skúta sem
mótor var settur í.
Gísli lóðs var smíðaður í Dan-
mörku 1961. Þetta er 100 tonna
eikarbátur, sem hefði verið sökkt
úti á rúmsjó vegna laga um úreld-
ingu hefðu Þórhallur og Guðmund-
ur ekki keypt hann af föður sínum
til að flytja úr landi.
Náttúrustofa Suðurlands
opnuð í Eyjum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, klippir á borða
til merkis um að Náttúrustofa Suðurlands sé formlega opnuð.
Vestmannaeyjum - Náttúrustofa
Suðurlands var formlega opnuð í
Vestmannaeyjum fyrir skömmu.
Dr. Ármann Jakobsson hefur verið
ráðinn fortstöðumaður Náttúru-
stofunnar en hún verður til húsa
í húsnæði Rannsóknarseturs Há-
skóla íslands.
í tengslum við opnun Náttúru-
stofunnar var efnt til námsstefnu
í Eyjum, fyrir sveitarstjórnarmenn
á Suðurlandi, um breyttar áherslur
í umhverfismálum. Tilgangur
námsstefnunnar var að færa heim
í hérað upplýsingar um þær miklu
breytingar sem orðið hafa á um-
hverfislöggjöf íslendinga.
Fjölmenni var viðstatt er
Náttúrstofan var formlega opnuð
og voru þingmenn og ráðherrar í
þeim hópi. I fjarveru Guðmundar
Bjarnasonar, umhverfisráðherra,
klippti Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, á borða við inn-
gang í húsnæði Náttúrustofunnar
til merkis um að stofan væri form-
lega tekin til starfa.
i
I
l
I
>
I
I
\
\
\