Morgunblaðið - 30.10.1997, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
STÚLKA með slæðu, 1964-68, túss og krít. HIN heilaga fjölskykla, 1955, krít og túss.
Við brjóst gyðjnnnar
MYNPLIST
E n g 1 a li o r g
MÁLVERK/MYNDRISS
JÓNS ENGILBERTS
Opið daglega frá 14-18. Til 9. nóv-
ember. Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ er vel til fallið að efna til
sýningar á einu og öðru úr fórum
málarans Jóns Engilberts, er til
stendur að selja húsið, og afkom-
endur listamannsins, Birgitta, Gull-
dropinn og hennar fólk á förum.
Það hafa verið hengdar upp
myndir frá ýmsum tímum, aðallega
myndriss, á veggi og ganga vinnu-
rýmisins, aðskiljanlegustu gerðir af
teikningum, sem Jón setti iðulega lit
í eins og gengur og nefnist þá blönd-
uð tækni. Einnig eru þar hreinar
teikningar, þar á meðal nokkrar
sem hafa sennilega ekki verið sýnd-
ar áður, eins og tússmynd af Þor-
valdi Skúlasyni, svo og fyrirsætum
ásamt nokkrum rissum af munúðar-
fullum róðum, femme fatale. Þá er
þar frumteikning í fullri stærð af
stúlkunni í myndinni „Vorgleði" í
eigu Búnaðarbankans. Þannig átti
róðan unga að vera í myndinni, en
bankastjóm neitaði að taka við
skiliríinu nema málarinn klæddi
hana í kjól! Hvað þetta fólk sá
hneykslanlegt í blásaklausri nekt-
inni er mér hulið og gott að slíkir
voru ekki uppi á endurreisnartíma-
bilinu, né neinu tímabili seinna, er
Rembrandt, Rubens og Goya mál-
uðu sína yndisfögru kroppa. Þegar
slíkar sýningar eru settar upp telst
það viðburður hvarvetna, hvort
heldur listamaðurinn er lífs eða lið-
inn og nefna norrænir þetta
„raritet“, fágæti, og er réttnefni.
Iðulega slær innilegur púls á slík-
um framkvæmdum og slíkt kann
hinn almenni sýningargestur vel að
meta. Auðvitað geta menn ekki gert
sömu kröfu til slíkra sýninga og
hnitmiðaðra samantekta, en þær
upplýsa ýmislegt sem annars kemur
ekki fram, nálgunin stórum meiri.
Rýninum er enn í minni er þetta
hús reis og fólkið flutti í það. Var
sem hamar risi úr jörðu í nágrenni
þar sem áður voru mýrar og gróin
tún, anganvangur allt um kring.
Stórbúið Sunnuhvoll fyrir ofan og í
suðri bar hið reisulega býli Klambra
efst á hólnum við fjarlægðirnar, á
stóra túninu sem trúlega dró nafn
af því, en kargaþýfð Norðurmýrin
breiddi úr sér fyrir framan.
Það eru margar minningar
bundnar við ferstrendan hamarinn,
sem sett hefur svip sinn á götuna
allt frá því hann var byggður á
stríðsárunum. Teiknaður af Gunn-
laugi Halldórssyni arkitekt, sem
trúr hagnýtisstefnunni í húsagerð-
arlist, funkisstílnum, hannaði það
yzt sem innst með þarfir málara í
huga. Þarna hefur Jóni Engilberts
liðið vel og liðið illa við brjóst list-
gyðjunnar, en hlutskipti hans, eins
og flestra framsækinna íslenzkra
myndlistarmanna á þessum árum,
var að berjast með hnúum og hnef-
um fyrir lífi sínu. Mikilvægast var
þó að hann gat að mestu gengið að
verki án hliðarstarfa þótt Handíða-
og myndlistarskólinn nyti tíma-
bundið starfskrafta hans.
