Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 33
JllrogtiiiÞlftfetfe
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MENNTUN
SJÓMANNA
ÞJÓÐIN BYGGIR afkomu sína að mestu á sjávarút-
vegi og mun svo verða um ófyrirsjáanlega framtíð.
Þess vegna skiptir miklu máli, að íslenzkir sjómenn
njóti beztu menntunar, sem völ er á hverju sinni, og
mikilvægi hennar eykst stöðugt eftir því sem tækninni
fleygir fram. Þungamiðjan er menntun skipstjórnar-
manna, jafnt á fiskiskipum sem farskipum, svo og vél-
stjóra. Menntun sjómanna er mjög til umræðu nú vegna
hugmynda um nýja leið til reksturs Sjómannaskóla ís-
lands, þ.e. Stýrimannaskólans og Vélskólans, og vegna
húsnæðismála þeirra.
Menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, hreyfði þeirri
hugmynd sl. vor við Kristján Ragnarsson, formann LÍÚ,
að sjávarútvegurinn komi að rekstri Sjómannaskólans
og telur hann það vel koma til greina. Kristján telur
að atvinnugreinin eigi að bera ábyrgð á skólanum og
námsefni, enda sé hún mun hæfari til þess en opinber-
ir embættismenn. Hann bendir á Verzlunarskólann í
þessu sambandi og telur rekstrarform hans miklu nú-
tímalegra og opnara fyrir breytingum en núverandi rík-
isrekstur. Þetta eru mjög athyglisverðar hugmyndir og
full ástæða er til, að helztu samtök og fyrirtæki sjávar-
útvegs og siglinga hrindi þeim í framkvæmd sem allra
fyrst.
Þörf er á skjótum viðbrögðum vegna þess, að tillögur
hafa komið fram um að flytja Sjómannaskólann á brott
úr „háborg íslenzku sjómannastéttarinnar“ eins og for-
seti lýðveldisins, Sveinn Björnsson, kallaði bygginguna
er hornsteinn var lagður að henni á sjómannadaginn
1944. Hún er nú illa farin vegna viðhaldsleysis og kosta
viðgerðir töluvert fé. Tillögur hafa komið fram um, að
Kennara- og uppeldisháskólinn fái bygginguna til af-
nota, en Sjómannaskólinn verði fluttur að Höfðabakka.
Stjórnendur hans telja kostnað vegna flutnings verða
margfalt meiri en kostnaðinn við endurnýjun núverandi
húsnæðis og þau útgjöld verði að greiða, þótt öðrum
verði fengin byggingin til afnota.
Enginn vafi er á því, að bygging Sjómannaskólans
er tengd sjómannastéttinni í hugum landsmanna og
brottflutningur hans þaðan er mikið tilfinningamál.
Skólastjórarnir, kennarar, nemendur og starfsfólk, svo
og ýmis samtök sjómanna hafa mótmælt öllum slíkum
tillögum. Rök fyrir brottflutningi þurfa því að vera sann-
færandi og augljós til að friður verði um hann og þau
blasa ekki við.
GRUND75 ÁRA
FYRIR 75 árum, í endaðan októbermánuð árið 1922,
var Elli- og hjúkrunarheimilið Grund vígt og tekið
í notkun. Forystumenn þess voru í hópi brautryðjenda
- þeirra sem brutu ís að öldrunarþjónustu hér á landi.
Farsæl starfsemi stofnunarinnar spannar nú þrjá aldar-
fjórðunga og umfangsmikla öldrunarþjónustu, bæði í
höfuðborginni og í Hveragerði. Hún var og á sinn hátt
kveikjan að þeirri víðfeðmu öldrunarþjónustu, sem nú
er veitt víðast hvar á landinu, þótt enn þurfi betur að
gera, einkum að því varðar hjúkrunarrými fyrir aldraða.
Meðalævi íslendinga hefur lengst um áratugi á 20.
öldinni. Breytt aldursskipting þjóðarinnar kallar á vax-
andi öldrunarþjónustu. Þvi kalli hefur Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund, sem raunar er eina elliheimilið á land-
inu sem komið er á ellilífeyrisaldur, reynt að svara eft-
ir mætti. Þar eru nú liðlega 260 heimilismenn, þar af
160 í hjúkrunarrýmum.
