Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sex Bosníu-
Króatar myrtir
Eykur
spennu milli
Króata og
múslima
Sarajevo. Reuters.
MIKIL spenna er nú í Bosníu í
kjölfar morða á sex Bosníu-
Króötum á skömmum tíma.
Samband múslima og Króata
hefur verið afar stirt og þykir
sambandsríki þeirra nú standa
enn ótryggari fótum auk þess
sem áætlunum um endurkomu
flóttamanna er stefnt í voða en
morðin virðast tengjast þeim
áætlunum.
Fyrr í vikunni var þrítugur
Bosníu-Króati skotinn við bæ-
inn Travnik í Bosníu en faðir
hans og bróðir særðust. At-
burðurinn varð í sömu götu og
tveir Króatar voru skotnir í
fyrir þremur mánuðum. Þrír
menn hafa verið myrtir til við-
bótar og öll hafa morðin verið
framin skömmu eftir að emb-
ættismenn Króata og múslima
hafa náð samkomulagi um að
hópi flóttamanna sé heimilt að
snúa heim.
Lögreglu hefur ekki tekist
að upplýsa þau en talsmenn
hennar sögðu að talið væri lík-
legast að harðlínumenn, sem
væru andvígir sambandsríki
múslima og Króata, stæðu að
baki morðunum.
Menn úr alþjóðlegu lög-
regluliði sem sent var til Bosn-
íu í kjölfar Dayton-friðarsam-
komulagsins, segja að burtséð
frá því hverjir hafi framið
morðin, þá hafi þau beinar og
alvarlegar pólitískar afleiðing-
ar.
Gæsluliðar teknir
fyrir smygl
Sjö hermenn úr alþjóðlega
gæsluliðinu í Bosníu, SFOR,
eru nú í varðhaldi eftir að upp
komst um smygl á áfengi og
sígarettum. Mennimir eru frá
Ukraínu, einn er liðsforingi og
annar lagalegur ráðgjafi.
Kínastjórn segir Vesturlandabúa skorta skilning á kínverskum veruleika
Kínverskir ráðamenn segja
ágreining óhjákvæmilegan
Reuters
FYLGJENDUR sjálfstæðishreyfingar Tævan brenna kínverska fánann í höfuðborginni,
Taipei, þegar forseti Kína átti fund með forseta Bandaríkjanna. Kínverjar líta svo á að
Tævan sé hluti af Kína, en margir íbúa eyjarinnar vilja lýsa hana sjálfstætt lýðveldi.
Washington, Peking. Reuters.
KÍNVERSKIR ráðamenn
væntu þess ekki að fundur
forseta þeirra, Jiangs Zem-
ins og bandaríska starfsbróð-
ur hans, Bills Clintons,
myndi lægja allar öldur í
samskiptum ríkjanna. Fund-
urinn, sem haldinn vár í
Washington í gær, var sá
fyrsti milli leiðtoga þessara
landa í átta ár, en áður en
hann hófst sagði talsmaður
kínverskra stjómvalda að
deilur ríkjanna yrðu ekki út-
kljáðar á svipstundu.
Talsmaðm- kínverska ut-
anríkisráðuneytisins, Shen
Guofang, tjáði fréttamönnum
að ágreiningur væri óhjá-
kvæmlegur vegna menning-
arlegs, sögulegs og þjóðfé-
lagslegs mismunar, en þetta
ætti þó ekki að þurfa að
hindra að tvíhliða samskipt-
um verði komið á.
Shen sagði að Kína væri
ekki fullkomið og gæti margt
lært af Bandaríkjunum en
bandarískum stjórnvöldum
bæri engu að síður að reyna að sýna
kínverskum stjórnvöldum skilning
og virðingu. „Við viðurkennum það
að Bandaríkin eru þróað ríki að
mörgu leyti, og af sumu getum við
dregið lærdóma. En það em líka
margar hliðar á Kína sem kæmi sér
vel fyrir Bandaríkin að kynnast og
læra af.“
Bandarísk stjórnvöld hafa heitið
því að beita Kínverja þrýstingi
vegna mannréttindamála, en vilja
einnig koma á jafnvægi í samskipt-
um ríkjanna. Utlægir, kínverskir
andófsmenn hafa hvatt Clinton til
að krefjast þess að Wei Jingsheng,
einn þekktasti pólitíski fanginn í
Kína, og Wang Dan, námsmaður
sem fór fyrir mótmælaaðgerðunum
1989, verði látnir lausir. Wei var
dæmdur í 14 ára fangelsi 1995 og
Wang í 11 ára fangelsi í fýrra.
