Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 45
son, þá orðinn skólastjóri Héraðs-
skólans á Laugarvatni. Hann var
gagnorður eins og jafnan: „Nú
kemur þú og kennir hjá mér í vet-
ur.“ Ég þurfti enga umhugsun til
að átta mig á því, að það vildi ég
allra helst allra mögulegra kosta.
Ég fylgdi honum þegar í stað og
hef ekki átt afturkvæmt úr því
starfi síðan. Fyrsta veturinn bjó ég
í Mörkinni í nábýli við þau Bene-
dikt. Þar fékk ég mína bestu há-
skólakennslu, því að á hveiju kvöldi
gekk ég í gegnum vegginn til þeirra
Benedikts og Öddu til að ræða fram
á nótt álitamál enskrar og danskrar
tungu. Aldrei brást að ég fengi
fullnægjandi svör, ef þau voru til,
fyrir utan allt kaffið pg alúðina
þeirra blessuðu hjóna. Ótrúleg var
þeirra þolinmæði og hjartarými án
takmarka. Þeim sé ævinlega þökk,
blessuð sé minning Benedikts.
Þór Vigfússon.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR KRISTINN BJÖRNSSON,
Þverási 39,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 24. október, verður
jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn
31. október klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamiegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
íva Bjarnadóttir,
Björn Halldórsson, Kristín Bjarnadóttir,
Edda Magndís Halldórsdóttir, Kristinn Jóhann Sigurðsson,
Viðar Halldórsson, Ragna Bogadóttir,
Gyða Halldórsdóttir, Guðjón Reynir Jóhannesson,
Dóra Kristín Halldórsdóttir, Kristján Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Um langt árabil gegndu héraðs-
skólar landsins veigamiklu hlut-
verki í mennta- og menningarlífi
þjóðarinnar. Héraðsskólinn á Laug-
arvatni stóð þar jafnan í fremstu
röð og naut sérstakrar virðingar
sem merkisberi í alþýðufræðslu
hinna dreifðu byggða. Sá góði skóli
var líka svo gæfusamur að hafa
jafnan á að skipa frábærum skóla-
mönnum sem höfðu til að bera
mikinn góðvilja, þekkingu og metn-
að, svo að árangur skólastarfsins
var eftir því mikill og ágætur.
Löngum á síðari hluta aldarinnar
naut Héraðsskólinn á Laugarvatni
forystu frábærs menningarmanns
sem var Benedikt Sigvaldason.
Hann lét af störfum við skóla sinn
fyrir fáum árum og hefur nú verið
kvaddur á braut til nýrra verkefna
og meira að starfa guðs um geim.
Við Benedikt vorum samtíðarmenn
og gegndum hliðstæðum störfum,
hvor á sínum stað um árabil. Með
okkur var jafnan margvíslegt sam-
starf sem og traust og góð vinátta,
svo að leiðin milli Skóga og Laugar-
vatns virtist bæði stutt og greið.
Oft heimsótti ég þennan góða
starfsbróður minn og naut ein-
stakrar gestrisni og góðvildar á
heimili hans og ágætrar eiginkonu
hans.
Það fór ekki fram hjá neinum
sem til þekkti, hversu skólabragur
allur var með miklum ágætum á
Laugarvatni. Þar var auðsjáanlega
valinn maður i hverju rúmi og
metnaðarful! forysta _ Benedikts
slík, að aðdáun vakti. Árangur af
slíku skólastarfí hlaut því að vera
mikill og góður, enda báru fjöl-
margir nemendur skólanum fagurt
vitni með ágætum námsárangri og
velgengni á lífsleiðinni.
En allt er í heiminum hverfult.
Hlutverki héraðsskóla er lokið. Því
valda nýir þjóðfélagshættir, breytt
fræðslulög og margt annað. í þess-
um skólum var unnið mikið og
merkilegt starf, sem lengi mun í
minnum haft. Og þegar við hugleið-
um framlag þessara skóla til menn-
ingar og þroska hins gróandi þjóð-
lífs í landinu, fer ekki hjá því að
nafn Benedikts Sigvaldasonar komi
upp í hugann og beri þar hátt.
Ævistarf sitt helgaði hann því að
efla menntun, manndóm og þroska
ailra þeirra sem í skóla hans dvöld-
ust og búa þá sem best undir gæfu-
ríkan feril á þjóðlífsins brautum.