Hliðstæðar stofnanir hafa víða risið, sem fetað hafa
slóð brautryðjendanna. Eftirspurn eftir öldrunarþjón-
ustu er samt sem áður verulega meiri en framboðið,
einkum eftir hjúkrunarrýmum. Aðkallandi er að útrýma
biðlistum öldrunarsjúklinga. Þeir samræmast hvorki
mannúð né menningu. Fólk sem skilað hefur samfélag-
inu langri starfsævi, á rétt á því að búa við þá heilbrigð-
isþjónustu, sem aðstæður þess krefjast, sem og þokka-
legri afkomu á efri árum.
írar kjósa sér forseta til næstu sjö ára
Reuters
KEPPINAUTAR í írsku forsetakosningunum komu saman í sjónvarpssal til lokakappræðna á þriðjudag. Á myndinni eru frá vinstri:
Mary McAleese, Adi Roche, „Dana“ Rosemary Scallon, Mary Banotti og Derek Nally.
I fótspor frú Robinson
Forsetakosningar fara fram á írlandi í dag
og reynist skoðanakannanir réttar mun
lögfræðiprófessorinn Mary McAleese verða
arftaki Mary Robinson, sem notið hefur gífur-
legra vinsælda í embætti. Ásgeir Sverrisson
kynnti sér frambjóðendur og ræddi við frétta-
skýrendur á írlandi um kosningamar en fjór-
ar konur vom í framboði að þessu sinni.
BREYTINGAR Á
STARFSEMI LÍFEYRISSJÓÐA
______________Iðgjald í lífeyrissjóði_______________
6% af heildarlaunum frá atvinnurekanda eins og áður.
4% af heildarlaunum launþega eins og áður.
Ríkisstjórnin hefur gefið yfirlýsingu um að heimildir í skatta-
lögum verði rýmkaðartil frádráttar iðgjalds úr 4% í 6%.
Launþegi getur þá ráðstafað viðbótinni í lífeyrissjóð.
Lágmarksréttindi samkvæmt 4. grein
56% af launum miðað við 40 ára inngreiðslutíma
og taka lífeyris hefjist við 70 ára aldur.
Aukinn sveigjanleiki um ráðstöfun iðgjalda
Ef 8-9% iðgjalda dugar fyrir lágmarks tryggingarvernd má
lífeyrissjóður ákveða að þetta hlutfall iðgjalda fari til
samtryggingar. Afgangurinn, a.m.k. 1 -2%, getur þá farið í
séreignarsjóð. Lágmarksiðgjald verður eftir sem áður 10%.
Framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins
um lífeyrissjóðafrumvarpið
Felur í sér rýmri
aðildarskyldu
IRAR ganga að kjörborðinu í dag
og velja sér forseta til næstu
sjö ára, sem bíða mun það erf-
iða verkefni að feta í fótspor
Mary Robinson, er notið hefur mikilla
vinsælda í þessu embætti frá því hún
var kjörin árið 1990. Kosningarnar eru
sögulegar að þessu sinni fyrir þá sök
að fjórar konur eru í framboði en að-
eins einn karl og sýnir það hver áhnf
kjör Mary Robinson hefur haft á Ir-
landi. Konurnar fjórar hafa enda lagt
sig í líma við að líkjast frú Robinson
sem mest í kosningabaráttunni en ef
marka má nýjustu skoðanakannanir
getur aðeins snörp fylgissveifla komið
í veg fyrir að Mary McAleese, sem er
46 ára gömul og prófessor í lögum,
verði næsti forseti írlands.
Kosningarnar nú eru til marks um
þau þáttaskil sem kjör Mary Robinson
markaði árið 1990. Fram að því hafði
forsetaembættið verið ætlað eldri körl-
um í dökkum fötum, sem tóku á móti
trúnaðarbréfum sendiherra og sögðu
fáein orð þegar þörf var talin á við
opinber tækifæri. Embætti þetta varð
engan veginn bendlað við endurnýjun,
umskipti eða stöðu írsku þjóðarinnar á
alþjóðavettvangi.