Um leið og ég vek sérstaka at-
hygli á þessari sýningu og einstæðu
tækifæri til að nálgast myndir lista-
mannsins í því umhverfi sem þær
JÓN Engilberts í ham á vinnu-
stofu sinni á árum áður.
flestar urðu til í, er mér mjög í mun
að koma nokkrum atriðum að.
Hús, sem reist eru sérstaklega
fyrir listamenn og á stundum með
styrkjum frá hinu opinbera, eiga
helzt að þjóna hlutverki sínu áfram
þegar sá er byggði það fellur frá og
fjölskyldan flytur burt. Um þetta
eru ósjaldan sérstök og mörkuð
ákvæði í samningum við borgaryfir-
völd, er veita listamönnum i staðinn
ýmsar tilslakanir á almennum
gjöldum. Þannig er hugað að fram-
tíðinni og komið í veg fyrir að skap-
andi frumkvæði listamanna verði að
verzlunarvöru kaupahéðna á mark-
aðstorgum. Dæmin eru lýsandi í
höfuðborgum allra Norðurlanda,
svo og sunnar í álfunni. Hér erum
við aftarlega á merinni eins og
raunar í flestu sem varðar lang-
tímaáætlanir, og tökum alltof oft
fyrirhyggjulausar ákvarðanir með
hrikalegum afleiðingum sem við
blasa, en fæstir virðast læra af.
Að mínu viti ber borginni siðferð-
isleg skylda til að tryggja það að
hús eins og Englaborg verði áfram í
eigu myndlistarmanns, sem geti þá
betur einbeitt sér að listsköpun
sinni. Nóg er til af íslenzkum list-
málurum sem búa við afleitar
vinnuaðstæður og vegna brauð-
stritsins ná rétt að skjótast dags
daglega á málarastofur sínar.
Einnig má hugsa sér húsnæðið sem
heiðursbústað fyrir íslenzkan
myndlistarmann, málara, teiknara
eða grafíker.
Þetta er hús sem byggt var fýrir
íslenzkan málara og í þessu húsi
eiga framsæknir íslenzkir málarar
að fá tækifæri til að sinna sköpunar-
þörf sinni, helzt á fullu. Þannig átti
einnig að vera um hús Ásmundar
Sveinssonar á Freyjugötu, sem
hefði bezt þjónað hlutverki sínu sem
bústaður myndhöggvara og mjög
vel glerlistarmanns, sem einnig
vinnur með rýmið og „loftskurð“,
eins og skáldið á blaðinu nefnir það
svo fagurlega. Öll önnur starfsemi í
þessum húsum grómar minningu
þeirra eldhuga sem þau reistu af
litlum efnum en fyrirferðarmiklum
hugsjónum. Nánar verður vikið að
þessum atriðum á öðrum vettvangi,
en hér ber öðru fremur að þakka
fyrir sig og taka ofan fyrir framtaki
ættingjanna og minna á lífmikla
sýningu sem í gangi er. Vafalítið
síðasta tækifærið til að líta myndir
listamannsins í húsinu, í öllu falli
meðan andi hans svífur enn yfír og
er nær áþreifanlegur.
Bragi Ásgeirsson
Dómaraklúður
Sýningum
lýkur
í SÝNINGARSÖLUM Nor-
ræna hússins stendur yfir sýn-
ingin tarGET. Sýningin er opin
kl. 14-18.
I anddyri stendur yfir sýn-
ing á auglýsingaspjöldum sem
birtust í Rafskinnu á árunum
1935-1957. Sýningin er opin
alla daga kl. 9-18, nema
sunnudaga frá kl. 12-18.
Sýningunum lýkur sunnu-
daginn 2. nóvember.
Listasafn Kópavogs -
Gerðarsafn
Umhverfis fegurðina er sýn-
ing sem staðið hefur yfir und-
anfarið í Gerðarsafni. Þar eru
sýnd málverk eftir Eggert Pét-
ursson, Helga Þorgils Frið-
jónsson og Kristinn G. Harðar-
son. Sýningin er opin daglega
frá kl. 12-18, nema mánudaga
og henni lýkur sunnudaginn 2.
nóvember kl. 18.