Og hamingja hans var sú að sjá
mikinn árangur af þessu starfi.
Nú hefur sól brugðið sumri.
Benedikt Sigvaldason er horfinn
yfir móðuna miklu. Við sem eftir
stöndum hérna megin við fljótið
Styx kveðjum hann með söknuði,
þökkum honum ágæta og ánægju-
lega samfylgd og árnum honum
heilla á nýrri vegferð. Ég og fjöl-
skylda mín vottum eftirlifandi eig-
inkonu hans, Öddu Geirsdóttur,
syni hans og öðrum vandamönnum
einlæga samúð. Megi það vera
huggun harmi gegn að bjart er
yfir minningu um góðan dreng og
hún lifir áfram með okkur. Blessuð
sé minning Benedikts Sigvaldason-
ar.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR EYJA PÉTURSDÓTTIR,
Eiríksgötu 21,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudag-
inn 23. október verður jarðsungin frá Áskirkju í
dag, fimmtudaginn 30. október, kl. 15.00
Sigurður Guðmundsson, Áslaug Benediktsdóttir,
Sigríður Birna Guðmundsdóttir, Guðbjartur Vilhelmsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns og föður, tengdaföður, afa og
langafa,
GUNNARS ÓLAFSSONAR
frá Gilsbakka,
Vestmannabraut 10,
Vestmannaeyjum.
Þuríður Guðrún (Stella) Ottósdóttir
og fjölskylda.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar
TRAUSTI BJARNASON,
Höfðaholti 6,
Borgarnesi,
sem lést fimmtudaginn 23. október verður
jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstudaginn
31. október kl. 14.00.
Arngerður Sigtryggsdóttir,
Dröfn, Herdís, Hrannar,
Jóhann og Viðar Traustabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SVERRIS JÓNSSONAR,
Laugarbrekku 1,
Húsavík.
Sérstakar þakkir til þeirra björgunar- og
hjálparsveitarmanna sem kallaðir voru til leitar
þann 15. október sl.
Þórný Björnsdóttir,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
t
Innilegar þakkirtil allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
KRISTÓFERS S. SNÆBJÖRNSSONAR
frá Hellu,
Hellissandi,
Svanhildur Snæbjönsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR,
Vallholti 33,
Seifossi,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Suðuriands
fimmtudaginn 23. október síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Selfosskirkju iaugardaginn
1. nóvember nk. kl. 13.30.
Erling Gunnlaugsson,
Gunnar Erlingsson, Gróa J. Skúladóttir,
Sigríður Erlingsdóttir,
Hörður Erlingsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug, samúð og einstaka
vináttu á erfiðum stundum við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu, móður okkar, dóttur og
tengdadóttur,
ELÍNAR ÁRNADÓTTUR,
Sílatjörn 12,
Selfossi.
Guð blessi ykkur öll.
Brynjar Jón Stefánsson,
Sigrún Arna Brynjarsdóttir,
Böðvar Dór Brynjarsson,
Árni Sigurjónsson,
Sigrún Jónsdóttir og Stefán Á. Þórðarson
og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa
GUÐFINNS SIGFÚSSONAR
bakarameistara,
Ánalandi 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við hjúkrunarfólki
deildar 3B Landakotsspítala fyrir einstaka umönnun og alúð.
ingibjörg Guðmundsdóttir,
Sveinn Rúnar Hauksson,
Óttar Felix Hauksson,
Sigríður Hauksdóttir,
Sigfús Guðfinnsson,
Guðmundur Guðfinnsson,
María Guðfinnsdóttir,
Björk Vilhelmsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Evald Sæmundsen,
Andrea María Henk,
Lena Gústafsdóttir,
Hörður Hauksson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, fóstur-
föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÓLAFS BERTELS PÁLMASONAR,
Reynimel 88,
Reykjavík.
Marta Sigr. J. Sigurðardóttir.
Pálmar Sveinn Ólafsson, Sigríður Stephensen,
Regína Sigríður Ólafsdóttir, Valgarð Blöndai,
Hafdís Brandsdóttir, Magnús Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega vináttu og hlýju við fráfall og
útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
STEINUNNAR GUÐNÝJAR
MAGNÚSDÓTTUR.
Skúli Halldórsson
og fjölskylda.
Jón R. Hjálmarsson.