Einstakur forseti
Allt þetta breyttist með kjöri Mary
Robinson. Hún fyllti embættið nýjum
þrótti eftir að hún hafði óvænt verið
kjörin enda nánast utangarðsmaður í
pólítísku tilliti er þún kom fram á sjón-
arsviðið. Forseti írlands hefur lítil sem
engin völd en Mary Robinson tókst
að vekja athygli á málum sem heims-
byggðin hafði tilhneigingu til að
hundsa auk þess sem hún gerði emb-
ættið alþýðlegra á heimavelli.
Forsetinn æddi um Sómalíu er land-
ið var við að leysast upp í borgarastyij-
öld og heimsótti þrívegis Rwanda er
morðæðið reið yfir þar. Með ferðum
sínum til fátækra þróunarríkja gæddi
hún embætti forseta Irlands nýrri sið-
ferðislegri dýpt, sem vakti athygli er-
lendis og hrifningu í heimalandi henn-
ar. „írar hafa aldrei átt forseta eins
og Mary Robinson og margir spyija
hvort nokkur von sé um að slíkur for-
seti verði aftur kjörinn. Það er enginn
vafi á að landsmenn hefðu almennt
viljað að hún héldi áfram. Hún gjör-
breytti þessu embætti," sagði Patrick
Comerford, blaðamaður við írska dag-
blaðið The Irish Times, í samtali við
Morgunblaðið.
Er Mary Robinson ákvað að láta
af embætti skömmu áður en kjörtíma-
bil hennar rann út til að taka við starfi
Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóð-
anna þurftu írskir stjórnmálaflokkar
að bregðast hart við. Tilnefningar
þeirra sýndu hins vegar hversu margt
hafði breyst á írlandi á þessum sjö
árum. Á það ekki síst við um hug-
myndir um stöðu konunnar í samfélag-
inu, sem forðum var talið henta best
að vera „berfætt og barnshafandi að
störfum í eldhúsinu" eins og stundum
var sagt.
Eftir að einn vinsælasti stjórnmála-
maður írlands, John Hume, hafði látið
þau boð út ganga að hann hygðist
ekki verða í framboði, tilnefndi stærsti
flokkur írlands, Fianna Fail, lagapró-
fessorinn Mary McAleese, sem hefur
nú mjög trausta forustu ef marka má
skoðanakannanir.
Katólskur íhaldsmaður
McAleese er fædd árið 1951 og er
óvenjulegur frambjóðandi fyrir þá sök
að hún er fædd á Norður-írlandi. Erf-
itt er hins vegar að henda
reiður á nákvæmlega hver
lífssýn hennar og heimspeki
er. Hún virðist í senn vera
katólskur íhaldsmaður og
þokkalega róttækur „um-
bótasinni". Þannig hefur
hún haldið fram hefðbundnum
strangkatólskum viðhorfum hvað
varðar fóstureyðingar og andstöðu við
hjónaskilnaði en á hinn bóginn hefur
hún stutt nokkur baráttumál fijáls-
lyndra svo sem þau að samkynhneigð-
um verði tryggð full mannréttindi og
prestar fái að ganga í heilagt hjóna-
band.
„Skoðanir hennar eru mótsagna-
kenndar um margt og hún hefur leitt
ákveðnar spurningar hjá sér. Stjóm-
málaskoðanir skipta hins vegar litlu
þar eð forseti landsins hefur engin
pólitísk völd og því hefur þetta ekki
unnið gegn henni,“ segir Patrick Com-
erford.