KviKMYrvnn;
Laugarásbfó
HEAD ABOVE WATER ★%
Leikstjóri Jim Wilson. Handritshöf-
undar Geir Eriksen. Erik Ildahl,
Theresa Marie. Kvikmyndatökustjöri
Richard Bowen. Tdnlist Christopher
Young. Aðalleikendur Harvey Keitel,
Cameron Diaz, Craig Sheffer, Billy
Zane. 90 mfn. Bandarísk. Fine Line
Features 1997.
ÞAÐ fer ekki framhjá þeim sem
stunda kvikmyndasýningar að það
sem helst amar að hjá myndasmið-
um Hollywood er hugmyndaleysi.
Alltof oft lýsir það sér í slökum
handritum í að öðru leyti ágætlega
gerðum myndum. Framleiðendur
leita því gjaman hófanna í evrópsk-
um myndum, (gjarnan öðrum en
breskum), þar sem oft glittir í góð-
an söguþráð, auk þess sem Banda-
ríkjamenn eru lítt hrifnir af textuð-
um eða talsettum, erlendum mynd-
um. Að reyna að gera eitthvað bita-
stætt úr norskri meðalmynd hefur
þó reynst handritalæknum kvik-
myndaborgarinnar um megn, Head
Above Water verður aldrei eitt né
neitt, hvorki krimmi né gaman-
mynd.
Ameríska útgáfan gerist á eyju
undan Mainefylki þar sem George
dómari slappar af ásamt Nathalie,
ungri og fagurri eiginkonu sinni.
Hafði karlinn farið vægt í sakimar
er hann dæmdi hana fyrir dópát og
smáglæpi og hlotið ást hennar fyrir.
Úti í túnfætinum hírist svo húskarl-
inn Lance (Craig Sheffer), aldavin-
ur frúarinnar. Einn góðan veðurdag
rær hann til fiskjar ásamt dómaran-
um og ber þá óvæntan gest að garði
húsfreyju. Sá er Kent (Billy Zane),
gamall elskhugi hennar og sukkfé-
lagi. Að morgni þegar dómarinn og
Lance koma úr róðri vaknar frúin
upp við vondan draum því hún finn-
ur Kent dauðan í svefnherberginu.
Upphefst nú margslungin fram-
vinda mála þar sem Nathalie getur
engum treyst og ekkert er sem það
sýnist.
Því miður hefur Theresu Marie
ekki tekist að vekja þessa norskætt-
uðu, svörtu gamanmynd til lífsins.
Afleiðingin er sú að hún nær sér
aldrei á flug og virkar löng og til-
þrifalítil þrátt fyrir stuttan sýning-
artíma. Sem er nánast hennar eini
kostur. Ágætir leikarar fara með
aðalhlutverkin tvö. Keitel er því
miður greinilega engin gamanleik-
ari og á afleitan dag í illa skrifuðu
hlutverki dómarans og skilar því
mjög ótrúverðuglega. Hin stór-
glæsilega og efnilega Cameron Diaz
(sem stal senunni ásamt Rupert
Everett í Brúðkaupi besta vinar
míns) á einnig í vandræðum í ámóta
kauðslegri rullu eiginkonunnar. Það
kemur hins vegar ekki á óvart að
Sheffer og Zane eru slakir. Klúð-
ursleg mynd í flesta staði sem
rembist við að vera fyndin en er það
ekki og persónunar grunnar og
veikburða.
Sæbjörn Valdimarsson
Nýjar bækur
9SETJIÐ súrefnisgrímuna fyrst á
yður... er eftir Andrés Ragnarsson
sálfræðing.
I kynningu segir m.a.: „Þrennt
vakir íyrir höf-
undi með því að
skrifa þessa bók.