Shen vildi ekkert segja um þann
útbreidda orðróm að Kína myndi
láta Wei lausan til þess að friðþægja
Bandaríkjunum. Kínverjar bera af
sér alþjóðlega gagnrýni á mannrétt-
indamál í landinu og segja hana
vera afskipti af innanríkismálum.
Shen gerði lítið úr mótmælum gegn
Kína sem hafa verið höfð í frammi
þar sem Jiang forseti hefur farið frá
því heimsókn hans hófst í Honolulu,
og sagði þá, sem hafa haft mótmæli
í frammi, vera illa upplýsta.
„Ég held að þetta fólk skilji fæst
stöðu Kína sérlega vel. Sumir sam-
starfsmanna minna spurðu það
hvort það hefði komið til Kína og
það sagði nei, þeir spurðu hvort það
vissi hvar Tíbet væri og það sagði
nei,“ sagði Shen.
Nokkur hundruð stuðningsmenn
sjálfstæðishreyfingar Tíbets efndu
til friðsamlegra mótmælaaðgerða
við kínverska sendiráðið í Wash-
ington á þriðjudag og kröfðust
frelsis fyrir Tíbet nú þegar. Kín-
verjar halda því fram að þeir hafi
aukið lífsgæði í Tíbet verulega frá
því andlegur leiðtogi þess, Dalai
Lama, fór í útlegð til Indlands 1959
í kjölfar misheppnaðrar uppreisnar
gegn yfirráðum kommúnista.
Sjónum beint að Tíbet
Vestrænir mannréttindahópar
saka Kínverja um að reyna að
brjóta á bak aftur tíbetska trú og
menningu. Segja fulltrúar þeirra að
margir tíbetskir munkar hafi verið
hnepptir í varðhald og pyntaðir fyr-
ir að hafa veitt Dalai Lama stuðn-
ing. Shen sagði að ný, bandarísk
kvikmynd leikarans Richards Ger-
es, sem hefur lýst stuðningi sínum
við frelsishreyfingu Tíbeta,
myndi ekki hljóta neinn
hljómgrunn í Kína.
Kínverska fréttastofan
Xinhua hafði nýverið eftir
áströlskum námsmanni í Tíb-
et að lífsgæði ykjust þar dag
frá degi og að honum hafi
komið á óvart hversu margir
bílar, bæði kínverskir og er-
lendir, væru á götum Lhasa,
höfuðborgar Tíbets.
Bandaríski öldungadeild-
arþingmaðurinn Jesse
Helms átti fund með
nokkrum kínverskum og tíb-
etskum andófsmönnum á
þriðjudag. Eftir fundinn
sagðist Helms vonast til að
geta vakið máls á mannrétt-
indamálum í Kína á meðan
heimsókn Jiangs stendur.
Helms sat í gærkvöldi máls-
verð í Hvíta húsinu og í dag
snæðir hann morgunverð
með kínverska forsetanum,
sem leiðtogar á bandaríska
þinginu bjóða til.
Meðal þein-a sem funduðu
með Helms á þriðjudag var Harry
Wu, kínverskur andófsmaður sem
sat í 19 ár í Laogai-fangelsinu.
Hvatti hann þingmenn til að krefj-
ast þess af Jiang að fangabúðunum
verði lokað og hætt verði að selja
líffæri úr föngum sem séu teknir af
lífi.
Gagnrýni á Kína á Bandaríkja-
þingi undanfama daga hefur að
mestu beinst að meintum mannrétt-
indabrotum, en leiðtogi repúblíkana
í öldungadeildinni, Trent Lott, tók
fram að fleira ylli þingheimi áhyggj-
um af Kína. Þar á meðal væri óhag-
stæður viðskiptajöfnuður, fjölgun
kjarnorkuvopna, viðskiptavenjur og
trúarofsóknir.
„Ég skil andstöðuna," sagði Lott
á fréttamannafundi. „En ég held
líka að leiðin til að eiga við þetta sé
ekki sú að einangra þá.“
Reuters
TEKIÐ var á móti Karli Bretaprinsi með viðhöfn á Matshapha-flug-
velli í Swazilandi í gær.
Karl Bretaprins
þakkar samúðina
KARL Bretaprins hóf í gær fyrstu
opinberu heimsókn sína til útlanda
frá því að fyrrverandi eiginkona
hans, Díana prinsessa, lést. Við
komuna til Swazilands þakkaði
hann þá samúð sem umheimurinn
hefði sýnt sér og fjölskyldu sinni
vegna hins sviplega fráfalls henn-
ar.