Nuala O’Faolain, einn þekktasti
dálkahöfundur Ira nú um stundir, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
McAleese sé engan veginn fijálslynd
eða „femínisti". „Hún getur alls ekki
talist frambjóðandi, sem boðar kven-
frelsi. Hún er hægri sinnaður katól-
ikki og fulltrúi hinnar stofnanavæddu
kirkju. En hins vegar má ekki gleyma
því að yfirgnæfandi meirihluti þjóðar-
innar fer í messu að minnsta kosti
einu sinni í viku.“
McAleese hefur líkt og hinar kon-
umar þijár sem í framboði eru, reynt
að líkja eftir Mary Robinson í kosn-
ingabaráttunni og gildir það bæði um
fas hennar og klæðaburð. Þær hafa,
eins og fyrirmyndin, klæðst síðum
jökkum en hárið er stuttklippt sem
sérfróðir telja til þess fallið að skapa
ímynd fijálslegs „hressileika og lífs-
þróttar". En McAleese á meira sam-
eiginlegt með frú Robinson en hár-
greiðsluna því aðeins 24 ára gömul
tók hún við kennarastöðu hennar í
lögum við Trinity College er sú fyrr-
nefnda flutti sig um set. Báðar reyndu
þær á sínum tíma á ná kjöri til þings
en mistókst það. Báðar eru fyrst og
fremst metnaðarfullar menntakonur,
fulltrúar nýrra tíma á írlandi.
Stórgreind og full metnaðar
En þótt þessar tvær konur kunni
að virðast líkar á yfirborðinu greinir
margt þær að þegar betur er að gáð.
Patrick Comerford bendir á að bak-
grunnur þeirra sé gjörólíkur. „Mary
Robinson er af miðstéttarfólki komin
og var fulltrúi vinstri aflanna 1990.
Mary McAleese er hins vegar af held-
ur fátæku fólki komin og
ólst upp á meðal þjóðemis-
sinna á Norður-írlandi. Það
er því engan veginn svo að
stuðningsmenn Mary
McAleese séu að leita eftir
einhvers konar spegilmynd
af Mary Robinson. Þær eru um margt
mjög ólíkar konur.“
Nuala O’Faolain tekur dýpra í ár-
inni: „Mary McAleese á ekkert sam-
eiginlegt með Mary Robinson. Hún
mun vafalaust sinna störfum sínum
óaðfinnanlega sem forseti en hún mun
ekki gera það af innlifun og tilfinn-
ingu líkt og Mary Robinson gerði.
Mary Robinson hóf embættið upp yfir
stjómmál en nú hefur Mary McAleese
neytt okkur til að horfast í augu við
þá staðreynd að það búa líka Irar á
Norður-írlandi en því hefur þjóðin vilj-
að gleyma.“
Mary McAleese er sögð sérlega
greind kona og reynsla hennar af sjón-
varpi þykir hafa nýst henni vel í þess-
ari kosningabaráttu. Eftir að hafa
kennt lögfræði við Trinity College í
íjögur ár gerðist hún sjónvarpsfrétta-
maður um tveggja ára skeið. Hún er
„réttu megin við miðjan aldur" eins
og viðmælendur á írlandi orðuðu það
og geislar af sjálfstrausti, sem skilar
sér sérlega vel í gegnum sjónvarp.
„Hún á ekki neitt það til sem kallast
getur sjálfsefi og virðist á köflum vera
heldur tilfinningasnauð," segir Nuala
O’Faolain en bætir við að enginn geti
efast um hæfni Mary McAleese.
Árás fyrrum samherja
Verkamannaflokkurinn studdi
framboð frú Robinson fyrir sjö ámm
en stendur nú að baki Ádi nokkurrar
Roche, sem þekkt er fyrir baráttu sína
á vettvangi umhverfismála, einkum
gegn notkun kjarnorku og rekið hefur
góðgerðarsamtök til að aðstoðar börn-
um, sem urðu fórnarlömb kjamorku-
slyssins í Tsjemobyl.
Framboð hennar fór vel af stað og
um tíma var Roche með mest fylgi
frambjóðenda í skoðanakönnunum.
Roche, sem er 42 ára, varð hins vegar
fyrir miklu áfalli er fyrmm félagar í
samtökunum komu fram opinberlega
og lýstu yfir því að þeir myndu ekki
styðja hana því hún hefði jafnan sýnt
mikinn yfírgang í öllum störfum sín-
um. Gengu þeir svo langt að segja að
stjórnarhættir hennar hefðu verið
„stalínískir".
