Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 25
Starfsárið hafið hjá
íslenska dansflokknum
Kylián o g
Ulrich meðal
danshöfunda
FRÁ æfingu á Trúlofun í St. Dómíngó.
ÍSLENSKI dansflokk-
urinn hefur tuttugasta
og fimmta starfsár sitt
með frumsýningu á
verkinu Trúlofun í St.
Dómíngó eftir danshöf-
undinn Jochen Ulrich
7. og 9. nóvember á
stóra sviði Borgarleik-
hússins. Frumsýning-
arnar verða tvær þar
sem tveir hópar dans-
ara skipta með sér
verkum í uppfærslunni.
Verk Ulrichs er
byggt á sögu Heinrichs
von Kleist, Trúlofun í
St. Dómíngó. Heinrich
von Kleist er einn ást-
sælasti höfundur Þjóð-
verja og eitt mest
leikna leikskáld þeirra.
Trúlofun í St. Dómíngó
er etgi að síður fyrsta
verkið sem sett er upp
eftir von Kleist í ís-
lensku atvinnuleikhúsi.
Jochen Ulrich er list-
rænn stjórnandi TANZ-
FORUM Jochen Ulrich
GmbH í Köln og er ís-
lenskum áhorfendum að
góðu kunnur en hann
er höfundur verkanna La Cabina 26
og Ein sem Islenski dansflokkurinn
sýndi í febrúar á þessu ári.
Annað verkefni vetrarins verður
frumsýnt í fyrstu vikunni í febrúar
1998 á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins, en það eru tvö dansverk eftir
Ed Wubbe, listrænan stjórnanda
Scapino dansflokksins í Rotterdam,
og eitt verk eftir Richard Wherlock
listrænan stjórnanda Luzern dans-
flokksins.
Ed Wubbe mun setja upp verkin
White Streams annars vegar og
Kate’s Gallery hins vegar. Verk
Richard Wherlock heitir Curver.
Geta má þess að upphaflega upp-
færslan af White Streams var sér-
staklega samin fyrir íslenska dans-
flokkinn undir nafninu Tvístígandi
sinnaskipti og hlaut dansflokkurinn
Menningarverðlaun DV fyrir þá
sýningu.
Þriðja verkefni starfsársins, sem
jafnframt er afmælissýning, verður
frumsýnt á Listahátið í Reykjavík
4. júní 1998, en íslenski dansflokk-
urinn á aldarfjórðungs afmæli 1.
mai 1998. Dansflokkurinn fær þá
til liðs við sig hinn kunna danshöf-
und Jiri Kylián, en dansflokkurinn
mun sýna verk hans, Stoolgame, á
Listahátíð. íslenski dansflokkurinn
á einnig í viðræðum við finnska
danshöfundinn Jorma Uotinen um
að fá verk eftir hann á móti verki
Jiri Kyliáns.
Jiri Kylián er listrænn stjórnandi
Nederlands danstheater í Haag.
Jorma Uotinen er listrænn stjórn-
andi óperuballettsins í Helsinki og
einn af virtustu danshöfundum
Norðurlanda. Þetta verkefni verður
frumsýnt á stóra sviði Borgarleik-
hússins.
íslenska dansflokknum hefur
verið boðið að sýna víðsvegar um
Evrópu á þessu leikári. Hann sýnir
27. júní 1998 á Heimssýningunni í
Lissabon, Expo ’98, en einnig hefur
dansflokkurinn fengið boð um að
fara í sýningarferðalag um Eystra-
saltslöndin á vormánuðum 1998.
Þá liggur fyrir boð um að sýna í
Gdansk í Póllandi á svipuðum tíma.
Stjórnendur dansflokksins hafa
ekki enn tekið ákvörðun um hvort
öll boð verða þegin og standa samn-
ingaviðræður yfir við ofangreinda
aðila. Dansflokkurinn mun enn-
fremur setja upp sýningu fyrir varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli 22. nóv-
ember 1997.
íslenski dansflokkurinn opnaði
vefsíðu sína 7. október sl. og er
slóðin http://www.id.is.
DIOR
INYTT
SNVRTIVÖRUVERSLUNIN
GLÆSÍÆ
568 5170
TEINT COMPACT LISSE
Kremaði púðurfarðinn
(kökumake) frá Christian Dior,
sem konur hafa beðið eftir,
er kominn.
Snyrtifræðingur veitir ráðgjöf
í dag og á morgun.
Keflavík í aldarbyrjun
BÆKUR
Sagnfrædi
SAGA KEFLAVÍKUR
1890-1920
Bjami Guðmarsson:
Reykjanesbær 1997,371 bls.
ÁRIÐ 1992 kom út Saga Kefla-
víkur 1766-1890 rituð af sama
höfundi. Nú, fimm árum síðar,
heldur sagan áfram og skilar henni
fram um þijátíu ár. Eins og segir
í inngangi höfundar að fyrsta bindi
náði sú bók yfir „gamla tímann“,
en þessi yfir „upphaf nútímans".
Er þá allur „nútíminn" eftir og hlýt-
ur hann að verða a.m.k. eitt vænt
bindi, þó að ekkert sé um það sagt
í formála höfundar. Þetta annað
bindi er einum 70 bls. lengra en
hið fyrra, þó að tímabilið sé næstum
ijórfalt styttra. En því veldur a.m.k.
tvennt. Heimildir eru nú miklum
mun fjölskrúðugri og frásagnar-
verðir atburðir efalaust miklu fleiri.