Með Karli í för er sonur hans og
Díönu, Harry, en hann var ekki
viðstaddur móttökuathöfnina.
Báðu blaðafulltrúar prinsins fjöl-
miðla um að hlífa honum og faðir
hans brosti út í annað er hann
sagði að líklega væri hin há-
timbraða móttökuathöfn „ekkert
fyrir lítinn dreng“. Sagði Karl að
Harry liði ágætlega og að hann
myndi koma fram opinberlega í
Suður-Afríku á laugardag, er hann
fer á góðgerðartónleika með
Kryddpíunum og hittir þær bak-
sviðs að þeim loknum.
Ferð Karls stendur í átta daga
og ferðast hann um suðurhluta
Afríku. f gær hitti hann Mswati
III, konung Swazilands. Mótmæli,
sem standa átti fyrir í tilefni komu
prinsins, voru bönnuð.
Clarke vill þverpólitíska
baráttu fyrir EMU-aðild
London. The Daily Telegraph.
KENNETH Clarke, fyi-rverandi fjármálaráðherra
Ihaldsflokksins, hvatti í gær Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, til að efna til þverpólitískrar baráttu í
því skyni að tryggja stuðning kjós-
enda við aðild Bretlands að Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu
(EMU). Clarke vill efna til at-
kvæðagreiðslu um EMU-aðild þeg-
ar á þessu kjörtímabili, en ekki á
því næsta eins og Gordon Brown,
núverandi fjár-
málaráðherra,
hefur lýst yfir að
verði gert.
í grein í The Daily Telegraph
segir Clarke að ríkisstjóm Verka-
mannaflokksins kunni að þurfa að
taka ákvörðun um þátttöku í EMU
fyrr en margir búist við. Hann segir
að stjómin eigi sigur vísan í þjóðaratkvæðagreiðslu ef
hún leiti stuðnings í öðram flokkum og hjá samtökum
vinnumarkaðarins og fjármálageiranum.
Þvert á stefnu Hagues
Með þessu gefur Clarke sterklega í skyn að hann
muni beita sér fyrir EMU-aðild, komi til þjóðarat-
kvæðagreiðslu, og ganga þannig þvert á stefnu leiðtoga
íhaldsflokksins, Williams Hague. Hague vill útiloka að-
ild að myntbandalaginu á þessu kjörtímabili og berjast
gegn henni í næstu kosningum.
Clarke, sem tókst á við Hague um leiðtogaembættið
í íhaldsflokknum síðastliðið sumar, er einn vinsælasti
forystumaður flokksins. Fréttaskýrendur telja að hann
gæti endurtekið leik Roys Jenkins, fyrrverandi fjár-
málaráðherra úr röðum Verkamannaflokksins, sem
andæfði stefnu flokks síns og hafði forystu um að 69
þingmenn Verkamannaflokksins studdu aðild Bret-
lands að Efnahagsbandalaginu í upphafi áttunda ára-
tugarins.
Hague hefur heitið því að þingmenn íhaldsflokksins
verði ekki beittir flokksaga, komi til atkvæðagreiðslu í
þinginu um EMU. Hins vegar er talið að afstaða Clark-
es muni gera að engu viðleitni Hagues til að breiða yfir
klofning flokksins í Evrópumálunum, þegar nær dreg-
ur næstu kosningum.
Tækifærið gæti komið fyrr
en menn búast við
í grein sinni segir Clarke að
stefna Gordons Brown, núverandi
fjármálaráðherra, um að fresta
ákvörðun um þátttöku í EMU fram
á næsta kjörtímabil, sé pólitískt
klúður. Brown og Tony Blair séu
gi-einilega komnir í vörn og uppteknir af því að stýra
umfjöllun fjölmiðlanna, í stað þess að vanda sig við að
taka ákvarðanir.
Clarke segist sammála því að Bretland eigi ekki að
ganga í myntbandalagið strax í ársbyrjun 1999 og eigi
að bíða þar til efnahagslífið hefur náð svipaðri stöðu og
á meginlandinu. Hann skrifar hins vegar: „Enginn veit
nákvæmlega hvenær tækifærið mun koma, en það gæti
orðið fyrr en margir brezkir stjórnmálamenn búast
við.“
Paddy Ashdown, leiðtogi flokks frjálslyndra
demókrata, gaf í fyrradag í skyn að hann myndi styðja
þverpólitískt átak til að fá EMU-aðild samþykkta í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann bergmálaði spádóma
Clarkes og sagði að ríkisstjórnin kynni að neyðast til
að taka ákvörðun um EMU-aðild fyi'ir árið