„Ég get verið ákveðin. Ég var í
raun og vem aldrei „Tsjernobyl-engill-
inn“. Enginn er dýrlingur í iifanda lífi,“
sagði Roche er hún reyndi að bera
hendur fyrir höfuð sér en það var um
seinan. „Þessar ásakanir lögðu fram-
boð hennar í rúst og hún hefur aldrei
náð sér strik eftir þetta," segir Patrick
Comerford.
Nuala O’Faolain telur hins vegar
að áhrif þessa hafi verið gróflega of-
metin og að Roche hafí einfaldlega
fallið í skuggann af miklu hæfari
frambjóðanda. „í hugum íra tengist
hún hippa-heimspeki sem einfaldlega
höfðar ekki til þjóðarinnar og vekur
engan áhuga. Nú um stundir hugsa
írar um tvennt: Norður-írland og fóst-
ureyðingar," segir hún.
Virt og reynd
Þriðji fulltrúi valdakerfísins á ír-
landi heitir Mary Banotti og er 58
ára. Hún er fulltrúi Fine Gael, helsta
stjórnarandstöðuflokksins og er eini
frambjóðandinn sem hefur reynslu af
stjórnmálastörfum en hún hefur setið
á Evrópuþinginu frá 1984. Mary Ban-
otti er um margt athyglisverður fram-
bjóðandi, hún er fráskilin, hjúkmnar-
kona að mennt, var áður gift ítöiskum
lækni og bjó um íjögurra ára skeið í
Rómarborg. Hún hefur starfað í þró-
unarlöndum, barist fyrir hagsmunum
kvenna og látið sig umhverfismál
varða. Árið 1989 sá framkvæmda-
stjórn Evrópubandalagsins, sem þá
var, sérstaka ástæðu til að vekja at-
hygli á frammistöðu hennar á Evrópu-
þinginu.
Viðmælendur Morgunblaðsins á ír-
landi bentu á að þrátt fyrir að Mary
Banotti væri eini frambjóðandinn sem
kæmi úr stjómmálalífinu hefði hún
ein ekki orðið fyrir persónulegum
árásum og aurkasti. Banotti nýtur
virðingar fyrir dugnað sinn og elju.
Dana snýr aftur
Sá frambjóðandi sem þekktastur
er erlendis er söngkonan „Dana“, sem
forðum heillaði Evrópubúa er hún
tryggði írum sigur í söngvakeppni
Evrópu árið 1970 með laginu „All
Kinds of Everything". Dana, sem
raunar heitir Rosemary Scallon, býr
nú í Alabama í Bandaríkjunum og
starfar þar við trúarlega útvarpsstöð
auk þess sem hún hefur haldið söng-
ferlinum áfram með heldur litlum ár-
angri. Margir hafa átt erfítt með að
taka framboð hennar alvarlega og
yfírlýsing hennar þess efnis að hvergi
væri kveðið á um það í stjórnarskrá
írlands að forsetinn mætti ekki
syngja, mæltist misjafnlega fyrir.
Dana hefur sungið fyrir Páfann og
heldur fram íhaldssömum sjónarmið-
um sem flest hver eru talin hans heil-
agleika þóknanleg. Víst er hins vegar
að óvænt stórtíðindi á borð við sigur-
inn í söngvakeppninni 1970, þegar
sjálfur Julio Iglesias þurfti að lúta í
lægri haldi fyrir bjartraddaða og skýr-
mælta söngfuglinum frá írlandi, þurfa
að gerast eigi Dana að hreppa forseta-
embættið.
„Dana hefur staðið sig frábærlega
og nýtur hér mikilla persónulegra vin-
sælda. Hún hefur haldið fram
strangkatólskum sjónarmiðum en gert
það af manngæsku og kærleika, sem
vakið hefur verðskuldaða athygli,"
segir Nuala O’Faolain.