Eins og höfundur segir er oft
álitamál hvar eðlilegast e_r að setja
áfangaskil í söguritun. Árið 1890
- eða þar um bil - var valið vegna
þess að þá er Keflavík sem þétttbýl-
isstaður í raun og veru að verða
til. íbúar eru þá hátt á þriðja hundr-
aðinu og margvísleg starfsemi sem
einkennir þéttbýli er þá hvað óðast
að festa rætur. Árið 1920 losar
íbúafjöldinn 500. Atvinnuhættir
eru orðnir fjölbreyttari, samgöngur
eru komnar í annað og betra horf,
tímabili selstöðuverslana er lokið,
Keflvíkingar hafa eignast sína eig-
in kirkju og eru í sérstakri sókn.
Þeir eiga myndarlegt skólahús, eru
orðnir sérstakt sveitarfélag, Kefla-
víkurhreppur. Allt er
þannig undir það búið
að nútíminn geti haldið
innreið sína.
í sautján efnismikl-
um köflum rekur höf-
undur sögu _ þessara
þrjátíu ára. Ég hygg
að fátt hafi orðið út-
undan í frásögn hans.
Það liggur við að les-
andinn sé leiddur hús
úr húsi, götu úr götu
og fái tækifæri til að
hnýsast í mannlíf Kefl-
víkinga eins vel og
kostur er. Maður sér
hvernig þetta litla þorp
fetar sig áfram skref
fyrir skref, hvernig végarspottarnir
lengjast, við hvaða erfiðleika var
að glíma, stundum tregðu og skiln-
ingsleysi stjórnvalda, í önnur skipti
afturhaldssemi, fordóma eða ótta
eða áþján verslunarinnar.
Höfundur þessa mikla rits er
sagnfræðingur. Það leynir sér ekki.
Hann veit hvar hann á að leita
heimilda og hefur greinilega verið
ólatur við það. Hann kann einnig
vel að vinna úr heimildum, bera
þær á borð í glöggum yfirlitstöflum
eða nota þær sem uppistöðu i efnis-
mikla frásögn. Auðséð er einnig
að honum er efnið hugleikið og að
hann hefur lifað sig inn í það og
lifað með því. Starf hans hefur
greinilega verið meira en launuð
atvinna. Og þegar við þetta bætist
að höfundurinn er ágætavel ritfær,
skrifar léttan og lipran stíl, oft
kryddaðan notalegri gamansemi,
án þess nokkurn tíma að tapa jafn-
vægi, fer ekki hjá því að lesandinn
fær góða bók - eða bækur - í
hendur, eitthvert með hinum bestu
félagssögulegum
verkum á sviði
byggðasagna sem ég
hef séð. Ég vil fullyrða
að hér hafi valist rétt-
ur maður á réttan
stað. Má óska Keflvík-
ingum til hamingju
með það að ritun sögu
þeirra skuli vera í svo
góðum höndum.
Þetta er mikið rit,
hátt á fjórða hundrað
blaðsíður. Texti er
mikill því að leturflöt-
ur er stór. Myndir eru
margar, líklega hátt í
tvö hundruð. Lang-
flestar eru þær gamlar
eins og gefur að skilja. Talsvert
er af súluritum og öðru tölfræði-
legu efni og á stöku stað eru inn-
rammaðir textar.
í bókarlok eru miklar skrár.
Fyrst er e.k. „áfangaskrá" þar sem
taldir eru upp helstu áfangar þessa
þijátíu ára tímabils frá ári til árs.
Þá er myndaskrá, tilvísanskrá eftir
köflum, sundurliðuð heimildaskrá
og að lokum nafnaskrá.
Sjáanlegt er að hvert bindi er
hugsað sem sjálfstætt rit, þó að
auðvitað hljóti þau að tengjast með
ýmsum hætti. En það er hægt að
hafa fullt gagn af þessu bindi án
þess að hafa lesið það sem á undan
fór. Skynsamlegt er eflaust að hafa
þann hátt á.
Ég rakst aðeins á örfáar prent-
villur, en það er ekkert sem orð er
á gerandi í svo stóru riti.
Útlit er auðvitað hið sama í báð-
um bókunum og er frágangur
þeirra með ágætum.
Sigurjón Björnsson
Bjarni
Guðmarsson
'íslenskVramleiðsla
FRA 5.900 KR.
ÆOl K - FLISPEYSUR
Þykkurflís
F LIS O C ULPUR
Nylonstyrkt
efni - ripstop
PROTEX
Hetta,
áfestanleg
Vatnsheldm yfir
10000 mm
pr. sólarhring
Axlir ur
cordura
nylon
Vango
Jakki - vatns- og vindheldur
Protex 6000 —
: Tvofaldur
rennilás •
; fyrir flís
' Loftgat með
I rennilás
I
Einangraöur
kortavasi
Hitalimdir
saumar
2
MIKIÐ URVAL
ÞRIRI EINNI...
Vind- og
snjóhlíf
HÁGÆÐA FLI'K
MEÐ ÞVÍ BESTA
i HEIMINUM I DAG
Jakki
riis = uipa
r •
ICEBEfrG
k u I d a j a k k i
Utöndun efnis:
20 lítrar á m2
pr. sólarhring
Nýkominn sérlega
vandaður jakki úr
PROTEX10000 efni,
vatns- og vindheldur.
KR25.415 KYNNIN6ARVERÐ
ÁÐUR 29.900
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Sími 5 1 I 2200