I fyrsta lagi að
skrifa hagnýta
bók sem auðveld-
ar fjölskyldum að
líta í eigin barm
við aðstæður sem
þær völdu sér
ekki sjálfar. I því
augnamiði setur
hann fram flókið og sárt ferli á að-
gengilegan hátt. Höfundurinn, sem
er faðir fjölfatlaðs drengs, lýsir af
hreinskilni og næmi hvernig foreldr-
ar fatlaðra barna leiðast út í að hafa
þarfir þeirra svo í fyrirrúmi að um
meðvirkni verður að ræða líkt og hjá
aðstandendum áfengissjúklinga.
I öðru lagi grandskoðar höfundur-
inn samskipti foreldra og fagfólks í
ljósi sinnar eign reynslu og annarra
foreldra. I þriðja lagi hefur Andrés
Ragnarsson með þessari bók bætt
úr brýnni þörf á kennsluefni fyrir
þær starfsstéttir sem sinna málefn-
um fatlaðra og fjölskyldum þeirra.“
Bókin Setjið súrefnisgrímuna
fyrst á yður ... er sögð eiga við fólk,
sem í einkalífi sínu og starfi tengist
fótluðum og langveikum börnum, og
alla þá sem láta sig varða mannlegar
tilfinningar og samskipti.
Ingvar Guðnason sálfræðingur
myndskreytir bókina og Stefán
Hreiðarsson, bamalæknir og for-
stöðumaður Greiningar- og ráðgjaf-
arstövðar ríkisins, ritar formálsorð.
Bókin er 133 blaðsíður og kostar
1.980 kr. Útlitshönnun og umbrot
annaðist Ormstunga. Bókin er
prentuð í Steinholti og Flatey sá um
bókband. Útgefandi er Ormstunga.
• UNDIR laufþaki er ljóðabók eftir
Maríu Kristínu Einarsdóttur. Hún
fékk snemma áhuga á ljóðlist en
lagði í fyrstu rækt við saumaskap og
handavinnu alls
konar. Sömuleiðis
var tónlistin ofar-
lega á blaði. Hún
hóf hefðbundið
söngnám og lauk
8. stigs prófi 1990
frá Nýja tónlist-
arskólanum í
Reylqavík. Á síð-
ari árum hefur
myndlistin einnig
knúið dyra hjá Maríu, en hún hefur
valið að mála á silki eins og mynd-
irnar í bókinni bera með sér. Tók
hún þátt í samsýningu með öðrum
listakonum 1991. Ljóð Maríu hafa
birst í Lesbók Morgunblaðsins og
hafa einnig verið lesin í útvarpi og
víðar.
Undir laufþaki er fyrsta ljóða-
bók Mar-
íu „og þar má glöggt fínna ást henn-
ar á landinu og öllu sem lif-
ir og grær“, segh- í kynningu.
Útgefandi er Bjarki. Bók-
in er 99 síður, prentuð í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar.
•KÓNGAR í ríki sínu og
prinsessan Petra eftir Hrafnhildi
Valgarðsdóttur hefur verið
endurútgefin. Þetta er sjálfstætt
framhald af
bókinni Kóngar í
ríki sínu, sem var
endurútgefin á sl.
ári, en báðar
þessar bækur
höfðu lengi verið
ófáanlegar.
I kynningu
segir: „Bækurnar
draga upp hlýlega
mynd af lífi
tveggja 10 ára stráka sem búa í litlu
sjávarþorpi, þar sem flestir þekkjast
og hjálpast að þegar vanda ber að
höndum.
Og það er alltaf mikið um að vera
hjá þeim Lalla og Jóa. Undarleg
stelpa flytur í dularfullt hús og
vinirnir ráða ekki við forvitnina og
laumast inn í húsið.“
Útgefandi er KRASS. Báðar
bækurnar eru myndskreyttar af
Brian Pilkington.
Hrafnhildur
Valgarðsddttir
Andrés
Ragnarsson