Vinnusjúklingur
á eftirlaunum
Hinn óháði frambjóðandinn að
þessu sinn er Derek Nally, fyrrum
lögreglumaður, sem kominn er á eftir-
laun en getið hefur sér gott orð fyrir
að hafa stofnað samtök til aðstoðar
við fórnarlömb glæpamanna. Nelly
sem er 61 árs gamall, kom síðastur
frambjóðenda fram á sjónarsviðið og
hefur allt frá því verið að beijast við
að vinna upp forskot hinna
fjögurra. Nally er talið til
tekna að vera „vinnusjúkl-
ingur“ og hann hefur lengi
verið landsþekktur fyrir bar-
áttu sína við „kerfið" m.a.
er hann var framkvæmda-
stjóri hagsmunasamtaka lögreglu-
manna.
Sprengjan fellur
Kosningabaráttan hefur að sögn
viðmælenda á írlandi verið sérlega líf-
leg og athyglisverð og er óháðu fram-
bjóðendum tveimur ekki síst þökkuð
sú staðreynd. Talsmenn Verkamanna-
flokksins tóku því illa er fyrrum sam-
heijar Adi Roche greiddu henni rot-
höggið á opinberum vettvangi og líta
svo á að frambjóðandinn hafí orðið
fórnarlamb ófrægingarherferðar.
Söngkonan Dana hefur kvartað undan
hinu sama.
Sprengjan í þessari kosningabar-
áttu féll hins vegar fyrir rúmum
tveimur vikum er Derek Nally sakaði
Mary McAleese um „dulinn stuðning”
við Sinn Fein, stjórnmálaarm írska
lýðveldishersins (IRA) og sagðist hafa
heimildir fyrir þessu úr írska utanrík-
isráðuneytinu. Sagði hann að spum-
ingar hlytu að vakna bæði um siðferð-
isleg viðmið og persónu Mary McAl-
eese. Málið þótti svo alvarlegt að það
var tekið til umræðu á þingi þar sem
stjórnarandstaðan sótti að Bertie
Ahern, forsætisráðherra og ieiðtoga
Fianna Fail, og sagði það lýsa alvar-
legum dómgreindarbresti að hafa til-
nefnt konu þessa til embættis forseta.
Upplýsingar Nallys voru byggðar á
trúnaðarskjölum úr utanríkisráðu-
neytinu írska hvar embættismaður
einn gerð grein fyrir samtali sínu við
McAleese þar sem hún virtist vera
Sinn Fein hliðholl. Hún brást hins
vegar við með að lýsa yfir því að hún
hefði aldrei stutt IRA og myndi aldrei
leggja blessun sína yfír baráttu þess-
ara illræmdu hryðjuverkasamtaka.
„Samúðarfylgi“
Svo virðist sem „leiftursókn" Nallys
hafí haft þveröfug áhrif og raunar
kann hún að ráða úrslitum í þessum
kosningum. Nokkrir ráðgjafar hans
hættu í kjölfarið en ennþá er ekki ljóst
hvort þeim var gert að taka pokann
sinn.
Árásin hefur orðið til þess að kalla
fram „samúðarfylgj" við Mary McAl-
eese og stjórnmálaskýrendur hafa
margir hveijir harmað að slíkum lúa-
brögðum skuli hafa verið beitt og
spurt áleitinna spurninga varðandi
lekann á trúnaðarupplýsingum úr ut-
anríkisráðuneytinu. Sú mikla athygli
sem flölmiðlar sýndu málinu hefur og
sýnilega komið frambjóðandanum til
góða. Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, hefur lýst yfir stuðningi við
Mary McAleese og virðist það ekki
heldur hafa orðið henni til tjóns.
Sigur eftir aðra talningu?
Atlagan að Mary McAleese virðist
hafa aukið fylgi lögfræðiprófessors-
ins. Alltjent reyndist fylgið við hana
hafa vaxið um heil fimm prósentustig
á 11 dögum, samkvæmt skoðana-
könnun, sem birt var um liðna helgi.
í könnun sem dagblaðið The Irish
Times birti í gær kváðust 46% að-
spurða ætla að greiða henni fyrsta
atkvæði sitt en í forsetakosningum á
írlandi mega kjósendur - það er ekki
skylda - velja fyrst einn frambjóðanda
en síðan raða hinum - fjórum í þessu
tilfelli- upp í röð og flyjast atkvæðin
þannig á milli manna eftir því sem
þeir sem fæst atkvæði fá detta út við
talningu.
Fylgi við Mary Banotti hafði minnk-
að og hugðust 30% kjósenda greiða
henni fyrsta atkvæði sitt. Enginn
hinna frambjóðendanna þriggja á
möguleika á að hreppa embættið ef
marka má þessa könnun og aðrar
eldri. Fylgi þeirra hefur mælst á bilinu
6-8 prósent en í síðustu könnuninni
hafði Dana náð 10% og var í þriðja
sæti. Samkvæmt þessari könnun mun
Mary AcAleese hreppa embættið eftir
aðra talningu atkvæða og hljóta 52%
atkvæða gegn 35% Mary Banotti.
Breytt yfirbragð
Fylgismenn Mary Banotti hertu
róðurinn mjög nú síðustu dagana fyr-
ir kosningarnar og reyndu ákaft að
höfða til óákveðinna kjósenda, sem
reyndust vera um 20% samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnun. Sjálf
sagði Banotti að baráttan
væri engan veginn töpuð
og kvaðst bjartsýn á að
takast myndi að snúa tafl-
inu við.
Framkoma og yfirbragð
Mary McAleese þótti hins vegar breyt-
ast mjög í þessari viku. í stað fremur
óþreyjufullrar menntakonu, sem vænd
hafði verið um hroka og lét á stundum
ógert að svara spurningum blaða-
manna á þeim forsendum að þær
væru óljósar ef ekki beinlínis heimsku-
legar, var komin yfírveguð, þægileg
og skilningsrík kona sem sýnilega var
tekin til við að búa sig undir embætt-
ið þótt hún reyndi að dylja sigurviss-
una.
„Þessi kona er gífurlega metnað-
arfull. Hún ætlar sér mun lengra og
það er alveg Ijóst að hún lítur ekki á
forsetaembættið sem lokaáfangann á
ferli sínum,“ segir Nuala O’Faolain.
BRYNHILDUR Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri Fijálsa
lífeyrissjóðsins, telur að
drög að frumvarpi um
starfsemi lífeyrissjóða feli í sér að
fólk hafi heldur rýmri rétt til að velja
sér lífeyrissjóð en verið hefur.
„Það er opnað fyrir aðeins meira
frelsi fólks til að velja sér sjóð og
það hefur þau áhrif að fleiri gætu
farið í séreignarsjóðina. í gömlu.lög-
unum er þetta bundið við starfssvið
þó að allir lífeyrissjóðir hafí kannski
ekki fylgt því mjög fast eftir. Aðild-
arákvæðið er því ekki eins þröngt í
frumvarpsdrögunum," sagði Bryn-
hildur.
í gildandi lögum segir að öllum
launamönnum sé skylt „að eiga aðild
að lífeyrissjóði viðkomandi starfs-
stéttar eða starfshóps". í drögum að
frumvarpi um starfsemi lífeyrissjóða
segir að aðild að lífeyrissjóði skuli
fara „eftir þeim kjarasamningi sem
ákvarðar lágmarkskjör í hlutaðeig-
andi starfsgrein, eða sérlögum ef við
á. Taki kjarasamningur ekki til við-
komandi starfssviðs eða séu ráðning-
arbundin starfskjör ekki byggð á
kjarasamningi velur viðkomandi sér
lífeyrissjóð eftir því sem reglur ein-
stakra sjóða leyfa.“
Brynhildur sagði jákvætt að að
rýmka ætti heimildir einstaklinga til
frádráttar lífeyrisiðgjalda frá skatti
úr 4% í 6%. Með þessu væri verið
að hvetja fólk til að auka sparnað
og langlíklegast væri að fólk myndi
setja þessa viðbót í séreign.
Hún sagði óvíst hvernig séreignar-
sjóðirnir kæmu til með að uppfylla
ákvæði frumvarpsins um lágmarks-
tryggingavernd. Hugsanlega gerðu
þeir það með því að stofna samtrygg-
ingarsjóði, en einnig kæmi til greina
að kaupa tryggingar af tryggingafé-
lögum líkt og margir gerðu í dag.
Hún sagði að það væri lagt í hend-
ur sjóðanna að reikna út hvað iðgjald-
ið þyrfti að vera hátt til að uppfylla
ákvæði 4. greinar um að lífeyrir
megi ekki vera lægri en 56% af
mánaðarlaunum. Það væri margt
sem hefði þar áhrif, m.a. ávöxtun
sjóðanna. Ef miðað væri við að lífeyr-
ir væri að meðaltali greiddur í 8 ár
eftir sjötugt og reiknað með 7%
ávöxtun færi 40-50% af lágmarksið-
gjaldinu í að tryggja þessa lágmarks
tryggingavernd. „Almennt tel ég að
með þessu frumvarpi sé verið að stíga
ákveðið skref í átt til frjálsræðis,"
sagði Brynhildur.
Kallar á skerðingu á
rétti lyá sumum sjóðum
í frumvarpsdrögunum er gert ráð
fyrir að lögfest verði að munur á
eignum og skuldbindingum lífeyris-
sjóða megi ekki vera meiri en 10%
og munurinn má ekki hafa verið
meiri en 5% í 5 ár samfleytt. Ljóst
þykir að ekki uppfylla allir starfandi
lífeyrissjóðir þetta ákvæði í dag.
Gert er ráð fyrir að ef munur á
eignum og skuldbindingum sjóðanna
er umfram þessi mörk verði stjórnir
þeirra að gera breytingar á sam-
þykktum þeirra. Þær geta falið í sér y
skerðingu réttinda, auknar iðgjalda-
greiðslur eða sameiningu sjóða. Ef
eign sjóðanna er umfram þessi mörk
ber stjórnum sjóðanna einnig að
bregðast við, væntanlega með því
að auka réttindin.
Bankaeftirlit getur
beitt dagsektum
Samkvæmt frumvarpinu fær
bankaeftirlit Seðlabankans heimildir
til að setja lífeyrissjóði skilyrði ef það
telur að hann brjóti lögin og til að
beita dagsektum ef lífeyrissjóður hlít-
ir ekki kröfum þess.
Núverandi löggjöf setur lífeyris-
sjóðunum ekki ströng skilyrði um að
þeir verði að eiga fyrir skuldbinding- ^
um sínum. Ákvæði um fjárhag er að
finna í reglugerðum sjóðanna og í
lögum um ársreikning og endurskoð-
un, en þar er með almennum orðum
talað um að fjárhagur sjóðanna þurfi .
að vera góður og bankaeftirlitinu er
gert að hafa eftirlit með starfsemi
þeirra. Aldrei hefur verið lögfest að .
jafnvægi þurfí að ríkja á milli eigna .
og skuldbindinga.
Sjö sjóðir
í vandræðum
Bankaeftirlitið hefur árlega gert H
fjármálaráðherra grein fyrir fjár- -
hag sjóðanna. í síðustu greinar- -
gerð, sem er orðin árs gömul, er 1
athygli vakin á að fjárhagur sjövj
sjóða sé þannig að meira en 10%
vanti upp á að þeir eigi fyrir skuld-
bindingum. Ásta Þórarinsdóttir,
deildarstjóri hjá bankaeftirlitinu,
sagði að staða þessara sjóða hefði
batnað og sumir væru komnir upp ■
fyrir þessi mörk.
Ásta sagði erfitt að segja til um
hvað margir sjóðir þyrftu að gera
ráðstafanir til að uppfylla ákvæði
frumvarpsins um mismun á eignum
og skuldbindingum. Fram að þessu
hefði ekki verið gerð trygginga-
fræðileg úttekt á öllum sjóðunum
árlega svo ítarlegar upplýsingar um ‘
stöðu þeirra allra lægju ekki fyrir.
Staða Lífeyrissjóðs bænda væri t.d.
mun betri en kæmi fram í síðustu
skýrslu bankaeftirlitsins. Sjóðir sem
hefðu staðið höllum fæti hefðu flest-
ir verið að gera ráðstafanir til að
jafna mun á eignum og skuldbind-
ingum. v
Skarpgreind,
sjáifsörugg
og metn-
aðarfull
„Á ekkert
sameiginlegt
með Mary
Robinson"